Morgunblaðið - 01.09.2003, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 01.09.2003, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 1. SEPTEMBER 2003 29 DAGBÓK STJÖRNUSPÁ Frances Drake MEYJA Afmælisbörn dagsins: Þið eruð vinnusöm, hug- hraust og ástríðufull og ger- ið miklar kröfur til ykkar. Komandi ár verður skemmtilegt enda margt að gerast í félagslífinu. Hrútur (21. mars - 19. apríl)  Það er kominn tími til að þú festir rætur. Þú þarft á stað- festu að halda til að geta haldið á vit nýrra ævintýra frá traustri heimahöfn. Naut (20. apríl - 20. maí)  Þú hefur hug á að skipta um vinnu eða samastað á þessu eða næsta ári. Nú er rétti tíminn til að hefja undirbún- ing. Tvíburar (21. maí - 20. júní)  Það er tímabært að þú endur- skoðir lífsviðhorf þitt. Það er mikilvægt að gera sér grein fyrir því hvað skiptir mann máli í lífinu. Krabbi (21. júní - 22. júlí)  Þetta er tímamótaár í lífi þínu. Þú ert að búa þigundir einhvers konar endurfæð- ingu þótt þú gerir þér ekki endilega grein fyrir því. Ljón (23. júlí - 22. ágúst)  Á næstu tveimur árum muntu sleppa tökunum á mörgu sem þú hefur verið að byggja upp síðasta áratug- inn. Það er tímabært að horfa fram á veginn. Meyja (23. ágúst - 22. sept.)  Þetta er góður tími sem mun að öllum líkindum skila þér- góðum árangri. Þú ættir að nota tækifærið og setja þér- langtímamarkmið. Vog (23. sept. - 22. okt.)  Þetta er uppskerutími í lífi þínu. Vonandi hefurðu sáð af örlæti, þolinmæði og velvild. Sporðdreki (23. okt. - 21. nóv.)  Þetta er góður tími til skipu- lagningar. Innan fárra ára muntu standa á hátindi starfsferils þíns. Ákvarðanir þínar hafa því óvenju mikið vægi. Bogmaður (22. nóv. - 21. des.) Samstarfsmaður þinn hefur hug á að skipta um vinnu þannig að þú þarft að læra að treysta á sjálfa/n þig. Þú ætt- ir að fara létt með það. Steingeit (22. des. - 19. janúar) Þetta er tímamótaár í lífi þínu. Þú ert tilbúin/n að láta meira að þér kveða á op- inberum vettvangi og munt hljóta aukna viðurkenningu fyrir störf þín. Vatnsberi (20. jan. - 18. febr.) Þú ættir að leggja hart að þér á næstu tveimur árum því þú hefur einstakt tækifæri til að sýna hvað í þér býr. Þú getur sannað þig með glæsibrag. Fiskar (19. feb. - 20. mars) Þú ert að velta því fyrir þér hvað þú viljir gera í lífinu. Íhugaðu hvað vekur áhuga þinn og gleði. Gerðu ráð fyrir að taka á þig aukna ábyrgð á börnum. Stjörnuspána á að lesa sem dægradvöl. Spár af þessu tagi eru ekki byggðar á traustum grunni vísindalegra staðreynda. BARNAGÆLUR Komdu hérna, krílið mitt, komdu, litla morið; enn er liðið ekki þitt æsku blíða vorið. - - Kristín litla, komdu hér með kalda fingur þína; eg skal bráðum bjóða þér báða lófa mína. Fuglinn segir bí, bí, bí, bí, bí, segir Stína. Kvöldúlfur er kominn í kerlinguna mína. Sveinbjörn Egilsson LJÓÐABROT ÁRNAÐ HEILLA ÞEGAR sögnum er lokið tekur við stutt tímabil óvissu og eftirvæntingar: Hvað skyldi nú koma upp í blindum? Það má líkja „biðinni eftir blindum“ við spenning barna þegar þau handfjatla jólagjafir eitt andartak áður en papp- írinn er rifinn í tætlur. Oft- ast er eitthvað gott og skemmtilegt í jólapakk- anum sem stendur undir væntingum, en það verður að segjast eins og er, að blindur veldur stundum vonbrigðum: Norður gefur; enginn á hættu. Norður ♠ ÁK86 ♥ 3 ♦ G5 ♣ÁKG754 Suður ♠ D10542 ♥ 82 ♦ 9832 ♣D2 Spilið að ofan kom upp í sumarbrids í síðustu viku og eftir fjöruga sagnbar- áttu varð suður sagnhafi í fimm spöðum: Vestur Norður Austur Suður -- 1 lauf 1 tígull 1 spaði 2 hjörtu 4 hjörtu * 5 hjörtu Pass Pass 5 spaðar Pass Pass Pass Suður vissi vel að hann átti lítið fyrir spaðasögn- inni, en batt þó vonir við að makker væri með réttu spilin: annað hvort eyðu í hjarta eða fyrirstöðu í tígli. Vestur kom út með hjarta- ásinn og þegar norður hafði lagt upp spilin sín blöstu við þrír óhjá- kvæmilegir tapslagir. Nú, jæja. Það mátti búast við því. Vestur virtist hins vegar ekkert sérlega ánægður með lífið. Hann krosslagði fætur á víxl og ók sér í sætinu. „Um hvað var maðurinn að hugsa?!