Morgunblaðið - 01.09.2003, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 1. SEPTEMBER 2003 31
Nýr og betriHverfisgötu 551 9000
www.regnboginn.is
Sýnd kl. 10. B.i. 14 ára.
Tvær löggur.
Tvöföld spenna.
Tvöföld skemmtun.
Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30. B.i. 12 ára.
Sýnd kl. 6 og 8.Sýnd kl. 6, 8 og 10.
Mestu illmenni
kvikmyndasögunnar
mætast í bardaga
upp á líf
og dauða.
VINSÆLASTA MYNDIN Í USA
TVÆR VIKUR Á TOPPNUM
Sýnd kl. 6, 8.30 og 10.45. B.i. 16 ára.
Innritun og allar upplýsingar í síma
562 0091 kl. 11.00—18.00.
Kennsla hefst um miðjan september.
Byrjendur og framhaldshópar frá 4ra ára aldri.
Afhending skírteina fer fram mánudaginn 8. sept. og
þriðjudaginn 9. sept kl. 17.00—19.00.
Félag ísl. listdansara
Guðbjargar Björgvins
Íþróttamiðstöðinni, Seltjarnarnesi
www.laugarasbio.is
Ef þú gætir verið
Guð í eina viku,
hvað myndir þú gera?
Sýnd kl. 5.45, 8, 9.15 og 10.30.
MEÐ
ÍSLENSKU
TALI ATH! Munið eftir Sinbað
litasamkeppninni á ok.is
SV. MBL
Ofurskutlan
Angelina Jolie
er mætt aftur
öflugri en
nokkru sinni fyrr
í svakalegustu
hasarmynd
sumarsins!
Sýnd kl. 5.45, 8 og 10.15.
J I M C A R R E Y
Sýnd kl. 6. Með íslensku tali.
Shaolin-boltinn
(Siu lam juk kau)
Slagsmálamynd
Hong Kong 2002. Skífan. VHS (91 mín.)
Bönnuð yngri en 12 ára. Leikstjóri:
Stephen Chow. Aðalleikendur: Stephen
Chow, Ng Man Tat.
ÞÁ HÖFUM við kung fu-brauð-
gerðarlist, -söng, -fótbolta. Hvað
fáum við næst? Sparkmeisturunum í
austri virðist ekkert ómögulegt. Það
bólar á ýmsum öðrum nýjungum í
Shaolin-boltanum, en þar segir af
fyrrverandi fótboltahetjunni Sing
(Chow), sem var
gabbaður af þjálf-
aranum sínum til
að klúðra leik og
urðu fyrir bragðið
endalok ferils hans.
Sing drabbast nið-
ur uns hann hittir
fyrir Fung (Ng
Man Tat), ungan
harðnagla og slagsmálahund sem
hefur vald á krókleggsbragðinu.
Sing þjálfar hann ásamt hóp annarra
sparkara sem verða ógurlegasta
knattspyrnulið sem sögur fara af.
Þar höfum við það sem máli skipt-
ir í austurlenskum bardagamyndum:
Illan mann og góðan; niðurlægingu,
uppbyggingu og sæta hefnd. Í aug-
um flestra Vesturlandabúa eru kung
fu-myndir líkt og íbúar Austurlanda,
hver annarri lík. Aðeins viðbótar-
kryddið (fótbolti að þessu sinni)
greinir eina frá annarri. Yfirleitt eru
þær illa gerðar og talsettar með fá-
ránlegum, enskumælandi röddum
með austurlenskum hreim. Um leik
og talaðan texta er ekki að ræða því
einu kröfurnar eru bardagafimi og,
líkt og fram hefur komið, sem ein-
földust saga. Stöku bardagamynd
stendur upp úr en það er enginn Ang
Lee við stjórnina á Shaolin-boltan-
um sem er allt að því þolraun fyrir
venjulegt fólk að horfa á. Myndin
mun þó vera með þeim mest sóttu í
Hong Kong, þar sem Chow er á of-
urstjörnustalli.
Sæbjörn Valdimarsson
Myndbönd
Krókleggs-
tæknin góða
! " #
$ % &
' ( '
&
) *+ %, -& . /(
ANDRÚMSLOFTIÐ er það sem
skiptir meginmáli í Croupier, en þýð-
ingin „Féhirðir“ segir ekki nema
hálfa söguna því „croupier“ gerir
fleira en að skipta bankóseðlum í
spilapeninga í spilavítum veraldar því
hann gefur spilin, stjórnar rúllettun-
um, og hefur glöggt auga með að farið
sé að siðareglum við borðið sitt. Jack
Manfred (Clive Owen) er að berjast
við að verða rithöfundur en fyrsta
skáldverkinu miðar hægt áfram. Jack
tekur því boði um að gerast féhirðir í
spilavíti í London, en hann þekkir
starfið af eigin raun frá því hann bjó
með fjárhættuspilaranum föður sín-
um í Suður-Afríku.
Jack er í sambúð með Marion (Gina
McKee), sem hefur andúð á nýju
vinnunni hans, auk þess á hann í sam-
bandi við Bellu (Kate Hardie), sam-
starfsmann sinn og dularfullan við-
skiptavin, hina tælandi Jani (Alex
Kingston), sem fær hann til að brjóta
grundvallarreglur sínar.
Handritshöfundurinn Meyersberg
þekkir bersýnilega vel til innviða
spilavíta, hvort sem um er að ræða
reglur og vinnulag starfsmanna eða
þankagang viðskiptavinanna. Hvort
tveggja skilar sér í traustri leikstjórn
Mikes Hodges, sem gerði m.a. Get
Carter, sígilda glæpamynd með
Michael Caine fyrir einum 30 árum.
