Morgunblaðið - 02.09.2003, Blaðsíða 35
UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 2. SEPTEMBER 2003 35
ÞÚ FÆRÐ MIKLU MEIRA Í
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
T
O
Y
21
88
6
0
8/
20
02
Handfrjáls búnaður Samlituð vindskeið Hágæða hljómtæki Lúxus innrétting
COROLLA MOBILE - ALLT INNIFALIÐ Prófaðu nýjan Corolla Mobile með handfrjálsum búnaði, Sedan, Hatchback
eða Wagon. Corolla Mobile er hlaðinn nýjungum, innréttingin er ríkuleg og tónlistin dunar í hágæða hljómtækjum með 6 hátölurum. Corolla
Mobile er glæsilegur bíll að utan sem innan. Reynsluakstur strax í dag! Komdu í Toyotasalinn eða hringdu í síma 570 5070. www.toyota.is
150.000 kr. aukabúnaður
innifalinn
COROLLA
ÉG LAGÐI leið mína laugardag-
inn 16. ágúst síðastliðinn frá Reyk-
hólum yfir Þorskafjarðarheiði um
Steingrímsfjarð-
arheiði til Ísafjarð-
ar. Þorskafjarðar-
heiðin hefur verið
dálítið endurbætt
frá síðastliðnu vori,
þá ég ræddi um
ástand hennar.
Eftir viku dvöl á
Ísafirði fór ég síðan sem leið liggur
yfir Hrafnseyrarheiði til Patreks-
fjarðar og þaðan að Reykhólum.
Ég get ekki orða bundist um það
ástand á vegum, sem mætti mér á
leið minni allt frá Hrafnseyrar-
heiðinni um Dynjandisheiði og síð-
ar leiðina frá Flókalundi að Reyk-
hólum. Í stuttu máli verður
þessum vegum ekki betur lýst en
að segja það, að þeir séu nánast
ófærir og ekki ætti að beina nein-
um manni á þá, sem manni er vel
við.
Stuttur spotti við Klettshálsinn
hefur verið malbikaður og er því
ágætur, en allt annað er endemis
eyðimörk ófærunnar. Ég vil vekja
athygli manna á því, að sums stað-
ar hefur veríð lagt mikið fé í það að
uppbyggja nokkurn hluta af þessu
vegakerfi, en ekki gengið frá mal-
biki á þeim og þeir eru því jafn
ófærir og allt annað og þeim til
skammar, sem um eiga að hugsa.
Ég get ekki annað sagt eftir þessa
hringferð mína um Vestfirði og
Vestfjarðakjálkann, en það, að til
lítils fórum vér um góð héruð, ef
vér skulum svo byggja annes
þetta.
Mikill flótti fólks stefnir nú frá
Vestfjörðum á höfuðborgarsvæðið,
sem ekki er að undra. Ný atvinnu-
tækifæri verða að koma til svo að
land eyðist ekki með öllu á þessum
svæðum.
Jarðgöng undir Breiðadalsheiði
og Botnsheiði hafa orðið byggðinni
ómetanleg lyftistöng og ber að
meta það. Án þeirra hefði þetta
byggðarsvæði frá Bolungarvík um
Hnífsdal, Ísafjörð, Suðureyri, Flat-
eyri, Þingeyri og Súðavík, verið illa
statt. Samtenging þessara byggða
er ómetanleg og allir vegir á þessu
svæði eru malbikaðir og sam-
göngur því góðar á milli þessara
byggðakjarna.
Hið sama má í rauninni segja um
byggðakjarnana á sunnanverðum
Vestfjörðum, Patreksfjörð,
Tálknafjörð og Bíldudal. Sam-
göngur á milli þeirra eru góðar, því
að vegir um þetta svæði hafa verið
malbikaðir. Með þessu vegakerfi
hefur fólki á Vestfjörðum verið
gert kleift að ferðast á milli staða á
mannsæmandi hátt.
En snúum svo aftur að tengingu
Vestfjarðanna við höfuðborg-
arsvæðið, sem margur þarf að
halda tengslum við vinnu sinnar
vegna. Ég vil beina því sérstaklega
til þeirra, sem um vegina sjá, að
láta ekki þar við sitja, að undir-
byggja vegina. Sú vinna er til
einskis unnin, ef malbik er ekki
lagt á þá í lokin. Vegur um Bröttu-
brekku, öðru nafni Dalafjall, hefur
verið undirbyggður og á hann lagt
varanlegt slitlag. Er sú leið og sá
vegur til mikillar fyrirmyndar og
ómetanleg samgöngubót.
