Morgunblaðið - 15.08.2003, Blaðsíða 44
ÍÞRÓTTIR
44 FÖSTUDAGUR 15. ÁGÚST 2003 MORGUNBLAÐIÐ
FÓLK
HELMUT Rahn, 73 ára, sem var
ein af hetjum Þjóðverja á HM í Sviss
1954, þar sem þeir urðu heimsmeist-
arar, lést í gær. Rahn varð þjóðhetja
í Þýskalandi þegar hann skoraði sig-
urmark Þjóðverja í úrslitaleik gegn
Ungverjum í Bern, 3:2. Hann lék 40
landsleiki og skoraði 21 mark.
TATIANA Grigorieva, silfurverð-
launahafi í stangarstökki á ólympíu-
leikunum í Sydney fyrir þremur ár-
um, verður ekki á meðal keppenda á
HM í frjálsum sem fram fer í París
síðar í þessum mánuði. Grigorieva
náði ekki lágmarkinu en til þess
hefði hún þurft að stökkva yfir 4,40
metra.
GRIGORIEVA, sem er ástralskur
ríkisborgari en er fædd í Rússlandi,
náði aðeins af fara yfir 4,23 metra og
þar með er ljóst að tveir verðlauna-
hafar frá ólympíuleikunum í Sydney
verða ekki á meðal keppenda, hún og
Vala Flosadóttir.
DAVID May, fyrrum leikmaður
Blackburn og Manchester United,
er genginn til liðs við enska 1. deildar
liðið Burnley. Þessi 33 ára gamli
varnarmaður, sem leystur var undan
samningi hjá Manchester United í
sumar, virtist á leið til Glasgow
Rangers. Hann var þar til reynslu og
fór með félaginu í æfingaferð til
Þýskalands en ekkert varð úr samn-
ingi hans við liðið.
PAUL Lambert, fyrirliði Celtic og
skoska landsliðsins í knattspyrnu, er
hættur við að leggja landsliðsskóna á
hilluna og hefur hann gefið kost á sér
í vináttuleik Skota við Norðmenn í
næstu viku. Berti Vogts, landsliðs-
þjálfari Skota, hefur lagt hart að
Lambert að halda áfram enda eru
Skotar í harðri baráttu við Þjóðverja
og Íslendinga um efstu tvö sætin í
undankeppni EM.
MIKAEL Silvestre, varnarmaður
Manchester United, varð fyrir
meiðslum í æfingaleiknum við Stoke
í fyrrakvöld og jók það enn á vand-
ræði Sir Alex Ferguson um það
hvernig hann stillir upp vörn sinni á
móti Bolton í 1. umferð ensku úrvals-
deildarinnar á laugardag. Meiðsla-
hrina hefur gengið yfir varnarmenn
United að undanförnu. Gary Neville
og Wes Brown eru báðir frá og þeir
Phil Neville, Quinton Fortune og nú
Silvestre eru tæpir vegna meiðsla.
ÍRÖKUM hefur verið boðin þátt-
taka í Ólympíuleikunum í Aþenu á
næsta ári. Alþjóðaólympíunefndin
hyggst koma Írökum til hjálpar enda
er engin ólympíunefnd til í landinu
sem stendur. Uday, sonur Saddam
Husseins, var formaður ólympíu-
nefndarinnar í Írak en eftir árás
Bandaríkjamanna á Írak, þar sem
Uday var meðal þeirra sem létu lífið í
árásinni, þarf Alþjóðaólympíunefnd-
in að grípa inn í.
Leirumótið -
Happi opið mót
Sunnudaginn 17. ágúst
Höggleikur með/án forgj., hámarksforgj. karla 24, konur 28.
Keppt verður í fjórum flokkum.
Karlar: 50 - 54 ára. Verðlaun: 1-3 sæti með forgj. og besta skor.
Karlar: 55 ára og eldri. Verðlaun: 1-3 sæti með og án forgjafar.
Karlar: 70 ára og eldri. Verðlaun: 1-3 sæti með forgj. og besta skor.
Konur: 50 ára og eldri. Verðlaun: 1-3 sæti með forgj. og besta skor.
Þetta er síðasta viðmiðunarmót 70 ára og eldri og spila þeir á gulu
Nándarverðlaun
á öllum par 3 holum vallarins.
