Morgunblaðið - 11.08.2003, Side 1
Fasteignablaðið
mánudagur 11. ágúst 2003 mbl.is
w
w
w
.f
rj
a
ls
i.
is
Ráðgjafar okkar veita allar nánari upplýsingar. Þú getur
komið við í Ármúla 13a, hringt í síma 540 5000 eða sent
tölvupóst á frjalsi@frjalsi.is
Ertu að kaupa, byggja eða breyta? Þú getur á auðveldan
hátt samið um fasteigna- eða framkvæmdalán hjá Frjálsa
fjárfestingarbankanum. Um er að ræða hagstætt lán, sem
veitt er til allt að 30 ára gegn veði í fasteign.
Dæmi um mánaðarlega greiðslubyrði af 1.000.000 kr.*
Vextir % 6,50% 7,50% 8,50% 9,50% 10,00%
5 ár 19.600 20.000 20.500 21.000 21.200
15 ár 8.700 9.300 9.800 10.400 10.700
30 ár 6.300 7.000 7.700 8.400 8.800
*Lán með jafngreiðsluaðferð án verðbóta.
Frjálsa fjárfestingarbankans
Fasteignalán
Allt að 80%veðsetningarhlutfallaf verðmæti fasteignar
Óendanlegir
möguleikar
Þúsundir fasteigna af öllum stærðum og öllum gerðum alls staðar á landinu
// Endurbyggt hús
Grjótagata 11 er endurbyggt hús. Það stóð
áður á Tjarnargötu 3c, þar bjó Indriði Ein-
arsson og þar var Leikfélag Reykjavíkur
stofnað 1897. 2
// Vatnsstígur 10a
Jes Ziemsen, Mjólkurfélag Reykjavíkur,
Magnús Jónsson trésmiður og MÍR voru með-
al þeirra sem áttu og ráku starfsemi á
Vatnsstíg 10a. 26
// Plaströr leyfð?
Leyfir Tortímandinn, Arnold Schwarzen-
egger, plaströr í Kaliforníu? spyr Sigurður
Grétar Guðmundsson í pistli sínum
Lagnafréttum. 37
// Viðhald svala
Svalir á fjöleignarhúsum, viðgerðir á þeim og
endurnýjun þeirra er umfjöllunarefni Hrund-
ar Kristinsdóttur hdl. hjá Húseigendafélag-
inu. 40
NÚ STANDA yfir framkvæmdir við endurnýjun
gamla barnaskólans á Ísafirði við Aðalstræti, þær
eru liður í byggingu nýs skólakjarna fyrir grunn-
skólann sem reistur verður í framhaldi af þessu.
„Verið er í fyrsta áfanga að endurnýja ytra
byrði gamla barnaskólans. Bárujárn var yfir tvö-
faldri gamalli timburklæðningu en nú verður sett
ný timburklæðning með tilheyrandi skrauti í
upphaflegum stíl,“ sagði Sigurður Mar, bæjar-
tæknifræðingur á Ísafirði.
„Gamli barnaskólinn var reistur 1901 og hefur
Húsafriðunarnefnd lýst yfir vilja til að friða
kennslustofur og gang frá fyrstu gerð hússins.
Síðar var byggt við húsið en sú viðbót verður fjar-
lægð þegar byggðar verða nýjar kennslubygg-
ingar rétt við gamla barnaskólann, en hann verð-
ur hluti þess byggingakjarna sem áformað er að
reisa í framhaldi af hugmyndasamkeppni um
framtíðarhúsnæði fyrir grunnskólann á Ísafirði
sem fram fór fyrir ári.
Það voru arkitektarnir Örn Þór Halldórsson og
Einar Ólafsson sem unnu samkeppnina og á
grundvelli þeirra hugmynda verður skólakjarn-
inn reistur. Fyrsti áfanginn í þessari aðgerð er
endurnýjun gamla barnaskólans, í sumar verður
framhlið hússins komið í upphaflegt form. Til-
tölulega litlar viðgerðir þarf að gera á burðar-
virki hússins. Þegar hafa gluggar verið teknir úr
húsinu og nýir smíðaðir og verið er að setja þá í.
Gamli barnaskólinn var byggður á staðnum af
smiðum á Ísafirði og notuð í ytra byrði venjuleg
nótuð klæðning. Sex kennslustofur og gangur er
svæðið sem friðað verður og er fyrirhugað að
hafa þarna kennslustofur áfram í hinum skóla-
kjarnanum. Alltaf hefur verið kennslustarf í
þessu húsi, fyrst barnakennsla en síðar hóf
Menntaskólinn á Ísafirði starfsemi sína þarna.
Grunnskóli hefur verið í húsinu undanfarin ár
fyrir yngstu árganga.Verktakafyrirtækið Eirík-
ur og Einar Valur ehf. annast framkvæmdirnar.
Útboðsgögn eru unnin af Teiknistofunni Kol &
salt.“
Gamli barnaskólinn
á Ísafirði endurnýjaður
Hafnar eru framkvæmdir við endurnýjun gamla barnaskólans á Ísafirði.
! " ## # $ # % & &
$ &! # % " & # #
'()* )
*
&
+
,-.
/ *0
1 +
2 3..
4 )5
&
4 )5
") (
4 )5
&
4 )5
6
76
6
6
6
!!!"
8
8
666
66
666
66
666
66
!#
$
%
%#
%#
!%
& '
7
6 7
&
)
(
7
9 6