Morgunblaðið - 28.08.2003, Síða 1
PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS FIMMTUDAGUR 28. ÁGÚST 2003 Á netinu mbl.is/vidskipti BLAÐ B
VIÐSKIPTABLAÐ MORGUNBLAÐSINS
S É R B L A Ð U M V I Ð S K I P T I , E F N A H A G S M Á L O G A T V I N N U L Í F Á S A M T S J Á V A R Ú T V E G S B L A Ð I
Tryggingafélög hagnast
Samanlagður hagnaður eykst verulega milli ára 6
Tveggja ára vinna
Íslandsbanki sér um millilagslántöku 7
SLÁTURHÚSIN TÝNA TÖLUNNI
LANDSBANKI Íslands er orð-
inn stærsti hluthafinn í Fjárfesting-
arfélaginu Straumi eftir að bankinn
keypti hlut félaga tengdum Jóni
Helga Guðmundssyni, forstjóra
BYKO, Straumborg og Norvik,
Eyris fjárfestingarfélags sem er að
mestu í eigu Þórðar Magnússonar,
og Kaupthing Bank í Lúxemborg.
Alls keypti Landsbankinn 19,39%
hlut í Straumi af þessum fjórum fé-
lögum. Á sama tíma var tilkynnt til
Kauphallar Íslands að Landsbank-
inn hefði selt Samson Global Hold-
ings Limited, en eigendur þess eru
félög í eigu Björgólfs Guðmunds-
sonar, Björgólfs Thor Björgólfsson-
ar og Magnúsar Þorsteinssonar,
14,02% af heildarhlufé Straums.
Eftir þessi viðskipti á Lands-
bankinn 19,8% hlut í Fjárfesting-
arfélaginu Straumi en Samson
14,02%.
Samanlagt eiga þessi tvö félög
33,82% hlut í Straumi, samkvæmt
tilkynningu til Kauphallar Íslands.
Samson kaupir hlutinn í Straumi
af Landsbankanum á genginu 3,9
og er því kaupverðið tæpir 2,3 millj-
arðar króna. Landsbankinn kaupir
hlutinn af félögunum fjórum á sama
gengi og er kaupverðið því rúmir
3,1 milljarður króna. Annars vegar
er greitt með peningum tæplega 1,5
milljarðar króna og hinsvegar með
nýju hlutafé í Landsbankanum að
nafnverði tæplega 345 milljónir
króna miðað við gengið 4,80. Útgef-
ið hlutafé í Landsbankanum verður
tæpir 7,2 milljarðar króna og nem-
ur aukningin 4,69% af útgefnu
hlutafé. Við það lækkar eignarhlut-
ur Samson eignarhaldsfélags í
Landsbankanum úr 45,8% í 43,65%.
Fátt annað hægt en að selja
Á þriðjudag var tilkynnt til Kaup-
hallar Íslands að Norvik, Eyrir,
Kaupthing Bank Lúxemborg og Ís-
landsbanki hefðu selt Straumi
hlutabréf sín í Framtaki fjárfesting-
arbanka, alls 34,72% hlut á genginu
1,9. Kaupverðið var tæpar 1.676
milljónir króna. 70,94% af kaup-
verðinu var greitt með bréfum í
Fjárfestingarfélaginu Straumi á
genginu 3,3, en þau bréf fyrir utan
hlut Íslandsbanka voru síðan seld
til Landsbankans á genginu 3,9 í
gær. Afgangurinn var greiddur með
reiðufé.
18. júní sl. keypti Straumur
57,1% hlut í Framtaki fjárfesting-
arbanka en þann sama dag keyptu
Norvik og Eyrir tæplega 30% hlut í
Framtaki í gegnum Kaupþing Bún-
aðarbanka. Straumur gerði í kjöl-
farið yfirtökutilboð til annarra hlut-
hafa í Framtaki á genginu 1,9,
tilboði sem Norvik, Eyrir, Íslands-
banki og Kaupthing Bank í Lúx-
emborg tóku á þriðjudag. Sam-
kvæmt heimildum Morgunblaðsins
var fátt annað í stöðunni fyrir Jón
Helga Guðmundsson og Þórð
Magnússon en að selja Straumi
bréfin í Framtaki þar sem fyrirhug-
uð yfirtaka þeirra á félaginu hafði
mistekist í júní sl. þegar Straumur
keypti meirihlutann í Framtaki.
