Morgunblaðið - 29.08.2003, Page 35
MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 29. ÁGÚST 2003 35
✝ Þorsteinn Berg-mann fæddist í
Keflavík 14. júní
1914. Hann andaðist
á hjúkrunarheim-
ilinu Víðihlíð 22.
ágúst síðastliðinn.
Þorsteinn var sonur
hjónanna Guðlaugar
Karitasar Berg-
steinsdóttur, f. 10.
maí 1884 d. 22.2.
1952, og Stefáns
Magnússonar Berg-
mann, f. 9.9. 1885 d.
17.1. 1969.
Systkini Þorsteins
eru Jóhann Bergmann, f. 18.11.
1906, d. 4.2. 1996, Guðrún Berg-
mann, f. 27.10. 1908, d. 27.4. 1989,
Hreggviður Bergmann, f. 13.2.
1911, d. 22.12. 1978. Anna Berg-
mann, f. 31.5. 1920, d. 1.3.2003, og
Stefanía Bergmann, f. 19.8. 1922.
Þorsteinn kvæntist Sigríði Gísla-
dóttur, f. 20.5. 1915, þau eiga þrjá
syni; 1) Sigurður Bergmann, f.
14.4. 1943, d 27.12. 1990, Magnús
Bergmann, f. 14.4. 1943, og Gunn-
ar Bergmann, f. 11.6. 1945,
kvæntur Önnu Gunnarsdóttur.
Þorsteinn og Sigríð-
ur slitu samvistum.
Seinni kona Þor-
steins var Valgerður
Ingimundardóttir frá
Garðstöðum í Garði,
f. 25.6. 1915, d. 2.5.
2002. Sonur þeirra er
Bjarni Bergmann, f.
17.4. 1959. Fyrir átti
Valgerður þrjár dæt-
ur, þær eru Erna, f.
28.5. 1934, Unnur, f.
9.8. 1937, d 2.1. 1994,
og Ingibjörg, f. 28.5.
1940, Geirmundsdæt-
ur.
Barnabörnin eru þrjú og barna-
barnabörnin eru sex.
Þorsteinn ól allan sinn aldur í
Keflavík. Hann starfaði hjá föður
sínum, bæði til sjós og lands. Hann
hóf störf hjá Olíufélaginu h/f á
Keflavíkurflugvelli 1947 og starf-
aði þar nærfellt í 40 ár. Hann
stundaði einnig sjómennsku með
syni sínum Bjarna á meðan heilsa
leyfði.
Útför Þorsteins verður gerð frá
Keflavíkurkirkju í dag og hefst at-
höfnin klukkan 14.
Kallið er komið,
komin er nú stundin,
vinaskilnaðar viðkvæm stund.
Vinirnir kveðja
vininn sinn látna,
er sefur hér hinn síðsta blund.
Far þú í friði,
friður Guðs þig blessi,
hafðu þökk fyrir allt og allt.
Gekkst þú með Guði,
Guð þér nú fylgi,
hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt.
(Vald. Briem.)
Með þessum sálmi langar okkur
að kveðja hann Steina, með þakk-
læti fyrir allt sem hann var okkur.
Guð blessi minningu hans
Erna og Ingibjörg.
Elsku afi.
Nú hefurðu kvatt þennan heim
og þykir mér leitt að geta ekki
fylgt þér síðustu skrefin. En ég
fékk að kveðja þig stuttu áður en
þú fórst og ég flutti út. Þú ert eini
afinn sem ég hef átt og fengið að
kynnast. Þú gafst þér alltaf góðan
tíma fyrir mig, skutlaðir mér allt
sem ég þurfti að fara og í leiðinni
sagðir mér sögur af Keflavík og þá
sérstaklega um Bergið. Minnis-
stæðast er þó þegar þú sagðir mér
frá því að þú hafðir verið sá fyrsti
sem var skírður í Keflavíkur-
kirkju, ég hef alltaf gaman af að
deila því með öðrum. Við áttum
góðar stundir saman bæði um há-
tíðar og hversdagslega og mun ég
minnast þín sem sterks persónu-
leika og skemmtilegs manns sem
hafði mikinn lífsvilja.
