Morgunblaðið - 25.08.2003, Blaðsíða 11
ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 25. ÁGÚST 2003 B 11
ÚRSLIT
ÞRÁTT fyrir að ensku landsliðsstúlk-
urnar Karen Burke og Rachel Brown
vantaði í lið ÍBV voru þær ekki í vand-
ræðum með lið Þórs/
KA/KS í Eyjum á
laugardaginn. Loka-
tölur leikins voru 8:0
eftir að staðan í hálfleik var 3:0. Leik-
urinn var allan tímann eign heima-
stúlkna en ekki var hann áferðarfal-
legur, enda veðrið ekki upp á það
besta, talsvert rok sem hafði sín áhrif
á leikinn. Margrét Lára Viðarsdóttir
var í miklu stuði, gerði fjögur mörk og
átti fínan leik í framlínu Eyjastúlkna.
ÍBV heldur því enn pressunni á KR
og munar nú fjórum stigum á liðunum
þegar tvær umferðir eru eftir en í síð-
ustu umferðinni mætast einmitt ÍBV
og KR í Vestmannaeyjum.
ÍBV eygir
smá von
Sigursveinn
Þórðarson
skrifar
GLENN Roeder hefur verið sagt upp
störfum sem knattspyrnustjóra hjá
West Ham en sem kunnugt er féll lið-
ið úr ensku úrvalsdeildinni í knatt-
spyrnu á síðasta tímabili. West Ham
tapaði 1:0 fyrir Rotherham á laugar-
daginn og það var kornið sem fyllti
mælinn og stjórn West Ham ákvað að
leita á önnur mið. Trevor Brooking
hefur verið ráðinn knattspyrnustjóri
West Ham til bráðabirgða. Þetta er í
annað sinn sem Brooking tekur við
West Ham en undir lok síðasta tíma-
bils tók hann við liðinu þegar Roeder
fékk hjartaáfall og þurfti að taka sér
hlé frá þjálfun í töluverðan tíma.
Brooking náði góðum árangri með lið-
ið og var mjög nálægt því að bjarga
liðinu frá falli síðasta vor.
Roeder
sagt upp
Fyrstu mínúturnar í leiknum voruVíkingar líklegri til afreka en á
11. mínútu sofnaði vörn þeirra illi-
lega á verðinum og
Ingi Hrannar Heim-
isson skoraði eftir
klaufagang Víkinga.
Þeim var nokkuð
brugðið en unnu sig aftur inn í leik-
inn og fengu nokkur ágæt færi en án
árangurs. Þórsarar þurftu því að
bakka undan pressunni aftar á völl-
inn en voru klókir, vörðust fimlega
og fengu líka sín færi.
Strax í upphafi síðari hálfleiks var
greinilegt að Víkingar ætluðu sér
sigur, einbeitingin var mjög góð.
Eftir þrjár góðar sóknir, þar á meðal
þegar Kári Árnason skallaði í slá
Þórs, uppskáru þeir jöfnunarmark á
58. mínútu þegar Jón B. Her-
mannsson skoraði með skalla eftir
hornspyrnu. Það varð ekki aftur snú-
ið. Sjö mínútum síðar skoraði Daníel
Hjaltason glæsilegt mark með hnit-
miðuðu skoti í stöng og inn eftir góð-
an sprett um vinstri kantinn. Þórs-
arar gerðu sér þá grein fyrir því að
þeir yrðu að gjöra svo vel að komast
inn í leikinn og skora til að eiga
möguleika á að halda 2. sæti deild-
arinnar. Þeir tóku sig á en það dugði
skammt því Víkingar voru komnir á
bragðið, náðu öllum völdum á vell-
inum og voru fljótir að brjóta mót-
spyrnu Þórsara á bak aftur. Á 74.
mínútu fékk Jóhann Þórhallsson úr
Þór að líta rauða spjaldið fyrir gróft
brot á varnarjaxlinum Sölva Geir
Ottesen, sem þurfti í kjölfarið að fara
útaf til að láta sauma saman stóran
skurð við kinnbeinið. Sannarlega ljót
brot enda höfðu varnarmenn Vík-
inga sóknarmenn Þórs í hendi sér og
Þór fékk ekkert færi eftir hlé en leik-
bann hlýtur að veikja stöðu Þórs á
lokasprettinum.
Á 83. mínútu innsiglaði Jón B. sig-
ur Víkinga, þá ætlaði markvörður
Þórs að hreinsa frá marki sínu eftir
þunga sókn Víkinga en skaut í Jón,
sem náði boltanum og skoraði auð-
veldlega. „Hvað er hægt að segja eft-
ir svona leik, þetta var bara snilld,“
sagði Daníel Hjaltason. „Mér fannst
við betri allan leikinn. Þeir komust
yfir eftir misskilning okkar manna
en voru alls ekki betri. Við ræddum í
hálfleik að vera jákvæðir og ef það
gengi eftir ynnum við leikinn. Við
höfum oft farið út í að þrasa við dóm-
arann en nú höldum við brosinu. Við
ætluðum að leika að okkar hætti,
sinna bæði vörn og sókn en ekkert
endilega að gera neitt flókið.“ Daníel
var vígreifur og sagði liðið eiga að
geta staðist spennuna á lokasprett-
inum. „Við erum að spila í fyrstu
deild á Íslandi og ef við stöndumst
ekki þá pressu eigum við ekkert er-
indi í efstu deild.
