Morgunblaðið - 02.09.2003, Side 53
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 2. SEPTEMBER 2003 53
ÁLFABAKKI
Sýnd kl. 3.50, 5.50, 8 og 10.10. B.i. 12 ára.
ÁLFABAKKI
Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10. B.i. 10 ára.
KVIKMYNDIR.IS
KVIKMYNDIR.COM
ÓHT RÁS 2
SG DV
MBL
KVIKMYNDIR.IS
KVIKMYNDIR.COM
ÓHT RÁS 2
SG DV
MBL
KRINGLAN
Sýnd kl. 5.30, og 8.15. B.i. 10.
AKUREYRI
Sýnd kl. 8 og 10.30. B.i. 10
ÁLFABAKKI
Sýnd kl. 3.50. Með íslensku tali.
KRINGLAN
Sýnd kl. 5.
BASIC SINBAD SÆFARI ÁSTRÍKUR OG KLEOPATRABRUCE ALMIGHTY
ÁLFABAKKI
Sýnd kl. 8 og 10. B.i. 16.
KEFLAVÍK
Sýnd kl. 8 og 10.
YFIR 37.000 GESTIR! YFIR 37.000 GESTIR!
98% aðspurðra í USA sem höfðu séð myndina
sögðu “góð” eða“stórkostleg”! 98% aðspurðra í USA sem höfðu séð myndina
sögðu “góð” eða“stórkostleg”!
Skonrokk FM 90.9 Skonrokk FM 90.9
ÁLFABAKKI
Sýnd kl. 4 og 6.
AKUREYRI
Sýnd kl. 6.
Með
íslensku
tali
EINNIG SÝND Í LÚXUS VIP KL. 5, 7.45 OG 10.15.
ÁLFABAKKI
Synd kl. 4 og 6. Ísl tal
ÁLFABAKKI
Sýnd kl. 8. Enskt tal
Sýnd áklukkutímafresti
30.08. 2003
5
5 4 8 4 1
9 4 5 6 5
13 22 32 34
35
27.08. 2003
2 12 20
36 38 48
31 45
VÁKORT
Eftirlýst kort nr.
4741-5200-0002-4854
4507-4300-0029-4578
Afgreiðslufólk, vinsamlegast takið
ofangreind kort úr umferð og
sendið VISA Íslandi sundurklippt.
VERÐLAUN kr. 5000
VISA ÍSLAND
Álfabakka 16,
109 Reykjavík.
Sími 525 2000.
Derry þennan dag. IRA hafði hins
vegar lítið með Bloody Sunday að
gera, átti ekki sök á þessum atburð-
um.
Vissulega voru nokkrir IRA-menn
af gamla skólanum í göngunni og ein-
hverjir þeirra höfðu byssur í fórum
sínum. Það hefur alltaf verið deilt um
það hver skaut fyrsta skotinu, rót-
tækir göngumenn eða hermennirnir,
en þegar öllu er á botninn hvolft
skiptir það ekki máli því ekkert rétt-
lætir að fjórtán óvopnaðir borgarar
skyldu skotnir þarna til bana.
Þessar 20 þúsund manneskjur sem
tóku þátt í göngunni gerðu það ekki
til að lýsa yfir stuðningi við IRA,
heldur til að krefjast mannréttinda til
handa kaþólikkum. IRA var auk þess
ekki orðið það afl á þessum tíma sem
það seinna varð – raunar er ljóst að
IRA styrkist verulega einmitt vegna
atburðanna sem áttu sér stað á
Bloody Sunday.“
- Já, það eru einmitt sterkustu
skilaboðin í þessari mynd; að atburðir
þessa dags hafi hleypt lífi í IRA.
„Sannarlega. Það gengu fjölmargir
ungir menn í IRA í kjölfar þessara at-
burða. Um það verður ekki deilt.“
Eyðilagður maður
Nesbitt er spurður um manninn
sem hann leikur í myndinni, Ivan
Cooper. Hann segir að einmitt sú
staðreynd að Cooper, sem var mót-
mælandi, skyldi hafa verið í forystu
þessarar göngu – þar sem flestir voru
kaþólskir – sýni að henni var ekki
ætlað að valda uppþotum.