Keppnisgjald kr. 2.500
Ræst út kl. 08:00 - 15:00
Skráning fer fram á www.golf.is og í síma 421 4100
Leikmenn Kärnten keyrðu upphraðann strax frá byrjun og
Grindvíkingar áttu í vök að verjast
allan fyrri hálfleikinn. Þeim tókst
síðan að skora úr fyrstu alvörusókn
sinni á 27. mínútu en Paul McShane
var dæmdur rangstæður. Tveimur
mínútum síðar tók Kärnten foryst-
una þegar yngsti leikmaður liðsins,
hinn tvítugi Robert Schellander,
skoraði beint úr aukaspyrnu af 30
metra færi. Hann skaut föstu skoti
með jörðinni sem Helgi Már Helga-
son markvörður réð ekki við. Að-
eins tveimur mínútum síðar fékk
Grindavík sitt eina færi í fyrri hálf-
leik þegar Óli Stefán skallaði
framhjá eftir aukaspyrnu Eyþórs
Atla Einarssonar. Kärnten átti tíu
marktilraunir í hálfleiknum, gegn
þessari einu.
Svipað var uppi á teningunum
framan af síðari hálfleik og Helgi
Már varði tvisvar mjög vel á fyrstu
tíu mínútunum. En um miðjan hálf-
leikinn fór að draga af Kärnten og
Grindavík komst betur inn í leikinn.
Á 65. mínútu munaði engu að Ólaf-
ur Örn Bjarnason jafnaði þegar
hann átti skalla af stuttu færi eftir
aukaspyrnu Eyþórs en Roland
Goriupp varði mjög vel. Óli Stefán
fékk skömmu síðar upplagt skot-
færi rétt utan vítateigs en boltinn
fór yfir.
Á 75. mínútu óð bakvörðurinn
Sasa Papac inn í vítateig Grindavík-
ur þar sem Sinisa Kekic braut á
honum. Vítaspyrna, og úr henni
skoraði Ungverjinn Peter Kabat,
2:0, en Helgi Már var nálægt því að
verja.
Grindvíkingar gáfust ekki upp og
rétt eftir markið bjargaði Helgi
Kolviðsson á síðustu stundu við
mark Kärnten eftir góða sókn
þeirra. Og á 82. mínútu kom markið
sem getur skipt öllu máli. Eyþór
tók hornspyrnu frá vinstri, Ólafur
Örn skallaði að marki, og við stöng-
ina hægra megin var Óli Stefán vel
vakandi og skoraði með skalla af
stuttu færi, 2:1.
Kärnten sótti stíft í lokin. Grind-
víkingar sluppu fyrir horn þegar
boltinn fór í hönd varnarmanns eft-
ir fyrirgjöf Helga Kolviðssonar, og
sían varði Helgi Már þrumuskot og
Óðinn Árnason bjargaði í kjölfarið.
Spilum ekki upp á
jafntefli á Íslandi
„Þetta var lélegt hjá okkur og
mikill klaufaskapur að nýta ekki yf-
irburðina sem við höfðum í fyrri
hálfleiknum. Við vorum hvað eftir
annað með boltann í ákjósanlegum
stöðum en unnum ekki úr því sem
skyldi, og nýttum ekki þau færi
sem við fengum. En við förum ekki
til Íslands til að spila upp á jafntefli
þótt staðan sé 2:1, við mætum í
þann leik til að sigra,“ sagði Helgi
Kolviðsson við Morgunblaðið. Hann
lék sem aftasti miðjumaður Kärnt-
en og tók því ekki mikinn þátt í
sóknarleik liðsins en var drjúgur á
miðjunni. „Ég varð að spila aftar-
lega þar sem lykilmenn í varnarleik
okkar voru frá vegna meiðsla,“
sagði Helgi.
„Grindvíkingar léku alveg eins og
við bjuggumst við. Þeir eru sterkir
og skynsamir, Kekic og Ólafur Örn
voru mjög góðir í vörninni, og þeir
Óli Stefán og McShane voru hættu-
legir í skyndisóknunum. Við vissum
að þeir væru sterkir í aukaspyrnum
og hornspyrnum og það kom ein-
mitt á daginn, þannig skoruðu þeir
og fengu sín bestu færi.“
Grindvíkingar eiga
góða möguleika
GRINDVÍKINGAR eiga ágæta möguleika á að komast áfram í UEFA-
bikarnum eftir nauman ósigur, 2:1, gegn Helga Kolviðssyni og sam-
herjum hans í austurríska liðinu Kärnten í gær. Austurríkismenn-
irnir sóttu grimmt á heimavelli sínum í Klagenfurt en uppskáru að-
eins mörk úr aukaspyrnu og vítaspyrnu. Óli Stefán Flóventsson
náði að minnka muninn fyrir Grindavík þegar átta mínútur voru til
leiksloka og það mark getur reynst liðinu geysilega dýrmætt. Liðin
mætast aftur í Grindavík hinn 28. ágúst en þrátt fyrir þessar loka-
tölur er ljóst að Grindvíkingar þurfa mjög góðan leik á sínum heima-
velli til að slá austurríska liðið úr keppni.