Maður leiksins: Daníel Hjaltason,
Víkingi.
Morgunblaðið/Jim Smart
Leikmenn Þórs komust stundum hvorki lönd né strönd gegn Víkingum. Hér hefur Þorri Ólafsson
fyrirliði Víkings góðar gætur á Alexandre Santos sóknarmanni Þórsliðsins í leiknum á laugardag.
Víkingar skrefi
nær efstu deild
VÍKINGAR fóru á kostum í Víkinni á laugardaginn þegar Þór kom í
heimsókn en þessi lið berjast hart um sæti í efstu deild að ári. Þeir
náðu fljótlega undirtökunum og eftir hlé sáu gestirnir frá Akureyri
aldrei til sólar enda unnu Víkingar 3:1. Víkingar standa nú betur að
vígi um að komast upp í efstu deild, eru í 2. sæti deildarinnar og
hafa tveggja stiga forskot á Þór en það eru þrjár umferðir eftir og
níu stig enn í pottinum.
Stefán
Stefánsson
skrifar
Keflvíkingar hófu leikinn af mikl-um krafti í blíðunni í Ólafsfirði
og tóku fljótlega öll völd á vellinum
Sóttu án afláts og
heimamenn höfðu í
nógu að snúast í
vörninni. Gestirnir
fengu nokkur ágæt
færi en tókst ekki að skora. Gegn
gangi leiksins náðu heimamenn síð-
an forystunni eftir liðlega hálftíma
leik þegar Toni Usnik lagði boltann
með nákvæmu skoti í markhornið
eftir skyndisókn.
Þetta virtist slá gestina út af lag-
inu og það sem eftir lifði hálfleiksins
og fyrsta stundarfjórðung seinni
hálfleiks voru heimamenn síst lak-
ara liðið. Sjálfstraust þeirra efldist
en liðið er brothætt og eftir að
Magnús Þorsteinsson jafnaði fyrir
Keflavík um miðjan seinni hálfleik
náðu gestirnir undirtökum á ný.
Þeir gerðu harða hríð að marki
Leifturs/Dalvíkur en Sævar Ey-
steinsson markvörður var í miklum
ham og varði oft frábærlega. Meðal
annars varði hann vítaspyrnu frá
Magnúsi þegar stundarfjórðungur
lifði leiks og jafnteflið var í augsýn.
En skömmu fyrir leikslok tókst Þór-
arni Kristjánssyni að koma knett-
inum framhjá Sævari og í stöng og
inn með laglegum skalla og með
þessu marki fer hann mjög nálægt
því að senda bæði liðin úr 1. deild-
inni, hvort í sína áttina.
Maður leiksins: Sævar Þ. Ey-
steinsson, Leiftri/Dalvík.
Keflvíkingar nær öruggir upp
KEFLVÍKINGAR nánast gulltryggðu sér sæti í efstu deild á nýjan leik
með því að sigra Leiftur/Dalvík 2:1 í Ólafsfirði á laugardag. Leik-
urinn var ekki síður mikilvægur fyrir heimamenn, sem voru að berj-
ast fyrir lífi sínu í deildinni, en eftir þetta tap eiga þeir nánast enga
möguleika á að halda sér uppi.
Valur
Sæmundsson
skrifar
JAFNARI getur keppnin um heims-
meistaratitil ökuþóra ekki verið að
loknum ungverska kappakstrinum í
gær, en þegar þrjú mót eru eftir af
vertíðinni hefur Michael Schu-
macher 72 stig, Juan Pablo Montoya
71 og Kimi Räikkönen 70.
Räikkönen styrkti stöðu sína mjög
með öðru sæti í dag og Montoya dró
Schumacher uppi með þriðja sæti en
heimsmeistarinn varð áttundi og
vann því inn aðeins 1 stig meðan
Räikkönen fékk 8 og Montoya 6.
Í fjórða sæti er Ralf Schumacher
með 58 stig og Fernando Alonso í því
fimmta með 54. Hann hækkaði um
sæti með sigri í dag, vann sér inn 10
stig og komst upp fyrir Rubens
Barrichello sem er með 54 stig.
Barrichello hefur 49 stig og sjöundi
er David Coulthard með 45.
Þá eiga tilþrif sér líka stað í
keppninni um heimsmeistaratitil bíl-
smiða. Með frammistöðu Montoya
og Ralfs Schumacher, sem varð
fjórði, hefur Williams-liðið tekið for-
ystu á Ferrari í stigakeppni bíl-
smiða, með 129 stig gegn 121, Mc-
Laren er með 115 stig.
