Morgunblaðið - 04.09.2003, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 4. SEPTEMBER 2003 B 7
NFRÉTTIR Arna María Gunn-
arsdóttir er nýr starfs-
maður í söludeild Op-
inna kerfa. Arna var
verkefnisstjóri og mark-
aðsstjóri hjá ATV þar til
sl. vor. Hún vann í sex
ár við markaðsmál hjá
Hewlett-Packard í Evr-
ópu með aðsetur í Englandi. Þar starfaði
hún sem sérfræðingur í rafrænum við-
skiptum og þróun vefmála. Hún bar einnig
ábyrgð á gerð kynningarefnis og fram-
kvæmdastjórn sölusýninga. Hún er með
BA-próf í dönsku og bókmenntafræði, BA í
leiklist og diploma í kvikmyndagerð. Hún
hefur starfað við sjónvarps- og kvikmynda-
gerð og leikstjórn hérlendis og erlendis.
Arna María verður viðskiptastjóri vefsölu
og mun leiða verkefni vegna notkunar á
vefnum, bæði sem upplýsingatæki og
pöntunaraðferð.
Guðbrandur Randver
Sigurðsson er nýr vöru-
stjóri í heildsöludeild
Opinna kerfa. Guð-
brandur starfaði sem
verslunarstjóri hjá Tölvu-
og rafeindaþjónustu
Suðurlands (TRS) sl.
fjögur ár og hefur mikla
reynslu í sölu á HP-búnaði. Guðbrandur er
stúdent af viðskipta- og hagfræðibraut frá
Fjölbrautaskóla Suðurlands. Hann er í
sambúð með Lucindu Árnadóttur og á
dóttur sem heitir Jóhanna Kolbrún. Guð-
brandur verður vörustjóri sem ber ábyrgð
á tölvubúnaði, með áherslu á PC búnað
fyrir söluaðila með sölustaði (retail).
Jóngeir Andersen er
einnig nýr vörustjóri í
heildsölu Opinna kerfa.
Jóngeir hefur starfað
sem vörustjóri á fyr-
irtækjamarkaði hjá ATV
sl. þrjú ár og hefur mikla
reynslu í birgðastýringu
og viðhaldi upplýs-
ingakerfa. Jóngeir er iðnrekstrarfræðingur
af markaðssviði, en hann lauk prófi frá
Tækniskóla Íslands 1996. Jóngeir er í
sambúð með Ásdísi Kristjánsdóttur, son-
ur þeirra heitir Markús en þau eiga von á
öðru barni í haust. Jóngeir verður vöru-
stjóri sem ber ábyrgð á tölvubúnaði, með
áherslu á PC-búnað fyrir fyrirtækjamarkað.
Víglundur Pétursson
er nýr starfsmaður í
söludeild Opinna kerfa.
Víglundur starfaði sem
sölumaður á fyr-
irtækjasviði ATV frá byrj-
un árs 1999. Víglundur
er stúdent frá Fjöl-
brautaskólanum í Ár-
múla. Þaðan fór hann í Fiskvinnsluskól-
ann og lauk síðan iðnrekstrarfræðiprófi
frá Tækniskóla Íslands. Víglundur er í
sambúð með Ásu Fríðu Kjartansdóttur.
Þau eiga dótturina Guðrúnu Brynju, auk
þess sem Víglundur á soninn Óðin sem
býr hjá móður sinni í Noregi.
Nýir starfsmenn
hjá Opnum
kerfum hf.
Snorri Árnason hefur
verið ráðinn verkefn-
isstjóri vélasviðs Heklu
við Kárahnjúka. Hann
mun hafa umsjón með
þeim þáttum fram-
kvæmdanna sem snúa
að Heklu. Aðsetur
Snorra verður við Kára-
hnjúka út framkvæmdatímann, en verklok
eru áætluð snemma árs 2007. Snorri hef-
ur starfað hjá Heklu síðustu 13 árin, síðast
sem sölustjóri vinnuvéla. Hann er mennt-
aður vélfræðingur frá Vélskóla Íslands.
Snorri er kvæntur Lilju Þorsteinsdóttur
hjúkrunarfræðingi.
