Morgunblaðið - 02.09.2003, Síða 24
LANDIÐ
24 ÞRIÐJUDAGUR 2. SEPTEMBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ
ÁTTUNDA og síðasta skemmti-
ferðaskipið sem sækir Grundar-
fjörð heim á þessu sumri lagðist að
bryggju fyrir skömmu. Farþegar
skipanna sem voru frá Mið- og
Suður-Evrópu fóru langflestir í 4
klst. rútuferð umhverfis Snæfells-
jökul en þá daga sem skipin voru í
höfn mátti alltaf sjá nokkurn
fjölda ferðalanga í göngu- og
skoðunarferð um Grundarfjörð. Af
hálfu hafnarstjórnar Grundar-
fjarðar og Félags atvinnulífsins í
Grundarfirði í samvinnu við ferða-
þjónustuaðila fór fram skipulögð
móttaka og kveðjuathöfn við komu
og brottför skipanna. Upplýs-
ingabás var við landgang skipanna
og konur í íslenska þjóðbún-
ingnum buðu farþegum upp á
kleinur og harðfisk. Flest skipanna
stoppuðu í 5–6 klukkustundir en í
tveimur tilvikum í 12 klst. er
skemmtiferðaskipið Funchal var
hér. Þá daga var farþegum boðið
upp á sýningu á íslenska hestinum
og tónleika í Grundarfjarðarkirkju
auk þess sem áhöfninni var boðið
til keppni í knattspyrnu. Þeir að-
ilar sem stóðu að móttöku
skemmtiferðaskipanna héldu ný-
verið fund til að fara yfir fram-
kvæmdina í sumar og var þar
ákveðið að nýta þá góðu reynslu
sem fékkst í sumar til þess að und-
irbúa komu skipa sem hingað
koma á næsta sumri.
Yfir 2.000 farþegar með átta
skemmtiferðaskipum
Grundarfjörður
Morgunblaðið/Gunnar Kristjánsson
Átta skemmtiferðaskip hafa lagt að bryggju á Grundarfirði í sumar og með þeim hafa komið yfir 2.000 farþegar.
HJÓNIN Margrét Runólfsdóttir og
Guðmundur Sigurhansson sem séð
hafa um reksturinn á Hótel Flúðum,
síðastliðin tæp tvö ár, hafa nú keypt
eignarhlut Kaupfélags Árnesinga
með aðstoð Landsbanka Íslands.
Hann var 61% hlutur í Hótel Flúðum
hf. Þau eru bæði fagfólk á sviði veit-
ingarekstrar og hafa starfað í þeirri
grein í 30 ár. Taka þau við öllum
rekstri sem verður áfram í samvinnu
við Icelandaer Hotels.
Margrét og Guðmundur segja að
nýting hótelsins hafi verið góð í sum-
ar og eru bjartsýn á að reksturinn
gangi vel í framtíðinni. Aukning hef-
ur verið á komu ferðamanna til Ís-
lands á þessu sumri. Þá er hótelið
einnig vel sótt haust sem vetur enda
aðeins í um eins klukkustundar akst-
ur frá höfuðborgarsvæðinu og stutt
að aka til að líta á náttúruperlur og
sögustaði Árnesþings. Það sé því
ástæða til að horfa björtum augum
til framtíðarinnar við þjónustu við
ferðamenn. Ekki hafa verið fyrir-
hugaðar neinar breytingar á rekstr-
inum á næstunni.
Morgunblaðið/Sigurður Sigmundsson
Hjónin Margrét Runólfsdóttir og Guðmundur Sigurhansson hafa keypt
meirihluta hlutafjár í Hótel Flúðum hf. af Kaupfélagi Árnesinga.
Eigendaskipti á
Hótel Flúðum
Hrunamannahreppur
SÓL var í heiði þegar þrjátíu kúa-
bændur úr Múlasýslum komu í rútu
vestur yfir fjöllin og heimsóttu mjólk-
urframleiðendur í nokkrum sveitum í
Þingeyjarsýslu. Voru þetta bændur
úr Nautgriparæktarfélagi Vopna-
fjarðar og Félagi nautgripabænda á
Héraði og Fjörðum.
Ólöf Hallgrímsdóttir, formaður Fé-
lags þingeyskra kúabænda, tók á
móti hópnum að austan í Mývatns-
sveit sl. laugardag og var síðan ekið
niður Hólasand og borðaður hádeg-
ismatur í boði félagsins í Félagsheim-
ilinu Heiðarbæ. Þá var ekið sem leið
liggur vestur yfir Hvammsheiði og
horft yfir Aðaldalinn, ekið framhjá
Laxárvirkjun og farið í heimsókn að
Búvöllum þar sem rekið er kúabú í
nýuppgerðu fjósi. Þar er m.a. brauta-
kerfi fyrir mjaltatækin sem margir
höfðu gaman af að sjá auk þess sem
búið þykir sérlega þrifalegt. Þar á eft-
ir var farið í Grímshús þar sem tekinn
hefur verið í notkun mjaltaþjónn og
annar nýtískulegur búnaður sem til-
heyrir fjósum. Þar voru og veitingar
frá Áburðarverksmiðjunni og Vélum
og þjónustu, en fulltrúar þessara fyr-
irtækja voru á staðnum.
