Morgunblaðið - 02.09.2003, Blaðsíða 39
MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 2. SEPTEMBER 2003 39
✝ Hildur ArndísKjartansdóttir
fæddist á Suðureyri
við Súgandafjörð
25. desember 1936.
Hún lést á heimili
sínu 27. ágúst síð-
astliðinn. Foreldrar
hennar voru Guð-
munda Phroso
Oddsdóttir og
Kjartan Blöndal Ey-
þórsson, þau eru
bæði látin. Bræður
hennar samfeðra
eru Höskuldur og
Haukur.
Hildur giftist Hallgeiri Egg-
ertssyni, f. 2.2. 1931, d. 9.2.
1979. Foreldrar hans eru Rós-
björg Sigurðardóttir og Eggert
Sveinbjörn Davíðsson, látinn.
Sambýlismaður Hildar er Sigur-
jón Guðbjörnsson. Börn Hildar
eru: 1) Oddný Björg Hólmbergs-
dóttir f .16.11. 1954, eiginmaður
Hallgeirsdóttir, f. 31.1. 1972.
Hildur vann lengst af sem
verkakona við hin ýmsu störf.
Hún var alla tíð mjög virk í fé-
lagsstörfum og sat í fjölmörgum
nefndum og ráðum. Árið 1980
hóf hún störf í Sjóklæðagerðinni
og gerðist trúnaðarmaður þar
fljótlega. Þar með hófust afskipti
hennar af verkalýðs- og fé-
lagsmálum. Árið 1983 var hún
kjörin í stjórn Iðju, félag verk-
smiðjufólks og kjörin varafor-
maður þar árið 1986. Hún var
einnig í stjórn Landssambands
iðnverkafólks 1986 – 2000 og í
stjórn Lífeyrissjóðs verksmiðju-
fólks og Menningar- og fræðslu-
sambands alþýðu. Þá var hún
fulltrúi Iðju og síðar Eflingar á
þingum ASÍ í nokkur ár og einn-
ig á þingum Landssambands iðn-
verkafólks og ársfundum Starfs-
greinasambandsins. Eftir
samruna Iðju og Eflingar árið
2000 var hún þjónustufulltrúi í
Eflingu þar til hún lét af störfum
vegna veikinda í júní síðastliðn-
um.
Útför Hildar fer fram frá Bú-
staðakirkju í dag og hefst at-
höfnin klukkan 13.30.
Jón Guðmundsson.
Börn þeirra eru: a)
Karl Víðir, sambýlis-
kona Heiða Jónsdótt-
ir, sonur hennar Em-
il. b) Þóra Björk,
eiginmaður Svein-
björn Sæmundsson,
börn þeirra: Hekla
Ósk og Daníel Freyr.
c) Guðmundur. 2)
Rósa Hallgeirsdóttir,
f. 19.12. 1958, eigin-
maður Lárus Hrafn
Lárusson. Börn
þeirra eru: a) Hildur
Dagný, sonur hennar
Aron Örn. b) Tinna Gná. 3) Egg-
ert Davíð Hallgeirsson, f. 18.3.
1961, d. 3.6. 1990. 4) Guðmunda
Hallgeirsdóttir, f. 18.3. 1961,
dóttir hennar Sandra. 5) Kjartan
Hallgeirsson, f. 3.10. 1970,
sambýliskona Soffía Guðrún
Magnúsdóttir. Börn: Unnar og
Hallgeir Kári. 6) Halla
Tengdamóðir mín og vinkona er
látin. Veikindastríð hennar var í
hennar stíl, stutt, snöggt og án
skýringa.
Hildur eða Adda hafði lifað tím-
ana tvenna, hamingjusöm uppvaxt-
arár á Súðavík, hún fluttist til
Reykjavíkur, hún var ung, einstæð
móðir. Fljótlega kynnist hún Halla
og eignast með honum fimm börn.
Missir eiginmanninn snemma eftir
erfið veikindi og síðan ótímabært
fráfall annars sonar síns, nokkuð
sem hún jafnaði sig aldrei á.
Framan af ævi vann Adda við
saumaskap og síðan við skrifstofu-
störf hjá Iðju félagi verksmiðju-
fólks og síðar Eflingu, sem gáfu
henni mikið. Þar var hún að vinna
fyrir sitt fólk og með sínu fólki,
samstarfsfólk hennar hjá Iðju var
henni afar kært.
Fyrir allt of fáum árum kynnist
hún Sigurjóni sínum, og það var
henni mikil gæfa. Væntumþykja
þeirra á milli var mikil og duldist
engum. Þau höfðu yndi af því að
ferðast og fyrir tveimur árum eign-
uðust þau sumarhús í Hruna. Þar
var mín á heimavelli.
