Morgunblaðið - 31.08.2003, Qupperneq 1
Ráðgjafi lífeyrismála
Í starfi ráðgjafa lífeyrismála felst m.a:
• Sala á lífeyrissparnaði Landsbankans
• Sérfræðiráðgjöf til viðskiptavina Landsbankans
• Þátttaka í vöruþróun, söluaðgerðum, fræðslu, þjálfun og kynningarmálum
Ráðgjafi lífeyrismála verður í hópi starfsmanna sem annast sölu lífeyrissparnaðar Landsbankans. Um er að ræða
kraftmikinn og árangursmiðaðan hóp sem hefur gæði þjónustunnar að leiðarljósi. Sérstök áhersla er lögð á
eftirfylgni söluáætlana og samstarf við söluaðila.
Leitað er að öflugum einstaklingi með háskólamenntun. Starfsreynsla er skilyrði en reynsla af sambærilegum
störfum er æskileg. Frumkvæði, sjálfstæð vinnubrögð og góð samskiptahæfni eru skilyrði.
Í starfi fjármálaráðgjafa felst m.a:
• Öflun nýrra viðskiptavina í fjárvörslu fyrir Landsbankann og Landsbankann í Luxemburg
• Þjónusta og samskipti við núverandi viðskiptavini
Fjármálaráðgjafi þróar þjónustu Landsbankans við efnameiri einstaklinga. Um er að ræða krefjandi starf
þar sem mikilvægt er að fari saman hæfni í mannlegum samskiptum og sérþekking á fjármálamörkuðum,
jafnt innlendum sem erlendum. Sérstök áhersla er lögð á að fjármálaráðgjafi sé ávallt vakandi fyrir nýjum
viðskiptatækifærum.
Leitað er að öflugum einstaklingi með háskólamenntun á sviði viðskipta. Starfsreynsla í fjármálafyrirtæki er
skilyrði eða reynsla af sambærilegum störfum. Krafist er agaðra og faglegra vinnubragða auk þess sem áræðni,
sjálfstæði og frumkvæði eru nauðsynlegir eiginleikar.
Landsbanki Íslands hf. er eitt
stærsta fjármálafyrirtæki landsins
og veitir alhliða almenna og sértæka
fjármálaþjónustu til einstaklinga,
fyrirtækja og stofnana.
Lögð er megináhersla á að bankinn hafi
ævinlega á að skipa ábyrgum, hæfum,
öflugum, áhugasömum og ánægðum
starfsmönnum.
Jafnframt er það stefna Landsbankans á
hverjum tíma að gefa starfsmönnum kost
á því að eflast og þróast í starfi
í samræmi við eigin þarfir og þarfir
bankans.
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
LB
I
22
09
6
08
/2
00
3
Laus störf á eignastýringarsviði Landsbankans
Fjármálaráðgjafi
Nánari upplýsingar veita:
Hermann Jónasson, forstöðumaður
verðbréfa- og lífeyrisþjónustu
í síma 535 2072 og
Atli Atlason, framkvæmdastjóri
starfsmannasviðs, í síma 560 6304.
Farið verður með allar umsóknir
sem trúnaðarmál.
Umsóknir sendist til starfsmannasviðs
Landsbankans, Austurstræti 11, 101 Reykjavík
eða á póstfang atlia@landsbanki.is
fyrir 10. september n.k.
Fasteignasala
— Sölustjóri
Rótgróin og öflug fasteignasala þarf á sölu-
stjóra að halda. Einungis koma til greina
áræðnir og dugmiklir sölumenn með reynslu
af fasteignasölu. Kjörið tækifæri fyrir góðan
sölumann sem vill auka við ábyrgð sína og
hækka launin. Þarf ekki að hefja störf strax.
Með allar umsóknir verður farið sem trúnaðar-
mál.
Umsóknir óskast sendar til auglýsingadeildar
Mbl. og í box@mbl.is merktar: „Sölustjóri —
14114“.
Sunnudagur
31. ágúst 2003
atvinnatilboðútboðfundirtilsölutilleigutilkynningarkennslahúsnæðiþjónustauppboð
mbl.is/atvinna Gestir í vikunni 8.360 Innlit 16.186 Flettingar 76.768 Heimild: Samræmd vefmæling