Morgunblaðið - 11.08.2003, Page 1
2003 MÁNUDAGUR 11. ÁGÚST BLAÐ B
B L A Ð A L L R A L A N D S M A N N A
STÚLKURNAR VORU ÓHEPPNAR Í RÚSSLANDI / B2
Pétur var mjög hissa á að vera íbyrjunarliðinu og sagði í sam-
tali við Morgunblaðið að hann hefði
ekki einu sinni búist við því að
verða í leikmannahópnum. „Það
kom mér mjög á óvart að hafa verið
í leikmannahópnum og hvað þá í
byrjunarliðinu. Á undirbúnings-
tímabilinu var ég búinn að spila
einn æfingaleik og það var ekkert
sem benti til þess að ég myndi fá
einhver tækifæri með aðalliði
Stoke. Það hefur verið reynt tvisvar
sinnum að gera starfslokasamning
við mig og því kom það mér í opna
skjöldu þegar knattspyrnustjórinn
tilkynnti mér á föstudaginn að ég
yrði í byrjunarliðinu. Þó að mér
hafi gengið nokkuð vel í leiknum og
liðið hafi leikið mjög vel hef ég ekki
hugmynd um hvort ég heldsæti
mínu í liðinu í næsta leik, þar sem
ég er orðinn öllu vanur hjá Stoke.
Eina sem ég get gert er að æfa vel
og spila vel þegar ég fæ tækifæri til
þess og það ætla ég mér að gera
áfram,“ sagði Pétur Marteinsson.
Pétur hissa á að fá tækifæri
PÉTUR Marteinsson var óvænt í byrjunarliði Stoke City gegn Derby
County á laugardaginn í ensku 1.deildinni. Stoke sigraði, 3:0, á úti-
velli og var Tony Pulis, knattspyrnustjóri Stoke, mjög ánægður með
spilamennsku liðsins og framgöngu nýju leikmannanna hjá Stoke
en sex nýir leikmenn voru að spila sinn fyrsta deildarleik fyrir liðið.
Ljósmynd/Óskar Sæmundsson
RÚMENINN Adrian Mutu er nýjasti leikmað-
urinn sem gengur til liðs við rússnesku bylting-
una hjá Chelsea. Á laugardag samþykkti ítalska
liðið Parma 15,8 milljóna punda tilboð Chelsea í
Mutu, sem er 24 ára gamall sóknarmaður. Mutu
sló í gegn í ítölsku deildinni á síðustu leiktíð og
gerði 17 mörk. Í samtali við fjölmiðla sagði
Mutu: „Dan Petrescu mælti með Chelsea við
mig og eftir að hafa ráðfært mig við hann varð
ég sannfærður. Það er mjög erfitt fyrir mig að
fara frá Parma en Chelsea gerði mér tilboð sem
ég gat ekki hafnað.“
Eftir kaupin á Mutu hefur Chelsea eytt 75
milljónum pundum í leikmenn frá því að rúss-
neski milljarðamæringurinn Roman Abramo-
vich keypti félagið. Fyrir eru komnir Damien
Duff, Geremi, Glen Johnson, Wayne Bridge,
Juan Sebastian Veron og Joe Cole.
Mutu til liðs
við Chelsea
ÍSLENSKA unglingalandsliðið
skipað leikmönnum 18 ára og
yngri vann á laugardag sinn
annan sigur í úrslitakeppni
Evrópumóts landsliða. Fórn-
arlömb laugardagsins voru
heimamenn í Slóvakíu. Ísland
sigraði í miklum spennuleik
29:28. Ísland leiddi í hálfleik
13:10 og náði sex marka forystu
í upphafi síðari hálfleiks 19:13.
Þá dró aðeins af Íslendingum
og þegar stutt var eftir tókst
Slóvökum að jafna metin 27:27.
Þá tök Heimir Ríkharðsson,
þjálfari íslenska liðsins, leikhlé.
Eftir leikhléið skoruðu Íslend-
ingar tvö mörk í röð en Slóvök-
um tókst að minnka muninn
29:28 og höfðu boltann á loka-
sekúndunum. En íslenska vörn-
in hélt út og stóðst áhlaup slóv-
akísku sóknarinnar. Marka-
hæstir í liði Íslands voru Ásgeir
Örn Hallgrímsson með 10 mörk
og Arnór Atlason gerði 6 mörk.
