Morgunblaðið - 01.09.2003, Blaðsíða 4
FRÉTTIR
4 MÁNUDAGUR 1. SEPTEMBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ
Heimsferðir bjóða nú einstakt tækifæri til borgar-
innar eilífu, í beinu flugi þann 1. október frá Íslandi til Rómar. Nú getur þú
kynnst þessari einstöku borg sem á engan sinn líka í fylgd fararstjóra Heimsferða
og upplifað árþúsundamenningu og andrúmsloft sem er einstakt í heiminum.
Péturstorgið og Péturskirkjan, Vatíkanið, Spænsku þrepin, katakomburnar,
Kóloseum, Circus Maximus, eða ferð til
Tívolí, þar sem frægustu rómversku höll-
ina er að finna, Villa Adriana. Eða ein-
faldlega að rölta um þessa stórkostlegu
borg, drekka í sig mannlífið, njóta frægra
veitinga- og skemmtistaða og upplifa
hversvegna allar leiðir liggja til Rómar.
Aðalfararstjóri:
Ólafur Gíslason
Munið Mastercard
ferðaávísunina
Beint morgunflug
Verð kr. 59.950
Verð m.v. 2 í herbergi, flug, gisting,
skattar, íslensk fararstjórn. Ekki inni-
falið: Forfallagj., kr. 1.800, valkvætt.
Ferðir til og frá flugvelli, kr. 1.800.
Kynnisferðir
með fararstjórum Heimsferða
· Borgarferð – hálfur dagur
· Keisaraborgin – hálfur dagur
· Tívolí – hálfur dagur
Glæsilegt úrval hótela
í hjarta Rómar
Róm
1. október
frá kr. 59.950
Skógarhlíð 18, sími 595 1000.
www.heimsferdir.is
KJARTAN J. Hauksson, sem rær
árabát í kringum landið, kom til
Bolungarvíkur á laugardag og gisti
í bátnum í höfninni um nóttina.
Steig hann aldrei fæti í land enda
er báturinn eini viðverustaðurinn.
Þorsteinn J. Tómasson var einn
fjölmargra sem tók á móti honum,
en öll bæjarstjórn Bolungarvíkur
mætti niður á höfn. Þorsteinn segir
að hann rói nær allan sólarhringinn
og skríði svo blautur inn í svefn-
poka, sem einnig var orðinn blaut-
ur, þrátt fyrir að hafa einn til skipt-
anna.
Soffía Hauksdóttir er systir
Kjartans og býr í Bolungarvík. Hún
tók á móti honum á laugardaginn
og var í gærkvöldi að klára að þvö
fötin hans. Sagði hún hann dvelja
enn í bátnum í höfninni og var ekki
viss hvort hann legði af stað seint í
gærkvöld eða biði til morguns. Það
færi eftir veðurspánni, sem væri
ekkert sérstaklega hagstæð.
Næsti áfangastaður Kjartans er
Húsavík. Ferðin er tileinkuð hreyfi-
hömluðum og ferðalögum þeirra.
Báturinn heitir Rödd hjartans og er
merktur Sjálfsbjörg og Evrópuári
fatlaðra.
Morgunblaðið/Þorsteinn J. Tómasson
Kjartan J. Hauksson spjallaði lengi við áhugasama áhorfendur eftir að
hann kom að bryggju í Bolungarvík á laugardaginn.
Kjartan J. Hauksson ræðari áði í Bolungarvík
Fékk
föt sín
þvegin
ÍSLENDINGURINN Ib Árnason
Riis, sem býr í Kaliforníu á níræð-
isaldri, hefur fengið í hendur bréf frá
bresku leyniþjónustunni, MI6. Þar
er hann hreinsaður af ásökunum um
svik þegar hann átti að hafa gefið
Þjóðverjum upplýsingar í síðari
heimsstyrjöldinni sem leiddu til
skipskaða undan norðurströnd
Rússlands sumarið 1942 og 153 sjó-
menn á 24 flutningaskipum biðu
bana. Harmar breska leyniþjónust-
an umfjöllun The Sunday Times í
maí síðastliðnum. Ib segist ekki
sætta sig við svar MI6 fyrr en leið-
réttingu verður komið á framfæri í
breska blaðinu. Í augum lesenda
blaðsins sé hann enn svikari.
The Sunday Times greindi frá
málinu eftir að hafa komist í gögn úr
Þjóðskjalasafninu í London. Var því
haldið fram í frásögn blaðsins af
skjölunum að Bretar hefðu haft Ib
grunaðan um að hafa varað Þjóð-
verja við. Var Ib fenginn til þess að
koma upplýsingum til Þjóðverja um
ferðir skipalestar Bandamanna á
leið yfir hafið frá Bandaríkjunum.
Ætlaði breska leyniþjónustan að
leggja gildru fyrir orrustuskip Þjóð-
verja, Tirpitz, undan ströndum Ís-
lands og átti að líta svo út að skipa-
lestin nyti lítillar sem engrar
herverndar. Þjóðverjar fengu svo
veður af því að skipalestin væri vel
varin, að því er fram kom í The
Sunday Times. Var Tirpitz haldið til
hafnar en skipunum í lestinni sagt að
dreifa sér er komið var að ströndum
Norður-Noregs. Undan norður-
strönd Rússlands urðu 24 af 35 skip-
um í lestinni kafbátum og flugvélum
Þjóðverja að bráð.
