Morgunblaðið - 29.08.2003, Síða 40

Morgunblaðið - 29.08.2003, Síða 40
DAGBÓK 40 FÖSTUDAGUR 29. ÁGÚST 2003 MORGUNBLAÐIÐ MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍM- AR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar: 569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156, sérblöð 569 1222, aug- lýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 190 kr. eintakið. Skipin Reykjavíkurhöfn: Forester, Bauska og Silver Whisper koma í dag. Chiyo Maru no 8, Trinket, Kristrún, Hanseduo og Mána- foss fara í dag. Hafnarfjarðarhöfn: Viking kemur í dag. Mannamót Aflagrandi 40. Bingó í dag kl. 14. Árskógar 4. Handa- vinnustofan opin, pútt- völlur opinn mánudag til föstudags kl. 9– 16.30. Bingó. Bólstaðarhlíð 43. Kl. 8–16 hárgreiðsla, kl. 8.30–12.30 bað, kl. 9– 16 handavinna, kl. 9– 17 fótaaðgerð, kl. 13– 16 frjálst að spila í sal. Félagsstarfið, Dal- braut 18–20. Kl. 9 að- stoð við böðun, hár- greiðslustofan opin, púttvöllurinn opin kl. 9–16.30. Félagsstarfið Dal- braut 27. Kl. 8–16 opin handavinnustofan, kl. 9–12 applikering, kl. 10–13 opin verslunin. Bingó. Félagsstarfið Hæð- argarði 31. Kl. 9.30 gönguhópur, allir vel- komnir, kl. 9–12 bað, kl. 9–16 opin vinnu- stofa. Púttvöllurinn opinn frá kl. 14. Félagsstarfið, Löngu- hlíð 3. Kl. 8. bað, kl. 10 hárgreiðsla, kl. 10–12 verslunin opin, kl. 11 leikfimi, kl. 13 „opið hús“ spilað á spil. Félag eldri borgara í Kópavogi. Félagsvist spiluð í Fannborg 8 (Gjábakka) kl. 20.30. Félag eldri borgara, Hafnarfirði, Hraun- seli, Flatahrauni 3. Billjard kl. 13.30, brids kl 13. Púttæfingar á Hrafnistuvelli kl 14– 16. Félag eldri borgara, Reykjavík, Ásgarði Glæsibæ. Dagsferð 3. sept. Krísuvík, Strandakirkja, Þor- lákshöfn, Flóinn Her- dísarvík , Eyrarbakki, söfnin og kirkjan skoð- uð, Stokkseyri, ekið austur Flóann að Þjórsá. Léttur hádeg- isverður í Rauða hús- inu á Eyrarbakka. Leiðsögn Pálína Jóns- dóttir. Upplýsingar og skráning á skrifstofu FEB, s. 588 2111. Krýning Poppeu. Sumarópera Reykja- víkur býður fé- lagsmönnum FEB gegn framvísun skír- teinis góðan afslátt á lokasýningar laug- ardaginn 30. ágúst og sunnudaginn 31. ágúst. Gerðuberg, fé- lagsstarf. Kl. 9–16.30 vinnustofur opnar, m.a. bútasaumur og föndur frá hádegi, spilasalur opinn. S. 575 7720. Gjábakki, Fannborg 8. Handavinnustofan op- in, kl. 13.15 brids, kl. 20.30 félagsvist. Gullsmári, Gullsmára 13. Félagsþjónustan er opin frá kl. 9–17 virka daga, heitt á könnunni. Hraunbær 105. Kl. 9 baðþjónusta, fótaað- gerð, hárgreiðsla, og opin handavinnustofa, kl. 10 pútt. Hvassaleiti 58–60. Hársnyrting fótaað- gerðir. Norðurbrún 1. Kl. 9– 17 hárgreiðsla, kl. 10– 11 boccia. Vesturgata 7. Kl. 9–16 fótaaðgerð og hár- greiðsla, kl. 9.15–14.30 handavinna, kl. 13.30– 14.30 sungið við flyg- ilinn við undileik Sig- urgeirs. Kl. 15 sýna nemendur Sigvalda stepp og línudans. Góðar kaffiveitingar, allir velkomnir. Kl. 14.30–16 dansað í að- alsal. Mánudaginn 1. september byrjar leik- fimi kl. 11–12 einnig kennt á fimmtudögum á sama