Morgunblaðið - 26.08.2003, Blaðsíða 4
FRÉTTIR
4 ÞRIÐJUDAGUR 26. ÁGÚST 2003 MORGUNBLAÐIÐ
FYRSTA skólasetning Barnaskóla
Hjallastefnunnar fór fram í gær.
Margrét Pála Ólafsdóttir, skólastjóri
og höfundur Hjallastefnunnar, sagði
við það tækifæri að orðið ævintýri
væri efst í huga hennar. Hún hefði
ekki trúað því fyrir rúmum fimm vik-
um að þetta yrði að veruleika, að glæ-
nýr barnaskóli Hjallastefnunnar yrði
starfræktur við Vífilsstaði.
„Mig langar að þakka öllum þeim
sem hafa stutt okkur til að hrinda af
stað því ævintýri, að reyna nýjan val-
kost í skólakerfinu. Ég vil þakka bæj-
aryfirvöldum í Garðabæ og þá sér-
staklega bæjarstjóranum, Ásdísi
Höllu, fyrir ótrúlegt framtak og kjark
til að styðja við bakið á okkur og fara
af stað með þennan tilraunaskóla hér
í Garðabæ,“ sagði Margrét Pála í
setningarræðu sinni.
Hún sagði að margir hefðu keppst
við að greiða götu skólans undanfarið.
Menntamálaráðuneytið vann að því
með forsvarsmönnum Hjallastefn-
unnar að uppfylla öll skilyrði til skóla-
halds, starfsfólk Garðabæjar aðstoð-
aði við undirbúninginn og iðnaðar-
menn unnu ötullega að því að innrétta
húsnæði skólans síðustu tvær vik-
urnar.
„Síðastliðna daga hafa foreldrar
svo bæst í hópinn og um helgina voru
40 manns frá morgni og fram á nótt
að keppast við að gera þetta mögu-
legt. Það er stórkostlegt,“ sagði Mar-
grét Pála. Fyrst og fremst væri hún
þakklát þessu fólki sem treystir
starfsfólki skólans til að starfa með
börnunum sínum. Sagði hún að allir
ætluðu að skemmta sér ótrúlega vel í
vetur og hlökkuðu greinilega til sam-
verustundanna sem í hönd færu.
Garðabær mun greiða um 427 þús-
und krónur með hverju sex ára barni
sem stundar nám í nýja grunn-
skólanum. Það er í samræmi við það
gjald sem greitt er með börnum í öðr-
um grunnskólum Garðabæjar.
Barnaskóli Hjallastefnunnar mun
ekki innheimta skólagjöld og hafa
börn úr Garðabæ forgang til náms í
skólanum.
Skólinn á eftir að blómstra
Ásdís Halla Bragadóttir, bæj-
arstjóri Garðabæjar, sagði opnun
nýja grunnskólans lítið skref fyrir
hvern og einn en stórt skref fyrir ís-
lenskt samfélag. „Við höfum aukið
tækifæri barna og foreldra til að velja
á milli bestu valkostanna. Við höfum
stuðlað að jafnrétti til náms og tryggt
að fleiri geti fengið tækifæri til að
finna það sem best hentar.“
Ásdís sagðist hafa haldið að skóla-
starfið gæti ekki hafist í haust þar
sem stuttur tími var til stefnu þegar
húsnæði við Vífilsstaði bauðst. Þó
trúði hún því að ef einhver gæti gert
þetta að veruleika væri það Margrét
Pála, hennar frábæra starfsfólk og
öflugur foreldrahópur í kringum starf
Hjallastefnunnar. Þar sem það gekk
eftir trúir hún ekki öðru en að barna-
skólinn eigi eftir að blómstra, börnin
muni dafna vel og fá að njóta sín til
fulls.
Páll Hilmarsson, formaður skóla-
nefndar Garðabæjar, sagði að samn-
ingur bæjarins við Barnaskóla
Hjallastefnunnar markaði tímamót í
bænum. Aukið val foreldra væri
hvetjandi fyrir einkaaðila að standa
sig vel í skólastarfinu.
Hann afhenti Margréti Pálu gjöf
frá Garðabæ í tilefni þessara tíma-
móta. Það var skólasöngur í þremur
erindum, saminn af Unni Halldórs-
dóttur við lag úr Emil í Kattholti.
Eftir það gengu rúmlega 50 börn
inn í skólann til fundar við kennara
sína. Fyrsta árið munu fimm og sex
ára börn stunda nám í Barnaskóla
Hjallastefnunnar en síðan fjölgar ár-
göngum við skólann.
Barnaskóli Hjallastefnunnar settur
Foreldrar eru mjög virkir í starfi Hjallastefnunnar og segir Margrét Pála
skólastjóri að þeir séu mikilvægur hlekkur í starfi skólans. Fjöldi foreldra
var viðstaddur í Garðabæ í gær þegar skólinn var settur í fyrsta sinn.
Morgunblaðið/Jim Smart
Nemendur í Barnaskóla Hjallastefnunnar biðu full eftirvæntingar eftir
kennara sínum fyrsta skóladaginn. Kennsla hófst í hinum nýja skóla í gær.