Á Hálsi í Kinn var skoðaður tölvu-
stýrður fóðurvagn sem gengur um
fjósið og skammtar kjarnfóðrið ásamt
fleiru sem tengist kornrækt og í fram-
haldi af því var farið í Kvíaból þar sem
eru nær 60 mjólkandi kýr auk þess
sem stunduð er mikil kornrækt og
þar þáðar veitingar frá Norðurmjólk.
Samgönguminjasafnið í Ystafelli
var næsti áningarstaður og höfðu
margir gaman af að skoða gömlu bíl-
ana og landbúnaðartækin sem gerð
hafa verið upp og eru til sýnis. Þá var
ekið sem leið liggur framhjá Goða-
fossi og austur yfir Fljótsheiði, upp
Reykjadalinn og farið í ferðamanna-
fjósið í Vogum í Mývatnssveit þar
sem formaðurinn Ólöf Hallgrímsdótt-
ir býr. Þar var grillað kjöt og borðuð
terta auk þess tónlistin dunaði undir
stjórn þeirra Leifs Hallgrímssonar og
Valmars Valjaots og úr varð svolítið
hlöðuball.
Þegar því lauk þökkuðu bændur úr
Múlaþingi þingeyskum bændum fyrir
móttökurnar og sögðu ferðina bæði
fróðlega og skemmtilega, en héldu
svo austur til búa sinna glaðir í
bragði.
Kúabændur úr Múla-
þingi í heimsókn
Morgunblaðið/Atli Vigfússon
Helgu Hallgrímsdóttur frá Hrafnabjörgum á Héraði fannst mjaltaþjónninn
í Grímshúsum athyglisverður, en hann léttir mjög mikið störfin í fjósinu.
Laxamýri
11. ÁRSÞING Samtaka sveitarfé-
laga á norðurlandi vestra, SSNV,
var haldið á Skagaströnd dagana
29. og 30. ágúst. Á þinginu voru
rædd fjölmörg hagsmunamál íbúa
á Norðurlandi vestra og margar
ályktanir og tillögur samþykktar.
Meðal þess sem samþykkt var á
þinginu var að sameina rekstur og
stjórnun SSNV og Invest eða
Iðnþróunarfélags Norðurlands
vestra.
Með sameiningu á að nást aukin
skilvirkni og sparnaður auk þess
að á eftir verður um öflugri ein-
ingu að ræða. Aðrar tillögur þings-
ins snertu meðal annars mennta-
og menningarmál, samgöngumál
og skattamál.
Æ fleiri eiga sér tvö heimili
Auk venjubundinna þingstarfa
voru flutt nokkur erindi um ýmis
málefni. Þar á meðal flutti Páll
Skúlason, rektor Háskóla Íslands,
erindi sem hann kallaði: Framtíð-
arsýn sveitarfélaga á Norðurlandi
vestra – hver á hún að vera? Þar
kom fram sú skoðun hans að hann
teldi fámennið vera einn af styrk-
leikum svæðisins. Benti hann á í
því sambandi að í öryggisleysi nú-
tímans mundu æ fleiri eiga sér tvö
heimili, í borginni og í kyrrð og
friðsæld sveitarinnar. Einnig kom
fram í máli hans að á Norðurlandi
vestra eru mjög miklir möguleikar
fyrir menningartengda ferðaþjón-
ustu þar sem sagan snertir nánast
hverja þúfu. Að lokum kastaði Páll
fram hugmyndum að verkefnum
sem hægt væri að vinna þar sem
Háskólinn yrði samstarfsaðili. Var
gerður mjög góður rómur að máli
Páls sem svaraði fyrirspurnum
þingfulltrúa að erindi sínu loknu.
Siv Friðleifsdóttir umhverfisráð-
herra kynnti á þinginu drög að
náttúruverndaráætlun sem nú er
unnin í fyrsta sinn. Í áætluninni
eru kynnt 77 svæði sem til greina
kemur að friða að einhverju eða
öllu leyti. Telur ráðherrann þó að
ekki verði nema 10–15 svæði friðuð
nú í byrjun enda mikið samráðs-
ferli eftir áður en slíkt getur átt
sér stað. Sagði Siv í kynningu sinni
að náttúruverndaráætlunin næði
aldrei í gegn nema í samráði og
með samþykki heimamanna á
hverju svæði. Minnti hún sveitar-
stjórnarmenn á mikla ábyrgð
þeirra í þessum málum þar sem
sveitarstjórnir væru lykilaðilar.
Morgunblaðið/ÓB
Páll Skúlason, rektor HÍ, kastaði fram ferskum hugmyndum á þinginu,
sem féllu í góðan jarðveg hjá sveitarstjórnamönnum á Norðurlandi vestra.
Sameina rekstur
SSNV og Invest
Skagaströnd
ÞEIR hrukku
heldur betur við
bræðurnir sem fóru niður á flot-
bryggju á Bakkafirði í þeim tilgangi að
skoða þar dauðan blöðrusel. Sá dauði
vildi alls ekki láta skoða sig og brást
bara hinn versti við, rak upp gól og
yggldi sig framan í þá forvitnu. Þeir
hentust á hlaupum upp bryggjuna og í
öruggt skjól.
Blöðrusel-
urinn var
ekki dauður
Bakkafjörður
Ljósmynd/Áki Guðmundsson