Morgunblaðið - 29.08.2003, Síða 34

Morgunblaðið - 29.08.2003, Síða 34
MINNINGAR 34 FÖSTUDAGUR 29. ÁGÚST 2003 MORGUNBLAÐIÐ ✝ Margrét Guðjóns-dóttir fæddist í Reykjavík 27. októ- ber 1944. Hún andað- ist á heimili sínu í Kópavogi föstudag- inn 22. ágúst síðast- liðinn. Hún var dóttir hjónanna Guðjóns Ólafssonar frá Reykjavík, f. 19. febr- úar 1906, d. 13. júlí 1964, og Steinþóru Þorvaldsdóttur frá Torfastöðum í Grafn- ingi, f. 25. júlí 1922, d. 13. desember 1991. Margrét var þriðja í röð fjögurra systra, hinar eru Málfríður, f. 25. október 1942, Vilborg, f. 23. nóv- ember 1943 og Ragnhildur, f. 30. júní 1951. Margrét giftist 18. apríl 1965 Magnúsi D. Ingólfssyni frá Suður- eyri við Súgandafjörð, f. 11. mars 1944. Foreldrar hans voru Ingólf- ur Jónsson, f. 9. ágúst 1917, d. 18. júní 2003, og Mikkalína María Al- exandersdóttir, f. 18. mars 1914, d. 29. september 2001. Margét og Magnús eiga þrjú börn: 1) Guðjón, f. 18. ágúst 1965, kvæntur Bjarn- heiði Jönu Guð- mundsdóttur. Dætur þeirra eru Margrét, f. 10. júlí 1989 og Guðrún Ósk, f. 23. mars 1993. 2) Inga María, f. 11. septem- ber 1966, í sambúð með Magnúsi B. Sveinssyni, f. 20. október 1966. Dætur þeirra eru Tanja Dís, f. 2. október 1999, Camilla Rós, f. 1. ágúst 2001 og Katrín Ósk, f. 1. september 2002. 3) Halldóra, f. 22. desember 1968, gift Magnúsi Gunnarssyni, f. 18. apríl 1966. Börn þeirra eru Jakob Daníel, f. 7. nóvember 1988, Júlía, f. 18. desem- ber 1990, Lilja Líf, f. 1. júní 1995 og Enok, f. 2. apríl 1997. Útför Margrétar verður gerð frá Kópavogskirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 13.30. Góða, skemmtilega og fallega mamma mín, Hvert blóm, sem grær við götu mína, er gjöf frá þér, og á þig minnir allt hið fagra, sem augað sér. Sól og jörð og svanir loftsins syngja um þig. Hvert fótspor, sem ég færist nær þér, friðar mig. (Davíð Stefánsson frá Fagraskógi.) Söknuðurinn er mikill og tóma- rúmið stórt. Ég hugga mig við hvað ég var heppin að hafa þig. Þú ert mér hvatning til að verða betri mamma. Öryggið, það er móðurbros sem mjúkt kemur af himnum ofan á hjarta mitt og augu. (Hannes Pétursson.) Takk fyrir allt sem þú hefur gefið mér elsku mamma mín. Minning þín lifir í hjarta mínu. Þín dóttir, Inga María. Elskulega tengdamóðir mín, þú tókst mér opnum örmum þegar þú kynntist mér fyrst. Það hefur veitt mér mikla gleði að þekkja þig í þessi ár. Einnig varstu mér ómetanleg að- stoð í Danmörku þegar fyrsta barnið okkar kom í heiminn. Og gaman hvað okkar samvinna gekk vel við að gera heimilið klárt fyrir komu Ingu Maríu og Tönju Dísar af sjúkrahúsinu. Þá kynntumst við vel. Nú er ei annað eftir en inna þakkar-mál og hinstri kveðju kveðja þig, kæra, hreina sál. Þín ástarorðin góðu og ástarverkin þín. Í hlýjum hjörtum geymast, þótt hverfir vorri sýn. (Einar H. Kvaran.) Það er erfitt að sjá á eftir þér inn í annan heim. Saknaðarkveðja, Magnús B. Sveinsson. Elsku amma mín. Ég man mjög vel eftir ömmu áður en hún varð veik. Ég var mikið hjá henni þegar ég var lítil enda annað barnabarnið og alnafna hennar. Amma mín var hress og skemmtileg kona og þegar við vorum uppi í Þjórs- árdal þá var hún alltaf að tína blóm eða gróðursetja blóm. Ég man líka alltaf eftir að þegar ég gisti hjá henni þá fékk ég helling