Morgunblaðið/Kristinn
Ólafur Örn Bjarnason og félagar í Grindavík töpuðu 2:1 fyrir
Helga Kolviðssyni og f́élögum í Kärnten í Austurríki.
GUÐMUNDUR Steinarsson, knattspyrnumaður, er
hættur að leika með Fram og er á leið til Danmerkur
þar sem hann mun leika með danska 1. deildarliðinu
Brönshöj. Guðmundur er ekki ókunnugur danska liðinu
en hann lék sjö leiki með því í vor og skoraði fjögur
mörk. „Það er rétt. Ég er hættur að spila með Fram og
held utan til Danmerkur á miðvikudaginn. Það voru
engin leiðindi á bak við þetta og við komumst að sam-
eiginlegri niðurstöðu um að ég fengi að fara. Ég hef
ekki verið inni í myndinni hvað liðið varðar í síðustu
leikjum og þegar Brönshöj setti sig í samband við mig
ákvað ég að fá mig lausan þar sem fresturinn til að
skipta um félag í Danmörku rennur út 1. september.
Það er aðalástæðan fyrir því að ég fer strax,“ sagði
Guðmundur við Morgunblaðið.
Guðmundur gekk í raðir Framara fyrir tímabilið og
gerði samning sem gilti út leiktíðina. Hann lék 11 leiki
liðsins í úrvalsdeildinni án þess að skora mark en hann
skoraði 28 mörk fyrir Keflvíkinga í 82 leikjum liðsins í
efstu deild.
Guðmundur
hættur í Fram
ARNAR Sigurðsson varð í gær Íslands-
meistari í einliðaleik karla í tennis, sjö-
unda árið í röð. Hjá konum lenti bikarinn
í nýjum höndum því Soumia Islami fagn-
aði sigri í fyrsta sinn.
Arnar vann Davíð Halldórsson 6-1 og
6-0 í úrslitum en Soumia lagði Sigur-
laugu Sigurðardóttur 6-1 og 6-3 í úrslit-
um.
Í tvíliðaleik karla unnu Arnar og Davíð
þá Andra Jónsson og Jón Axel Jónsson
6-4 og 6-2 en Sigurlaug og Stella Rún
Kristjánsdóttir unnu systurnar Rakel og
Rebekku Pétursdætur 6-3 og 6-2.
Meistarar í tvenndarleik urðu systkinin
Arnar og Sigurlaug en þau lögðu syst-
kinin Hafstein Dan og Stellu Rún Kristj-
ánsbörn 6-3 og 6-3.
Arnar
Sigurðsson
Arnar meist-
ari sjöunda
árið í röð
Soumia
Islami
„ÞAÐ tók okkur talsverðan tíma að
komast inn í leikinn og nokkurs
taugatitrings gætti í liðinu framan
af leik. En þeir fengu smám saman
sjálfstraust og þegar upp er staðið
eru úrslitin mjög góð. Markið sem
Óli Stefán skoraði gefur okkur líf
fyrir seinni leikinn, og um leið
meiri trú á að við getum sigrað lið
Kärnten í heimaleiknum. Að því
stefnum við og ætlum að gera allt
til að komast áfram,“ sagði Bjarni
Jóhannsson þjálfari Grindavíkur
við Morgunblaðið eftir leikinn í
Austurríki í gær.
„Við náðum að verjast ágætlega í
fyrri hálfleiknum, og í raun í leikn-
um í heild, því mörkin sem við feng-
um á okkur voru úr aukaspyrnu og
vítaspyrnu. Austurríska liðið lék
mjög vel í fyrri hálfleik og var þá
mun betra en í deildaleiknum sem
ég sá með því um daginn. Í seinni
hálfleiknum breytti ég um leik-
aðferð, fór úr 4-5-1 í 4-4-2, og við
það komumst við betur inn í leikinn
og sjálfstraustið fór vaxandi eftir
því sem á leið. Leikurinn þróaðist
smám saman okkur í hag, við höfð-
um meiri kraft en þeir eftir því sem
leið á leikinn, og þetta er gott vega-
nesti að fara með í seinni leikinn
heima í Grindavík.,“ sagði Bjarni.
Ausandi rigning var á meðan
leikurinn stóð yfir en Grindvík-
ingar höfðu búið sig undir leikinn í
miklum hita. „Við æfðum í 40 gráða
hita í gær en þar sem við komum
tímanlega til Austurríkis vorum við
búnir að venjast því ágætlega. En
það var gott að spila í 20 stiga hita,
svipuðu hitastigi og hefur verið í
Grindavík í sumar,“ sagði Bjarni
Jóhannsson.
„Markið gefur okkur líf“