„Ivan hætti ekki í stjórnmálum
einn, tveir og þrír. Hann hélt áfram
eftir þetta. En honum fannst hann
alltaf að einhverju leyti hafa borið
ábyrgð á því sem gerðist. Hann var
að mörgu leyti eyðilagður maður eftir
þetta. John Hume [leiðtogi hófsamra
kaþólikka á Norður-Írlandi] ákvað að
vera ekki meðal göngumanna þennan
dag en Ivan tók aftur á móti ákvörð-
un um að vera með. Hann fann því
alltaf til ábyrgðar og átti erfitt með að
horfast í augu við ættingja fórnar-
lambanna þess vegna.
Hann er hins vegar núna kominn
aftur fram á sjónarsviðið. Það er
gaman að segja frá því en þessi mynd
hefur að mörgu leyti hreinsað nafn
margra þeirra, sem tóku þátt í göng-
unni; og þó kannski einkum og sér í
lagi Ivans Coopers. Og ég tel að hann
hafi enn margt fram að færa.“
- Hefði verið hægt að búa þessa
mynd til fyrir gerð friðarsamkomu-
lagsins 1998?
„Ég held það hefði verið erfitt. Eitt
af því sem skipti svo miklu máli er að
einn hermannanna breytti framburði
sínum fyrir rannsóknarnefndinni,
sem var sett á laggirnar eftir friðar-
samkomulagið. Án vitnisburðar hans
hefði myndin orðið allt öðruvísi, og
það hefði verið erfiðara að gera hana;
sú sýn sem hún gefur hefði orðið um-
deildari.“
- Þú ert að tala um þann sem sagði
ekki sannleikann við yfirmenn sína
þegar atburðir Bloody Sunday voru
gerðir upp; hylmdi yfir með félögum
sínum [sem tóku að skjóta á göngu-
menn að ófyrirsynju]?
„Já, einmitt. Hann hefur nú breytt
framburði sínum, viðurkennir að hafa
séð að fólkið sem hermennirnir skutu
var óvopnað; að það var alls ekki ver-
ið að gera árás á hermennina [eins og
þeir þó héldu fram á sínum tíma, og
réttlættu með því viðbrögð sín].
Hann telur semsé einfaldlega að um
morð hafi verið að ræða.“
Vala í veggi friðar
Nesbitt segir það skoðun sína að
þessi mynd þurfi að vera framlag
til sátta á Norður-Írlandi, hluti af
því ferli sem þarf að eiga sér stað til
að sárin grói.
„Þeir sem standa að þessari mynd
hafa allir ástæðu til að vilja það, við
komum úr öllum hornum þessa sam-
félags. Jim Sheridan, sem framleiðir
myndina, er t.d. írskur kvikmynda-
gerðarmaður; Don Mullan, sem skrif-
aði bókina Eyewitness Bloody
Sunday, tók sjálfur þátt í göngunni,
þá 15 ára gamall; síðan höfum við
leikstjórann, Paul Greengrass, en
hann er enskur í húð og hár; og loks
mig, sem er norður-írskur mótmæl-
andi. Fyrrverandi liðsmenn breska
hersins tóku líka þátt og það komu
því allir hlutaðeigandi að þessum at-
burðum að gerð myndarinnar. Í því
felst ákveðinn andi sátta – uppgjörs.
Paul Greengrass, leikstjórinn, hef-
ur einmitt sagt eftirminnilega að ef
þessi mynd geti talist ofurlítil vala í
veggi friðar, þá getum við öll verið
sátt við dagsverkið,“ sagði James
Nesbitt.
david@mbl.is
Blóðugi sunnudagurinn er sýnd
á Breskum bíódögum í
Háskólabíói.
EINHVER óvæntasti smellur síð-
ustu ára er án efa breska myndin
Með fullri reisn (The Full Monty).
Þótt myndin væri bresk mjög hitti
hún fólk um allan heim beint í hjarta-
stað og staðfesti enn og aftur að eng-
ir eru betrungar Breta þegar kemur
að gerð gráglettinna og mannlegra
samfélagsádeilna.