af nammi og eitthvað gott að borða og svo horfði ég á sjónvarpið. Stundum gerði hún ristað brauð og súkku- laðisjeik handa mér daginn eftir. Hún var alltaf að baka pönnukökur og einu sinni í jarðskjálftanum árið 2000 þá var hún að baka uppi í sveit og svo hélt hún bara áfram, það var rosa fyndið. Hún var alltaf góð og ég elskaði hana út af lífinu. Þegar ég frétti af því að hún væri veik þá bað ég Guð að leyfa henni að lifa mikið lengur, en hún komst í ferminguna mína og ég fékk að hafa hana hjá mér þennan merkisdag í lífi mínu. Í veikindum sínum þá var hún oft- ast hress og líkaði það vel þegar við kíktum til hennar á kvöldin. Ég sakna ömmu rosalega mikið og vildi að hún þyrfti ekki að fara frá okkur en það er ekki hægt að breyta örlögunum. Margrét Guðjónsdóttir. Elsku besta amma mín. Ég man eftir þegar amma sagði mér að stundum væri betra að leika bara við einn vin frekar en marga. Ég sakna ömmu mikið, hún var svaka góð við mig. Ég man að amma bakaði alltaf pönnukökur á hverju kvöldi í sveit- inni í Þjórsárdal. Amma var mér góð amma og ég sakna hennar mikið. Guðrún Ósk Guðjónsdóttir. Mig langar í örfáum orðum að minnast Möggu mágkonu minnar og þakka henni fyrir yndisleg kynni sl. 40 ár sem hún var gift bróður mínum Magnúsi. Samheldni þeirra hjóna var mikil og kom það best í ljós í veik- indum hennar. Fjölskyldur okkar hafa átt margt saman að sælda, bæði súrt og sætt, en oftar en ekki var það bjartsýni og góð ráð Möggu sem réðu úrslitum. Hún var í eðli sínu listræn þó að þeir hæfileikar hennar hafi ekki fengið að njóta sín til fulls. Margir fagrir munir bera vott um þroskaðan listsmekk hennar. Hún var fremur hlédræg, en glaðvær, fjölskyldan var henni allt. Hún bjó manni sínum og börnum fagurt og hlýlegt heimili. Barnabörnin nutu einnig góðs af um- hyggju hennar og blíðu. Að leiðarlok- um sendum við fjölskyldan af Skag- anum hinstu kveðjur. Ég sendi þér kæra kveðju, nú komin er lífsins nótt. Þig umvefji blessun og bænir, ég bið að þú sofir rótt. Þó svíði sorg mitt hjarta þá sælt er að vita af því þú laus ert úr veikinda viðjum, þín veröld er björt á ný. Ég þakka þau ár sem ég átti, þá auðnu að hafa þig hér. Og það er svo margs að minnast, svo margt sem um hug minn fer. Þó þú sért horfinn úr heimi, ég hitti þig ekki um hríð. Þín minning er ljós sem lifir og lýsir um ókomna tíð. (Þórunn Sigurðardóttir.) Maggi minn, við vottum þér og fjöl- skyldum ykkar dýpstu samúð á erf- iðri stund. En minningin um góða konu mun ylja okkur öllum um ókom- in ár. Jónína Ingólfsdóttir. Ég var á leið í Þjórsárdalinn full eftirvæntingar um góða og notalega helgi eins og aðra föstudaga, síminn hringdi og Maggi vinur minn sagði mér að Magga hefði verið að skilja við, væri látin, hann bað mig einnig fyrir kveðju til sameiginlegra vina. Það var eins og fjöllin, áin og hæð- irnar grétu það sem eftir var leiðar. Tilfinningasinfónía helltist yfir mig, sorg og gleði hríslaðist um mig, sorg yfir missi. Gleði og þakklæti vegna þeirrar gæfu sem mér hlotn- aðist að fá að verða samferða svo stórbrotinni konu sem þér, Margrét mín, sem varst alltaf með opinn faðm- inn fyrir mig og leyfðir mér að gráta þegar sorgin og söknuðurinn helltust yfir mig eftir að Gutti lést. Þú varst alltaf tilbúin og opin