Hann hefur fátt gert umtalsvert síðan
en hefur engu gleymt. Að þessu sinni
dregur hann fram í sviðsljósið leik-
arann Clive Owen, sem virðist hafa
alla burði til að feta í fótspor Caines,
og þá er mikið sagt. Owen er Féhirð-
inum jafnmikill styrkur og Caine er
Get Carter, svipbrigðalítið póker and-
litið minnir dálítið á Bogart, undir býr
óútreiknanlegur kraftur og persónu-
töfrar. Aðrir leikarar eru lítt kunnir
en skila sínu vel, Hodges hefur ber-
sýnilega lag á að laða fram það besta
sem þeir hafa upp á að bjóða.
Sem fyrr segir er Féhirðirinn í
fyrsta lagi stemningsmynd, það ligg-
ur lævísi og undirferli í reykmettuðu
andrúmsloftinu og Hodges eyðir
drjúgum tíma í að spanna svipbrigðin
á andlitunum, vonbrigðin, græðgina,
spennuna. Jack er að fást við söguna
sína og rekur þráðinn jafnóðum í
bland við framvinduna. Þessi frásagn-
armáti gengur upp með styrkum leik,
stjórn og handriti og gerir Féhirðinn
að óvenjulegri og athyglisverðri
skemmtun í svipuðum anda og nokk-
ur verk Davids Mamets. Bak við
tjöldin gerist önnur, meinfyndin hlið-
arflétta sem kemur skemmtilega á
óvart og skilur við áhorfandann mjög
sáttan við útkomuna.
Póker
andlit
KVIKMYNDIR
Háskólabíó – breskir bíódagar
Leikstjóri: Mike Hodges. Handrit: Paul
Mayersberg. Kvikmyndatökustjóri: Mike
Garfath. Tónlist: Simon Fisher Turner.
Aðalleikendur: Clive Owen, Kate Hardie,
Alex Kingston, Gina McKee, Alexander
Morton, Nick Reding, Paul Reynolds. 90
mínútur. Channel Four Films. Bretland
1998.
Féhirðirinn (Croupier) Sæbjörn Valdimarsson
Hin upprennandi Clive Owen í hlut-
verki féhirðisins.
BRETAR eru manna leiknastir í
að meðhöndla gálgahúmor á hvíta
tjaldinu og liggur við að þeir hafi
gert slíkar myndir að sérgrein í kvik-
myndaflórunni um miðja síðustu öld.
The Ladykillers, The Lavender Hill
Mob og Kind Hearts and Coronets
eru hvað eftirminnilegastar, allar sí-
gildar Ealing-myndir. Þær rifjast
upp eftir sýningu á Jarðarför með
útsýni, breskri biksvartri grínmynd
sem er á svipuðum nótum þótt úr-
vinnslan sé ekki jafnsnjöll.
Aðalpersónurnar eru Boris (Al-
fred Molin), einmana útfararstjóri í
vinalegum smábæ í Wales; borgar-
stjórinn Hugh (Robert Pugh) og
Betty eiginkona hans (Brenda Bleth-
yn). Þau Boris og Betty voru skotin
hvort í öðru á unglingsárunum en
Boris uppburðarlítill og missti hana í
hendurnar á uppskafningnum Hugh.
Nú eru þau miðaldra fólk og öll held-
ur óhamingjusöm. Boris dreymir
æskuástina, Hugh heldur framhjá
með Meredith, einkaritaranum sín-
um (Naomi Watts), og Blethyn lætur
sig bara hafa það. Þegar tengda-
mamma henar deyr leitar hún til út-
fararþjónustu Borisar og gamlar,
bældar tilfinningar hellast yfir þau
með þvílíku offorsi að skötuhjúin
skipuleggja margslungið ráðabrugg
þar sem dauði Bettyar er m.a. settur
á svið svo þau nái loksins saman og
geti hafið nýtt líf á framandi sólar-
ströndum.
Handritið er uppfullt af skemmti-
legum uppátækjum og hugmyndum
sem þau útfæra af mikilli prýði, eink-
um Pugh og Watts. Blethyn er frá-
bær leikkona en ekki sannfærandi
sem klækjarefur í uppreisn gegn for-
lögunum, en því betri sem gólftuska
bónda síns. Svipuðu máli gegnir um
Molina sem er alla jafna aðsópsmikill
leikari en hentar ekki í gamansamt
hlutverk hins velska smábæjar-
sjarmörs. Walken hressir upp á hóp-
inn sem bandarískur keppinautur
Borisar um þær fáu greftranir sem
falla til á svæðinu og þá er ógetið Lee
Evans sem er kostulegur sem Dil-
bert, seinheppinn vikapiltur hans.
Fléttan er margflókin, stundum
um of og vantar oft herslumuninn á
að maður hlæi beint frá hjartanu.
Útkoman er afar sérstæð, nánast
undarleg gamanmynd en engu síður
prýðilegasta afþreying.
Framhjáhald og jarðarför
KVIKMYNDIR
Háskólabíó: Breskir bíódagar
Leikstjóri: Nick Harran. Handrit: Freder-
ick Ponzlov. Kvikmyndatökustjóri: John
Welland. Tónlist: Rupert Gregson-
Williams. Aðalleikendur: Brenda Bleth-
yn, Alfred Molina, Christopher Walken,
Naomi Watts, Robert Pugh. 94 mínútur.
Miramax. Bretland 2002.
Jarðarför með útsýni/Plots With a View
Brenda Blethyn og Alfred Molina í Jarðarför með útsýni.
Sæbjörn Valdimarsson