Adda tókst á við veikindi sín af
miklu æðruleysi, hún huggaði og
hughreysti sína nánustu og skipu-
lagði og gekk frá því sem þurfti.
Elsku tengdó, það voru forrétt-
indi að kynnast þér. Þú hélst vel
utan um fjölskylduna þína, þú skil-
ar henni samrýndri og öflugri og
ég lofa því að ég mun gera allt til
að svo verði áfram um ókomin ár, í
þinni minningu.
Þinn tengdasonur
Lárus H. Lárusson.
Okkur langar með nokkrum orð-
um að minnast elsku vinkonu okk-
ar Hildar Arndísar Kjartansdóttur.
Vinátta okkar hófst fyrir 14 árum
þegar við byrjuðum að ferðast
saman og það var gaman að ferðast
með þér og við áttum mjög góðar
stundir saman. Það var mjög gott
að leita til þín, þú gafst okkur góð
ráð. Okkur langar að kveðja þig
með þessu versi: Vináttan er vors-
ins blómi, vináttan er lífið, jafnt í
æsku og aldardómi er hún faðmur
kærleikans.
Þínar vinkonur að eilífu
Alda og Bára.
Ágæta vinkona og félagi.
Nú þegar þú hefur lagt af stað í
næstu vegferð viljum við félagar
þínir færa okkar dýpstu þakkir
fyrir þann tíma sem við höfum átt
saman. Hægt væri að telja upp í
langri tölu öll þau störf og nefnd-
arstöður sem þú hefur gegnt innan
verkalýðshreyfingarinnar. En þeg-
ar þú ert horfin standa verkin eftir
og þau eru besti minnisvarðinn.
Það er ekki sjálfgefið að fólk feti
þá slóð sem liggur inn í verkalýðs-
hreyfinguna. Til þess þarf fólk að
búa yfir sterkri réttlætiskennd. Af
henni hafðir þú nóg. Réttlæti og
sanngirni eru hugtök sem hafa ver-
ið á undanhaldi í okkar samfélagi
og þess vegna skipti það svo miklu
máli að hafa liðsmann eins og þig í
baráttunni fyrir bættu samfélagi.
Þær voru ófáar 1. maí-göngurnar
sem við gengum saman niður
Laugaveginn undir blaktandi fé-
lagsfánum, rauðum fánum og
kröfuspjöldum. Fyrir þessa hreyf-
ingu launafólks starfaðir þú meg-
inhluta starfsævi þinnar. Þín verð-
ur sárt saknað í næstu göngu. Við
félagar þínir munum bera fánann
áfram fyrir framtíðina, fyrir þig og
allt annað hugsjónafólk sem mynd-
að hefur þessa hreyfingu með
störfum sínum.
Einn mikilvægasti kostur hjá
forystufólki er að geta staðið þétt
saman þegar á reynir. Þú hafðir
þennan eiginleika í ríkum mæli og
við minnumst þess bæði úr samn-
ingum og sameiningu stéttarfélag-
anna.
En síðast og ekki síst varst þú
góður vinur og starfsfélagi. Þú
naust þín best á ferðalögum og
skemmtilegum stundum þar sem
amstri dagsins var vikið til hliðar
um stundarsakir með söng og gam-
anmálum.
Fyrir hönd Eflingar – stéttar-
félags
Sigurður Bessason.
Í dag kveðjum við góða vinkonu
og samstarfsfélaga, Hildi A. Kjart-
ansdóttur. Það eru ekki nema lið-
lega 2 1/2 mánuður síðan Hildur
greindist með alvarlegan sjúkdóm
og var lögð inn á sjúkrahús.
Við sitjum hljóð og söknum góðs
vinar, sem farin er úr hópnum allt-
of fljótt. Okkur er brugðið og það
minnir okkur óþyrmilega á hversu
lífið er hverfult.
Hildur var góður samstarfsfélagi
og vinur og það er undarleg tilfinn-
ing að eiga ekki eftir að hitta hana
aftur og heyra hana bjóða góðan
daginn á morgnana og sjá hana
ekki framar sitja í stólnum sínum.
Minningin um góðan samstarfs-
félaga og vin mun ávallt lifa meðal
okkar. Hugur okkar er hjá Sig-
urjóni sambýlismanni hennar,
börnum og fjölskyldum þeirra.
Kveðja,
Samstarfsmenn hjá
Eflingu – stéttarfélagi.
