Morgunblaðið - 17.08.2003, Blaðsíða 27
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 17. ÁGÚST 2003 27
Fellihýsi, tjaldvagnar
og pallhús með
óviðjafnanlegum
afslætti!
M
Á
T
T
U
R
IN
N
&
D
Ý
R
Ð
IN
Bíldshöfða 14 • Sími 587 6644
Fjögur 10 RT Starcraft fellihýsi. Sjö Camp-let tjaldvagnar. Tvö Sportstar pallhýsi.
Núna í nokkra daga munum við losa af lagernum okkar síðustu gripi sumarsins á frábærum kjörum.
Um er að ræða ný fellihýsi, tjaldvagna og pallhús, þ.a. nokkur sýningareintök. Afslátturinn getur numið 100.000 kr.
og jafnvel meiri í sumum tilfellum. Gríptu tækifærið og nýttu sumarið til hins ýtrasta!
Nissan Terrano 3.0 luxury
Árg. 09/02
Ek. aðeins
9 þús km
7 manna, dísel,
sjálfskiptur.
Verð kr. 3.6 millj.
Upplýsingar í síma 862 8526
Lithimnulestur
Með David Calvillo
fimmtudag og
föstudag
Lithimnulestur er gömul fræðigrein þar sem
upplýsingar um heilsufar, mataræði og
bætiefni eru lesnar úr lithimnu augans.
Á fimmtudag og föstudag mun David Calvillo
vera með lithimnulestur í Heilsubúðinni, Góð
heilsa gulli betri. Njálsgötu 1, uppl. og tímapantanir í s:561-5250.
19. norræna vímuvarnaráðstefnan
haldin á Grand hótel, Reykjavík
1.–2. september 2003
Meðal efnis:
Nýtt neyslumynstur áfengis og vímuefna
Lars Møller (Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin)
Margarete Nilson (Tölfræðimiðstöð um vímuefnaneyslu í Evrópu)
Vímuvarnir í skólum
Björn Hilbell (ESPAD/CAN)
Pim Cuijpers (Netherlands Institute of Mental Health and Addiction)
Áfengisstefna
Robin Room (Stokkhólmsháskóli)
Þórólfur Þórlindsson (Háskóli Íslands)
Upplýsingar og skráning: congress.is/rus
Síðasti skráningardagur 22. ágúst
Ráðstefnugjald:
1. og 2. september 8.000 kr.
1. september 5.500 kr.
2. september 4.500 kr.
Ráðstefnan er styrkt Norrænu ráðherranefndinni,
heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytinu og Reykjavíkurborg.
Áfengis- og vímuvarnaráð vimuvarnir.is
HVAÐ er raun-
veruleiki og hvað er
ímyndun er eitt af
viðfangsefnum
fyrstu skáldsögu
Gunnars Þorsteins-
sonar sem hann nefnir Afrit af
deginum góða. Ein persóna sög-
unnar er m. a. látin segja: ,, Það
sem maður heyrir og sér þarf
ekki endilega að vera það sem
maður heyrir og sér.“
Það er annars dálítið erfitt að
að nálgast þetta verk sem skáld-
sögu. Þrátt fyrir skáldsögulengd
minnir hún frekar á smásögu
sem teygst hefur úr. Söguflétt-
an er póstmódernískur tilbún-
ingur og verkið er fest á þráð
sögunnar sem strengdur er og
teygður frá upphafi til enda.
Hún hverfist um endursköpun
eða afrit dags og atburðar. Það
óvenjulega er að atburðurinn á
sér stað í óræðri framtíð. Þess
vegna er sagan uppfull af
vangaveltum á borð við þessa:
,,Hvað mundir þú gera ef þú
hefðir verið svikinn um eitthvað
sem þér hefði aldrei verið lof-
að?“
Þetta er staðleysuverk. Þó að
sumt í umhverfi sögunnar minni
á íslenskar aðstæður, t.d. að
námsmaður fari erlendis til
náms, er það nær því að vera
evrópskur borgarveruleiki. Nöfn
persónanna eru á sama hátt í
senn kunnugleg og framandi:,
René, Göring, Humphrey,
Amalía, Nadía o. s. frv.