Í bréfi leyniþjónustunnar til Ibs,
sem hann kom á framfæri við Morg-
unblaðið, er hörmuð umfjöllun The
Sunday Times. Segir talsmaður
MI6, D.W. Clayton, það alrangt að í
skjölunum komi fram einhvers kon-
ar ásakanir á hendur Ib. Leyniþjón-
ustan hafi engar ástæður til að halda
slíku fram, ekki síst þar sem Ib hafi
verið Bretum trúr og tryggur til
margra ára eftir þennan atburð.
Enn óleyst á Bretlandi
Segir Clayton að margar mögu-
legar ástæður fyrir skipskaðanum
hafi komið til greina. Öllum vafa hafi
hins vegar verið eytt um mögulegan
þátt Ibs að málinu. Talsmaður MI6
bendir ennfremur á að í skjölunum
komi fullt nafn Ibs hvergi fram,
heldur aðeins dulnefnið Cobweb.
Ib Árnason Riis sagðist í samtali
við Morgunblaðið í gærkvöldi ekki
vera alls kostar sáttur við svar
bresku leyniþjónustunnar. Ætlar
hann að skrifa annað bréf til Clay-
tons og fara fram á það að breska
leyniþjónustan komi leiðréttingu á
framfæri við The Sunday Times.
„Þetta mál er enn óleyst á Bret-
landi og þó að svar leyniþjónustunn-
ar sefi mig þá verð ég ekki í rónni
fyrr en að leiðréttingunni verður
komið á framfæri opinberlega. Í
augum þeirra sem lásu blaðið er ég
enn svikari. Ég er 88 ára gamall og
verð að ljúka þessu máli af,“ sagði
Ib, sem telur sig vera eina núlifandi
gagnnjósnarann úr seinni heims-
styrjöldinni.
Hann sagðist vera mjög ósáttur
við að breska blaðið hefði birt sitt
fulla nafn. Það hefði verið birt upp-
haflega í gögnum leyniþjónustunnar
en nú væri aðeins dulnefnið að finna.
Í bréfinu til MI6 sagðist Ib einnig
ætla að koma á framfæri sinni kenn-
ingu um hver hefði upplýst Þjóð-
verja um áætlanir Breta. Það væri
að hans mati sá maður sem hefði
sakað sig um svikin upphaflega.
Íslenskur gagnnjósnari, Ib Árnason Riis, hreinsaður af ásökunum um svik
Breska leyniþjónustan harmar
umfjöllun The Sunday Times
MENNTASKÓLINN á Akureyri
varð í dag Norðurlandameistari
framhaldsskóla í skák 2003 eftir æsi-
spennandi úrslitaviðureign við
Wenströmska Gymnasiet frá Sví-
þjóð. Akureyringar urðu að vinna
Svíana í síðustu umferð. Á 1. borði
hafði Halldór Brynjar Halldórsson
hvítt gegn Johan Norberg og sigraði
örugglega. Á 4. borði tefldu Jakob
Sævar Sigurðsson og Andreas Back-
man og sigraði Svíinn eftir mis-
heppnaða mannsfórn hjá Jakobi.
Þá var staðan orðin 1–1 og ljóst að
M.A. þurfti einn og hálfan vinning úr
þeim tveimur skákum sem eftir
voru. Á 2. borði tefldi Björn Ívar
Karlsson við Erik Norbeg og á
þriðja borði tefldi Stefán Bergsson
við Anders Ylönen. Þessar skákir
voru nokkuð jafnteflislegar en eftir
misheppnaða kóngsókn Svíans náði
Stefán óverjandi mátsókn og sigraði.
Þegar þetta var ljóst tók Björn Ívar
jafnteflisboði frá andstæðingi sínum.
Ísland hefur nú sigrað í 18 mótum
af 30. M.H. hefur unnið 14 sinnum,
M.R. tvisvar, Verslunarskólinn einu
sinni og nú sigrar sveit utan Reykja-
víkur í fyrsta sinn.
MA Norðurlanda-
meistarar í skák
IB Árnason Riis var
gagnnjósnari Breta hér á
landi á árunum 1942–
1945. Saga hans hefur
verið rakin í bók Ásgeirs
Guðmundssonar, Gagn-
njósnari
Breta á Ís-
landi, sem
kom út
hér á
landi árið
1991. Ib er
fæddur og
uppalinn í
Kaup-
mannahöfn en var ís-
lenskur ríkisborgari er
þessir atburðir áttu sér
stað. Hann kom hingað
til lands með þýskum
kafbáti árið 1942 á veg-
um þýsku leyniþjónust-
unnar en gaf sig strax
fram við bresku hern-
aðaryfirvöldin í landinu.
Notuðu þau hann sem
gagnnjósnara undir dul-
nefninu Cobweb, eða
Köngullóarvefurinn.
IB Árnason
Köngullóar-
vefurinn var
dulnefnið
FJÖLMARGIR lögðu leið sína í
miðbæ Akureyrar að kvöldi laug-
ardags en þann dag lauk Lista-
sumri með svokallaðri Akureyrar-
vöku. Akureyrarvakan var sett á
föstudagskvöldið og var ýmislegt í
boði hér og hvar um bæinn. Börn-
um var boðið að skreyta Gilið á
laugardaginn og teikna á götuna
með krít, svo fór þar fram fatasýn-
ing um kvöldið og fötin á sýning-
unni öðluðust líf hjá fyrirsætunum.
Fjölmenn
Akur-
eyrarvaka
Ljósmynd/Þorgeir Baldursson