“ Það leið og beið og suður var kominn á fremsta hlunn með að leggja upp og játa sig sigraðan þegar vestur spilaði loks laufi! Norður ♠ ÁK86 ♥ 3 ♦ G5 ♣ÁKG754 Vestur Austur ♠ G93 ♠ 7 ♥ ÁKG1095 ♥ D764 ♦ -- ♦ ÁKD10764 ♣10983 ♣6 Suður ♠ D10542 ♥ 82 ♦ 9832 ♣D2 Óvæntur glaðningur leyndist í pakkanum, þrátt fyrir allt. Tólf slagir og toppur. BRIDS Guðmundur Páll Arnarson 1. e4 e6 2. d4 d5 3. Rd2 Be7 4. e5 c5 5. c3 Rc6 6. Rdf3 Rh6 7. Bxh6 gxh6 8. Bd3 cxd4 9. cxd4 Da5+ 10. Kf1 Bd7 11. a3 Db6 12. Re2 Dxb2 13. g3 f6 14. Kg2 fxe5 15. Hb1 Dxa3 16. dxe5 O-O 17. Hxb7 Staðan kom upp á Norðurlandamóti taflfélaga á Netinu sem Taflfélagið Hell- ir stóð að og lauk fyr- ir skömmu. Stefán Kristjánsson (2404) hafði svart gegn Tommi Franssila (2269). 17. … Hxf3! 18. Kxf3 Rxe5+ 19. SKÁK Helgi Áss Grétarsson Svartur á leik. Kg2 Bc6 20. Hxe7 d4+ 21. f3 Bxf3+ 22. Kg1 Dxe7 23. Db3 Bd5 24. Db1 Hf8 25. Rf4 Hxf4 26. gxf4 Dg7+ 27. Kf2 Dg2+ og hvítur gafst upp. 9. umferð Skákþings Íslands hefst í dag kl. 17 í Hafnar- borg í Hafnarfirði. HLUTAVELTA ÞESSAR duglegu stúlkur héldu tombólu til styrktar Rauða krossi Íslands og söfnuðu þær kr. 3.617. Þær eru Lísa Kar- en Reynisdóttir, Helga Guðmundsdóttir, Halldóra Arn- ardóttir og Ingibjörg Karlsdóttir. Ljósmynd/Stúdíó Sissa BRÚÐKAUP. Gefin voru saman í Hafnarfjarðarkirkju 31. maí sl. Edda Rún Jónsdóttir og Sigþór Marteinsson. MORGUNBLAÐIÐ birtir tilkynningar um afmæli, brúðkaup, ættarmót og fleira lesendum sínum að kostnaðarlausu. Tilkynn- ingar þurfa að berast með tveggja daga fyrirvara virka daga og þriggja daga fyr- irvara fyrir sunnudagsblað. Samþykki afmælisbarns þarf að fylgja afmælis- tilkynningum og/eða nafn ábyrgðarmanns og síma- númer. Fólk getur hringt í síma 569-1100, sent í bréf- síma 569-1329, eða sent á netfangið ritstj @mbl.is. Einnig er hægt að skrifa : Árnað heilla, Morgunblaðinu, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. LANDSPÍTALI - HÁSKÓLASJÚKRA- HÚS SLYSA- OG BRÁÐADEILD, Fossvogi sími 543 2000. BRÁÐAMÓTTAKA, Hringbraut sími 543 2050. BRÁÐAMÓTTAKA BARNA, Barnaspítala Hringsins sími 543 1000. BRÁÐAMÓTTAKA GEÐDEILDA, Hringbraut sími 543 4050. NEYÐARMÓTTAKA v/nauðgunarmála, Fossvogi sími 543 2085. EITRUNARMIÐSTÖÐ sími 543 2222. ÁFALLAHJÁLP sími 543 2085. LÆKNAVAKTIR BARNALÆKNIR er til viðtals á stofu í Domus Medica á kvöldin v.d. kl. 17–22, lau., sun. og helgid., kl. 11–15. Upplýsingar í s. 563 1010. LÆKNAVAKT miðsvæðis fyrir heilsugæsluumdæmin í Reykjavík, Seltjarnarnesi, Kópavogi, Garðabæ og Hafn- arfirði, í Smáratorgi 1, Kópavogi. Mótttaka kl. 17–23.30 v.d. og kl. 9–23.30 um helgar og frídaga. Vitjanabeiðni og símaráðgjöf kl. 17–08 v.d. og allan sólarhringinn um helgar og frídaga. Nánari upplýsingar í s. 1770. TANNLÆKNAVAKT – neyðarvakt um helgar og stórhá- tíðir. Símsvari 575 0505. VITJANAÞJÓNUSTA læknis í heimahús. Alla v.d. kl. 10– 16. Símapantanir og ráðgjöf kl. 8–20 í síma 821 5369. LÆKNALIND, Bæjarlind 12, Kópavogi. Einkarekin lækn- isþjónusta. Vaktþjónusta alla virka daga kl 08–17. Uppl. í síma 