Morgunblaðið - 22.08.2003, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 22. ÁGÚST 2003 29
ðið séu
íbúar
lli eru
sta og
rir sig
gilegra
ðborg-
um að
sam-
llsnes-
ð miðin
ra tíma
útgerð
ið vin-
kjölfar
innan
óknar-
ögum í
á
004
nesi að
mhalds-
askóla-
aldri hafa þurft að sækja fram-
haldsskóla annað. Nemendum af
Snæfellsnesi á fyrsta ári í Fjöl-
brautaskóla Vesturlands á Akra-
nesi, hefur þó boðist að fá kennslu
í Stykkishólmi, en skólinn hefur
verið með eins konar útibú á
staðnum. „Þetta hefur yfirleitt að-
eins verið nýtt af fyrsta árs nem-
endum en eftir það fara þeir eitt-
hvað annað,“ segir Magnús.
Á þessu verður mikil breyting
næsta haust en þá er fyrirhugað
að koma á fót framhaldsskóla á
Snæfellsnesi sem verður að öllum
líkindum í Grundarfirði. „Það
verður mikið framfaraskref að fá
framhaldsskóla á svæðið enda
mjög margir sem hafa flutt frá
bænum í kjölfar þess að þurfa að
sækja sér framhaldsmenntun
annað,“ segir Magnús.
Ferðamannatímabilið nær
lengra fram á haustið
Kristinn Jónasson, bæjarstjóri
Snæfellsbæjar, tekur undir með
Magnúsi hvað varðar tilkomu
framhaldsskóla á Snæfellsnesið.
„Það mun breyta miklu fyrir íbúa
að missa ekki unga fólkið eitt-
hvert annað í nám. Því hefur fylgt
mikill kostnaður fyrir foreldra að
þurfa að kosta börn sín til náms
annars staðar á landinu, húsaleiga
og uppihald og oft orðið til þess að
foreldrarnir hafa flutt með krökk-
unum. Þetta breytist með tilkomu
skólans,“ segir Kristinn. Hann
segir að þær samgöngubætur sem
orðið hafa að undanförnu hafi
skipt miklu fyrir Snæfellsbæ.
„Hvalfjarðargöngin hafa haft
mikla þýðingu fyrir okkur og góð
áhrif á sjávarútveg, það er mikið
um að menn geri út frá Snæfells-
nesi til að spara tíma. Þetta var
ekki jafnraunhæfur kostur fyrir
nokkrum árum,“ segir Kristinn og
tekur fram að aðrar samgöngu-
bætur á nesinu, s.s lagfæring Bú-
landsvegar og fyrirhuguð brú yfir
Kolgrafarfjörð, muni einnig hafa
mikið að segja og tengja saman
byggðarkjarnana á Snæfellsnesi.
Hann segir að mikill vaxtarbrodd-
ur sé í ferðaþjónustu á svæðinu og
að ferðamannatímabilið sé farið
að ná lengra fram á haustið en áð-
ur. „Þegar skólafólkið þarf að
hætta núna fljótlega mun okkur
vanta fólk í ferðaþjónustuna,“
segir Kristinn.
Vestur-
orginni
B
ÁTASMIÐJAN Trefjar
í Hafnarfirði hefur nú
lokið við smíði á ærið
óvenjulegu fleyi. Um er
að ræða lystisnekkju
fyrir olíufursta í Sameinuðu arab-
ísku furstadæmunum en snekkjan
en jafnframt togskip.
Forsaga málsins er sú að á síðasta
ári barst Trefjum fyrirspurn frá
Sameinuðu arabísku furstadæm-
unum um hvort fyrirtækið gæti
smíðað snekkju sem jafnframt væri
útbúin til togveiða. Högni Bergþórs-
son, tæknilegur framkvæmdastjóri
hjá Trefjum, segir að í fyrstu hafi
fyrirspurnin ekki verið tekin mjög
alvarlega. „Okkur varð hins vegar
fljótt ljóst að hér var alvara á ferð-
um. Furstinn gerði þá kröfu að skip-
ið gæti stundað togveiðar en væri
þannig útbúið að þegar hann væri
ekki að veiðum, væri búnaðurinn
ekki fyrir gestum á dekki og því
hægt að nota skipið eins og hefð-
bundna skemmtisnekkju.“
Furstinn er mikill áhugamaður
um sportveiði og á um 20 báta sem
hann notar í þessa tómstundaiðju
sína. Honum hefur hins vegar geng-
ið erfiðlega að veiða ákveðna fiski-
tegund, hún tekur ekki króka og
gengur ekki í net. Hann sá einhverju
sinni sjónvarpsmynd um togveiðar
og datt þá í hug hvort að þarna væri
komin aðferð til að veiða þennan
dyntótta fisk.
