Morgunblaðið - 17.08.2003, Blaðsíða 1
STOFNAÐ 1913 220.. TBL. 91. ÁRG. SUNNUDAGUR 17. ÁGÚST 2003 PRENTSMIÐJA ÁRVAKURS HF. mbl.is
Frábær tilbo› fyrir allt skólafólk
Hoppukastalaland
Skiptibókamarka›ur
Gullnáma á
vatnsbotni
Áslaug Geirsdóttir les sögu
veðurfars úr borkjörnum 12
KK og Magnús leggja upp í
tónleikaferð um landið Fólk 48
Í menning-
arvímu?
Jón B.K. Ransu skrifar um menning-
arnótt sem vímuritúal Listir 23
BÚIÐ var að koma á rafmagni í
New York í gærmorgun og neðan-
jarðarlestakerfið var komið í gang.
Einnig var búið að koma á raf-
magni í Toronto í Kanada en yfir-
völd vöruðu við því að þar og í
fleiri borgum gætu orðið truflanir
næstu daga. Bandarísk og kanad-
ísk stjórnvöld hyggjast í samein-
ingu kanna hvað hafi valdið bil-
uninni á fimmtudag.
Sérfræðingar segja að líða muni
nokkrar vikur áður en hægt verði
að meta fjárhagslega tjónið af bil-
uninni en bílaverksmiðjur og fleiri
fyrirtæki urðu að stöðva fram-
leiðsluna. Dagblaðið The New
York Times sagði að talið væri að
alls hefðu fjórir týnt lífi vegna bil-
unarinnar.
Athygli vakti að færri glæpir
voru drýgðir í New York á fimmtu-
dagskvöld en venjulega. Vatns-
skortur var enn í borgunum Detr-
oit og Cleveland í gær og hvöttu
yfirvöld í Ohio-ríki fólk til þess að
sjóða vatn sem nota á til drykkjar.
Munu dælur í holræsakerfi hafa
brugðist og vatnsból því mengast.
New York fær aftur rafmagn
New York. AP, AFP.
Times-torg iðar nú aftur af lífi.
BÚIST var við, að tölvur, sýktar af tölvu-
orminum „MSBlast“, myndu hefja fyrstu
árásina á vefsíðu Microsoft á miðnætti að-
faranótt laugardags. Árásin átti að sögn
heimildarmanna að hefjast þegar klukkan
slægi 12 á miðnætti og samkvæmt því voru
það tölvur á Kyrrahafssvæðinu og í Austur-
Asíu, sem hófu hana fyrst.
Undanfarna daga hefur ormurinn valdið
usla í Japan, Kína, Víetnam og á Indlandi og
mörg þúsund tölvur hafa hrunið. Ekki höfðu
enn borist neinar fréttir af vandkvæðum hjá
Microsoft um hádegisbilið í gær og sögðu
talsmenn þess að beitt hefði verið ráðum
sem virtust duga. Mun hafa fundist veila í
orminum, að sögn AFP.
Talsmaður bandarísku alríkislögreglunn-
ar sagði á föstudag að þá væri farið að draga
úr útbreiðslu ormsins, hann væri að verða
uppiskroppa með tölvur til að sýkja. Giskað
var á, að á aðra milljón tölva myndi taka
þátt í samræmdu árásinni á Microsoft.
Einvígið
við orminn
IDI Amin, fyrrverandi einræðisherra í Úg-
anda, lést í gær í Sádi-Arabíu, líklega 80 ára
að aldri. Hann rændi völdum í landi sínu
árið 1971 en var steypt
átta árum síðar og hann
hrakinn í útlegð eftir
blóðugan valdaferil.
Hinn risavaxni Amin,
„Stóri pabbi“, eins og
hann nefndi sig síðar,
gekk ungur í breska ný-
lenduherinn og varð for-
seti herráðs Úganda
1966 þótt óvíst væri
hvort hann væri læs.
