Morgunblaðið - 02.09.2003, Page 49
ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 2. SEPTEMBER 2003 49
Firmakeppni Golfklúbbsins Keilis verður
haldin laugardaginn 6. september nk.
Ræst verður út frá kl. 8.00.
Keppnisfyrirkomulag: Punktakeppni með fullri forgjöf, þó að hámarki 1 punktur á holu.
Tveir keppa saman fyrir hvert fyrirtæki og telur betri bolti.
Verðlaun fyrir þrjú fyrstu sætin er 30.000.00 kr. gjafabréf fyrir
hvorn keppanda upp í utanlandsferð.
Fyrirtæki sem ætla að taka þátt í firmakeppni Keilis eru vinsamlegast beðin að tilkynna
þátttöku í síma 565 3360 fyrir kl. 13.00 fimmtudaginn 4. september nk.
Innifalið í mótsgjaldinu er grillveisla að hætti Brynju.
Að sjálfsögðu bjóðum við forsvarsmönnum fyrirtækjanna upp á kaffiveitingar meðan
á keppninni stendur.
Þátttökugjald er kr 15. 000 á lið.
Firmakeppni
Keilis 2003
Golfmót
starfsmanna framhaldsskólanna
verður haldið sunnudaginn 7. september nk. á Korpúlfs-
staðavelli og hefst kl. 11.00. Skráning á korpa@grgolf.is.
Nánari upplýsingar um mótið hafa verið sendar í
skólana með tölvupósti. Ef eitthvað er óljóst sendið
þá póst á thordurm@verslo.is.
Mótsnefnd VÍ.
Kári Steinn sagði við Morgun-blaðið eftir leikinn að KR-ingar
væru vel að titlinum komnir. „Þeir
eru með jafnasta lið-
ið, hafa haldið sínum
takti á meðan önnur
lið hafa reytt stigin
hvert af öðru. En við
vorum ekkert að hugsa um hvort við
værum að hjálpa KR-ingunum, fyrir
okkur skipti öllu máli að vinna og
komast í annað sætið. Við vorum
ákveðnir í að hanga ekki í neðri hlut-
anum og hefur tekist að rífa okkur
upp, vinna fjóra leiki í röð, og nú get-
um við gert almennilegt sumar úr
þessu hjá okkur eftir allt saman –
stefnum ótrauðir á annað sætið í
deildinni og bikarinn.“
Kári var að vonum ánægður með
markið. „Það var sætt að sjá á eftir
boltanum efst í hornið, Kjartan
teygði sína löngu skanka á eftir hon-
um en náði honum samt ekki. Það var
ágætt að markið kom svona seint,
fyrir vikið þurftum við ekki að verj-
ast lengi,“ sagði Kári Steinn Reyn-
isson.
Markið hans var reyndar óvænt
krydd í bragðlítinn leik sem ein-
kenndist af miðjubarningi, nokkrum
háskalegum tæklingum en fáum
marktækifærum og ekkert benti til
annars en hann myndi fjara út án
marka. Í skák hefði verið búið að
semja um jafnteflið fyrir löngu.
Skagamenn voru betri aðilinn fram-
an af, sóttu þá undan vindi og höfðu
líka rigningu í bakið til að byrja með.
Það skilaði þeim þó engum afgerandi
marktækifærum þrátt fyrir sjö horn-
spyrnur í fyrri hálfleiknum sem vörn
Fylkis og Kjartan í markinu vörðust
af öryggi. Fylkir komst betur inn í
leikinn þegar leið á hálfleikinn en það
var ÍA sem fékk eina umtalsverða
færið fyrir hlé þegar Kjartan varði
ágætan skalla Garðars Gunnlaugs-
sonar útvið stöng.
Blautur völlurinn bauð upp á brot
sem urðu verri en annars, og eftir eitt
slíkt þurfti Sverrir Sverrisson Fylk-
ismaður að yfirgefa Árbæinn og fara
á slysavarðstofuna, eftir aðeins hálf-
tíma leik. Mildi að fleiri úr liðunum
skyldu ekki fara í biðröðina þar.
Fylkismenn voru öllu aðgangs-
harðari framan af síðari hálfleik en
allt bit vantaði í sóknaraðgerðir
þeirra og sjálfstraustið uppi við víta-
teig andstæðinganna virðist alger-
lega horfið eftir slæmt gengi undan-
farið. Markverðirnir, Kjartan og
Þórður Þórðarson, þurftu nokkrum
sinnum að verja skot í seinni hálf-
leiknum og gerðu það jafnan óaðfinn-
anlega og gripu inn í leikinn af öryggi
þegar með þurfti. Ásamt miðvörðun-
um, Arnari og Þórhalli hjá Fylki og
Gunnlaugi og Reyni hjá ÍA, voru þeir
bestu menn vallarins því miðju- og
sóknarmenn liðanna voru flestir afar
mistækir í öllum sínum aðgerðum.
