Morgunblaðið - 02.09.2003, Qupperneq 14
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF
14 ÞRIÐJUDAGUR 2. SEPTEMBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ
FÉLAG í eigu Sindra Sindrasonar,
varamanns í stjórn bankans og
fyrrum forstjóra Pharmaco, keypti í
gær tæpan 3,4% eignarhlut í Fjár-
festingarfélaginu Straumi hf. Selj-
andi hlutabréfanna var Landsbanki
Íslands sem hafði fyrr um daginn
keypt bréfin af Saxhóli.
Sindri Sindrason sagði í samtali
við Morgunblaðið í gær um ástæður
þess að hann keypti í Straumi að
hann teldi að þarna færi gott og
eftirsóknarvert fyrirtæki með
áhugavert eignasafn. „Það felast
þarna möguleikar í stöðunni á að
stokka upp og gera betur,“ sagði
Sindri. Hann segir hlutinn hafa ver-
ið greiddan með peningum, ekki
hlutabréfum.
Keypti fyrir 602
milljónir króna
Saxhóll seldi Landsbankanum í
gærmorgun allan hlut sinn í
Straumi eða 144,7 milljónir króna
að nafnverði á genginu 4,2. Sölu-
verðið nemur tæpum 608 milljónum
króna og greiddi Landsbankinn fyr-
ir með hlutum í Landsbanka Ís-
lands á genginu 5,15. Eftir viðskipt-
in átti Landsbankinn 962 milljónir
króna að nafnverði í Straumi eða
23,2% hlutafjár.
Landsbankinn seldi skömmu síð-
ar nær allan hlutinn sem keyptur
var af Saxhóli áfram
til Sindra en hann hef-
ur um árabil verið ná-
inn samstarfsmaður
aðaleigenda bankans,
þ.e. Björgólfs Guð-
mundssonar og félaga
hans í eignarhalds-
félaginu Samson. Alls
voru Sindra seldar 140
milljónir hluta eða tæp
3,4% heildarhlutafjár í
Straumi á verðinu 4,3
og nemur söluverðið
því 602 milljónum
króna. Eftir viðskiptin
á Landsbankinn tæpar
822 milljónir hluta eða
19,8% hlutafjár í Straumi.
Fyrr um daginn hafði verið til-
kynnt að hlutafjárhækkun Straums
upp á rúmar 360 milljónir króna að
nafnverði, sem tilkynnt var til
Kauphallarinnar sl. miðvikudag
hefði verið skráð. Skráð hlutafé
Straums í Kauphöllinni er eftir
hækkunina 4.149.492.204 krónur að
nafnverði.
Þess má geta að Sindri Sindrason
var kjörinn varamaður í bankaráði
Landsbankans í febrúar sl. og í ný-
liðnum mánuði keypti hann 25 millj-
ónir hluta í bankanum á rúmar 108
milljónir króna, þ.e. gengið var
4,33.
Ennfremur má geta
þess að síðastliðinn
föstudag keypti Afl
fjárfestingarfélag nýtt
útgefið hlutafé í
Landsbankanum og á
nú 5,25% eignarhlut í
bankanum, eða tæp-
lega 310 milljónir
hluta, en Sindri
Sindrason er stjórnar-
maður hjá Afli. Nýja
hlutaféð var selt á
genginu 5,10 en
Landsbankinn hefur
30 daga kauprétt á því
á genginu 5,15.
Lokaverð hlutabréfa
í Straumi hækkaði, var 4,60 í Kaup-
höllinni í gær og hafði hækkað inn-
an dagsins um 2,2%. Alls var versl-
að með bréf í félaginu fyrir rúmar
364 milljónir króna í 52 viðskiptum
og voru það mestu viðskipti dags-
ins.
Landsbanki og Íslandsbanki
funduðu um Straum
Samkvæmt heimildum Morgun-
blaðsins áttu forsvarsmenn Lands-
bankans og Íslandsbanka saman
fund í gærdag og ræddu með sér
leiðir að sameiginlegri sátt um eign-
arhald á Straumi. Ekki var um sér-
staka niðurstöðu fundarins að ræða.