YFIR hundrað þúsund farþegar
hafa nú siglt með hinni nýju Nor-
rænu síðan ferjan hóf áætlunar-
siglingar milli Danmerkur, Hjalt-
lands, Færeyja, Íslands og Noregs
10. apríl sl. Á heimasíðu Smyril Line
kemur fram að eitthundrað þúsund-
asti farþeginn reyndist vera Hervör
Joensen frá Kollafirði í Færeyjum,
sem kom um borð í Hanstholm á
föstudagskvöld.
Skipstjórinn, Henrik Hammer,
hótelstjórinn á Norrænu, Danny
Christensen, og móttökustjórinn,
Allan Streimoy, ásamt Aage Bruun,
forstjóra SL í Danmörku, tóku á
móti farþegunum sex með blómum
og gjöfum. Óli Hammer, forstjóri
Smyril Line, er ánægður með árang-
urinn sem náðst hefur síðan Smyril
Line tók við Norrænu í Flender
Werft í Lübeck 7. apríl sl. „Það eru
að sjálfsögðu margir sem hafa áhuga
á að sigla með þessu nýja skipi en
það er þó ekki bara gert af forvitni.
Hér er um að ræða raunverulegan
árangur eins og best sést á því að nú
erum við að þjóna farþega númer
eitthundrað þúsund með þessu nýja
skipi en til viðmiðunar flutti gamla
Norræna áttatíu og sjö þúsund far-
þega allt síðastliðið ár,“ segir hann.
Hundrað þúsund far-
þegar með Norrænu
Seyðisfirði. Morgunblaðið.
ÍSLANDSBANKI og Landsbanki
eiga samtals 43,15% í SH og Ís-
landsbanki á tæp 8% í SÍF, sam-
kvæmt nýjum hluthafalistum félag-
anna. Eins og fram hefur komið í
Morgunblaðinu vilja bankarnir sam-
eina SH og SÍF en talið er að nokkr-
ir stærstu eigendur félaganna fylgi
þeim í því máli. Þar á meðal eru
Burðarás, Sjóvá-Almennar trygg-
ingar og Fjárfestingarfélagið
Straumur.
Halldór J. Kristjánsson, banka-
stjóri Landsbanka Íslands, sagði í
Morgunblaðinu sl. sunnudag að ef
ekki næðist samstaða um samein-
ingu SH og SÍF meðal hluthafa fé-
laganna þá yrðu aðrar leiðir farnar
til að tryggja þetta markmið.
Þegar hann er inntur eftir því
hvaða leiðir þetta gætu orðið tekur
Halldór fram að bankinn leggi höf-
uðáherslu á að ná fram samruna í
sem víðtækastri sátt.
„Það er reyndar mikilvægt fyrir
þjóðina í heild að markaðssetning
sjávarfangs, sem er langmikilvæg-
asta útflutningsafurð Íslendinga, sé
efld og einfaldasta leiðin að því
markmiði er að sameina öflugt
markaðsstarf SH og SÍF í eitt enn
öflugra fyrirtæki.
Ef það er ekki hægt þá verða
menn að skoða aðrar leiðir að því
markmiði að mynda stórt alþjóðlegt
fyrirtæki.“
Hann segir að það geti gerst með
margvíslegum hætti, bæði með
kaupum og sölu hlutabréfa og öðr-
um aðgerðum á hlutabréfamarkaði
enda séu bæði félögin skráð á mark-
aði.
„Landsbankinn gerðist fjórðungs-
hluthafi í SH í byrjun árs til að
stuðla að samruna félaganna og ná
fram virðisauka fyrir hluthafa og
viðskiptavini beggja félaga. Því er
að okkar mati mikilvægt að ná sem
fyrst fram niðurstöðu, ekki síst í
ljósi þeirra miklu samlegðaráhrifa
sem hægt er að ná fram. Hagsmun-
irnir eru það miklir fyrir framleið-
endur sjávarafurða, hluthafa og
þjóðina í heild að niðurstaða verður
að fást,“ segir Halldór.
Róbert Guðfinnsson, stjórnarfor-
maður SH, segist meta málið þannig
að nú séu hlutirnir að færast í þá átt
sem hann hafi talað fyrir sl. tvö ár.
Hann verði mjög ánægður ef félögin
ná að sameinast.
Stjórnarformaður SÍF, Friðrik
Pálsson, sagði í Morgunblaðinu í
gær að honum þætti æskilegt að
sameina félögin en hann legði alla
áherslu á að samruninn verði á vin-
samlegum nótum.
Ekki náðist í Ólaf Ólafsson, vara-
formann stjórnar í SÍF, en hann er
talsmaður hóps sem reyndi á dög-
unum að kaupa hluti Íslandsbanka í
félögunum tveimur.
Miklir hagsmunir í húfi
Höfuðáhersla á
að ná fram sam-
runa í sem víð-
tækastri sátt
!
"#
$
%
"
&
'
%
"#
$
()'
*
+ ,
'
!-').
&
$
(
$
()'
#
$
!-').
/'
!-').
(
0
11%&
2).
3
!-').
1'
!-').
1'
')
!-').
1'
"
!-').
!- "#$ %
!&'' ' (! )
*+ ! !* "!
#' &'' '
')
* ,*
, -.!& # $!
"
$
.!& #
/0!
*"!11*2134
5&'' '
6 ! 3 ) 7#