Aðeins 55 sekúndum eftir mark
Kára fékk Fylkir sitt besta færi í
leiknum, og þá hefði Arnar Þór Úlf-
arsson getað haldið smá spennu í Ís-
landsmótinu í tvær vikur í viðbót.
Hann þrumaði þá á mark ÍA af tíu
metra færi en boltinn sveif yfir þver-
slána og titillinn var endanlega í
höndum KR-inga.
Morgunblaðið/Kristinn
Vonbrigði! Fylkismennirnir Kjartan Antonsson, Örn Hafsteinsson og Helgi Valur Daníelsson
ganga vonsviknir af velli eftir þriðja tapleik liðsins í Landsbankadeildinni í röð.
„Stefnum á annað
sætið og bikarinn“
SKAGAMAÐURINN Kári Steinn Reynisson tryggði KR-ingum sinn
24. Íslandsmeistaratitil á Árbæjarvellinum í gærkvöld. Það gerði
hann með því að skora sigurmark ÍA gegn Fylki, 1:0, með stór-
glæsilegu skoti, tæpum fjórum mínútum áður en Garðar Örn Hin-
riksson flautaði til leiksloka - en eftir að leik Grindavíkur og KR lauk
suður með sjó. Það kom því í hlut Skagamanna, annað árið í röð, að
sjá til þess að Íslandsbikarinn færi í hendur þeirra fornu fjenda í
Vesturbænum - en þeim var nokk sama í gærkvöld. Með mögnuðum
spretti og fjórum sigrum í röð eru þeir komnir úr áttunda sætinu
sem þeir sátu í þegar flautað var til leiks hjá þeim gegn Fram þann
10. ágúst, og alla leið í annað sætið sem þeir náðu af Fylki með
þessum sigri.
Víðir
Sigurðsson
skrifar
UPPSELT er á landsleik Íslands og
Þýskalands í knattspyrnu sem fram
fer á Laugardalsvelli á laugardag-
inn. Vonir þeirra sem ekki náðu að
krækja sér í miða um að komast á
völlinn eru engar því samkvæmt
upplýsingum frá Knattspyrnu-
sambandi Íslands og er langt síðan
þeim 7.050 sætum sem á Laugar-
dalsvelli eru var ráðstafað. Þau síð-
ustu seldust innan við sólarhring
eftir að flautað var til leiksloka í
viðureign Færeyinga og Íslendinga
í Þórshöfn fyrir nærri hálfum mán-
uði.
Mikið af miðum var selt á Netinu
og á skrifstofu sambandins, eða
3.300 talsins. Þjóðverjar fengu
1.200 miða og eru þeir búnir að
selja þá alla þannig að íslenskir
áhorfendur fá ekki að kaupa neinn
afgang frá þeim, enda hefði það
geta reynst þrautin þyngri því sam-
kvæmt reglum Knattspyrnu-
sambands Evrópu verður að stúka
af stuðningsmenn liða. Ýmis fyrir-
tæki keyptu 1.200 miða, 150 fjöl-
miðlamenn mæta til leiks, auk þess
sem reglugerðir KSÍ um frímiða
gerir ráð fyrir að um 500 frímiðum
sé dreift m.a. til dómara. Þá eru eft-
ir 700 miðar og þeim hefur verið
ráðstafað til gesta og samstarfs-
aðila KSÍ, en það er bundið í samn-
ingum KSÍ og ýmissa fyrirtækja
sem styrkja sambandið.
Uppselt í Laugardalinn –
1.200 Þjóðverjar væntan-
legir til landsins
Það hefði verið gaman að haldaspennu í mótinu aðeins lengur
en KR-ingar eru vel að þessum sigri
komnir. Þeir eru búnir að spila
fantavel síðustu umferðirnar og eiga
hrós skilið, ég óska þeim innilega til
hamingju,“ sagði Fylkismaðurinn
Sævar Þór Gíslason eftir ósigurinn
gegn ÍA í gærkvöld.
„Við gáfum einfaldlega eftir,
horfðum núna upp á þriðja tapið í röð
og við erum greinilega ekki betri en
þetta um þessar mundir. Við eigum
við mikla markaþurrð að glíma, ég
veit ekki hvað veldur en við sköpum
okkur engin marktækifæri þessa
dagana. Við spiluðum ágætlega á
köflum í dag en það kom ekkert út úr
því. Ég kann engar skýringar á
þessu, það er eins og það hafi komið
værð yfir liðið eftir fyrri Evrópuleik-
inn, en nú þurfum við að nota þetta
tveggja vikna hlé til að berja okkur
saman á ný. Nú er titillinn farinn,
engin pressa á okkur lengur, og við
ætlum okkur að komast aftur í Evr-
ópukeppni á næsta ári. Það verður
því barist með kjafti og klóm gegn
KA og Val í tveimur síðustu leikj-
unum,“ sagði Sævar Þór Gíslason.
„KR-ingar vel að
þessu komnir“