Stiga-
keppnin í
algleymingi
Cercle Brugge 3 0 2 1 0:2 2
Heusden-Zolder 3 0 2 1 0:2 2
Lokeren 3 0 1 2 1:3 1
Charleroi 3 0 1 2 0:3 1
Mons 3 0 1 2 3:8 1
Danmörk
Esbjerg – AaB...........................................3:2
Herfølge – AB............................................0:2
Nordsjælland – Frem ...............................1:3
Viborg – AGF ............................................1:0
Bröndby – København..............................0:1
Midtjylland - OB....................................... 2:1
Staðan:
Esbjerg 5 3 2 0 11:6 11
Bröndby 5 3 1 1 8:3 10
København 5 3 1 1 8:6 10
Midtjylland 5 3 1 1 10:8 10
AaB 5 2 1 2 7:7 7
Frem 5 2 1 2 5:6 7
OB 5 2 0 3 8:8 6
Viborg 5 1 3 1 6:6 6
Nordsjælland 5 1 2 2 7:8 5
AGF 5 1 1 3 7:10 4
AB 5 1 1 3 6:10 4
Herfølge 5 1 0 4 2:7 3
Svíþjóð
Halmstad – Malmö....................................0:4
Helsingborg – AIK....................................5:1
Djurgården – Landskrona .......................3:0
Staðan:
Djurgården 18 13 1 4 43:16 40
Malmö 19 10 5 4 40:16 35
Hammarby 18 10 4 4 29:22 34
Halmstad 19 10 3 6 33:23 33
Örgryte 18 8 3 7 27:30 27
Helsingborg 19 8 3 8 22:28 27
AIK 19 7 5 7 27:28 26
Gautaborg 17 7 4 6 24:16 25
Örebro 18 7 4 7 22:25 25
Landskrona 19 5 7 7 18:26 22
Elfsborg 18 5 6 7 18:25 21
Sundsvall 18 2 8 8 16:28 14
Öster 18 3 5 10 16:30 14
Enköping 18 2 4 12 18:40 10
Noregur
Vålerenga – Odd Grenland.......................0:3
Ålesund – Lyn ...........................................2:0
Bryne – Bodö/Glimt ..................................0:2
Stabæk – Molde.........................................1:1
Tromsö – Lilleström .................................2:0
Rosenborg – Viking ..................................4:1
Staðan:
Rosenborg 18 14 3 1 46:13 45
Bodö/Glimt 18 10 4 4 27:17 34
Odd Grenland 18 9 3 6 34:26 30
Sogndal 17 8 5 4 31:22 29
Viking 18 6 8 4 32:24 26
Stabæk 18 6 7 5 26:24 25
Lilleström 18 6 6 6 21:24 24
Bryne 18 7 1 10 28:34 22
Molde 18 6 3 9 21:28 21
Vålerenga 18 4 7 7 19:22 19
Brann 17 4 7 6 25:30 19
Lyn 18 4 4 10 19:34 16
Tromsö 18 4 4 10 21:40 16
Ålesund 18 3 6 9 19:31 15
FRJÁLSAR
HM í frjálsum íþróttum í París
Kúluvarp karla
Andrey Mikhnevich, H-Rússlandi.... 21,69
Adam Nelson, Bandar....................... 21,26
Yuriy Bilonog, Úkraínu......................21,10
20 km ganga karla:
Jefferson Pérez , Ekvador..............1:17:21
Francisco Javier Fernández, Spáni
...........................................................1:18:00
Roman Rasskazov, Rússland..........1:18:07
10.000 metra hlaup kvenna:
BerhaneAdere, Eþíópíu.................30.04,18
Werknesh Kidane, Eþíópíu ...........30.07,15
Yingji Sun, Kína ............................30.07,20
20 km ganga kvenna:
JelenaNikolayeva, Rússlandi ..........1:26.52
Mótsmet.
Gillian O’Sullivan, Írlandi ...............1:27:34
Valentina Tsybulskaya, Hv.-Rússl.1:28:10
Sjöþraut kvenna:
Carolina Klüft Svíþjóð ................7.001 stig
Eunice Barber, Frakklandi ........6.755 stig
Natalya Sazanovich, Hv-Rússl. 6.524 stig
10.000 m hlaup karla:
Kenenisa Bekele, Eþíópíu .............26.49,57
Mótsmet.
Haile Gebrselassie, Eþíópíu..........26.50,7o
Sihine Sileshi, Eþíópíu...................27.01,44
100 m hlaup kvenna:
Kelli White, Bandaríkjunum..............10,85
Torri Edwards, Bandaríkjunum........10,93
Zhanna Block, Úkraínu ......................10,99
KNATTSPYRNA
Landsbankadeild karla, efsta deild:
Kaplakrikavöllur: FH - ÍBV.................18.30
Í KVÖLD