tíma, leiðbein- andi Janick Moisan. Upplýsingar og skrán- ing í síma 562 7077. Þjónustumiðstöðin er öllum opin óháð aldri. Vitatorg. Kl. 9 hár- greiðsla, kl. 9.30 morg- unstund, kl. 10 fótaað- gerð, kl. 13.30 bingó. FEBK. Brids spilað kl. 13.15 í Gjábakka. Hana-nú, Kópavogi. Laugardagsgangan á morgun. Lagt af stað frá Gjábakka, kl. 10. Gott fólk, gott rölt. Gengið frá Gullsmára 13, kl. 10 á laugar- dögum. Minningarkort Minningarkort Kven- félags Neskirkju fást hjá kirkjuverði Nes- kirkju, í Úlfarsfelli, Hagamel 67 og í Kirkjuhúsinu v/ Kirkjutorg. Minningarkort ABC- hjálparstarfs eru af- greidd á skrifstofu ABC-hjálparstarfs í Sóltúni 3, Reykjavík í síma 561-6117. Minn- ingargjafir greiðast með gíróseðli eða greiðslukorti. Allur ágóði fer til hjálpar nauðstöddum börnum. Í dag er föstudagur 29. ágúst, 241. dagur ársins 2003. Höfuð- dagur. Orð dagsins: En hann frelsar hinn bágstadda með bág- indum hans og opnar eyru þeirra með þrengingunni. (Jb. 36, 15.)     Stjórnmálaáhugafólkiverður um þessar mundir mjög að yrkisefni sú yfirlýsing sem Ingi- björg Sólrún Gísladóttir hefur látið frá sér fara um framtíð sína innan Samfylkingarinnar.     Erla Ósk Ásgeirsdóttirskrifar á Deigl- una.com um yfirlýsingu Ingibjargar Sólrúnar. Pistill hennar ber yf- irskriftan „formanns- morð“ og telur hún Össur lítt öfundsverðan af mis- kunnsemi svilkonu sinn- ar.     Ingibjörg Sólrún Gísla-dóttir hefur lýst því yf- ir með pompi og prakt að hún ætli að taka sætið af svila sínum og samherja til margra ára Össuri Skarphéðinssyni og verða formaður Samfylk- ingarinnar þegar henni hentar; en af miskunn- semi sinni mun hún þyrma svila sínum í haust,“ segir Erla Ósk.     Hún bendir á að Össurisé gerður þónokkur bjarnargreiði með því að vera þyrmt að þessu sinni. Yfirlýsingar Ingi- bjargar draga úr trú- verðugleika Össurar, nú- verandi, og verðandi fyrrverandi, flokks- formanns.     Erla Ósk rifjar upp yf-irlýsingar þeirra Öss- urar og Ingibjargar við lok kosningabaráttunnar fyrir alþingiskosning- arnar í vor. Hún segir að þá hafi Össur verið snöggur að tilkynna að hann ætlaði sjálfur að sitja áfram og að hann hafi lagt mikið á sig til að eigna sér heiðurinn af fylgisaukningu Samfylk- ingarinnar frá síðustu kosningum.     Þetta sýndi að Össurvar orðinn hræddur um stöðu sína, enda hefur komið á daginn að sá ótti var ekki ástæðulaus. Reynslan sýnir að orðum Ingibjargar Sólrúnar er ekki treystandi. Oft hefur verið rakið í fjölmiðlum hvernig hún lofaði því fyrir borgarstjórn- arkosningarnar í fyrra að hún ætlaði að sitja út kjörtímabilið sem borg- arstjóri. Við það stóð hún ekki. Ingibjörg hefur margoft lýst yfir stuðn- ingi við Össur og sagt að hún sækist ekki eftir for- mennsku í Samfylking- unni. Og viti menn. Á daginn kemur að hún vill einmitt verða formaður; bara ekki alveg strax. Á meðan bíður Össur á milli vonar og ótta eftir því að Ingibjörgu þóknist að fullnægja dómnum. Hann situr á formannsstóli eins og illa gerður hlutur, rú- inn stuðningi og trúverð- ugleika,“ segir Erla Ósk.     