Morgunblaðið - 04.09.2003, Blaðsíða 2
2 B FIMMTUDAGUR 4. SEPTEMBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ
NFLUTNINGAR
! !
"
#
$
!
%
&
'"
((
) *
+
!
,
!,
-
!
(
.
% *
,
Á
ÆTLUÐ velta erlendrar
starfsemi Samskipa á
árinu 2004 er áætluð 12
milljarðar íslenskra
króna. Í ár er veltan
áætluð 9,2 milljarðar króna en í fyrra
nam velta erlendrar starfsemi 6,3
milljörðum króna. Vöxturinn hefur
því verið umtalsverður, eða 46% milli
áranna 2002 og 2003 og áætlaður
vöxtur er 30% milli áranna 2003 og
2004.
Til samanburðar var heildarvelta
félagsins á árinu 2002 14,2 milljarðar
króna og því ljóst að erlenda starf-
semin er að sigla fram úr þeirri inn-
lendu með tilliti til tekjuöflunar. Þrátt
fyrir það er íslenska starfsemin mun
fjölbreyttari og víðfeðmari. Íslands-
deildin sér um flutninga frá A-Ö, eða
alla mögulega flutninga beint heim að
dyrum viðskiptavinarins með aðkomu
Jóna, Landflutninga og fleiri deilda
innan Samskipa. Erlendis er aðallega
um að ræða flutninga með skipum frá
einni höfn til annarrar, hvort sem
siglt er með frystigáma, vörur í lest
eða annan varning.
Ásbjörn Gíslason, forstjóri Sam-
skipa erlendis, segir að framtíðarsýn
erlendrar starfsemi sé skýr. Hún sé
að halda áfram á sömu braut og efla
starfsemi félagsins á þeim mörkuðum
sem það skilgreinir sem kjarnamark-
aði félagsins. Hann segir að Samskip
líti ekki lengur á sig sem skipafélag
eingöngu þrátt fyrir nafnið, heldur
sem alþjóðlegt flutningafyrirtæki
sem býður upp á hvers kyns flutn-
ingatengda þjónustu í lofti, á láði og
legi.
Samtals reka Samskip 28 skrif-
stofur í 13 löndum auk umboðsskrif-
stofa vítt og breitt um heiminn.
Ekki mikil breyting
Ásbjörn og Knútur G. Hauksson, for-
stjóri Samskipa á Íslandi, segja að
forstjóratitlarnir hafi ekki haft í för
með sér mikla breytingu fyrir þá frá
degi til dags. „Þetta var ákveðin
formbreyting á skipuriti félagsins.
Ég var áður aðstoðarforstjóri en Ás-
björn var framkvæmdastjóri sölu- og
markaðssviðs erlendrar starfsemi.
Ég held að menn hafi fagnað breyt-
ingunum, ekki síst með tilliti til styttri
starfsheita,“ segir Knútur og hlær.
„Við höfum klára rekstrarlega
ábyrgð, en sameiginlega berum við
ábyrgð á samstæðunni.“ Spurður
segir Knútur að það hafi reyndar
aldrei þótt gott í siglingum að hafa tvo
skipstjóra á báti. „Við bendum hins-
vegar á að við siglum með tvö skip
hingað til Íslands, með sitthvorum
skipstjóranum og þeir hafa klárlega
ákveðna ábyrgð á hvoru skipi. En
sameiginlega er þetta eitt kerfi sem
unnið er eftir og þannig er þetta dálít-
ið hjá okkur Ásbirni. Auk þess er
Ólafur Ólafsson stjórnarformaður
hluti af hópnum og saman myndum
við þríeyki sem vinnur saman að
framgangi félagsins.“
Þeir Ásbjörn og Knútur segja að í
svo umfangsmikilli starfsemi og vexti
og Samskip eru í sé erfitt fyrir einn
mann að hafa yfirsýn yfir allt sviðið
og sinna jafnframt daglegum rekstri.