Svínadalur á milli Saurbæjar-
hrepps í Dölum og Fellsstrandar
er ein þeirra leiða, sem mikið hefur
verið rætt um að ganga þyrfti end-
anlega frá með varanlegu slitlagi.
Með því væri rutt úr vegi ákveð-
inni hindrun, sem er sú eina, sem
eftir er á milli Reykhóla og höf-
uðborgarsvæðisins. Mikið yrði
margur feginn, ef ákvörðun yrði
tekin um þessa vegabót. Á Svína-
dalnum hefur verið gert mikið í þá
veru að byggja upp veginn, en
gleymst að leggja á hann varanlegt
slitlag, sem skemmir svo allt fyrir
þeim góðu mönnum, sem við verkið
hafa fengist. Þessi vegarkafli er
nánast ófær í rigningartíð, svo sem
allir aðrir þeir vegir, sem ekki eru
lagðir varanlegu slitlagi.
Ég bið þá, sem hlut eiga að máli,
að taka þessar ábendingar mínar
til rækilegrar skoðunar og hug-
leiða það, að of miklu hefur verið
eytt af almannafé án þess að það
beri þann ávöxt, sem það gæti gert
og ætti að gera.
Íslenska vegakerfið virkar ekki
fyrr en varanlegt slitlag hefur ver-
ið lagt á það.
Endemis eyði-
mörk ófærunnar
Eftir Braga Benediktsson
Höfundur er prófastur
á Reykhólum.
Í NÆSTUM 120 ára starfstíma
Landsbankans sem aðalbanka
landsins tókst honum að safna um
1200 málverkum
eftir fyrstu kyn-
slóðir íslenzkra list-
málara. Þarna er
að finna mörg frá-
bær málverk frá
fyrstu árum Ás-
gríms Jónssonar og
einkanlega Jóhannesar S. Kjarvals,
auk fjölmargra annarra góðra
listamanna síðustu aldar. Það var
aldrei neinn ágreiningur um þessi
kaup Landsbankans á þessum
listaverkum, því að litið var á þau
sem sameiginlegt framlag þjóð-
arinnar til listsköpunar þessara
frábæru listamanna, enda var
Landsbankinn sameign þjóð-
arinnar á þeim tíma.
Þetta safn Landsbankans er þó
ekki stórt, ef tekið er tillit til þess
að á þessum tíma var þetta aðal-
fjármálastofnun þjóðarinnar. Árleg
kaup Landsbankans hafa aðeins
numið um tíu málverkum á ári að
meðaltali. Engu að síður er þetta
eitt áhugaverðasta safn landsins,
þar sem beztu og dýrustu mynd-
irnar voru oftast keyptar af Lands-
bankanum þá sjaldan listamenn
héldu sýningar.
Það var þannig mjög vel til fund-
ið að halda sýningu á litlum hluta
þessara verka nú í eigu Lands-
bankans. Alls munu þetta hafa ver-
ið um fjörutíu myndir sem nú voru
til sýnis hjá Landsbanum, eða á 2.
hæð hans við Austurstræti. List-
fræðingur sá sem sá um sýninguna
upplýsti þó að ekki væri til neinn
listi yfir listaverkin, en notaði mest
af tíma sínum til að fjalla um hinar
einstöku og sérstöku freskur Jó-
hannesar S. Kjarvals, einkum af
saltfiskverkun, málað á steinveggi
framan við anddyri og biðstofu
skrifstofa bankastjóranna.
Eg tel að það væri öllum til
sóma að gerður yrði góður og
vandaður listi yfir þau verk, sem
nú hafa verið framseld til nýrra
eigenda Landsbankans, og þar með
hætt að vera í „sameingn þjóð-
arinnar“. Enn myndarlegra væri
að gefa út fullkomna bók yfir lista-
verkin, þannig að almenningur
gæti eignast yfirlit um list þessara
merkilegu tíma síðustu aldar. Eg
vona að eigendur Landsbankans
taki þetta alvarlega og framkvæmi
það fljótlega. Þetta er ekki dýrt,
nema fyrir þá sem eru minni mátt-
ar.
Málverkasafn
Landsbankans
Eftir Ønund Ásgeirsson
Höfundur er fyrrverandi forstjóri.
Grennri
BOGENSE TAFLAN
Örugg hjálp í baráttunni við aukakílóin
Fyrir flottar konur
Bankastræti 11 • sími 551 3930
alltaf á föstudögum