Morgunblaðið - 04.09.2003, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 4. SEPTEMBER 2003 C 3
NÚR VERINU Allt til línu- og handfæraveiða
Línur, krókar, ábót, beitningavélar,
handfæravindur o.fl.
Sími 898 7127
Skútuvogi 6
www.sjo.is
nandi eftir hverjum stað.
tað að hugsa bátinn frá
ð seljum allt fyrirfram
og setjumst þá niður í
m og förum yfir allar sér-
ð fyrirtækið hafi lagt
únum bátum, nánast til-
ðum samkvæmt óskum
arf m.a. að taka tillit til
stjórnunarkerfa land-
sumir halda að Íslend-
eð flókið fiskveiðikerfi,
ð og hvergi eins. Hér á
egar breytingar á smá-
versu litlar þær eru þá
nu moldviðri, sem leiðir
að sér höndum. Þessar
verið verstar fyrir smá-
t árið er gríðarleg end-
síðan næsta árið er hún
ð Cleopötrubátarnir og
að jafna þessar sveiflur
kki jafn háðir íslenska
verði auðvitað alltaf að-
uns og Högna var fyr-
sér mjög víða á sínum
nu, Afríku og fleiri stöð-
um, en síðan var ákveðið að huga alfarið að
löndum í kringum Ísland; Grænlandi, Noregi
og Bretlandi. Í Bretlandi hefur fyrirtækið einn-
ig verið að kanna framleiðslu og sölu á öðrum
tegundum báta, t.d. þjónustubátum, og er einn
bátur frá Trefjum gerður út frá Liverpool til að
mynda og kortleggja hafsbotninn og fylgjast
með olíulögnum og rafstrengjum á hafsbotni.
Þá er nú verið að ganga frá nýrri togsnekkju
sem fyrirtækið hefur selt til Sameinuðu arab-
ísku furstadæmanna.
Sóknarfæri í bátum til sjóstangaveiða
„Það kom inn sem óvænt viðbót en kaupandinn
kom til okkar sem seljanda fiskibáta því hann
var að leita að leiktæki til fiskveiða en jafn-
framt að hafa snekkjulagið með. Þeir sem
framleiða snekkjur hafa engan áhuga á og ekki
vit á að útfæra togveiðibát, en það er auðveld-
ara fyrir okkur að plussklæða og smíða fallegar
innréttingar heldur en fyrir þá að fara yfir í
togveiðar,“ segir Högni.
Að sögn Auðuns liggur annað sóknarfæri í
Bretlandi í að hanna og framleiða báta fyrir sjó-
stangaveiði. „Sjómenn þar eru að reyna að
tvinna saman fiskveiðar að vetrarlagi og selja
síðan ferðir í sjóstangaveiði yfir ferðamanna-
tímann á sumrin til að bregðast við minni kvóta.
Við erum með sýningarbát í Bretlandi núna
sem er einmitt hugsaður fyrir slík not.“
Ágætis sala í Grænlandi og Bretlandi
Högni segir viðtökurnar vera mjög góðar og að
fyrirtækið bindi miklar vonir við þann markað
og að hann verði enn eitt fjöreggið hjá fyr-
irtækinu til að bregðast við sveiflum á mörk-
uðunum.
„Varðandi hina markaðina, þá höfum við náð
ágætis árangri í Grænlandi og Bretlandi með
sölu á bátum til krabba- og humarveiða í gildr-
ur. Það er líka lýsandi dæmi um ólíka markaði
sem við störfum á að á Grænlandi veiða menn í
fiimmtíu stiga frosti en þessi maður sem er að
kaupa af okkur í Persaflóanum er að veiða í
fimmtíu stiga hita. Þetta er hundrað stiga mun-
ur og vandamálin þar af leiðandi ekki þau
sömu. Þeir hafa meira að segja talað um það í
Grænlandi að setja miðstöð í lestina, til þess að
koma í veg fyrir að allt verði að einum ísklumpi
í henni,“ segir Högni.
Hann segir engan árangur nást í markaðs-
setningu nema menn setji sig nákvæmlega inn í
aðstæður á hverjum stað. „Það er auðvitað mik-
il vinna en það er alltaf mikilvægt að ná fyrstu
sölunni og að vera heppinn með fyrsta aðilann
sem kaupir. Ef þú leggur mikla vinnu í þetta
fyrir hann eru miklar líkur á þú sért kominn
með góðan sendiherra á svæðinu sem nánast
selur fyrir þig. Það hefur oft orðið raunin hjá
okkur og borgað sig að leggja mikla vinnu í
fyrsta bátinn sem fer á svæðið,“ segir Högni.
Gildruveiðar í
skötulíki hérlendis
Stór hluti þeirra báta sem Trefjar smíða og
selja erlendis er notaður til gildruveiða og segir
Högni að þeim finnist það grátlegast í þessu
öllu að gildruveiðar séu í skötulíki hér á landi.