520 3600 og á heimasíðu www.laeknalind.is APÓTEK LYF & HEILSA: Austurveri við Háaleitisbraut. Opið kl. 8– 24, virka daga, kl. 10-24 um helgar. Sími 581 2101. LYFJA, Lágmúla: Opið alla daga ársins kl. 8–24. S. 533 2300. LYFJA, Smáratorgi: Opið alla daga ársins kl. 8–24. Sími 564 5600. NEYÐARÞJÓNUSTA BAKVAKT Barnaverndarnefndar Reykjavíkur er starf- rækt eftir kl. 16.15 virka daga, allan sólarhringinn aðra daga. Sími 892 7821, símboði 845 4493. HJÁLPARSÍMI Rauða krossins, fyrir þá sem þjást af dep- urð og kvíða og eru með sjálfsvígshugsanir. Fullum trúnaði heitið. Gjaldfrjálst númer: 1717, úr öllum símum. TRÚNAÐARSÍMI RAUÐAKROSSHÚSSINS. Ráðgjafar- og upplýsingasími ætlaður börnum, unglingum og að- standendum þeirra. Nafnleynd. Opið allan sólarhr. Gjaldfrjálst númer: 1717 – Netfang: husid@redcross.is VINALÍNA Rauða krossins, s. 561 6464. Grænt númer 800 6464, er ætluð fólki 20 og eldri sem þarf einhvern til að tala við. Svarað kl. 20–23. BILANAVAKT BORGARSTOFNANA, sími 5 800 430 tek- ur við tilkynningum um bilanir og liðsinnir utan skrif- stofutíma. NEYÐARSÍMI FORELDRA 581 1799 er opinn allan sólar- hringinn. Vímulaus æska- Foreldrahús. Neyðarnúmer fyrir allt landið - 112 KIRKJUSTARF/ÞJÓNUSTA Reykjavíkurprófastsdæmi. Hádegisfund- ur presta verður í dag kl. 12 í Bústaða- kirkju. Laugarneskirkja. Opinn 12 sporafundur í safnaðarheimilinu kl. 18. Allt fólk velkom- ið. Vinir í bata. Lágafellskirkja. Bænastund í Lágafells- kirkju kl. 20. Þórdís djákni þjónar og tekur við bænarefnum í síma 691-8041 alla daga frá kl. 9-16. Al-Anon fundur í Lága- fellskirkju kl. 21. Borgarneskirkja. TTT-starf kl. 15.30- 16.30. Safnaðarstarf Morgunblaðið/Sverrir Lágafellskirkja Á MORGUN, þriðjudaginn 2. sept- ember, hefjast að nýju kyrrðar- stundir í hádegi í Grensáskirkju sem legið hafa niðri í sumar. Kyrrð- arstundin hefst með orgelleik kl. 12 á hádegi. Um tíu mínútum síðar er sunginn sálmur og lesinn ritning- arlestur. Þá er altarisganga og bænastund þar sem sérstaklega er beðið fyrir bænarefnum sem þátt- takendur í stundinni bera fram. Helgistundinni lýkur upp úr hálf- eitt. Þá er boðið upp á léttan máls- verð á sanngjörnu verði. Þannig er sinnt bæði andlegum og lík- amlegum þörfum þeirra sem vilja nota hádegið til byggja sig upp í erli dagsins. Trú og tilfinningar Fullorðinsfræðsla Laugarneskirkju hefur nú göngu sína á nýju starfs- ári. Fyrsta námskeið vetrarins mun standa í sjö vikur og ber yfirskrift- ina: „Trú og tilfinningar?“ Þar mun Bjarni Karlsson sóknarprestur fjallar um samspil trúar og tilfinn- inga og gildi heilbrigðrar trúariðk- unar í tilfinningalegu tilliti. Hvert kvöld verður tekin til um- fjöllunar ein skilgreind tilfinning og mun fyrsti tíminn fjalla um kvíðastjórnun og augljósan áhuga Jesú frá Nasaret á því máli. Nám- skeiðið hefst hvert þriðjudagskvöld kl. 20:00 og stendur til 20:55. Engr- ar forkunnáttu er krafist og nám- skeiðsgjald er ekkert, en þátttak- endur eru beðnir að hafa með sér Biblíur eða Nýja testamennti. Gengið er inn um dyr, bakatil, á austurgafli kirkjunnar. Að kennslu lokinni stendur til boða að koma upp í kirkjuskip þar sem fram fer lofgjörðar- og bæna- stund sem ber yfirskriftina Þriðju- dagur með Þorvaldi. Þar leiðir Þor- valdur Halldórsson söng við undirleik Gunnars Gunnarsonar á flygil og Hannesar Guðrúnarsonar á gítar. Þau sem koma beint inn á Þriðjudag með Þorvaldi ganga inn um aðaldyr kirkju. Morgunblaðið/ArnaldurGrensáskirkja Kyrrðarstundir í Grensáskirkju

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.