Eftir valdaránið lýsti hann sig forseta
ævilangt. Amin beitti fádæma hörku gegn
raunverulegum og ímynduðum óvinum
sínum og lét myrða þá unnvörpum. Lík-
unum var fleygt fyrir krókódílana í Níl en
stundum kom fyrir að líkamsleifar stífluðu
innrennslisop á stærstu vatnsaflsvirkjun
Úganda. Fullyrt var að Amin ætti til að éta
óvini sína.
Eitt sinn sagði Amin, sem hafði gerst
múslími, að Hitler hefði verið í fullum rétti
þegar hann lét myrða sex milljónir gyðinga.
Fleiri ummæli Amins vöktu athygli og hann
bauð m.a. Skotum að gerast konungur
þeirra. „Ég er maður framkvæmdanna,“
sagði hann um sjálfan sig.
Idi Amin
allur
Jiddah. AP, AFP.
Idi Amin
379 hlaupagarpar voru í gærmorgun ræstir af
stað í maraþonhlaupi Reykjavíkurmaraþons-
ins. Þetta er metþátttaka, eins og í hálf-
3.339 manns skráðir í Reykjavíkurmaraþon í
ár og hlupu margir aðallega sér til skemmt-
unar þrátt fyrir rigninguna.
maraþonhlaupinu þar sem 558 keppendur
voru skráðir. Um 500 útlendingar kepptu í
hlaupinu í ár sem er einnig met. Alls voru
Morgunblaðið/Árni Torfason
Metþátttaka í maraþonhlaupi
♦ ♦ ♦
LÍNUÍVILNUN verður tekin
upp eigi síðar en fyrsta septem-
ber 2004. Jafnframt verður út-
hlutun byggðakvóta endurskoðuð
og líklegast er að hann verði felld-
ur niður í núverandi mynd og
nýttur til línuívilnunar. Þetta
kemur fram í viðtali Morgun-
blaðsins í dag við sjávarútvegs-
ráðherra, Árna M. Mathiesen.
Í viðtalinu segir Árni mismun-
andi sjónarmið uppi um byggða-
kvótann; hvort hann eigi að
styrkja hinar dreifðu byggðir eða
hvort úthlutun eigi að byggjast á
því að línan sé umhverfisvænt
um þetta sem byggðaívilnun. Ef
menn setjast niður og skoða öll
þau álitamál, sem í svona ívilnun
felast, er það alveg augljóst að
menn þurfa að gefa sér góðan
tíma til að fara yfir málið og meta
þessa kosti,“ segir ráðherra.
Hann segir markmið beggja
stjórnarflokkanna að koma á línu-
ívilnun. „Það verður gert og tekur
væntanlega gildi 1. september
2004 eftir að málið hefur verið
unnið af þeirri vandvirkni sem
nauðsynleg er.“
ið á línuívilnunina út frá umhverf-
issjónarmiðinu sé vandséð af
hverju eigi að útiloka stóra línu-
báta, sem beiti um borð. „Þeir
sem vilja halda sig við byggða-
sjónarmiðið þurfa þá líka að færa
rök fyrir því af hverju dag-
róðrabátar, sem nota önnur veið-
arfæri, eigi ekki að fá ívilnun líka.
Þá væri kannski réttara að tala
veiðarfæri. „Ef úthluta á til að
styrkja byggðirnar geta verið rök
fyrir því að úthluta eigi til dag-
róðrabáta, sem landi þá í heima-
höfn og beitt sé í landi, þannig að
vinna skapist í landi. Þá má líka
setja skilyrði um það að aflinn
verði einnig unninn í heimabyggð-
inni,“ segir Árni.
Hann segir að sé hins vegar lit-
Líkur á að byggðakvóti
verði nýttur til línuívilnunar
Sjávarútvegsráðherra segir breyt-
ingu líklega taka gildi haustið 2004
Ég hef ekkert svikið/10
Ferðalög allan
hringinn