„Möguleikar á að stokka
upp og gera betur“
Sindri Sindrason
Sindri Sindrason keypti 3,4% eignarhlut í Straumi af
Landsbankanum sem hafði áður keypt hlutinn af Saxhóli
PHARMACO hefur keypt 15%
hlut í serbnesku lyfjaheildsöl-
unni Velefarm, sem er stærsta
fyrirtæki sinnar tegundar í
Serbíu, með um 60% markaðs-
hlutdeild, samkvæmt tilkynn-
ingu frá félaginu. Kaupverðið
er 1,7 milljónir evra eða um 137
milljónir króna og var það
serbneska ríkið sem átti hlut-
inn. Velefarm er almennings-
hlutafélag og skráð í serbnesku
kauphöllinni.
Kristján Sverrisson, fram-
kvæmdastjóri sölu- og mark-
aðssviðs Pharmaco og forstjóri
Balkanpharma í Búlgaríu segir
kaupin lið í að styrkja stöðu
Pharmaco í Serbíu, en á síðasta
ári keypti Pharmaco serbnesku
lyfjaverksmiðjuna Zdravlje.
Rekstur Pharmaco í Serbíu
hefur gengið vel að sögn Kristj-
áns og álítur hann kaupin vera
góða fjárfestingu.
„Þetta er skref í þá átt að ná
aukinni stjórnun á dreifingu
okkar lyfja í Serbíu og góð við-
bót við dreifingarkerfi okkar.
Pharmaco á fyrir heildsölu í
Serbíu í nafni dótturfélags síns
Zdravlje og hefur það félag um
10-15% markaðshlutdeild.“
Kristján segir ekki ráðgert
að auka hlut félagsins í Vale-
farma að svo stöddu. Aðspurð-
ur hvort fyrirtækið hafi hingað
til átt í erfiðleikum með að
dreifa sínum lyfjum í landinu
segir Kristján að þvert á móti
hafi sölustarfsemi félagsins
gengið vel og verið sé að renna
styrkari stoðum undir dreif-
ingu lyfja og tryggja félaginu
sterkari samningsstöðu í út-
boðum gagnvart ríkinu.
Pharmaco fjár-
festir í Serbíu
Kaupir
15% í
lyfja-
heildsölu
EFTIRFARANDI
yfirlýsing barst
Morgunblaðinu frá
Björgólfi Guðmunds-
syni:
„Það sem fyrir
okkur vakir með
kaupum á hlutabréf-
um í Straumi er að
hleypa lífi aftur í
verðbréfamarkaðinn
hér á landi, rjúfa
stöðnun sem verið
hefur og láta fjárfest-
ingar á markaði ráð-
ast af von um hag-
kvæman rekstur og
hámarks ávöxtun,“
segir Björgólfur Guð-
mundsson, formaður bankaráðs
Landsbanka Íslands. Hann telur
að stór hluti fjárfestinga hér á
landi þjóni þeim tilgangi að
vernda völd og áhrif á kostnað
góðrar ávöxtunar og hagkvæmni
í rekstri.
„Fjárfesting bankans í Straumi
er í fullu samræmi við yfirlýsingu
Landsbankans í mars sl., en þar
kom fram að bankinn hygðist
eiga um 20 –25%
hlut í félaginu til
þess að efla félagið
sem tæki til um-
breytinga á markaði.
Við erum enn þeirr-
ar skoðunar að fé-
lagið sé vel til um-
breytinga og umbóta
á íslenskum hluta-
bréfamarkaði fallið.
Yfirtaka á
Straumi hefur ekki
verið markmið
Landsbankans eða
Samson. Við viljum
komast í aðstöðu til
að auka virði fjár-
festinga Straums.
Markmið okkar er að losa um
flókin eignatengsl í félögum og
auka arðsemi þeirra. Þetta viljum
við gera í góðri samvinnu við
aðra eigendur Straums. Við hins
vegar, eins og aðrir aðilar á
markaði, verðum ávallt að halda
opnum þeim leiðum sem mark-
aðurinn býður upp á til að ná
fram markmiðum um virðisauka
og arðsemi.“
Viðskipti Landsbankans og tengdra
aðila með hlutabréf í Straumi
Björgólfur
Guðmundsson
Vilja losa flókin
eignatengsl og
rjúfa stöðnun