Ég kveð þig, afi minn, með
minninguna um þig í hjarta mínu,
með þig kýlandi í lófann á þér í
dyragættinni og hrjótandi í stóln-
um þínum yfir sjónvarpinu.
Ég þakka þau ár sem ég átti,
þá auðnu að hafa þig hér.
Og það er svo margs að minnast,
svo margt sem um hug minn fer.
Þó þú sért horfinn úr heimi,
ég hitti þig ekki um hríð.
Þín minning er ljós sem lifir
og lýsir um ókomna tíð.
(Þórunn Sigurðardóttir.)
Guð veri með þér, afi minn,
kveðja,
Vala May.
Mig langar að skrifa nokkrar
línur um hann afa minn, besta afa í
heimi. Ég varð þeirrar lukku að-
njótandi að fá að alast meira og
minna upp á Vesturgötunni og
kynntist honum því vel. Fyrir mér
voru þau gimsteinar, ávallt
reiðubúin fyrir mig, sama hvað það
var. Amma kenndi mér margar
bænir og ljóð og afi fullt af sögum,
bæði úr hans uppeldi og ævintýri,
ein var um það hvernig hann hætti
að reykja pípu og var hún sögð
með miklum tilþrifum, eiginlega
eins og leikrit, hann sagðist hafa
hætt snögglega og brotið pípuna
því hann hafði fundið það að hann
væri að verða undir í áflogum sem
þeir væru stundum að gamna sér
við í vinnunni, í kjölfarið fylgdu oft
bollaleggingar um hvernig ætti að
rota manneskju í neyð, bara rétt
dúnka á hökubroddinn á hlið og þá
mundi hún ekki slasast, bara rot-
ast. Já það var gaman að fylgjast
með honum afa. Það var alltaf
margt í gangi í kringum þau ömmu
og afa, á veturna var farið með
okkur á þotu og skauta og var
hann afi, þá um sextugt, mjög klár
á skautum, þeyttist um á mikilli
ferð. Svo voru það ísrúntarnir sem
oft var farið á sunnudögum og
margir stuttir rúntar með nesti, til
dæmis í veiði eða lengri ferðir með
tjaldið og í bústað á Laugarvatn.
Það var mikið stússast í kringum
okkur Bjarna, amma var mikil bú-
kona, alltaf að baka og elda enda
afi mikill matmaður. Seinna þegar
ég var farin að búa og börnin kom-
in var afi tíður gestur, þurfti að-
eins að koma og kíkja á börnin og
settist hann alltaf í sama stólinn,
sem pabbi hans hafði átt og sem
hann svo gaf mér. Um það leyti
sem hann hætti að keyra kom
hann hjólandi eða fótgangandi og
sagðist oft hafa komið við í kirkju-
garðinum og heilsað upp á foreldr-
ana, hann talaði sérstaklega mikið
um móður sína, hvað hún hefði
verið einstök kona. Já margar eru
minningarnar um umhyggjusaman
mann og fljúga þær oft í huga
mér, sérstaklega núna þegar ég
skrifa þetta með mynd af afa og
kertaljós og finnst mér eins og afi
sitji hjá mér. Ég bið þess að verk-
urinn sem við berum í brjósti okk-
ar breytist fljótt í hlýjar minn-
ingar.
Sigríður Benía.
Föstudagurinn 22. ágúst var
einn af þessum fallegu sumardög-
um. Það kom því ekki á óvart að
hann Steini afi skyldi velja þann
dag fyrir hvíldina miklu.
Það var dýrmætt veganesti að fá
að eiga samfylgd með afa í nær-
fellt 23 ár og ótal minningar sem
að ég mun varðveita í hjarta mínu.
Afi var einn af þeim sem að létu
sér ekki leiðast. Hann var mjög
duglegur að stunda sjómennsku
með Bjarna syni sínum, en hana
stundaði hann alveg þangað til
hann veiktist 85 ára gamall. Þegar
hann var ekki úti á sjó þá var hann
eitthvað að bauka heimafyrir.
Afi var mikið snyrtimenni, vildi
hafa allt snyrtilegt í kringum sig.
