Morgunblaðið - 22.08.2003, Blaðsíða 1
Með ættar-
nafnið
Iceland fyrir
misskilning
VESTUR í Maryland-fylki í Bandaríkj-
unum býr maður að nafni John. Hann er
prófessor í félagsfræði við háskólann í
Maryland, og fer ekki frekari sögum af
því, en það merkilega er að ættarnafn
hans er Iceland. Hann er því rétt-
nefndur herra Ísland, ef svo mætti
segja.
„Nei, ég á því miður ekki ættir að
rekja til Íslands,“ sagði herra Iceland
þegar blaðamaður Morgunblaðsins sló á
þráðinn til hans. „Ættarnafnið hefur lif-
að í nokkra ættliði, og ég held að nafnið
hafi myndast þegar forfeður mínir komu
til Bandaríkjanna og settust hér að. Þau
voru frá Póllandi eða Rússlandi og báru,
að ég held, ættarnafn líkt Eislan, sem
hefur misskilist með enskum framburði
eða stafsetningu og endað í ættarnafn-
inu Iceland,“ útskýrir John. Hann segir
fjölskylduna ekki stóra og sjálfur viti
hann aðeins um fimmtán manns sem
beri ættarnafnið nú, en einhverjir hafi
gifst og beri ættarnafnið ekki lengur.
Langar að koma til Íslands
Hann hefur ekki komið til Íslands en
hefur hug á að koma hingað til lands og
rekur minni til að amma sín hafi komið
til Íslands fyrir löngu. „Ég hef verið
spurður að því allt mitt líf hvort ég sé
frá Íslandi og ég hef alla tíð verið stolt-
ur af nafninu mínu. Sömuleiðis hef ég
alltaf lesið greinar og efni sem ég hef
séð um Ísland, enda nafnið ávallt fangað
athygli mína, sem eðlilegt er. Af þeim
sökum hefur áhugi minn á landinu auk-
ist sem því nemur. Ég hef ekki hitt Ís-
lending enn sem komið er og hlakka til
að komast til Íslands einhvern tímann.
Hins vegar veit ég ekki hvert upplitið
verður á lögreglunni í vegabréfaskoð-
uninni þegar þeir sjá nafnið mitt,“ sagði
herra Iceland að lokum.
Hamas segja stræti Ísr-
aels munu „fljóta í blóði“
COLIN Powell, utanríkisráðherra Bandaríkj-
anna, varaði í gær Palestínumenn og Ísraela við
því að gefast upp á friðaráætlun stórveldanna,
Vegvísi til friðar. Ofbeldið myndi þá aukast um
allan helming. Bandaríkjastjórn hyggst senda
sérstakan fulltrúa sinn, John Wolf, til Miðaust-
urlanda til að reyna að hindra að friðarferlið
renni út í sandinn vegna atburða síðustu daga.
Á þriðjudag sprengdi liðsmaður Hamas
strætisvagn í Jerúsalem og fórust 20 manns.
Ísraelar skutu í gær sprengjuflaug að bíl eins af
leiðtogum Hamas, Ismail Abu Shanab, í Gaza-
borg og lét hann lífið ásamt tveim öðrum mönn-
um. Tvenn herská samtök, Hamas og Íslamska
Jihad, sögðu í gær að vopnahléinu, sem staðið
hefur yfir í nær tvo mánuði, væri lokið.
Pólitískur leiðtogi Hamas, Abdul Aziz al-
Rantissi, var harðorður. „Stræti Tel Aviv, Haifa
og Jerúsalem munu fljóta í blóði og [Ariel] Shar-
on [forsætisráðherra Ísraels] ber ábyrgðina á
því,“ sagði al-Rantissi.
AP
Palestínumenn bera á brott lík Hamas-liðans Abus Shanafs og lífvarða sem voru með honum í bíl. Ísraelar skutu sprengjuflaug að bílnum í gær.
Washington, Gazaborg. AP, AFP.
STOFNAÐ 1913 225. TBL. 91. ÁRG. FÖSTUDAGUR 22. ÁGÚST 2003 PRENTSMIÐJA ÁRVAKURS HF. mbl.is
Beðið eftir
brauðmylsnu
Plastendur lífga upp á Fitja-
tjarnir | Suðurnes 22
Létt og
loftkennt
Nýjar víddir í hári haustsins |
Daglegt líf B1
Kahn
óánægður
Fyrirliði Þjóðverja vill Brasilíu
sem fyrirmynd | Íþróttir 44
MARGVÍSLEG gagnrýni á við-
skipti Flugstöðvar Leifs Eiríksson-
ar (FLE) við stjórnarmenn hennar
kemur fram í greinargerð Ríkisend-
urskoðunar um fjárhagsleg sam-
skipti stjórnar og stjórnenda.
