Morgunblaðið - 18.08.2003, Side 1
mánudagur 18. ágúst 2003 mbl.is
Þúsundir fasteigna af öllum stærðum og öllum gerðum alls staðar á landinu
Fasteignablaðið
// Vellir í Hafnarfirði
Hraunið er áberandi í umhverfinu á Völlum í
Hafnarfirði, en þar er að rísa mikil byggð.
Við Burknavelli 1 er fasteignasalan Höfði nú
með til sölu nýjar og vandaðar íbúðir. 2
// Heitir pottar
Í dag eru heitir pottar við hvers manns dyr
eða næstum því. En það er tvennt sem fyrst
og fremst verður að hafa í huga, annars vegar
þægindin og síðan öryggið. 40
// Virðulegt hús
Falleg og virðuleg hús í Vesturbænum vekja
ávallt athygli þegar þau koma í sölu. Hjá
Fold er nú til sölu hús með herragarðssniði
við Stýrimannastíg 12. 43
// Egilsstaðir
Mikil uppbygging á sér stað á Egilsstöðum,
en þar eru nú auglýstar til umsóknar fyrstu
íbúðarlóðirnar í Selbrekku. Um mjög áhuga-
vert svæði er að ræða. 44
Stendur
með þér í
orkusparnaði
! " "" # " $ % %
# % " $ ! % " "
&'() (
)
%
*
+,-
. )/
0 *
1 2--
3 (4
%
3 (4
!( '
3 (4
%
3 (4
6
5
5
! """#
5
7
7
7
5
$
%
$
& ! '
!
6 5 65
8 !
%
( !
!
56
9
NORÐLINGAHOLT verður
án efa afar eftirsótt hverfi,
en þetta nýbyggingasvæði
liggur fyrir austan Selás-
hverfi, í austurjaðri borgar-
innar. Þarna er gott bygg-
ingarland og í næsta
nágrenni eru vinsæl útivist-
arsvæði eins og Elliðaárdal-
urinn, Rauðhólar og Heið-
mörk auk Elliðavatns og
Rauðavatns.
Gatnagerð vegna 1. áfanga
í Norðlingaholti stendur nú
sem hæst, en gert er ráð fyr-
ir, að lóðir þar verði bygg-
ingarhæfar fyrir lok þessa
árs. Í þessum áfanga voru
boðnar út lóðir fyrir fjöl-
býlishús með samtals á
þriðja hundrað íbúðum, tvær
lóðir fyrir samtengd tvíbýlis-
hús með samtals 26 íbúðum
og 22 lóðir fyrir einbýlishús,
samtals tæplega 300 íbúðir.
Skipulag hverfisins var unnið af
Tark teiknistofunni ehf. fyrir
Reykjavíkurborg og Rauðhól ehf.,
sem eru í samstarfi um skipulag og
uppbyggingu hverfisins.
Í hverfinu fullbyggðu verða
rúmlega 900 íbúðir, grunnskóli,
leikskólar, verzlun og önnur þjón-
usta fyrir hverfið. Þá er gert ráð
fyrir atvinnuhúsnæði meðfram
Suðurlandsvegi og Breiðholts-
braut, sem jafnramt því að nýta
öflugar tengingar við þessar stofn-
brautir mun einnig skýla íbúða-
byggðinni og skerma hana af.
Þó að eitthvað hafi dregið úr að-
flutningum fólks á höfuðborgar-
svæðið að undanförnu frá því sem
var má gera ráð fyrir mikilli ásókn
í jafn ákjósanlegt svæði og Norð-
lingaholt. Nokkur uppsöfnuð eft-
irspurn á lóðum kann að hafa verið
fyrir hendi á höfuðborgarsvæðinu
og þá einkum hjá borginni, en full-
gerðum íbúðum hefur farið fækk-
andi í Reykjavík ár frá ári að und-
anförnu, sem sennilega má rekja
til lóðaskorts. Byggingarsvæðið í
Norðlingaholti kemur því í góðar
þarfir.
Fyrstu lóðirnar í Norðlinga-
holti senn byggingarhæfar
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Gatnagerð á Norðlingaholti. Það styttist í að fyrstu lóðirnar þar verði byggingarhæfar.
VIÐ Smárarima í Grafarvogi eru að
hefjast framkvæmdir við fjórtán
timburhús. Þetta verða fyrstu
húsin, sem rísa á svonefndri
Landssímalóð, en þar á eftir að
rísa töluverð byggð.
Þarna er að verki byggingafyr-
irtækið Tveir – X ehf., sem hefur
aðsetur á Grensásvegi 22, en einn
eigandi þess er Tómas Ingólfsson
byggingameistari. „Þetta verða
svonefnd RC-hús, sem eru timb-
urhús flutt inn frá Noregi,“ segir
Tómas í viðtalsgrein hér í blaðinu í
dag. „Húsin verða á tveimur hæð-
um og frá 140 og upp í 190. ferm.
að stærð fyrir utan 35 ferm. bíl-
skúr.“
Húsin eru nefnd eftir upphafs-
manni þeirra hér á landi, Reimari
Charlessyni, sem hefur flutt inn
hús af þessu tagi um árabil, bæði
íbúðarhús og sumarhús. „Það er
komin mikil og góð reynsla á þessi
hús hér á landi og því urðu þau
fyrir valinu, er mér og félögum
mínum tókst í sameiningu að
festa kaup á fjórtán lóðum, sem
allar eru við sama „botnlangann“ í
Smárarima,“ segir Tómas. 26
Timburhús
við Smárarima