að hughreysta mig og hvetja til að halda áfram, án þinnar aðstoðar hefði ég ekki viljað vera, takk fyrir það, Magga mín, og er það von mín að ég geti veitt þínu fólki einhvern stuðning og greitt þannig vinarþel þitt. Þó svo að við höfum ekki þekkst lengi þá myndaðist fljótt góður vin- skapur milli okkar hjónanna. Við hjónin vorum ekki búin að dvelja margar helgar í Þjórsárdalnum þeg- ar okkar kynni hófust sumarið 2000, Gutti og Maggi áttu margt sameig- inlegt og unnu saman sem einn við vatnslagnir og ýmislegt sem til þurfti að grípa. Ýmis áform voru í gangi hjá þeim, Gutti ætlaði að fá sér krossara og hjóla með Magga og vatnslögninni var ekki lokið en dauðinn klippti á það. Við ræddum hannyrðir og fönd- ur, þar kom maður ekki að tómum kofunum hjá þér, við ræddum oft um trúmál og líf eftir dauðann og var það sannfæring þín að dauðinn væri ekki endalokin, svo að sjálfsögðu barna- börnin sem sjaldan voru langt undan og áttu hug þinn allan. Alltaf var heitt á könnunni og júlli á boðstólum. Þrátt fyrir alvarleg veik- indi varstu alltaf bjartsýn og barðist einarðlega, ákveðin í því að sigra í þetta sinn, eins og þér hafði tekist áð- ur. En ekki verða allar orustur unnar, ekki í þessu stríði frekar en öðrum. Með þessum sundurlausu og fátæk- legu orðum langar mig að þakka þér samfylgdina og kveðja, kæra vin- kona. Að feta okkar fótspor hvert skref gat orðið að langri göngu þitt skref. Markaði spor. Ég lít þau og horfi til baka. Nú þegar móðan mikla hefur hremmt þig þakka ég og sakna. (Steinþór Jóhannsson.) Mínar innilegustu samúðarkveðjur sendi ég ykkur Magnús, Guðjón Hall- dóra, Ingibjörg, makar og barna- börn. Guð blessi ykkur. Erna Björg Kjartansdóttir. MARGRÉT GUÐJÓNSDÓTTIR ✝ Guðrún Þor-steinsdóttir fæddist í Reykjavík 27. júlí 1929. Hún lést á Landspítalan- um í Fossvogi 20. ágúst síðastliðinn. Foreldrar hennar voru Þorsteinn Jós- efsson, f. 8.11. 1900, d. 1.11. 1982, og Þóra Guðmundsdóttir, f. 29.8. 1904, d. 1.2. 2000. Systkini Guð- rúnar eru Ágústa, f. 1928, látin, Guð- mundur, f. 1930, og Sigrún, f. 1931. Guðrún giftist Guðmundi G. Þorgeirsyni, f. 17.5. 1924. Þau skildu. Börn þeirra eru: 1) Þorsteinn, f. 25.6. 1951. 2) Guðmundur, f. 9.3. 1953, kvæntur Fjólu Ísleifsdóttir, f. 17.6. 1956. Börn þeirra eru Matthildur B., f. 1975, Þorgerður F., f. 1979, hún á eitt barn og Guðrún F., f. 1987. 3) Guðni Þ., dóttir hans og Rutar Siggeirsdóttur, f. 1954, er Guðný, f. 1977, hún á þrjú börn. Dætur hans og Ástríðar Krist- jánsdóttur, f. 1959, eru Sara D., f. 1982, hún á eitt barn, og Berglind, f. 1985. Sonur hans og Jónu E. Gunnarsdóttur, f. 1973 er Gunnar Þ., f. 2000. 4) María, f. 3.6. 1957. Börn hennar og Jóhanns L. Guðmundssonar, f. 1943, eru Dagný, f. 1976, hún á tvö börn og Jóhann L., f. 1982. Guðrún lauk námi frá Húsmæðraskólanum að Varma- landi. Hún vann við ýmis störf, m.a. í þvottahúsi Ríkispítalanna og síðastu árin á saumastofunni Max. Útför Guðrúnar verður gerð frá Hallgrímskirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 15. Elsku amma, nú vitum við að þér líður vel. Þú háðir stranga baráttu við illvíga sjúkdóma uns yfir lauk. Þú varst alltaf hetja í okkar augum og annarra. Við er- um viss um að þú ert byrjuð að föndra eitthvað fallegt, það var þitt líf