Að lokum segir hún:„Það verð ég að segja að sem betur fer er Ingi- björg Sólrún ekki svil- kona mín.“ STAKSTEINAR Formannsmorð Víkverji skrifar... VÍKVERJI hafði orð á því ádögunum að hann hefði fengið slæma þjónustu á Subway- skyndibitastöðunum, m.a. að áleggið á bátana væri ekki jafn vel útilátið á öllum stöðunum og að hann fengi ekki alltaf kvittun fyrir viðskiptunum. Víkverja hefur nú borist bréf frá Bjarna Kristins- syni, rekstrarstjóra Subway, þar sem segir m.a.: „Mig langar að byrja á að þakka fyrir upp- byggilega gagnrýni í grein þinni í Mbl. þann 2. ágúst sl. Það er gam- an að heyra að þú ert traustur viðskiptavinur þrátt fyrir að þú hafir ekki fengið þá þjónustu sem hver viðskiptavinur á skilið og er sjálfsögð. Við erum þakklát fyrir að þú hafir gefið okkur endurtekin tækifæri.“ x x x BJARNI heldur áfram: „Ég vilbiðjast afsökunar á þeirri þjónustu sem þú hefur fengið á veitingastöðum Subway. Mig lang- ar í nokkrum orðum að koma inn á þau mál sem þú ræddir í grein þinni. Hvað varðar undirskriftir á kortakvittanir var það afnumið, viðskiptavinum okkar til þæg- indaauka og til að hraða af- greiðslu. Hins vegar á að sjálf- sögðu að afhenda kvittanir að lokinni afgreiðslu og hef ég nú þegar ítrekað það við mitt fólk. Varðandi það sem snýr að form- úlum á bátana, þá er það auðvitað engin smámunasemi að vilja fá sama magn áleggs á bátana á hvaða Subway-stað sem er. Þetta er auðvitað grundvallaratriði í við- skiptahugmyndinni á bak við veit- ingahúsakeðju. Þjálfun starfsfólks okkar er í stöðugri uppbyggingu og erum við nú í miklu átaki til að bæta þjón- ustuna á veitingastöðum okkar, sem eru nú orðnir 12 talsins á Íslandi. Sem dæmi um það má nefna að nú erum við með „secret shopper“-átak [þetta hafa verið kallaðar hulduheimsóknir – innsk. Víkverja] sem felst í því að fólk á vegum óháðs ráðgjafarfyrirtækis fer á alla staði okkar og sendir okkur niðurstöður í skýrslu sem við vinnum út frá til að laga þjón- ustuna.“ x x x VÍKVERJA finnst til fyrir-myndar þegar fólk tekur mark á nöldrinu í honum fyrir sína hönd og annarra, og enn frekar eft- irbreytnivert að taka á því með jafn uppbyggilegum hætti og hon- um finnst Subway gera. Það er í tísku í rekstrarfræðunum að líta á kvörtun sem tækifæri til að bæta sig og það gerir Subway-fólk aug- ljóslega. Nú þarf Víkverji að bregða sér í hulduheimsókn á Subway og sjá hvort þjónustan hefur ekki stórbatnað. Morgunblaðið/Arnaldur LÁRÉTT 1 ástúð, 4 lækkar, 7 flýtinn, 8 róleg, 9 beita, 11 bára, 13 ótta, 14 þoli, 15 vers, 17 kögur, 20 frostskemmd, 22 skynfærin, 23 ysta brún, 24 blundar, 25 flóns. LÓÐRÉTT 1hreyfast hægt, 2 fast- heldni, 3 kvenmannsnafn, 4 bráðum, 5 viðfelldin, 6 úr- komu, 10 æla, 12 vesæl, 13 blóm, 15 tjón, 16 nemur, 18 skjögrar, 19 gamla, 20 röskur, 21 rándýr. LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU Lárétt: 1 prinsessa, 8 sækir, 9 daman, 10 róa, 11 kerra, 13 rausn, 15 hlass, 18 hluti, 21 pár, 22 gripu, 23 eldur, 24 sann- indin. Lóðrétt: 2 ríkur, 3 