Oftar en ekki þegar keyrt var nið-
ur Vesturgötuna þá sá maður afa
vera að sópa planið á sumrin og
moka snjóinn á veturna.
Elsku afi, nú er komið að
kveðjustund, ég mun sakna þín al-
veg rosalega mikið en ég hugga
mig við það að þér líður miklu bet-
ur núna. Takk fyrir allt, elsku
besti afi… Ég elska þig.
Horfðu á sólina
og sjáðu að
þrátt fyrir
sorgir þínar
bíður þín
bjartur dagur.
Þín
Jóna Katrín.
ÞORSTEINN
BERGMANN
Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
EIRÍKUR VALDIMARSSON
frá Norðurgarði á Skeiðum,
Grænumörk 5,
Selfossi,
verður jarðsunginn frá Selfosskirkju laugar-
daginn 30. ágúst kl. 13.30.
Rósa Pétursdóttir,
Jónas Guðmundsson, Sólveig Jóhannsdóttir,
Ragnheiður Eiríksdóttir, Gunnar Haraldsson,
Sigmar Eiríksson, Sigríður Ástmundsdóttir,
Pétur Eiríksson, Jóna Jónsdóttir,
Sævar Eiríksson, Inga J. Finnbogadóttir,
Valdimar Eiríksson, Guðbjörg Hrafnsdóttir,
Soffía Ellertsdóttir, Tómas Tómasson,
barnabörn og langafabörn.
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og
langamma,
VALGERÐUR SVEINSDÓTTIR
frá Ósabakka, Skeiðum,
Borgarholtsbraut 24,
Kópavogi,
lést aðfaranótt miðvikudagsins 27. ágúst.
Lilja Ester Ragnarsdóttir, Andrés Einarsson,
Jón Birgir Ragnarsson, Helga Dóra Reinaldsdóttir,
Gestur Bragi Magnússon, Guðfinna Elín Jóhannsdóttir,
Björn Rúnar Magnússon, Brynja Viðarsdóttir
og ömmubörn.
Ástkær eiginmaður, faðir, tengdafaðir, bróðir
og afi,
JÓHANN E. ÓSKARSSON,
lést miðvikudaginn 27. ágúst.
Lydía Edda Thjell,
Finnur L. Jóhannsson, Oddný H. Haraldsdóttir,
Garðar Jóhannsson, Sólveig Halldórsdóttir,
Vilborg E. Jóhannsdóttir, Sigfús B. Sverrisson,
Bryndís E. Jóhannsdóttir, Ármann Halldórsson,
Óskar G. Óskarsson
og barnabörn.
Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi
og langafi,
SIGURÐUR R. INGIMUNDARSON,
Álfheimum 4,
lést á gjörgæsludeild Landspítalans miðviku-
daginn 27. ágúst.
Dóra M. Ingólfsdóttir,
Lilja Sigurðardóttir,
Anna Sigurðardóttir, Konráð Jónsson,
Erna Sigurðardóttir, Tonny Espersen,
Ingi Sigurðsson,
Berglind Sigurðardóttir, Atli Sigurðarson,
barnabörn og barnabarnabarn.
Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur
samúð, vináttu og hlýhug við andlát og útför
eiginkonu minnar, móður okkar og tengda-
móður,
GUÐLAUGAR SIGRÍÐAR
STEFÁNSDÓTTUR,
Þórunnarstræti 134,
Akureyri.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki FSA og
heimahjúkrunar á Akureyri fyrir einstaklega góða umönnun.
Gunnlaugur Guðmundsson,
Jóhanna Kristín Gunnlaugsdóttir, Gestur Geirsson,
Anna Soffía Gunnlaugsdóttir, Friðrik Guðjón Guðnason.
Innilegar þakkir til allra þeirra, sem sýndu okkur
hlýhug og samúð við andlát og útför eiginkonu
minnar, móður okkar, tengdamóður og ömmu,
ERLU GUÐJÓNSDÓTTUR,
Árbakka 9,
Seyðisfirði.
Sigurður Eyjólfsson,
börn, tengdabörn og barnabörn.