„Með þessari skipan setjum við skýr-
an fókus á báðar einingar. Stjórnar-
formaðurinn vinnur síðan að heildar-
stefnumótun og uppbyggingu fé-
lagsins.“
Knútur segir að á undanförnum ár-
um hafi mikið verið að gerast í starf-
seminni á Íslandi og félagið að byggja
sig upp sem alhliða flutningafyrir-
tæki. „Við erum ekki eingöngu með
siglingar því einnig er búið að byggja
upp mjög öflugt innanlandskerfi, með
daglegan akstur um allt land. Við höf-
um byggt upp gríðarmikla vörudreif-
ingarmiðstöð þar sem er til dæmis
lager fyrir meira en 150 matvöru-
verslanir sem félagið dreifir í dag-
lega.“
Byggð hefur verið ný frysti-
geymsla og í febrúar 2005 eru tvö ný
skip væntanleg, en þau eru í smíðum í
Þýskalandi. Þá var hafist handa á
dögunum við að reisa nýtt 25 þúsund
fermetra húsnæði yfir Vörumiðstöð
Samskipa þar sem sameinuð verður
undir einu þaki starfsemi sem nú er í
fimm húsum. Þar verða einnig höf-
uðstöðvar Samskipa í framtíðinni.
Einnig eru Samskip að stórauka
starfsemi sína á Austurlandi, einkum
vegna starfsemi fyrir Impregilo í
tengslum við Kárahnjúkavirkjunina.
Knútur nefnir lítið dæmi um það
hvernig rekstur félagsins hefur
breyst. „Þegar ég byrjaði hjá félaginu
var maður hér sem hafði starfað hjá
félaginu í 40 ár. Þegar hann byrjaði
hjá Samskipadeildinni voru 12 skip í
rekstri á Íslandi og aðeins 12 manns á
skrifstofu. Nú vinna í kringum 100
manns á skrifstofu en aðeins tvö skip
eru í rekstri á Íslandi. Þetta sýnir
best hvað þetta er orðið mikið þjón-
ustufyrirtæki.“ Alls eru starfsmenn
Samskipa nú um 800 talsins, um 600
starfa á Íslandi og 200 erlendis.
Spurður nánar um erlendu starf-
semina segir Ásbjörn að félagið sé bú-
ið að vera í mikilli sókn undanfarið ár.
„Við höfum eflt siglingakerfi okkar
verulega á markaðssvæði meginlands
Evrópu, Bretlands, Skandinavíu,
Eystrasaltsríkjanna og Rússlands.“
Samskip eru nú með níu skip í föst-
um áætlunarsiglingum á þessu mark-
aðssvæði og flytja um 150 þúsund
gámaeiningar á ári. Félagið rekur
jafnframt sérhæfða flutningaþjón-
ustu frá höfnum við meginland Evr-
ópu inn í Rússland og Kaspíahaf.
Samskip hafa einnig, að sögn Ás-
björns, styrkt stöðu sína verulega í
flutningum á frystum fiskafurðum á
undanförnum misserum.
Um 40% hlutdeild hér á landi
Um markaðshlutdeild Samskipa á Ís-
landi segir Knútur hún sé um 40% í
gámaflutningum og svipað því í öðr-
um flutningum. „Við erum klárlega
minni aðilinn á Íslandi ennþá,“ segir
Knútur.
Hann segir að samkeppni á mark-
aðnum hafi verið hörð undanfarið þar
sem innflutningur dróst verulega
saman á síðasta ári.
Spurður að því hvernig hugsanleg
sameining SH og SÍF myndi snerta
Samskip segir Knútur að SÍF sé
mjög stór viðskiptavinur Samskipa í
útflutningi og því myndi það eðlilega
koma við félagið. Hins vegar segir
hann að enginn einn viðskiptavinur sé
stærri en 3–4% af heildarveltu félags-
ins. „Annars reikna ég með að ef sam-
eining muni eiga sér stað, muni menn
reka sameinað félag út frá viðskipta-
legum sjónarmiðum og við munum
kappkosta að bjóða nýju fyrirtæki
góða og hagkvæma þjónustu á sam-
keppnishæfu verði. Útfrá flutninga-
sjónarmiði myndast fullt af nýjum
tækifærum með sameiningu SH og
SÍF.“ Þeir Ásbjörn og Knútur segja
flutningamarkaðinn öfugsnúinn.
„Þegar magn fer niður þá fara menn
að örvænta og lækka verðið. Svo þeg-
ar magnið fer upp þá lækkar verðið
líka.“
Fyrir nokkrum árum voru uppi
hugmyndir um að skrá Samskip í
Kauphöll Íslands. Starfsmenn fengu
bréf í félaginu að gjöf og lykilstarfs-
menn fengu tækifæri til að kaupa
hluti. Ekkert varð af skráningunni og
því má ætla að fjöldi manna hafi setið
eftir með bréf sem engin verðmyndun
er á.