Verkið er uppfullt af klass-
ískum táknum, hring, sjö-
stjörnu, tölunni sjö o .s. frv. og
fer mikið rými og tími persón-
anna í að glíma við þau. Segja
má raunar að sagan sé sögð á
þremur sviðum sem skerist, í
raunveruleikanum, á táknsvið-
inu og í skáldskapnum eða
ímynduninni. Höf-
undi tekst allvel upp
í þessari fléttugerð.
Hann leggur hins
vegar minna upp úr
persónulýsingum og
persónur verða fyrir
bragðið eintóna og
bragðlausar staðal-
gerðir; einlægi trú-
maðurinn sem opinn
er fyrir breytingum,
gagnrýni heimspek-
ingurinn í leit að
fótfestu og kven-
myndirnar eru ýmist kynverur
eða afskiptasamar mæður og
frænkur en aðrir eiginleikar
óljósir.
Segja má að meginviðfangs-
efni sögunnar sé girndin og ást-
in sem tengist táknsviði sög-
unnar og þá ekki síður hinn
táknræni og klassíski lífshring-
ur endurtekningarinnar, þess
sem kemur aftur.
Margt er haganlega smíðað í
þessari sögu. Þó finnst mér að
höfundur hefði að ósekju mátt
vanda betur texta frásagnarinn-
ar. Hann er sums staðar óljós
og stirður og það sem verra er
óvandaður. Ég kann t.a.m. illa
við það þegar einhver réttir
upp ,,aðra hendina“(20) eða er
sagður hafa ,,teygjanlegan
skilning“ ( 51). Eitthvað finnst
mér líka bogið við málsgreinar
á borð við þessar: ,,Kannski eru
engar tvær áhyggjur eins. Ef
ég fengi að skipta, hvaða
áhyggjur ætli ég myndi velja
mér?“ Ef til vill er málskiln-
ingur minn bara gamaldags og
allt í lagi að tala um eina
áhyggju, tvær áhyggjur, þrjár,
fjórar, sjö og jafnvel fjórtán.
Þetta lýtir þó verkið í mínum
huga.
Afrit af deginum góða er að
mörgu leyti vel upp byggð
skáldsaga þó að mér finnist
sem höfundur hafi um of teygt
lopa smásögu upp í skáldsögu-
lengd. Lítið vægi persónusköp-
unar og á köflum lítt vandaður
texti rýrir og gildi sögunnar.
BÆKUR
Skáldsaga
Eftir Gunnar Þor-
steinsson. Agenda
2003 – 188 bls.
AFRIT AF DEGINUM
GÓÐA
Sá sem
kemur aftur
Skafti Þ. Halldórsson
Tvær spennu-
bækur fyrir ung-
linga, Setuliðið
og Tara, eru
komnar út hjá
Bókaútgáfunni
Sölku. Höfundur
er Ragnar Gísla-
son og um kápu-
hönnun sá Arnar
Geir Ómarsson.
Setuliðið segir
frá krökkum í
Hafnarfirði sem
finna beinaleifar
auk fjársjóðs.
Stundum er
hættulegt að
gramsa í fortíð-
inni og skyndi-
lega lifna við
dramatískir at-
burðir aftan úr forneskju og taka
völdin í lífi þeirra. Veruleikinn
stendur þó eftir, ótrúlegri en allt
annað sem krakkarnir þurfa að
ganga í gegnum og skilur þá eftir
reynslunni ríkari. Tara fjallar um
djúpa og sérstæða vináttu sem
nær yfir landamæri þessa heims og
annars. Unnar, sem er þrettán ára
strákur í Elliðavatnshverfinu, er al-
veg við það að brotna niður. Hann
er lagður í einelti af skólafélög-
unum og Konni, besti vinur hans,
er kominn í hjólastól eftir hörmu-
legt slys. Tími og rúm skarast. Dul-
arfull stúlka, Tara að nafni, nær
loksins sambandi við Unnar og
Konna og saman ferðast þau um
ókannaðar víddir sem breyta tilveru
þeirra allra á eftirminnilegan hátt.
Setuliðið er 156 bls. og Tara er
188 bls. Báðar bækurnar eru í
kiljubroti, prentaðar í Prentmeti ehf.
ogkosta 1.990 krónur.
Spenna fyrir
unglinga
ÁSKRIFTARDEILD netfang: askrift@mbl.is, sími 569 1122
Vöggusæn
gur
vöggusett
PÓSTSENDUM
Skólavörðustíg 21 sími 551 4050 Reykjavík