Morgunblaðið - 22.08.2003, Blaðsíða 1
F Ö S T U D A G U R 2 2 . Á G Ú S T 2 0 0 3 B L A Ð B
I
NTERCOIFFURE, alheims-
samtök hárgreiðslufólks
hafa lagt línur í haust- og
vetrartísku hárs fyrir kom-
andi ár. Guðbjörn Sævar,
sem flestir kannast við undir nafn-
inu Dúddi, er forseti Intercoiffure á
Íslandi en hann veit allt um hvernig
hár á höfði fólks skal líta út í haust
og vetur. „Núna er horft til tísku
sjöunda og áttunda áratugarins. En
útfærslurnar og smáatriðin eru
alltaf ný. Þó hártískan í haust og
vetur sé mjög hippaleg þá er hún í
leiðinni stílhrein. Það er heilmikil
vídd í nýju línunni sem á rætur í
gamla tímanum en er um leið dálít-
ið pönkuð og samt sem áður „eleg-
ant“. Slétt og þungt hár víkur fyrir
léttu og loftkenndu. Hárið á að vera
úfið og ögrandi þrátt fyrir mýktina.
Og þó svo að styttur séu klipptar í
hárið þá eiga útlínurnar ekki að
vera tjásulegar eins og þær hafa
verið undanfarið. Hárið er á vissan
hátt heilla þó að í því sé óreiða. Og
það á að vera stíll yfir heildinni.“
Dúddi segir herralínuna áfram
vera frekar síða og svolítið í Bítla-
stílnum þar sem þungir toppar og
niðursleikt hár ráða ríkjum. Hann
getur þess til gamans að hár ís-
lenskra karlmanna hafi síkkað
gríðarlega á síðastliðnu ári og það
sé vissulega einkennandi fyrir land-
ann að taka allt með stæl. „Nú
sjáum við fjölmarga stráka með hár
niður á axlir hér á landi þó að tísk-
an úti í heimi sé kannski ekki svo
ýkt. Við sáum þessar ýkjur líka þeg-
ar stutta hárið var í tísku, þá létu
margir hérlendis allt hárið fjúka. “
Dúddi segir að litir hársins í
haust skulu fyrst og fremst renna
saman hver við annan, en ekki vera
í sterkum andstæðum. „Litirnir
eiga að vera nokkrir saman og
renna hver inn í annan án þess að
mikið beri á því og tóna saman.
Dökk rót og mjög ljóst hár yfir er
því á undanhaldi.“
Dúddi segir að breytingar í hár-
línum frá einni árstíð til annarrar
séu kannski ekki mjög sýnilegar
fyrir hinn almenna borgara en hún
sé mikil fyrir fagfólkið. „Við hár-
greiðslufólk þurfum að tileinka
okkur nýja tækni sem fylgir nýjum
línum og einmitt þess vegna er ég
ásamt nokkrum öðrum Íslend-
ingum á leið til Parísar til að kynna
mér handbragðið. Fimmtán stofur
hérlendis eiga aðild að Intercoiff-
ure og ég veit ekki betur en að
fulltrúar frá þeim öllum fari til Par-
ísar núna í september. Elsa Har-
aldsdóttir er prímus mótor í þessu
hér og heldur utan um allan pakk-
ann,“ segir Dúddi sem er einnig
meðlimur í öðrum stórum alheims-
samtökum sem kallast HCF. „Við
Elsa og Hanna Kristín erum einu Ís-
lendingarnir í HCF-samtökunum en
þau leggja sínar línur á svipuðum
tíma og Intercoiffure. Við kynnum
okkur auðvitað einnig það sem þeir
boða sem og aðferðir.“ Dúddi hefur
farið út á hverju einasta ári síðan
1976 til að kynna sér nýjar línur í
hártískunni og ætlar ekkert að
hætta því í bráð. „Enda full ástæða
til að bæta við sig þekkingu og
fylgjast með,“ segir Dúddi að lok-
um.
Mýkt ögrun
HÁR 2003/2004
Villt og frjálslegt yfirbragð með litum sem renna hver inn í annan.
og óreiða
ÓMVAGGAN HANS EYJÓLFS/2 ANNAÐ HEIMILI BARNA/4 HREIN-
AR LÍNUR/6 MYNDABLOGG OG MAGADANSARAR/7 AUÐLESIÐ/8