Morgunblaðið - 16.08.2003, Blaðsíða 23
NEYTENDUR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 16. ÁGÚST 2003 23
Líffæri kornabarna eru viðkvæm, ekki síst
gagnvart mengun og skordýraeitri. Því er ráðlegt
að gefa smábörnum barnamat sem framleiddur
er úr lífrænt ræktuðu hráefni. Lífræn ræktun
notar hvorki kemískan áburð né skordýraeitur.
Töluverð umræða hefur verið um það í seinni tíð
að börn séu orðin óæskilega þung hérlendis, m.a.
vegna óhóflegrar sykurneyslu frá unga aldri. Börn
eru fljót að ánetjast sætabragðinu, því er heppi-
legt að forðast það frá upphafi. Babynat er laust
við viðbættan sykur.
Nokkrir af kostum Babynat barnamatar
• Aðeins hráefni úr vottaðri lífrænni ræktun
• Við samsetningu næringarefna er stuðst við nýjustu
rannsóknir um næringarþörf barna
• Ekkert hráefni úr erfðabreyttum matjurtum
• Hvorki salti né sykri bætt í
Babynat býður m.a. upp á þurrmjólk fyrir börn
frá fæðingu, ávaxtasafa fyrir börn frá fjögurra
mánaða aldri, grauta úr korni og grænmeti, mauk
úr ávöxtum, grænmeti og öðrum mætvælum fyrir
börn frá fjögurra mánaða aldri. Þrátt fyrir lífræna
ræktun er Babynat á afar sanngjörnu verði.
Kynningartilboð til 22. ágúst:
Þú kaupir 2 glös og færð 3ja í kaupbæti!
Kynningartilboð
Babynat lífrænn barnamatur
MIKILL verðmunur er á skóla-
vörum um þessar mundir og þeg-
ar Morgunblaðið kannaði verðið í
gær kostaði 80 síðna A4 stílabók
með gormum minnst 72 kr. í Off-
ice 1, en mest 185 kr. í Penn-
anum-Eymundssyni Austurstræti,
og er munurinn 157%.
Enn meiri munur var á öðrum
vörum, lausblaðamöppur með vír-
um voru fimmfalt dýrari í Griffli
en í Bónus og Fjarðarkaupum, en
þar getur verið um mismunandi
vörur að ræða.
Hægt er að tala um verðstríð á
Boxy-strokleðrum. Þau voru
ódýrust í Office 1 á 25 kr. en dýr-
ust í Skólavörubúðinni Kópavogi
og Bókabúð Böðvars, 95 kr. Í
Bókabúð Böðvars var einmitt ver-
ið að vinna að því að lækka verð
og var því ekki lokið þegar könn-
unin var gerð.
Kannaðar voru bæði algengar
vörur og ákveðin vörumerki. Þar
sem vörur í þessum ákveðnu
vörumerkjum voru ekki til voru
oftast nær til aðrar sambærilegar
vörur í versluninni. Víða var tals-
verður verðmunur á algengum
vörumerkjum. Til dæmis munaði
88% á verði UHU-límstiftis af
minnstu gerð, og var það ódýrast
í Griffli, 93 kr., en dýrast í Máli
og menningu Síðumúla, 175 kr.
Verðmunur á 10 númeruðum
millispjöldum í möppur var einnig
talsverður. Lægsta verðið var 68
kr. í Fjarðarkaupum, en mest
kostuðu þau 129 kr. í Pennanum-
Eymundssyni og Máli og menn-
ingu. Munurinn á hæsta og
lægsta verði er því um 90%.
Verslun með skólavörur er að
komast á skrið, segir Gunnur Vil-
borg Guðjónsdóttir, verslunar-
stjóri í Pennanum-Eymundssyni í
Austurstræti. Hún segir harða
samkeppni ríkja á þessum mark-
aði: „Allir hafa metnað til að vera
með besta verðið.“
Stórmarkaðir
„fleyta rjómann“
„Við getum ekki keppt við stór-
markaðina,“ segir Þorgerður
Nielsen, eigandi Bókabúðar Böðv-
ars. Hún bendir á að bóka- og rit-
fangaverslanir selji allan ársins
hring á meðan stórmarkaðir
„fleyti rjómann“ af skólavöru-
versluninni og jólabókasölunni.