„Allt í kringum okkur eru sjómenn að veiða
að talsverðum hluta með gildrum sömu teg-
undir og fást hér. Þeir selja afurðina lifandi á
markað og fá miklu meira fyrir hana þannig,
auk þess sem veiðarnar eru vistvænar. Við er-
um alveg sannfærðir um að það sé góður mögu-
leiki fyrir Íslendinga að stunda þennan veiði-
skap líka. Við tökum líka til okkar heiðurinn af
því að hafa þróað þessar veiðar áfram í viðkom-
andi löndum og ein ástæðan fyrir því að við er-
um að selja bátana okkar er að útbúnaðurinn á
dekkinu er ennþá hraðvirkari en þeir voru með
áður. Sem dæmi má nefna að einn aðili í Bret-
landi, sem skipti gömlum bát út fyrir bát frá
okkur, jók afköstin um 25% á bát frá okkur með
tilheyrandi útbúnaði, þannig að í stað þess að
draga 600 gildrur á dag dregur hann 800.
Það skiptir miklu máli að vinnan gangi
snurðulaust fyrir sig og ég held að menn hafi
rekið sig á það hér heima þegar menn hafa ver-
ið að prófa gildruveiðar, t.d. á netabátum. Sjó-
menn vita það best sjálfir að hvert aukahand-
tak skiptir máli og þegar verið er að endurtaka
eitthvað 6–800 sinnum yfir daginn skiptir hag-
ræðið öllu,“ segir Högni.
Þeir félagar eru því bjartsýnir á framtíðina
og er ætlunin að halda áfram á sömu braut. Að
sögn Auðuns er hægt að auka framleiðsluna í
núverandi húsnæði í Hjallahrauni 2 í Hafnar-
firði, en hins vegar sé erfitt að ná í góðan mann-
skap til þessara starfa. Í dag starfa rúmlega
þrjátíu manns hjá Trefjum en að meðtöldum
undirverktökum, sem vinna eingöngu fyrir fyr-
irtækið, starfa 42 menn að framleiðslunni.
ta til gildruveiða í Bretlandi og nýverið „togsnekkju“ fyrir olíufursta í Sameinuðu arabísku furstadæmunum.
f. ná góðum
asölu erlendis
Morgunblaðið/Ásdís
eirikur@mbl.is
amkvæmdastjóri Trefja ehf., og Högni Bergþórsson, tæknilegur fram-
iðslusal Trefja í Hafnarfirði þar sem starfa rúmlega 30 manns.
BÁTASMIÐJAN Trefjar í
Hafnarfirði afgreiddi í síðustu
viku nýjan Cleopatra 33-bát til
skosku eyjarinnar Islay. Kaup-
andi bátsins er Jim Brown sjó-
maður frá Port Ellen á Islay.
Báturinn hefur hlotið nafnið
Highlander CN 717. Highlander
er bátur af gerðinni Cleopatra
33, 10 metra langur og mælist 10
brúttótonn.
Heimahöfn bátsins er í Port
Ellen. Báturinn er sérútbúinn til
humarveiða með gildrum. Í lest
bátsins rúmast níu 380 lítra fiski-
kör. Í lúkar er svefnpláss fyrir
tvo menn, ásamt eldunaraðstöðu
með eldavél, örbylgjuofni og ís-
skáp. Aðalvél bátsins er af gerð-
inni Cummins og er hún 430
hestöfl. Siglingatæki eru af gerð-
inni Koden og Furuno. Reiknað
er með að báturinn hefji veiðar í
Islay í þessari viku. Jim landar
humri ýmist í höfnunum í Port
Ellen og Bowmore.
Ný Cleopatra til Skotlands
RAÐAUGLÝSINGAR
KVÓTI
Krókaaflahlutdeild
Til sölu — þorskur 5 tonn, ýsa 20 tonn.
Til leigu — 15 tonn þorskur.
Upplýsingar í síma 456 2582.
BÁTAR/SKIP
Línuskip og togarar
Höfum á söluskrá nokkur línuskip með beitn-
ingarvélum, með og án frystingar.
Einnig togara með og án frystingar. Gott verð.
Upplýsingar í símum 551 7282 og 893 3985.
NÓTA- og togveiðiskipið Ingunn
AK kom til heimahafnar á Akra-
nesi í gær með um 1.750 tonn af
kolmunna. Þar með hefur Ingunn
AK borið meira en 200 þúsund
tonn af fiski á land frá því að
skipið kom nýtt til landsins í febr-
úar árið 2001. Þar af eru um 95
þúsund tonn af loðnu, 90 þúsund
tonn af kolmunna og um 15 þús-
und tonn af síld.
Kolmunnaveiðar hafa gengið vel
að undanförnu en flotinn hefur
verið að veiðum í færeysku lög-
sögunni, um 80 sjómílur undan
Færeyjum.
Verksmiðjur Síldarvinnslunnar
eru búnar að taka á móti ríflega
150 þúsund tonnum af kolmunna
frá áramótum. Börkur NK er afla-
hæsta kolmunnaskipið en búið er
að landa rúmlega 42 þúsund tonn-
um úr skipinu það sem af er
árinu.
Ingunn yfir 200 þúsund tonn