Morgunblaðið - 28.08.2003, Blaðsíða 1
28. ágúst 2003
Á FYRSTU fimm mánuðum ársins 2003
nam aflaverðmæti íslenskra skipa af öllum
miðum 30,9 milljörðum króna en heildaraflinn
var 938 þúsund tonn. Verðmæti botnfiskafl-
ans var 21,5 milljarðar króna sem fengust fyr-
ir 206 þúsund tonn, þar af var verðmæti
þorsks 12,7 milljarðar króna en magnið 97
þúsund tonn. Verðmæti uppsjávartegunda
var 5,3 milljarðar króna og magnið 698 þús-
und tonn. Flatfiskaflinn var 16 þúsund tonn,
að verðmæti 2,6 milljarðar króna og fyrir 18
þúsund tonn af skel- og krabbadýrum fengust
1,6 milljarðar króna.
Á Austurlandi var stærstur hluti heildar-
aflans unninn eða 377 þúsund tonn, að mestu
uppsjávartegundir, og námu verðmæti þessa
afla 4,4 milljörðum króna en á Suðurnesjum
var unnið úr mestum verðmætum eða fyrir
5,7 milljarða króna en magnið var 119 þúsund
tonn. Af botnfiski var mest unnið á höfuð-
borgarsvæðinu eða 41 þúsund tonn, að verð-
mæti 4 milljarðar króna, en af þorski var
mest unnið á Suðurnesjum eða 23 þúsund
tonn fyrir 3,3 milljarða króna.
Helmingur af verðmæti sjávaraflans er til-
kominn vegna beinnar sölu útgerða til
vinnslustöðva, 25% verðmætis vegna sölu á
sjófrystum afla, 16,9% vegna sölu á fiskmörk-
uðum innanlands en 5,1% verðmæta eru til-
komin vegna útflutnings á fiski í gámum.
Á tímabilinu var unnið úr tæplega 98 þús-
und tonnum af þorski og var mestu ráðstafað
í saltfiskvinnslu eða 42,8%.
Aflaverðmætið 30,9 milljarðar króna
DRAGNÓTABÁTURINN Esjar
fékk fjóra urrara í dragnótina í
kolluálnum. Urrarinn fær nafnið af
því að hann býr til urrhljóð með
sundmaganum. Áhöfnin á Esjari
færði sjávarsafninu í Ólafsvík
fiskana að gjöf og er myndin tekin í
sjávarsafninu þar sem þeir virðast
lifa góðu lífi.
Um urrarann segir á þessa leið í
bók Gunnars Jónssonar, Íslenskir
fiskar.
Urrarinn verður um 60 sentí-
metra langur. Hann er með vel
brynvarinn haus, bolur er stuttur,
stirtlan lengri og all sterkleg.
Heimkynni urrara eru Miðjarð-
arhaf, Svartahaf, NA-Atlantshaf,
frá Marokkó og Madeira, norður
um Biskajaflóa og við Bretlands-
eyjar, í Norðursjó, Skagerak og
Kattegat, við Noreg, Færeyjar og
Ísland. Hér við land hefur urrari
fundizt allt frá SA-miðum (Hval-
baksgrunn) meðfram suðurströnd-
inni vestur og norður fyrir Snæ-
fellsnes og inn í Breiðafjörð (við
Flatey). Einna mest virðist vera um
hann á Mýragrunni.
Urrarinn heldur sig að mestu við
botninn og getur hann staulast um
á eyruggunum. Hann étur einkum
alls konar krabbadýr, eins og rækju
og humar. Nytsemi er lítil, því frek-
ar lítill matur er á beinunum.
Staulast um á eyruggunum
Morgunblaðið/Alfons
Þorskeldið á Grundarfirði gengur vel,
nýtt skipulag Brims kynnt, mikil um-
svif við höfnina og síldin verðlögð
Landiðogmiðin
Sérblað um sjávarútveg
úrverinu
AKUREYRI er stærsta útgerðarhöfn landsins en þangað hefur verið út-
hlutað rúmum 42 þúsund þorskígildistonnum á næsta fiskveiðiári eða
11,2% heildarkvótans. Á yfirstandandi fiskveiðiári voru um 12% heild-
arkvótans vistuð á Akureyri.
Vestmannaeyjar eru næst stærsti útgerðarstaður landsins en þar er vist-
aður 35.662 þorskígildistonna kvóti næsta fiskveiðiárs eða 9,5% heild-
arkvótans. Það er svipuð hlutdeild og á yfirstandandi fiskveiðiári. Skip með
heimahöfn í Grindavík hafa yfir að ráða 32.576 tonna kvóta á næsta fisk-
veiðiári sem eru 8,7% heildarinnar. Á fiskveiðiárinu sem nú er senn liðið
voru um 8,3% heildarkvótans í Grindavík. Þá verður 32.491 tonni úthlutað á
skip með heimahöfn í Reykjavík en það eru 8,7% heildarinnar. Reykjavík
var næst stærsti útgerðarstaður landsins á yfirstandandi fiskveiðiári með
um 9,5% heildarkvótans.