Með kaupunum á Framtaki þurfti
að gefa út nýja hluti í Straumi þar
sem greiðsla fyrir bréfin fór að-
allega fram með útgáfu nýs hluta-
fjár. Var það aukið á þriðjudag um
rúmar 592 milljónir að nafnverði í
samræmi við niðurstöðu stjórnar-
fundar félagsins 22. ágúst sl. Skráð
hlutafé félagsins á Aðallista Kaup-
hallar Íslands eftir hækkunina er
3.789.196.163 krónur.
Eftir kaupin á Framtaki og kaup-
in á Íslenska hugbúnaðarsjóðnum,
nú Brú, fyrr á árinu hefur eigið fé
Straums aukist verulega og er um
14,5 milljarðar króna.
Meðal helstu eigna Fjárfesting-
arfélagsins Straums er 15,08% hlut-
ur í Eimskipafélaginu, 10,31% hlut-
ur í SH og 5,5% hlutur í
Íslandsbanka. Landsbankinn á
6,29% hlut í Eimskipafélaginu og
25,93% hlut í SH.
Yfirtökuskylda myndast í skráð-
um hlutafélögum í Kauphöll Íslands
þegar einn aðili eða tengdir aðilar
eignast 40% og eru Landsbankinn
og Samson komnir nálægt því
marki.
Yrði annar stærsti bankinn
Í hálf fimm fréttum Kaupþings
Búnaðarbanka í gær er leitt að því
líkum að Landsbankamönnum þyki
sameining við Straum fýsilegur
kostur þar sem eigið fé Straums er
um 14,5 milljarðar króna. Saman-
lagt eigið fé Landsbanka og
Straums myndi nema um 32 millj-
örðum króna og yrði bankinn því
annar stærsti banki landsins á eftir
Kaupþingi Búnaðarbanka á mæli-
kvarða eigin fjár og staða hans
óneitanlega sterkari en nú er.
„Enda lýstu nýir eigendur Lands-
bankans því yfir við kaupin á
Landsbankanum að þeir ætluðu
bankanum ekki lengi þá stöðu að
vera þriðji stærsti banki landsins.
Það lítur því út fyrir að sá mögu-
leiki sé kominn upp að bankinn geti
skotist upp í annað sætið innan tíð-
ar,“ að því er segir í hálf fimm
fréttum.
Björgólfur Guðmundsson, stjórn-
arformaður Landsbanka Íslands og
einn eigenda Samson, segir að þeir
hafi séð ákveðin fjárfestingartæki-
færi í Straumi og fengið tilboð sem
þeir hefðu ekki getað hafnað.
„Enda komi tækifæri sem þetta
ekki oft. Straumur er öflugt fjár-
festingarfélag og fjölmörg
skemmtileg tækifæri sem hann er
með og er að skoða. Við teljum að
félagið geti bæði vaxið hér heima
og erlendis.“
Þegar Björgólfur er spurður að
því hvort stefnt sé að yfirtöku á
Straumi þá segir hann að þeir telji
að fjárfestingin í Straumi verði
mjög arðsöm. „Það er okkar sýn á
þetta. Annað er ekki í myndinni hjá
okkur í dag. Þetta er arðsöm fjár-
festing, við erum í viðskiptum og
okkar markmið er að ávaxta okkar
fé. Þetta er ein leið til þess og mjög
góð leið að okkar mati,“ segir
Björgólfur.
Aðspurður hvort þeir hafi haft
samráð við Íslandsbanka áður en
þeir keyptu þennan hlut í Straumi
segir Björgólfur að allt samráð
banka sé bannað.
Landsbankinn og Samson
með 33,82% hlut í Straumi
Meðal helstu eigna Straums er 15,08% eign í
Eimskip, 10,31% í SH og 5,5% í Íslandsbanka
!
! "#
$
! !
%!&'
(
)#*&! ! !
! ) !
! +
+ !
, - !
./(01
. (20
.3(14
3(03
2( 3
2(5
2(6/
2(3/
2(22
4(5
.(64
.(34
.(./
.(12
1(0/
!"
"
, !!
7*
8 ! 9
,
:, ;
! !
;
)
8*
&&!
,
- *
++
( !
.6(10
.1(/6
5(4/
6(65
2(4
2(1
4(32
4(.5
4(.3
4(14
.( 3
.(32
.(43
.(1
1(/4
#$%