Morgunblaðið - 31.08.2003, Blaðsíða 7
Meðal þeirra sem bjóða leiðsögn um
Barcelona eru www.barcelonatour-
land.com og www.livebarcelona.com.
BRETAR halda hrekkjavökuhátíðir
víða um landið í október með
draugagangi, ýmiskonar óhljóðum
og tilheyrandi látum.
Boðið verður upp á skipulagðar
draugagöngur í Edinborg, Derby
og York en síðan verður sérstök
dagskrá í Warwick-kastalanum í
Englandi. Dagskráin sem heitir
Horrible happenings eða Hryllilegir
viðburðir stendur frá 18. október og
fram til 2. nóvember.
Þá verða uppáklæddir draugar
með skipulagðar gönguferðir í Lan-
caster-kastala 31. október. Boðið
verður upp á fjölskylduferðir
nokkrum sinnum yfir daginn og
börn eru hvött til að koma í bún-
ingum og verðlaun verða veitt fyrir
þá flottustu. Kastalinn verður
skreyttur í stíl við tilefnið. Um
kvöldið er draugaleg dagskrá fyrir
fullorðna.
Á ýmsum hótelum er gestum
boðið að gista yfir helgi og leysa
morðgátu og það á ekki bara við á
hrekkjavöku heldur allan ársins
hring. Verðið fyrir helgarpakka er
á bilinu 12.500–25.000 krónur og
dagskráin hefst klukkan sjö á föstu-
dagskvöldi og henni lýkur á hádegi
á sunnudegi. Innifalið í helgarpakka
er auk gistingar morgunverður
laugardag og sunnudag og kvöld-
verður föstudag og laugardag. Þá
er sýning á laugardegi einnig inni-
falin.
Í kringum hrekkjavökuna í októ-
ber býður hótel í nágrenni Oxford
gestum sínum upp á dagskrá þar
sem leysa á morðgátu. Hótelið heit-
ir Four Pillars og dagskráin stend-
ur frá 31. október og fram til 2.
nóvember.
Mikið verður um að vera í Warwick-kastala á hrekkjavöku.
Bretar bjóða dag-
skrá á hrekkjavöku
Upplýsingar um uppákomur í
Warwick-kastala fást á slóðinni
www.warwick-castle.co.uk
Þá eru upplýsingar um drauga-
göngu í Lancaster-kastala á
slóðinni
www.lancastercastle.com
Ýmis hótel bjóða fram til jóla
upp á morðgátuhelgar. Nánari
upplýsingar eru á
www.murder-weekends.co.uk
ÞEIR sem kaupa ferðir, hótel eða leigja
bílaleigubíla á Netinu ættu kannski að
skoða forritið SideStep ef verið er að
leita að hagstæðum kaupum. Þrátt
fyrirað forritið hafi ekkert verið aug-
lýst eru reglulegir notendur um þrjár
og hálf milljón. Forritið er ókeypis.
SideStep ber saman fargjöld þegar
notandinn hefur slegið inn áfangastað
og ferðadaga. Ólíkt flestum öðrum
hjálpartólum beinir SideStep not-
endum að heimasíðum viðkomandi
flugfélaga, hótela og bílaleiga en þjón-
ar ekki sem heildsöluaðili.
Hægt er að fá forritið á slóðinni
www.sidestep.com
Ferðaforrit
finnur bestu
kaupin
Morgunblaðið/Einar Falur
Forritið gagnast þeim sem sjá sjálfir um að panta flug eða gistingu á Netinu.
BÚIÐ er að íslenska bókunarkerfi
Iceland Express, en til skamms tíma
var það alfarið á ensku. Íslenskuþýð-
ingin fór fram samhliða endurbótum
á bókunarkerfinu. Meðal nýjunga má
nefna að nú geta viðskiptavinir Ice-
land Express breytt bókunum sínum
sjálfir á Netinu. Í fréttatilkynningu
frá Iceland Express kemur fram að
hægt sé að breyta dagsetningum og
nöfnum allt að þremur tímum fyrir
brottför og gera má breytingarnar
hvenær sem er sólarhringsins. Þá
geta aðilar sem ferðast mikið fengið
eigin innskráningu í bókunarkerfi
Iceland Express. Þar fá þeir t.d. ít-
arlegt yfirlit um öll viðskipti, geta
bókað og breytt, prentað út reikninga
og ferðalýsingu. Viðskiptaferðadeild
Iceland Express sér um að veita slík-
an aðgang að bókunarkerfinu. Hlut-
fall bókana Iceland Express á Netinu
var framan af 75% en að undanförnu
hefur það aukist og er nú komið í 80%.
Bókunarkerfi
Iceland Express
á íslensku
Bílaleigubílar
Sumarhús
í Danmörku
og Mið-Evrópu
Ódýrari bílaleigubílar fyrir
Íslendinga.
Bílar frá dkr. 1.975 á viku.
Innifalið í verði:
Ótakmarkaður akstur, allar
tryggingar. (Afgrgjöld á
flugvöllum.)
Aðrir litlir og stórir bílar, 6-7
manna, minibus og rútur.
Sumarhús og íbúðir.
Norðurlönd og Mið-Evrópa.
Hótel. Heimagisting. Bændagisting.
Heimasíðan www.fylkir.is
með fjölbreyttar upplýsingar.
Nýjustu verðlistarnir komnir.
Hringið og fáið sendan.
Dancenter, Lalandia,
Novasol/Dansommer.
Fylkir Ágústsson,
Fylkir — Bílaleiga ehf.,
ferðaskrifstofan
sími 456 3745.
Netfang fylkirag@fylkir.is
Heimasíða www.fylkir.is
Apartment Hotel
VALBERG
Nýuppgerðar ferðamannaíbúðir í klassísku húsi frá 1903.
Ertu á leiðinni til Köben?
Athugaðu íbúðahótelið í
miðbæ Kaupmannahafnar.
Frábær nettilboð í september.
Sendu inn fyrirspurn á íslensku.
www.valberg.dk