„Þessi sala skiptir þá engu
máli, þeir eru bara að þessu til að
fá fólkið inn í búðina. En þeir
þurfa ekki á því að halda, fólk
þarf að kaupa í matinn, en þetta
er það sem við lifum á. Þeir
leggja ekkert á þetta.“ Þorgerður
segir að til dæmis sé heildsölu-
verð á Boxy-strokleðri um 65
krónur með virðisaukaskatti og
því ljóst að þau séu seld langt
undir kostnaðarverði. Þó sé hægt
að fá aðrar tegundir af strokleðr-
um mun ódýrari, allt niður í 19
kr.
Verðkönnun á skólavörum í ritfangaverslunum og stórmörkuðum
157% verðmunur á stíla-
bókum með gormum
!
"#$#
%&'
( )
*'
&(
#+
,
,"
#-
) ( ./.
((
0
% 1 % % 1 , % "! %"
/( 2' "!"3)""""
( ( 4
/
5" ""
,)"""
6 1
7)(((
!!
8-)#
9("!)!8!!
6 1 "5
!"
#$
%
&
#%
!%
'
"
"!
%%
"&
'
'
("
'
(%
#
%
($
"
"
%%
&%
!%
#&
!%
$$
"%
%
"
%$
((
%
&"
#!
#%
##
#"
#%
#&
!
(
%
%(
%
%&
%(
"%
!!$
!
&
"
#'
%
#'
%
&$
%(
'$
%%
(%
&
"
/(
(
SÖFNUN á notuðu skóladóti fer
fram á Skóladögum í Smáralind,
sem standa fram til 24. ágúst,
og mun það dót sem safnast
fara til skólabarna í Kamerún í
Vestur-Afríku.
Mikill skortur er á ýmsu í
Kamerún, og mikil þörf fyrir til
dæmis notaða penna og blýanta,
strokleður, hálfnotaðar stíla-
bækur, reglustikur, pennaveski
eða skólatöskur, segir Jenný
Jóakimsdóttir, einn af aðstand-
endum verkefnisins. Söfnunin er
samstarfsverkefni Junior Cham-
ber Garðabæ og Kópavogi (JC
GK) og Junior Chamber í bæn-
um Mamfe í Kamerún.
Mamfe er 21.000 manna bær í
suð- vesturhluta Kamerún við
landamæri Nígeríu. Um 20%
íbúa búa við varanlegt atvinnu-
leysi og er mikil fátækt á svæð-
inu.
Morgunblaðið/Kristinn
Nokkuð hafði safnast af skólavörum á söfnunarborði JC GK í Smáralind
seinnipartinn á föstudag þegar ljósmyndara bar þar að garði.
Safna notuðu skóladóti
fyrir börn í Kamerún
FRAMLEIÐENDUR lífrænt
ræktaðs grænmetis verða með úti-
markað á Káratorgi, á mótum
Kárastígs og Frakkastígs, milli
klukkan 14 og 18 í dag. Á þessari
lífrænu uppskeruhátíð koma sam-
an framleiðendur hinna ýmsu teg-
unda lífrænna vara, grænmetis,
jógúrts, brauðs o.fl. og selja vöru
sína. Tónlistarmenn verða á svæð-
inu og ósvikinni markaðsstemn-
ingu lofað.
Lífrænn mark-
aður á Káratorgi
PENNINN-Eymundsson og tón-
listarverslunin 12 tónar hafa gert
með sér samning um sölu á geisla-
diskum 12 tóna í verslun Pennans-
Eymundssonar í Austurstræti.
Forsvarsmenn Pennans-Ey-
mundssonar segja að með þessu sé
verið að koma til móts við þarfir
viðskiptavinanna, sem vilji gjarnan
geta keypt bækur og tónlist á
sama stað. „Þarna getur fólk sam-
einað áhuga á bókum og tónlist og
gefið sér góðan tíma til að njóta
hvors tveggja“, segir Ingþór Ás-
geirsson, framkvæmdastjóri versl-
unarsviðs.
Tónlistarverslunin 12 tónar
bjóða upp á gott úrval af framandi
tónlist ásamt því að vera umboðs-
aðili fyrir mörg heimsþekkt út-
gáfufyrirtæki. Lárus Jóhannesson,
annar eigenda 12 tóna, segir þetta
vera mikla þjónustuaukningu fyrir
viðskiptavini, enda bókaverslunin
opin til 22 öll kvöld.
Penninn-Ey-
mundsson í sam-
starf við 12 tóna
♦ ♦ ♦