og yndi og fengum við öll að njóta góðs af. Alltaf var tilhlökk- unin jafn mikil á jólum og afmæl- um að sjá hvaða listaverk þú hafð- ir gert handa okkur. Alltaf pass- aðir þú að við ættum nóg af fallegum útprjónuðum peysum, vettlingum og sokkum. Við munum sakna þess um jólin á Kjartansgöt- unni að fá ekki koss, stórt knús og bestu rjómatertu í heimi. Ferðin okkar til Danmerkur er ógleym- anleg t. d. þegar þú villtist. Minn- isstæð eru skemmtilegu spila- kvöldin okkar, hvað þú varst alltaf þolinmóð við okkur, alltaf tilbúin að kenna okkur og klára það sem við byrjuðum á. Ekki varstu síðri við langömmubörnin þín. Við eigum ótal margar minn- ingar með þér og um þig sem við geymum í hjörtum okkar. Við vor- um alltaf svo örugg um þig hjá Steina frænda, hann var þín stoð og stytta. Við viljum þakka starfsfólki Landspítalans í Fossvogi deild 7-A frábæra umönnun og hlýju. og kærleika sem þau sýndu ömmu okkar og ættingjum hennar, þó sérstaklega Jóni Jökli sem hún hélt svo mikið upp á. Þú áttir þrek og hafðir verk að vinna og varst þér sjálfri hlífðarlaus og hörð. Þú vaktir yfir velferð barna þinna. Þú vildir rækta þeirra ættarjörð. Frá æsku varstu gædd þeim góða anda, sem gefur þjóðum ást til sinna landa og eykur þeirra afl og trú. En það er eðli mjúkra móðurhanda að miðla gjöfum – eins og þú. (Davíð Stefánsson.) Elsku Dúna amma, Guð geymi þig, þú munt ávallt eiga stað í hjörtum okkar. Þín barnabörn, Matthildur, Dagný, Þorgerður, Jóhann og Guðrún. Elsku amma, um leið og við kveðjum þig með söknuði langar okkur að rifja upp nokkrar ánægjulegar minningar sem við eigum um þig. Það var alveg ótrúlegt hve lagin þú varst í höndunum og alltaf jafn gaman að sjá hvernig þú gast allt- af fundið þér eitthvað fallegt að föndra. Ár eftir ár fengum við allt- af einhverja fallega muni sem þú hafðir búið til í höndunum, öll barnafötin, dúkkufötin, perludúkk- urnar, handklæðin, sápuskrautin, kertastjakarnir, dúkarnir og svo mætti lengi telja. Þú gafst svo mikið af sjálfri þér í hlutina sem þú gerðir. Við eigum svo margt sem minnir okkur stöð- ugt á þig. Við munum alltaf eftir því hvað það var gaman að koma í heim- sókn til þín, þú áttir alltaf eitthvað gott handa okkur í eldhúsinu og hafðir margt skemmtileg að sýna okkur. Eitt sem við minnumst sérstak- lega er að einu sinni komum við í heimsókn til þín að vetri til í snjó og bleytu, okkur var kalt á hönd- unum og eyrunum af því við klæddum okkur ekki nógu vel, og þá var það ekki vandamál fyrir þig að prjóna bara handa okkur vett- linga og húfur á staðnum og við fórum alsælar heim, hlýtt á hönd- um og eyrum. Svona hugsaðirðu nú vel um okkur, elsku amma okk- ar. Núna seinustu árin hefur þú mátt ganga í gegnum ýmsa erf- iðleika og þú barðist eins og hetja til hinsta dags. Við vitum að þú ert komin á góðan stað þar sem þér líður betur og hvílist vel. Við von- um að þú hafir fundið stuðninginn og nærveru okkar á seinustu dög- unum. Við erum Guði þakklátar fyrir að hafa fengið að fylgja þér síðustu skrefin. Þetta er mikil sorgarstund fyrir okkur öll. Okkur þykir svo vænt um þig. Megir þú hvíla í friði og Guð veri með þér. Saknaðarkveðjur, Sara og Berglind Guðnadætur. GUÐRÚN ÞORSTEINSDÓTTIR

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.