„Þessi krafa furstans um að dylja
allan togbúnaðinn olli okkur vissu-
lega heilabrotum. Við þurftum að
koma öllum togspilum fyrir neðan
þilja, svo þau verði ekki fyrir þegar
furstinn er ekki að veiðum. En með
góðri aðstoð Guðmundar Krist-
jánsson, hafnarvarðar á Ísafirði og
reynds togaraskipstjóra, tókst okk-
ur að hanna bátinn og búnaðinn eftir
kröfum furstans.“
Mikill íburður
Skrokkur snekkjunnar er sá sami
og notaður er í Cleopatra 38, 15
tonna fiskibáta sem Trefjar fram-
leiða, en yfirbyggingin er mjög frá-
brugðin því sem Trefjar hafa áður
fengist við. Hvert sem litið er um
borð sést að ekkert hefur verið til
sparað. Eldhús er um borð með öll-
um nauðsynlegum búnaði, ásamt
fullbúnu salerni með sturtuklefa. Í
bátnum eru einnig tvær aðskildar
setustofur. Allar innréttingar eru úr
kirsuberjaviði og dekk allt úr harð-
viði. Áklæði á húsgögnum eru
fjólublá, sem helgast af því að knatt-
spyrnulið í eigu furstans leikur í
fjólubláum búningum.
Hannað var sérstakt troll fyrir
furstann sem er búið til úr svoköll-
uðu Dynema ofurefni og er því mjög
létt, vegur aðeins um 15 kíló. Fyr-
irmynd trollsins er íslenskt fiski-
troll, svokallaður Gulltoppur, sem al-
gengt er í íslenskum togurum. Troll
furstans er um 30% af stærð trolls
sem notað er á hefðbundnum ís-
lenskum skuttogara. Toghlerarnir
eru sérsmíðaðir í Danmörku, eru úr
ryðfríu stáli og eru aðeins um 0,5
fermetrar hvor um sig. Allar keðjur
og lásar við trollið eru sömuleiðis úr
ryðfríu stáli.
Togafl spilbúnaðarins er u.þ.b. 2
tonn. Þá er í snekkjunni spilbúnaður
fyrir legufestar og hliðarskrúfa.
Í snekkjunni eru tvær 450 hest-
afla Caterpillar-vélar en þess má
geta að furstinn gerði kröfu um að
vélarnar væru hvítar og þurfti því að
sérpanta þær þannig frá framleið-
anda í Bandaríkjunum. Ganghraði
snekkjunnar er allt að 35 mílur.
Í snekkjunni er einnig Kohler-
rafstöð ásamt búnaði sem eimar
vatn úr sjó, vatn sem hæft er til
drykkjar en vatnið er einnig notað til
að framleiða ís um borð. Þá er um
borð tvöföld mjög öflug loftkæling
sem er sérsmíðuð á Ítalíu.
Kaupandinn konungborinn
Högni vill ekki gefa upp nafn
kaupandans en upplýsir að hann
beri titilinn „bin Sultan“ en þann titil
bera aðeins bræður, synir eða son-
arsynir soldánsins eða konungsins í
Sameinuðu arabísku furstadæm-
unum. Högni vill lítið gefa upp um
verð skipsins annað en að það hafi
verið dýrt. Aðspurður segir hann að
aldrei hafi þó staðið á greiðslum.
„Þetta hefur fyrst og fremst verið
mjög skemmtilegt og óvenjulegt
verkefni. Við höfum í vaxandi mæli
smíðað báta fyrir erlendan markað,
um 70% af framleiðslu okkar á síð-
asta ári fóru til útlanda. Fram til
þessa höfum við að mestu smíðað
fiskibáta en vonandi opnar þetta
skip okkur dyr inn á aðra markaði.“
Verið er að leggja lokahönd á frá-
gang „togsnekkjunnar“ og verður
hún flutt með skipi til eiganda síns
við Persaflóa á næstu vikum. Guð-
mundur Kristjánsson mun fylgja
snekkjunni á leiðarenda og kenna
furstanum undirstöðuatriði tog-
veiða.
Morgunblaðið/Þorkell
Konunglegur tómstundatogari
Trefjar í Hafnarfirði smíða „tog-
snekkju“ fyrir olíufursta í Sameinuðu
arabísku furstadæmunum
Auðunn Óskarsson, framkvæmdastjóri Trefja, Guðmundur Kristjánsson ráðgjafi
og Högni Bergþórsson, tæknilegur framkvæmdastjóri Trefja, við fleyið fagra.
Ekkert er til sparað við innréttingar „togarans“ en hann er líka ætl-
aður til skemmtisiglinga.
Auðunn Óskarsson, framkvæmdastjóri Trefja, leggur niður „skutrennu“
skipsins.
* "'.
-!+,
,4'
. 4'
miklum breytingum eftir að
ndi geta sótt þá þjónustu sem
u hefur í auknum mæli leitað
snúið sér að ferðaþjónustu.
ndi hef-
kjölfar
voru
Leo-
il sög-
ngdir
urlands
un til.
nu
um
u-
nni og
lu
g-
í þess-
stöðug
fur
nús.
gum af
hefur
rt upp.
heitt
þættir
Lax-
um
g það
“ segir
sson
að