HILDUR ARNDÍS
KJARTANSDÓTTIR
MINNINGARGREINUM í
Morgunblaðinu hefur fjölgað
verulega á undanförnum árum.
Til að öllu efni Morgunblaðsins
verði haganlega fyrir komið reyn-
ist nauðsynlegt að setja minning-
argreinum, sem og öðru efni,
ákveðin lengdarmörk. Því hefur
verið ákveðið að fyrir utan að-
algrein verði aðrar greinar 1.500
slög (með bilum), sem eru um 50
línur í blaðinu (17 dálk-
sentimetrar) og í kringum 300
orð.
Hinsta kveðja
– nýtt form
Jafnhliða þessu verður tekin
upp nýjung sem kölluð er
HINSTA KVEÐJA þar sem
hægt verður að senda örstutta
kveðju (5–15 línur), þegar það á
við. Þetta form á við þegar votta
á virðingu án þess þó að það sé
gert með langri grein (sjá sýn-
ishorn).
Lengd minningargreina
Hæfileg lengd. Til þess að sjá
lengd minningargreinar t.d. í
Word-ritvinnslu, þá er valið
Tools-valblaðið og síðan Word
Count. Þá opnast þessi upplýs-
ingagluggi og sýnir orðafjöldann
(Words); slagafjölda án orðabila
(Characters (no spaces)); slaga-
fjölda með orðabilum (Characters
(with spaces)): 1.500.
g
fa
g
n
ar
n
k,
a
ð-
m
g
m
n-
r
r
ð
r-
i.
m
r-
n-
í
ar
l-
u
í
ð
ð-
gg g
Sú hugsun að svo kynni að fara var
manni þó oftast fjarri, svo mikill var
lífsþróttur hennar, hugurinn vökull
og atorkan óbilandi.
Ækjlskdfj aæsldkjf æa lskdfj aæ
ldskf jalæskdjf alsækdlaskdj.
lkasdjf laksjf laks jdf.
Laksdjælaskdjfæalskjfaæls
kdjfaæl sk djfalæs kd.
Jón Jónsson og
Jónína Jónsdóttir
Ækjlskdfj aæsldkjf æa lskdfj aæ
ldskf jalæskdjf alsækdlaskdj
lkasdjf laksjf laks jdf laksdjælask-
djfæalskjfaæls kdjfaæl sk djfalæs
kd fdh fg df df df n dfhndfghdfh
dfgh dfgh dfh fdgh.
Ækjlskdfj aæsldkjf æa lskdfj
aæ ldskf jalæskdjf alsækdlaskdj
lkasdjf laksjf laks jdf laksdjælask-
djfæalskjfaæls kdjfaæl sk.
Ækjlskdfj aæsldkjf æa lskdfj
aæ ldskf jalæskdjf alsækdlaskdj
lkasdjf laksjf laks jdf laksdjælask-
HINSTA KVEÐJA
Elsku Toni afi. Mig
langar að kveðja þig
með nokkrum orðum.
Það sem mun lifa
einna sterkast í minn-
ingu minni um þig er
ferðin okkar norður núna í ágúst,
„langafaferðin“ eins og Hugrún Líf
segir, því Nonni langafi hennar kom
jú líka með. Þetta var virkilega
skemmtileg ferð og gaman hvað þú og
Hugrún, langafabarnið þitt, fenguð að
kynnast betur þessa daga. Þú varst
mjög ánægður þegar við fórum á
Hofsós og afhentum myndina af
ömmu á Vesturfarasetrið á Hofsósi,
þar sem ættfræðibækurnar hennar
eru nú vel geymdar. Þú ætlaðir þér
alltaf aftur norður með myndina sjálf-
ur og það gerðir þú svo sannarlega.
Talaðir mikið um það í ferðinni og á
leiðinni í bæinn hvað það væri nú fínt
að vera búinn að fara með myndina af
ömmu á safnið. Og ég trúi því að þú
hafir verið sáttur við endalok þín í
þessu lífi þegar þú yfirgafst þennan
heim og hófst nýtt líf á nýjum stað.
Einnig á ég margar góðar minn-
ingar um þig í gegnum árin, t.d. þegar
ég fór með þér og ömmu með Eyr-
arfossi fyrir mörgum árum og ég var
sjóveik fyrsta sólarhringinn en um
leið og ég fékk afasúpu (sem var besta
aspassúpa í heiminum) batnaði mér
strax. Og daginn eftir leyfðir þú mér
að velja hvað yrði í kvöldmatinn, þá
var ég svaka montin. Einnig þegar ég
fékk fyrsta tvíhjólið mitt í jólagjöf frá
ANTON LÍNDAL
FRIÐRIKSSON
✝ Anton LíndalFriðriksson bryti
fæddist á Ísafirði 1.
september 1924.