narra, 4 endar, 5 summu, 6 ósek, 7 unun, 12 rós, 14 afl, 15 hagl, 16 aðila, 17 spurn, 18 hrein, 19 undri, 20 iðra. Krossgáta 1 7 11 15 22 24 12 14 3 9 20 10 4 8 21 23 25 13 17 5 18 6 19 2 16 Rafrænt vegabréf eða vísa ÞEGAR farið er til Banda- ríkjanna þarf fólk að vera með rafrænt vegabréf eftir 1. okt. Venjulegt vegabréf virkar ekki nema fá vísa frá sendiráðinu. Flugleiðir eru að selja miða 2 fyrir 1 til Bandaríkjanna og það stóð hvergi að svona vega- bréf þyrfti. Það er agalegt að lenda í því að fara út og vera svo stoppaður ef mað- ur er ekki með rétt vega- bréf. Finnst mér að upp- lýsa ætti almenning um þessar reglur. Íris. Ekkert með laun að gera Í PISTLI í Velvakanda þriðjudaginn 19. ágúst seg- ir H.G. að íslenskir flug- menn vilji banna að er- lendir flugmenn vinni hér því þeir fái svo lág laun. Þetta er ekki rétt. Verið er að ráða erlenda flugmenn þótt íslenskir flugmenn séu margir atvinnulausir. Ekki er verið að banna er- lenda flugmenn nema vegna þess að þeir taka vinnu frá íslenskum flug- mönnum. Þetta hefur ekk- ert með laun að gera. R.R.K. Tapað/fundið Gleraugu týndust GLERAUGU týndust sl. þriðjudag á leiðinni um Laugardalinn, Sunnuveg- inn eða í norðurhluta dals- ins og upp á Selvogsgrunn. Skilvís finnandi hafi sam- band við Björgu í síma 553 2365. Stafræn myndavél týndist KODAK stafræn mynda- vél í Nikon-hulstri týndist á menningarnótt í miðbæn- um. Skilvís finnandi hafi samband í síma 899 6285. Fundarlaun. Regnúlpa gleymdist í bíl JACK Wolfskin-regnúlpa, ljósbrún og svört, gleymd- ist í svörtum jeppa á leið- inni frá Egilsstöðum til Vopnafjarðar, en eigandi hafði fengið far með ung- um hjónum í þessum jeppa. Eru þau beðin að hafa samband í síma 554 4447. GSM-sími týndist DANÍEL varð fyrir því óhappi að týna GSM-sím- anum sínum á afmælisdag- inn 15. ágúst sl. Hann fór í bíó í Mjódd, síðan inn í Grafarvog og þaðan í Reykjanesbæ. GSM-sím- inn hans er í svörtu Man- chester United-hulstri. Hann vantar GSM-símann sinn tilfinnanlega. Skilvís finnandi hafi samband í síma 421 3511 eða 691 0641 eftir kl. 17. Horfið reiðhjól REIÐHJÓL af gerðinni Mongoose Pro2000, 21 gíra og svart að lit, hvarf frá Tómasarhaga 53. Hjólsins er sárt saknað. Ef einhver athugull lesandi verður hjólsins var, vinsamlegast hafið samband í síma 866 7994. Dýrahald Lúlú Rós er týnd KISAN Lúlú Rós er rauð- bröndótt, með rauða hálsól og vel merkt (númer 937). Hún sást síðast á Ránar- götu 33 á föstudaginn (15. ágúst) klukkan 14.00. Fólk er beðið að athuga geymslur, skúra og þvotta- hús. Fundarlaunum heitið. Þeir sem gætu gefið upp- lýsingar hafi samband í síma 551 1518. Tinni er týndur TINNI er 4ra mánaða fress, alsvartur og ómerkt- ur. Hann týndist frá Hraunteigi í síðustu viku. Þeir sem hafa orðið hans varir hafi samband í síma 849 7075 eða vs. 543 6210. VELVAKANDI Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15  Netfang velvakandi@mbl.is Morgunblaðið/Ómar Agnar fékk far hjá Sigrúnu á Nesveginum.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.