Jens Kristinsson hef-
ur verið ráðinn um-
sjónarmaður vara-
hlutalagers Heklu á
framkvæmdasvæðinu
við Kárahnjúka. Hann
mun hafa aðsetur við
Kárahnjúka út fram-
kvæmdatímann.
Jens er fyrrum starfsmaður Heklu þar sem
hann starfaði bæði á bílaverkstæði og véla-
verkstæði. Síðustu ár hefur Jens verið vél-
stjóri á skipum Samherja.
Jens er með þriðja stigs vélstjórapróf. Sam-
býliskona hans er Aðalheiður Gunn-
arsdóttir talsímavörður.
Vilmundur Theódórs-
son er nýr sölustjóri
vinnuvéla (CAT). Und-
anfarin 3 ár var Vilmund-
ur sölumaður landbún-
aðar- og vinnuvéla hjá
Vélum og þjónustu og
þar áður starfaði hann á
vélaverkstæði Heklu.
Vilmundur er vélvirki að mennt frá Fjöl-
brautaskólanum á Selfossi. Hann er
kvæntur Guðrúnu Erlu Sigfúsdóttur hjúkr-
unarfræðingi.
Breytingar á
vélasviði Heklu
SAMKVÆMT bráðabirgðaupp-
gjöri Seðlabanka Íslands var 17,9
milljarða króna viðskiptahalli við út-
lönd á fyrstu sex mánuðum ársins
2003 samanborið við 2,9 milljarða
króna halla á sama tíma 2002. Við-
skiptahallinn á öðrum ársfjórðungi
nam 15,2 milljörðum króna saman-
borið við 1,5 milljarða króna halla á
sama tíma í fyrra.
Erlend verðbréfakaup
14,1 milljarður
Útflutningur vöru og þjónustu
minnkaði á fyrri árshelmingi um
2,3% en innflutningur jókst um
10,2% frá sama tíma í fyrra reiknað á
föstu gengi. Hallinn á jöfnuði þátta-
tekna (launa, vaxta og arðs af fjár-
festingum) og rekstrarframlögum
nettó var um 9 milljarðar króna á
fyrri árshelmingi 2003, nokkru minni
en í fyrra.
Hreint fjárinnstreymi mældist
40,5 milljarðar króna á fyrri árshelm-
ingi 2003 og skýrist að stærstum
hluta af erlendum lántökum og
skuldabréfaútgáfu í útlöndum, en
einnig var 11,8 milljarða króna fjár-
innstreymi vegna kaupa erlendra að-
ila á skuldabréfum útgefnum á Ís-
landi. Fjárútstreymi vegna erlendra
verðbréfakaupa nam 14,1 milljarði
króna sem er ríflega helmingi meira
en árið áður. Önnur eignamyndun í
útlöndum var mikil á fyrri hluta árs-
ins 2003, einkum jukust erlendar inn-
stæður bankanna. Nokkurt fjárút-
streymi varð vegna sölu erlendra
aðila á eignarhlut sínum í atvinnu-
rekstri á Íslandi á fyrri hluta ársins.
Gjaldeyrisforði Seðlabankans nam
36,9 milljörðum króna í júnílok og
hafði lítið breyst frá ársbyrjun.
„Skekkjuliður greiðslujafnaðar er
stór og neikvæður á fyrri hluta ársins
eins og á sama tímabili í fyrra. Talið
er að hann stafi af meira fjárút-
streymi, annað hvort meiri aukningu
eigna eða lækkun skulda, en tekist
hefur að afla upplýsinga um,“ að því
er segir í tilkynningu frá Seðlabanka
Íslands. Erlendar skuldir þjóðarinn-
ar námu 572 milljörðum króna um-
fram erlendar eignir í lok júní sl.
Hrein skuldastaða við útlönd lækkaði
um 9,3 milljarða króna á fyrri árs-
helmingi 2003 vegna gengishækkun-
ar krónunnar og hækkunar á mark-
aðsvirði erlendrar verðbréfaeignar.