Hann lést á heimili
sínu í Reykjavík 22.
ágúst síðastliðinn og
var útför hans gerð
frá Langholtskirkju
1. september.
þér og ömmu á jólunum
í Efstasundi. Þú hafðir
keypt það í útlöndum
handa mér og komið
með það heim með skip-
inu. Þá brosti ég allan
hringinn. Það eru ótal
margar aðrar minning-
ar og hlýjar hugsanir
um þig sem ég geymi
vel með mér um ókomin
ár.
Við, afkomendur þín-
ir, hittumst öll á afmæl-
isdaginn hennar ömmu,
27. ágúst sl., og Hugrún
spurði: „Hvar er Toni
langafi?“ Hún var nú ekki alveg sátt
við þetta, allir komnir í heimsókn og
enginn Toni langafi. En núna veit hún
að þú ert kominn til Jöru langömmu.
Mig langar að tileinka þér og Hug-
rúnu Líf lagið okkar ömmu, sem hér
fer á eftir. Mér finnst það passa ykkur
vel núna, þar sem þú kallaðir hana
alltaf sólargeislann þinn, litla ljósið og
hún er einmitt eins og segir í ljóðinu
„ljósið sem lifnaði síðast“ þar sem hún
er yngst afkomenda þinna og eina
langafabarnið þitt enn sem komið er.
Hún mun alltaf vera rík af því að hafa
fengið að kynnast þér.
Elsku afi, megir þú hvíla í friði í því
ljósi, sem þú ert nú kominn í, og ég er
viss um að það skín eins skært og litla
ljósið, sólargeislinn þinn, hún Hugrún
Líf.
Þú ert yndið mitt yngsta og besta,
þú ert ástarhnossið mitt nýtt,
þú ert sólrún á suðurhæðum,
þú ert sumarblómið mitt frítt,
þú ert ljósið sem lifnaðir síðast,
þú ert löngunar minnar Hlín.
Þú ert allt sem ég áður þráði,
þú ert ósk, – þú ert óskin mín.
(Gestur.)
Þín dótturdóttir
Jarþrúður.
AFMÆLIS- og minningargreinum má skila í tölvupósti (netfangið er minning@mbl.is, svar
er sent sjálfkrafa um leið og grein hefur borist) eða á disklingi. Ef greinin er á disklingi þarf
útprentun að fylgja. Nauðsynlegt er að tilgreina símanúmer höfundar og/eða sendanda
(vinnusíma og heimasíma). Þar sem pláss er takmarkað getur þurft að fresta birtingu greina,
enda þótt þær berist innan hins tiltekna frests. Nánari upplýsingar eru á mbl.is. Um hvern
látinn einstakling birtist formáli og ein aðalgrein af hæfilegri lengd á útfarardegi, en aðrar
greinar skulu ekki vera lengri en 300 orð, u.þ.b. 1.500 slög (með bilum) eða um 50 línur í
blaðinu (17 dálksentimetrar). Tilvitnanir í sálma eða ljóð takmarkast við eitt til þrjú erindi.
Einnig er hægt að senda örstutta kveðju, HINSTU KVEÐJU, 5–15 línur, og votta virðingu án
þess að það sé gert með langri grein. Greinarhöfundar eru beðnir að hafa skírnarnöfn sín en
ekki stuttnefni undir greinunum.
Innilegar þakkir sendum við öllum þeim sem
sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og
útför elskulegrar eiginkonu minnar, móður,
tengdamóður, ömmu og langömmu,
JÓHÖNNU MARÍU GESTSDÓTTUR,
Lillu,
Melabraut 26,
Seltjarnarnesi.
Grétar Guðjónsson,
Guðjón Grétarsson,
Gauti Grétarsson, Hildigunnur Hilmarsdóttir,
Arnold B. Cruz, Sigrún J. Eiríksdóttir,
Sigrún María B. Guðjónsdóttir, Magnús P. Haraldsson,
Hildur B. Guðjónsdóttir,
Aron Gauti Laxdal Gautason,
Tinna Laxdal Gautadóttir,
Daði Gautason
og langömmubörn.
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlý-
hug við andlát og útför ástkærs föður okkar,
sonar, bróður og afa,
GÍSLA ÞORVALDSSONAR,
Jörfabakka 14,
Reykjavík.
Sérstakar þakkir til starfsfólks 11E á Land-
spítalanum við Hringbraut.
Margrét og Ingibjörg Gréta Gísladætur,
móðir, systkini og barnabörn.