„Ástæða þess að ákveðið var að
hætta við að skrá félagið á markað
var að við vorum í mikilli uppbygg-
ingu erlendis en urðum fyrir
ákveðnum áföllum þar. Afkoman varð
lélegri en gert hafði verið ráð fyrir
auk þess sem hlutabréfamarkaður á
Íslandi var í mikilli lægð.
Þannig að það þjónaði ekki hags-
munum eigenda að fara á markað.“
Aðspurður hvort enn sé stefnt að
skráningu, fari svo að aðstæður batni,
segir Knútur að það sé líklega eitt-
hvað sem eigendur séu með í stöðugri
endurskoðun.
Um afkomuna fyrstu sex mánuði
þessa árs segir Knútur hana vera að-
eins undir væntingum. Hluti af
ástæðunni sé hátt gengi krónunnar
sem hafi gríðarleg áhrif á tekjur fé-
lagsins. „Við erum með 1,5 milljarða í
gjöld umfram tekjur í erlendri mynt
og félagið er gert upp í íslenskum
krónum.“ Þrátt fyrir það eru forstjór-
arnir tveir bjartsýnir á framtíðina.
„Við erum sannfærðir um að félagið
muni vaxa og dafna í framtíðinni,
jafnt heima og erlendis.“
Samskip
á siglingu
Fyrr á þessu ári tóku þeir Ásbjörn Gíslason og
Knútur G. Hauksson við daglegum rekstri
Samskipa. Þóroddur Bjarnason ræddi við for-
stjórana tvo um verkefni þeirra hjá félaginu og
það hvernig er að hafa tvo menn í brúnni.
!"
"#$
%&&% %&&'
()*
!"
"#$
%&&% %&&+
,- %&&%. !""#$% &!$' ("#"#$)*+ $""##,
'"% &!,-( (# *+ $'( '*!.)"'"$,'/)+#"#$ 0("# ) 1/
"##,23''+ #4$#"5, ', ! ) (5 # 1(5 '" 5'+("5 #4"
)*+ $6(" 5"
"/%&&%."+1(( $ '"-4' ("# '#4"# )#""+1((
7+ '" ,' ("#5)*+ $"( *+ $"5((" )1(" 5'+("5 #4"
)*+8$ ,)+#"#$ )9' )"'" )5 ,)9'"'" ,:5+ #'! )"
-
%&&+. '" "!+,;< =>=# "#(?"#(' ; =>
(#)*+ $"5('"$+"#$ 6@/#' "++" "'+ #4'A"##+ #4'$! )# , 1/$
-(+ #4"0' +' (5)@8$$ '",('" *+ $"5( (5 5'!+4("+4,$ )+#"#$ "+A) "'+ #4"
/-
%&&+. '"# '")'),B"#$4 ,,# "+ 5()+ (##)( 6
6@/#''( 1("5(1("5( 5&9$$@ ,/(
0$%&&+.")') '" 1"5 &5"; => ($"#+ #4" 1/
1
%&&+. '" )9 &5' 5"+ )*+ $'"#',#C((#,-(+$,$
!()@ 6 ' )'( ",# )#" '"
,- %&&+. '" $ 6@/#' "++":($'$-(#(+D+ #4 0$,
.")."6 '( )9"("# )(,$@ +46
$ "/%&&+. '" 9)"' )'( ":!(#=#"#( +?"#('(#)*+ $"5
(18$ '",'"$+"#$ "++"?(+ #4'01,6@/5 0-(+ #4'$ ($"#+ #4'
1/
1
!"
!"
"#$
2
#! $ '"
'")8' '"$+"#$ +("5
63'#4$ ("#"#$
5"E 1/ A-(+ #4"+ #4"F
# 1,A 9' ' +'+8#4A23''+ #4
%2 )!*
+#"#$ ("# ) 1/"##,
23''+ #4$ 51"5 ', ! )
+23 4*!*
"+1(( 0(')9'"'"
+#"#$' "5+#0)9'"$ /( A,# A 1/'")')
'2* "5*6
78)5
* 7(" "+4E '"
Morgunblaðið/Þorkell
Knútur G. Hauksson og Ásbjörn Gíslason stýra Samskipum í sameiningu.
tobj@mbl.is