Viðskiptahallinn
17,9 milljarðar
ACO-TÆKNIVAL hefur tilkynnt
að fyrirtækið hyggi á aukið samstarf
við Fujitsu Siemens, en dragi úr sölu
á tölvubúnaði frá HP og Compaq, sem
sameinuðust á síðasta ári. Almar Örn
Hilmarsson, forstjóri félagsins, segir
að ATV sé þó ekki hætt að selja vörur
frá HP/Compaq. ATV seldi vörur frá
Compaq fyrir sameininguna, en Opin
kerfi vörur frá HP.
„Þetta er í raun áherslubreyting,
sem hefur meira og minna verið að
eiga sér stað síðastliðið ár. Við höfum
verið að selja meira af Fijutsu Siem-
ens-búnaði og höfum átt mjög gott
samstarf við það fyrirtæki,“ segir Al-
mar Örn. „Við höfum alltaf verið með
mörg vörumerki og erum núna að for-
gangsraða þeim upp á nýtt, eftir því
sem við teljum henta viðskiptavinum
okkar og starfsemi fyrirtækisins.“
Markvissari rekstur
Í fréttatilkynningu ATV segir: „Á
undanförnum mánuðum hefur farið
fram mikil endurskoðun á rekstri
ATV hf. Miklum árangri hefur verið
náð í að lækka kostnað félagsins auk
þess sem endurskipulagning og ein-
földun á stjórnun þess hefur gert
reksturinn markvissari. Samhliða
þessum aðgerðum hefur félagið end-
urskoðað vöruframboð sitt sem og
samstarf við birgja. Á undanförnum
árum hefur félagið m.a. selt og þjón-
ustað búnað frá Compaq og eftir sam-
runa Compaq og HP á síðasta ári hef-
ur félagið selt og þjónustað búnað frá
sameinuðu félagi. Samhliða þessu
hefur ATV hf. ennfremur selt og
þjónustað búnað frá Fujitsu Siemens
Computers og hefur það samstarf
verið með miklum ágætum.
Niðurstaða stjórnar og stjórnenda
félagsins er sú að það henti viðskipta-
vinum, starfsmönnum og almennum
hagsmunum félagsins betur að leggja
aukna áherslu á samstarfið við
Fujitsu-Siemens Computers. Gert
hefur verið samkomulag við Fujitsu
Siemens um að auka samstarf fyrir-
tækjanna til að styrkja stöðu vöru-
merkisins á hérlendum markaði.
Þessi áherslubreyting mun fyrst og
fremst koma niður á sölu ATV á
tölvubúnaði frá HP/Compaq.“
ATV einbeitir sér að
Fujitsu Siemens
Dregur úr sölu á tölvubúnaði frá HP/Compaq sem sameinuðust í fyrra
RÍKISHÁSKÓLI Kaliforníu í Dominguez Hills hefur opnað
stuðnings- og stoðtækjanámsbraut sína í höfuðstöðvum Össurar
í Aliso Viejo, Kaliforníu.
Samkvæmt samningi milli Össurar og háskólans lætur Össur
skólanum í té húsnæði fyrir námsbrautina endurgjaldslaust í
fimm ár í nýbyggðu skóla- og rannsóknarstofuhúsnæði á at-
hafnasvæði fyrirtækisins.
Í háskólanum höfðu verið uppi hugmyndir um að leggja niður
námsbrautina en sú ákvörðun var endurskoðuð eftir viðræður við
Össur. Aðstaðan hjá Össuri mun gera skólanum kleift að bjóða
upp á nýtt fjögurra ára nám, þar sem nemendur ljúka fyrst
þriggja ára almennu námi í skólanum og síðan einu ári við þjálf-
un á sviði stoðtækjafræða í höfuðstöðvum Össurar.
Stuðningur Össurar er samkvæmt því sem fram kemur í
fréttatilkynningu skólans og Össurar, metinn á 750.000 Banda-
ríkjadali, eða rúmar 60 milljónir íslenskra króna.
Dominguez Hills stoðtækjadeildin er ein af átta slíkum í
Bandaríkjunum og útskrifar 15 af hverjum 100 stuðnings- og
stoðtækjasérfræðingum sem ljúka námi í Bandaríkjunum á ári
hverju.