Aðrir útgerðarstaðir eru með
nokkru minni kvóta. Á Akranes hef-
ur verið úthlutað 17.280 tonnum eða
4,6% kvótans, til Hornafjarðar
15.250 tonnum eða 4,1%, til Þorláks-
hafnar 12.309 tonnum og til Ólafs-
fjarðar 11.367 tonnum eða 3%.
Mestur kvóti á Akureyri
GUJA EA, 2,3 tonna trilla úr
Grímsey, fær úthlutað langflestum
sóknardögum í sóknardagakerfi
krókabáta á næsta fiskveiðiári sem
hefst á næsta fiskveiðiári.
Sóknardagar báta í sóknardaga-
kerfi eru 19 á næsta fiskveiðiári og
fækkar um tvo frá fiskveiðiárinu sem
lýkur 31. ágúst nk. Þar sem heimilt
er að flytja sóknardaga varanlega og
innan árs milli báta fá sumir bátar
úthlutað fleiri eða færri en 19 sókn-
ardögum á næsta fiskveiðiári. Þann-
ig hafa 12 bátar yfir fleiri 19 sókn-
ardögum yfir að ráða á næsta
fiskveiðiári. Guja EA, 2,35 tonna
trilla úr Grímsey, er með flesta sókn-
ardagana eða 57 daga. Guja EA var
með 26 sóknardaga á yfirstandandi
fiskveiðiári og hefur ekki nýtt þá alla
nú þegar fjórir dagar eru eftir af
fiskveiðiárinu. Afli Guju EA á fisk-
veiðiárinu er um 73 tonn.
Alls hafa fjórir bátar yfir 30 sókn-
ardögum eða fleiri að ráða á næsta
fiskveiðiári og vekur athygli að þeir
eru allir úr Grímsey.
Henning Jóhannesson, útgerðar-
maður í Grímsey, gerir út Guju EA.
Hann segist hafa keypt sóknardaga
á bátinn til að bregðast við skerð-
ingum á dögum. Henning gerir út
fleiri sóknardagabáta og gerir ráð
fyrir að eitthvað af dögunum sem nú
eru vistaðir á Guju EA verði fært á
aðra báta. „Dagabátarnir hafa haldið
uppi atvinnu hér í eynni yfir sum-
artímann. Fækkun á sóknardögum
kemur því illa við marga og því hefur
það skipt miklu máli fyrir okkar að
eiga þess kost að kaupa til okkar
fleiri daga. Síðastliðið sumar hefur
verið eitt það erfiðasta hér í Grímsey
í mörg ár. Vorið var ógæftasamt og
aflabrögð verið dræm á færin. Það
virðist minna af fiski á grunnslóð og
því lengra að sækja en við höfum átt
að venjast.“
Langt fram úr viðmiðunarafla
Ekkert þak er á afla sóknardagabáta
á fiskveiðiári og fjölgar dögunum eða
fækkar eftir heildarafla allra daga-
báta á hverju ári. Afli þeirra hefur
farið verulega fram úr þeim viðmið-
unarafla sem þeim hefur verið út-
hlutað undanfarin fiskveiðiár og dög-
um því fækkað til samræmis við það.
Dögunum getur þó aldrei fækkað
meira en 25% á milli fiskveiðiára.
Þannig voru sóknardagarnir 23 á
fiskveiðiárinu 2001/2002. Þá var út-
hlutaður viðmiðunarafli dagabát-
anna rúm 1.900 tonn en heildar-
þorskafli þeirra varð hinsvegar 9.687
tonn. Dögunum fækkaði því um tvo
milli fiskveiðiáranna, voru 21 á fisk-
veiðiárinu sem nú er að ljúka og þá
var viðmiðunarafli þeirra um 1.800
tonn. Þorskafli dagabáta var þegar
orðinn um 8.000 tonn þann 1. ágúst
sl. og því ljóst að dögunum myndi
fækka á næsta fiskveiðiári.
Með 57 sóknardaga
! "#
!$%
&'(
) !*
+
$#
, -(
+ .(
/ 010&2
3 &(
0 556 7
*88%982
Spjaldadælur
Einfaldar, tvöfaldar, þrefaldar
Stærðir: 6 - 227 cm3/sn.
T6 240 bar, T7 300 bar
Spilverk ehf.
Skemmuvegi 8, 200 Kópavogi,
sími. 544 5600, fax. 544 5301