Gullna tækifærið (Lucky Break)
er eftir sama kvikmyndagerðar-
mann, Peter Cattaneo, og fyrsta
myndin sem hann gerir eftir að hafa
slegið svona rækilega í gegn. Hreint
ekki svo öfundsvert verkefni að
fylgja eftir svo vel heppnaðri og vin-
sælli mynd og hefur Cattaneo valið
að spila þetta öruggt, heldur sig á
svipuðum slóðum, því líkt og í Með
fullri reisn gengur grínið í Gullna
tækifærinu að miklu leyti út á óhefl-
aða karlmenn við nýjar og framand-
legar aðstæður.
Myndin segir frá smákrimmum
tveimur, Jimmy og Rud (Nesbitt og
James), sem dæmdir eru til tugthús-
vistar eftir verulega misheppnaða
bankaránstilraun. Það hvarflar þó
ekki að þeim að dúsa lengi í stein-
inum og það er ekki fyrr búið að læsa
á eftir þeim en þeir hefja flóttaund-
irbúning. Tækifærið gullna gefst
loksins þegar Jimmy platar söng-
leikjaelskandi fangelsisstjórann
(Plummer) til að setja upp frumsam-
inn söngleik um Nelson flotaforingja.
Planið er að taka þátt í söngleiknum
og láta sig svo hverfa í miðjum klíð-
um. Jimmy hafði þó engan veginn
áformað að finna stóru ástina, í stein-
inum af öllum stöðum, og reynir hinn
gullfallegi meðferðarfulltrúi Annabel
(Williams) hvað hún getur til að fá
hann ofan af því að strjúka.
Þetta er lítil og þægileg saga sem
Cattaneo segir og hann er greinilega
á heimavelli þegar kemur að spaugi-
legum hliðum hversdagsleikans. En
með því að takast á við svo líkt við-
fangsefni og í Með fullri reisn kallar
hann yfir sig að myndirnar séu born-
ar saman. Þá hallar allverulega á
Gullna tækifærið því hún er hvorki
eins fyndin né ristir dramatíkin eins
djúpt, en hún snýst einkum í kring-
um aumlegan klefafélaga Jimmys
(Spall) sem situr saklaus inni, er
lagður í einelti af fangavörðum og
grunar konu sína um framhjáhald.
Ástarævintýrið verður heldur aldrei
nægilega sannfærandi enda ótrú-
verðugt í meira lagi.
En eins og í Með fullri reisn tekst
Cattaneo best upp er hann leikur sér
að karlmennskunni og hversu erfitt
„sterkara“ kynið á með að sleppa
fram af sér beislinu, losna við kúlið.
Það er óneitanlega fyndið að sjá
harðsvíraða tugthúslimi brjótast út í
rómantískan söng og það nýtir Catt-
aneo sér út í ystu æsar. Persónur eru
þar að auki skrautlegar líkt og í Með
fullri reisn, þökk sé frábæru leikara-
liði. Einkum eiga þeir stjörnuleik
Plummer gamli í hlutverki fangels-
isstjórans og Bill Nighy í viðlíka rolu-
legri rullu og í rokkstjörnumyndinni
Still Crazy.
KVIKMYNDIR
Háskólabíó – Breskir bíódagar
Leikstjóri Peter Cattaneo.
Handrit Ronan Bennett.
Kvikmyndatökustjóri Alwin H. Kuchler,
Adam Suschitzky. Tónlist Anne Dudley.
Aðalhlutverk James Nesbitt, Olivia Willi-
ams, Timothy Spall, Bill Nighy, Lennie
James, Christopher Plummer.
Bretland 2001.
Gullna tækifærið (Lucky Breaks) Sungið í steininum
Skarphéðinn Guðmundsson
Tugthúsrómantíkin blómstrar milli Oliviu Williams og James Nesbitt.
+ ,-. """"""""")+,-*
#-
!" #$
./0
1
"20"3
'
4
5
1
$
"!1"6,7"28* ,"90"
":;4
%*-1
",
"2%* "
)
"28
&**1"< <
"2=>"%
4
*?,,
"20"
*",
,4
@+"2;"@ A**"1
"
"2A**"
" 04 Moggabúðin
Stuttermabolir, aðeins 1.000 kr.