Þá stóð Björgvin Gústavsson
vaktina vel í markinu og varði
19 skot.
Mikill hiti var í íþróttahöll-
inni í Slóvakíu enda engin loft-
kæling. Áhorfendur voru um
1300 talsins. Næsti leikur Ís-
lands er gegn Þjóðverjum í dag.
Glæsilegur sigur
á Slóvökum
Þarna er um draumastarf að ræðaenda get ég með því einbeitt
mér alfarið að þjálfun og lifað af
henni,“ sagði Vésteinn í samtali við
Morgunblaðið. Hann tekur við starf-
inu 1. október og flytur þá um leið
með fjölskyldu sína til Árósa frá Hels-
ingborg í Svíþjóð, en í Árósum hefur
danska frjálsíþróttasambandið í sam-
vinnu við danska íþrótta- og ólympíu-
sambandið byggt upp fullkomna æf-
ingaaðstöðu til frjálsíþrótta.
Vésteinn hefur undanfarin ár verið
þjálfari þriggja kringlukastara,
tveggja Íslendinga og eins frá Eist-
landi. Hann segist halda því áfram og
kringlukastararnir bætist við þann
hóp danskra íþróttamanna sem verða
í umsjón Vésteins, þar á meðal kúlu-
varparinn Olsen sem er helsta kempa
Dana á sviði frjálsíþrótta ásamt
heimsmethafanum í 800 m hlaupi Wil-
son Kipketer. „Ég sé fram á að þetta
nýja starf verði eingöngu til að
styrkja þá íþróttamenn sem ég er
þegar með á minni könnu,“ segir Vé-
steinn sem reiknar hins vegar með að
hætta umboðsmennsku fyrir frjáls-
íþróttamenn, slíkt fari ekki saman við
nýja starfið.
Vésteinn segir ráðninguna hafa átt
sér nokkurn aðdraganda. Hann hafi
um nokkurra ára skeið leitað fyrir sér
um að geta einbeitt sér að þjálfun
kastara og meðal annars leitað eftir
starfi í Bandaríkjunum. Afturkippur
hafi komið í allt vestra eftir hryðju-
verkin 11. september 2001. Danirnir
hafi fyrst komið að máli við sig á Evr-
ópumeistaramótinu í München fyrir
réttu ári síðan. „Málið hefur gerjast
síðasta árið en síðan tók ég ákvörðun
fyrir þremur vikum um að taka það
að mér. Ég er spenntur og hlakka til
að takast á við það af fullum krafti.“
Vésteinn er einn reyndasti frjáls-
íþróttamaður Íslands, tók hann þátt í
fernum Ólympíuleikum og fjölmörg-
um Evrópu- og heimsmeistaramót-
um. Auk þess var hann landsliðsþjálf-
ari Íslands um fimm ára skeið frá
1997 þar til á síðasta hausti og á þeim
tíma fylgdi hann fremstu frjáls-
íþróttamönnum Íslands á öll helstu
stórmót viðsvegar um heim á þeim
tíma, m.a. á ÓL í Sydney 2000.
Vésteinn
landsliðs-
þjálfari Dana
VÉSTEINN Hafsteinsson, Íslandsmethafi í kringlukasti og fyrrver-
andi landsliðsþjálfari í frjálsíþróttum, hefur verið ráðinn lands-
liðsþjálfari Dana í kastgreinum frjálsíþrótta. Þetta var tilkynnt á
blaðamannafundi danska frjálsíþróttasambandsins á laugardag-
inn. Samningur Vésteins við Danina er til ársins 2008 en að auki
verður Vésteinn einkaþjálfari eins fremsta kúluvarpara Norður-
landa, Joachims Olsen, en hann á danska metið, 21,57 metra. ÍSLANDSMEISTARARNIR Birgir Leifur
Hafþórsson og Ragnhildur Sigurðardóttir
urðu sigurvegarar á næst síðasta stiga-
móti Golfsambandsins sem lauk í gær á
Grafarholtsvelli. Birgir lék hringina tvo á
137 höggum – hann setti vallarmet fyrri
daginn, er hann lék á 67 höggum. Ragn-
hildur sigraði með yfirburðum í kvenna-
flokki, lék á 145 höggum. Hér á mynd-
unum eru meistararnir í leik.
Meistararnir
sigurvegarar