Stuðnings- og stoðtækjadeildin var opnuð með viðhöfn hinn 16. ágúst sl.
Stoðtækjanámsbraut í húsakynnum Össurar
● SPÁNSK-íslenskur viðskiptadag-
ur verður haldinn í Vigo á Spáni
19. september nk. á vegum
Spánsk-íslenska verslunarráðsins.
Ráðið hefur áður staðið fyrir slík-
um degi á Spáni, í Bilbao og
Barcelona, í tengslum við aðalfund
ráðsins. Að þessu sinni varð Vigo
fyrir valinu en stór alþjóðleg sjáv-
arútvegssýning stendur yfir á
sama tíma. Á viðskiptadeginum
verða viðskiptatengsl Íslands og
Spánar til umræðu og þótt sjáv-
arútvegsmál verði vissulega áber-
andi í Vigo þessa daga þá er dag-
skrá ráðstefnunnar fjölbreyttari.
Íslenskir og spænskir athafna-
menn og stjórnmálamenn munu
lýsa reynslu sinni af spænsk-
íslensku viðskiptalífi og fjallað
verður um ýmislegt sem Ísland
hefur upp á að bjóða umfram sjáv-
arútveginn. Meðal ræðumanna
verða fulltrúar frá Sæplasti Dalvík,
Íslandsbanka, Bláa lóninu, Primex
og Rannsóknarstofnun fiskiðnaðar-
ins. Heiðursgestir verða Árni
Mathiesen sjávarútvegsráðherra
og Enrique López Veiga yfirmaður
sjávarútvegmála í Galisíu og Vent-
ura Pérez Mariño borgarstjóri Vigo.
Spánsk-íslenskur
viðskiptadagur
● TAP Á rekstri Eignarhaldsfélags
Vestmannaeyja, EV, nam 154,5
milljónum króna á árinu 2002, að
því er fram kemur á www.eyjar.net.
Þar segir að tap félagsins hafi að
nær öllu leyti verið vegna taps á Ís-
lenskum matvælum ehf., en í árs-
reikningi sé gjaldfært hlutdeildartap
68,5 milljónir og gjaldfærðar tap-
aðar kröfur og hlutafé 84,5 milljónir
króna.
Stærsti hluthafi í Eignarhalds-
félagi Vestmannaeyja er Byggða-
stofnun, með 31% hlutafjár, að
nafnvirði 78,5 m.kr. Þá kemur
Pharmaco, með 12% eða 30 m.kr.
að nafnvirði. Sparisjóður Vest-
mannaeyja, Lífeyrissjóður Vest-
mannaeyja og Kaupþing eiga 10%
og Vestmannaeyjabær 9%.
EV tapaði 155
milljónum í fyrra
● DE ehf., Borgarnesi, hefur opnað
söluskrifstofu í Húsi verslunarinnar.
DE.is er nýr vefur félagsins fyrir ís-
lenska markaðinn, þar er m.a. finna
upplýsingar um félagið, veflausnir og
hönnun.
Á síðastliðnum 12 mánuðum hef-
ur DE ehf. afhent um 100 vefi hér-
lendis.
Starfsmenn DE ehf. í Reykjavík eru
9. Framkvæmdastjóri er Bjarni Stein-
ar Bjarnason.
DE ehf. opnar sölu-
skrifstofu í Reykjavík
● ÞEKKINGARMIÐLUN, sem er fyr-
irtæki sem býður m.a. upp á nám-
skeið, þjálfun, fyrirlestra og hópefli,
hefur opnað nýja heimasíðu. Á
heimasíðunni er hægt að skrá sig á
póstlista til að fá upplýsingar um
það sem er á döfinni hjá Þekking-
armiðlun auk þess sem hægt er að
skrá sig á námskeið. Á heimasíð-
unni er að finna ótal greinar um
málefni tengd vinnustöðum eftir
sérfræðinga fyrirtækisins. Frekari
upplýsingar er að finna á
www.thekkingarmidlun.is
Þekkingarmiðlun
með heimasíðu