Stjórn FLE birti í gær athuga-
semdir við greinargerðina á heima-
síðu sinni þar sem öllum helstu rök-
semdum Ríkisendurskoðunar er
andmælt. Stjórn félagsins bendir á
að með aðgerðum sínum hafi verið
komið í veg fyrir 800 milljóna um-
framkeyrslu vegna viðbyggingar
flugvallarins og að rekstri félagsins
hafi verið snúið úr tapi í hagnað.
Árið 2002 greiddi FLE 250 millj-
ónir í arð til Ríkissjóðs Íslands sem
er eigandi félagsins.
Í greinargerð Ríkisendurskoðun-
ar er gagnrýnt að tveir stjórnar-
manna, Sigurður Garðarsson og
Stefán Þórarinsson, hafi verið
fengnir til að vinna umfangsmikil
verkefni fyrir FLE. Þá gagnrýnir
Ríkisendurskoðun að stjórnarfor-
maður FLE hafi fengið sérstaklega
greitt fyrir aðra vinnu en gerð
kjarasamninga og gerir athuga-
semd við að stjórn félagsins hafi
samþykkt að félagið veitti fram-
kvæmdastjóra „veglega“ afmælis-
gjöf.
Í athugasemdum stjórnar FLE
kemur fram að stjórnin geri ágrein-
ing um lagalega stöðu félagins. Þar
segir að stjórn FLE starfi „í sam-
ræmi við lög sem Alþingi setti um
félagið og í samræmi við ný lög um
opinber innkaup og skipan opin-
berra framkvæmda. Andi laga um
FLE [sé] sá að losa starfsemina úr
hefðbundnum ríkisrekstri.“ Stjórn
FLE telur að Ríkisendurskoðun
fallist ekki á það sjónarmið.
Ríkisendurskoðun álítur að flest
þau verk sem stjórnarmennirnir
tóku að sér hafi verið þess eðlis að
aðrir hefðu getað tekið þau að sér.
Því ályktar Ríkisendurskoðun að
fjárhagsleg samskipti af þessum
toga séu óæskileg og til þess fallin
að vekja tortryggni.
Í athugasemd stjórnar FLE er
Ríkisendurskoðun gagnrýnd fyrir
að setja fram „glannalegar“ fullyrð-
ingar og segir að þar séu settar
fram „hæpn[ar] eða beinlínis [rang-
ar]“ ályktanir. Stjórn FLE gerir al-
varlegar athugasemdir við vinnu-
brögð Ríkisendurskoðunar og segir
að þar sé ranglega farið með hverj-
ir sitji í stjórn félagsins og að vísað
sé í fylgiskjöl sem ekki fylgi grein-
argerðinni. „Fleiri slík atriði mætti
nefna sem hljóta að vekja upp
spurningar um fagleg vinnubrögð
Ríkisendurskoðunar,“ segir í yfir-
lýsingu stjórnarinnar.
Stjórn FLE gagnrýnir einnig að
athugun Ríkisendurskoðunar fjalli
ekki um fjárhagslega þróun félags-
ins, eða hvort tekist hafi að ávaxta
fjármuni eigandans.
Greinargerð Ríkisendurskoðunar um Flugstöð Leifs Eiríkssonar hf.
Ágreiningur er um laga-
ramma Flugstöðvarinnar
Óæskileg/10–12
MIKILL fögnuður ríkti í Kúrdahér-
uðum Íraks í gær vegna handtöku
Alis Hassans al-Majids, eins af nán-
ustu samstarfs-
mönnum Sadd-
ams Husseins.
„Efnavopna-Ali“,
eins og hann var
kallaður, var
handsamaður í
borginni Mosul.
Ali er einkum ill-
ræmdur fyrir að
hafa stjórnað
efnavopnaárás á
óvopnaða Kúrda í borginni Halabja
árið 1988 og síðar fjöldamorðum á
shítum 1991.
Talið var að Ali hefði farist í loft-
árás á Basra en aldrei fengust
traustar sannanir fyrir því.
Klófestu
„Efna-
vopna-Ali“
Ali Hassan al-Majid
Bandaríkin/16
Arbil, Beirut. AFP, AP.