Morgunblaðið - 25.08.2003, Síða 1
2003 MÁNUDAGUR 25. ÁGÚST BLAÐ B
B L A Ð A L L R A L A N D S M A N N A
ALONSO YNGSTI SIGURVEGARI SÖGUNNAR / B10
Stabæk hefur
áhuga á Veigari
VEIGAR Páll Gunnarsson spilaði mjög vel á
móti Fylki en hann hefur leikið frábærlega fyrir
KR í sumar. Spilamennska hans hefur vakið at-
hygli erlendis og í leiknum gegn Fylki í gær var
„njósnari“ frá norska liðinu Stabæk, sem kom til
landsins til að fylgjast með framgöngu Veigars.
„Ég veit að Stabæk hefur áhuga á mér og það
væri vissulega spennandi að skoða tilboð frá
þeim. Ég vissi ekki að það hefði verið maður frá
þeim að fylgjast með mér í dag en það er gaman
að vita að það sé áhugi fyrir manni,“ sagði Veig-
ar Páll. Spurður um leikinn sagði Veigar að allt
KR-liðið hefði átt toppleik. „Þetta var mjög góð-
ur leikur og það stóðu allir fyrir sínu. Ég er á
því að þetta hafi verið fyrsti toppleikur KR í
sumar og hann hefði ekki getað komið á betri
tíma.“
SIGURPÁLL Geir Sveinsson úr
GA lék lokahringinn á Evrópumóti
áhugamanna í Skotlandi á laugar-
dag á 71 höggi, eða einu höggi und-
ir pari. Hann lék hringina fjóra á
samtals 291 höggi, eða þremur
höggum yfir pari, og hafnaði í 15.–
20. sæti. „Ég er mjög ánægður með
árangurinn sem er sá besti sem ég
hef náð á erlendu móti á ferlinum.
Þetta er líka gott veganesti fyrir
úrtökumót atvinnumanna sem ég
tek þátt í í næsta mánuði,“ sagði
Sigurpáll í samtali við Golfvef
Morgunblaðsins.
Sigurpáll var eini íslenski kylfing-
urinn sem komst í gegnum niður-
skurðinn en auk hans léku á mótinu
þeir Guðmundur Ingi Einarsson
sem lék á 233 höggum, Birgir Már
Vigfússon sem var á 243 höggum og
Heiðar Davíð Bragason var á 238
höggum.
Sigurpáll lék fyrri níu holurnar í
dag á tveimur höggum yfir pari,
fékk fugl á tveimur fyrstu holunum
en þurfti síðan tvívegis að taka víti.
Síðari holurnar lék hann hreint frá-
bærlega, fékk sex pör og þrjá fugla.
„Ég er mjög sáttur við daginn og
það var gaman að enda þetta svona
vel á seinni níu holunum. Það er
ekki slæmt að vera meðal 20 efstu
af 150 bestu áhugamönnum Evr-
ópu,“ sagði Sigurpáll.
Sigurpáll
í 15.–20.
sæti
INDRIÐI Sigurðsson, landsliðs-
maður í knattspyrnu, gengur að öll-
um líkindum til liðs við belgíska 1.
deildarliðið Genk nú í vikunni. Genk
og Lilleström, liðið sem Indriði leik-
ur með, hafa náð samkomulagi um
kaupin og eftir leik Lilleström við
Tromsö í gær hitti Indriði for-
ráðamenn belgíska liðsins. Stefnt er
að því að hann gangist undir lækn-
isskoðun á morgun og mun í kjölfar-
ið skrifa undir samning við félagið.
Eyjólfur Bergþórsson, umboðs-
maður Indriða, staðfesti í samtali við
Morgunblaðið í gær að samningur
við Genk lægi nánast klár á borðinu
en ekkert væri öruggt fyrr en búið
væri að skrifa undir. Eyjólfur sagði
mörg lið hafa sýnt Indriða áhuga,
meðal annars hafi útsendarar frá
Stuttgart mætt á tvo leiki Lilleström
gagngert til að skoða Indriða og eins
franska liðið Monaco.
Indriði er 22 ára gamall og hefur
átt fast sæti í íslenska landsliðinu
undanfarin misseri. Hann gekk í
raðir Lilleström frá KR árið 2000 og
rennur samningur hans við norska
liðið út hinn 1. nóvember næstkom-
andi.
„Ég yrði mjög ánægður ef þetta
gengi upp hvað Genk varðar. Það
yrði skref upp á við fyrir mig að fara
til Genk. Ég vil komast í burtu frá
Noregi og teldi það mjög góðan kost
að fara til Belgíu. Það er búið að
vera mikil „krísa“ hjá Lilleström.
Liðið er illa statt fjárhagslega og ef
sala á mér mundi hjálpa þeim yrði
ég mjög sáttur við það,“ sagði Indr-
iði í samtali við Morgunblaðið í gær.
Genk er ekki óvant því að hafa ís-
lenska leikmenn í sínum röðum en
bræðurnir Þórður, Bjarni og Jó-
hannes Guðjónssynir léku um tíma
með félaginu og urðu meistarar með
því árið 1999 og Genk varð meistari í
annað sinn í sögu félagins í fyrra.
Þrátt fyrir að góður tími sé liðinnfrá sigrinum og ég meðal ann-
ars búin að hlaupa sigurhringinn
geri ég mér ekki grein fyrir því enn
að ég hafi unnið gullverðlaun,“ sagði
unga bandaríska hlaupakonan Kelli
White eftir að hún kom fyrst í mark í
100 m hlaupi kvenna á heimsmeist-
aramótinu í frjálsíþróttum í París.
White lagði m.a. gullverðlaunahafa
síðasta heimsmeistaramóts, Zhanna
Block frá Úkraínu.
White náði auk þess besta tíma
ársins í 100 m hlaupi, 10,85 sekúnd-
ur. Önnur í hlaupinu varð landa
White, Torri Edwards, á 10,93.
Block varð síðan þriðja á 10,99 en
hún vann það afrek á HM fyrir
tveimur árum að leggja sjálfa Mar-
ion Jones í úrslitum.
„Ég hefði þurft nokkrar vikur til
viðbótar við æfingar til þess að eiga
möguleika á gullverðlaunum. White
er vel að gullinu komin og ég óska
henni til hamingju,“ sagði Block að
keppni lokinni en hún virtist vera
sátt við hlutskipti sitt að þessu sinni
og hljóp sigurhringinn með White og
Edwards.
White segist ekki ætla að láta við
það sitja að vinna gullið í 100 metra
hlaupi. „Ég stefni að því að vinna
tvöfalt, fá einnig sigur í 200 metra
hlaupinu,“ sagði White.
AP
Kelli White á milli þeirra Torri Edwards og Zhönna Block eftir
að hafa komið fyrst í mark í 100 m hlaupi kvenna á HM í gær.
White vann
gullverðlaun
Indriði Sigurðs-
son fer til Genk