Morgunblaðið - 05.09.2003, Blaðsíða 19
búa lista yfir raunsæ verkefni sem
hægt er að tímasetja og setja af stað.
Það mun samt velta á pólitískum vilja
hvernig og hve hratt verður gengið til
verka. Listinn verður þá til og það er
þá hægt að heimta það upp á stjórn-
málamenn hvort þeir ætli sér að fara
eftir þessari framkvæmdaáætlun eða
ekki og þá hvenær og hve hratt.“
Sigmundur Ernir sagði einkenn-
andi fyrir svæðið fábreytt atvinnulíf,
sem byggir á sjávarútvegi, landbún-
aði og þjónustu því tengdu. Fólks-
fækkun er á flestum stöðum fyrir ut-
an nokkrar undantekningar á borð
við Akureyri.
Stytta þarf leiðina milli
Akureyrar og Reykjavíkur
Alls eru um 70 hugmyndir á borði
verkefnisstjórnar og kynnti Sig-
mundur Ernir ýmsar tillögur á fund-
inum í gær en gat þess þó að þær
væru enn í vinnslu. Starfshópur um
samkeppnishæfni, atvinnumál og ný-
sköpun leggur aðaláherslu á stytt-
ingu leiðarinnar milli Akureyrar og
Reykjavíkur, sem hópurinn telur
grunnþátt í að bæta samkeppnis-
hæfni fyrirtækja á starfssvæðinu. Þar
er komið inn á styttingu leiðarinnar
um 69–80 km, m.a. með uppbyggingu
heilsársvegar um Stórasand og göng-
um frá Hörgárdal til Hjaltadals.
Einnig leggur starfshópurinn til að
fyrirtæki, stofnanir og skólar á lands-
byggðinni njóti jákvæðs mismunar
við úthlutun styrkja úr vísinda- og
tæknisjóði. Jafnframt er lagt til að
Eyjafjarðarsvæðið verði öndvegis-
staður vísinda og rannsókna á tiltekn-
um sviðum. Þá er lagt til að næsta
uppbygging stóriðju verði á Norður-
landi, að FSA verði eflt og það gert að
stóriðju Eyjafjarðarsvæðisins og að
höfuðstöðvar Matvælastofnunar Ís-
lands verði á Akureyri. Önnur
áhersluverkefni sem starfshópurinn
gerir tillögu um, eru opinberar að-
gerðir til beinnar lækkunar flutnings-
kostnaðar.
Miðstöð neyðarþjónustu fyrir
norðurskautssvæðið
Megintillaga starfshóps um heil-
brigðisþjónustu er að á Akureyri
verði miðstöð neyðarþjónustu fyrir
norðurskautssvæðið, þ.e. lönd og hér-
uð sem að því liggja. Jafnframt að
byggja upp Globodent – þekkingar-
fyrirtæki á sviði tannlækninga á Ak-
ureyri og vinna að uppbyggingu á
heilbrigðistengdri upplýsingatækni á
Akureyri á næstu misserum. Einnig
er lagt til að búin verði til eftirsótt
„vara“ þ.e. heilsutengd ferðaþjónusta
og að unnið verði að því að efla end-
urhæfingu á Norður- og Austurlandi,
með Kristnes sem höfuðstöðvar.
Starfshópur um byggðatengsl og
sveitarfélög leggur áherslu á sam-
göngubætur og að stærri svæði verði
sameinuð. Starfshópur um ferðaþjón-
ustu og menningarmál leggur m.a. til
að komið verði á fót sameiginlegri
markaðsskrifstofu á Norðurlandi.
Einnig að Akureyri verði ákjósanleg-
ur áningarstaður fyrir fjölskyldur og
að afþreyingarmöguleikar verði mið-
aðir að börnum. Þá leggur starfshóp-
urinn til að komið verði upp snjófram-
leiðslubúnaði í Hlíðarfjalli, þannig að
hægt verði að nýta svæðið svo lengi
sem kostur er.
Morgunblaðið/Kristján
Fjöldi fólks sótti fundinn í gær og hlýddi af athygli á mál Sigmundar Ernis.
AKUREYRI
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 5. SEPTEMBER 2003 19
Úrval-Úts‡n
Lágmúla 4: 585 4000 • Hlí›asmára: 585 4100
Keflavík: 420 6000 • Akureyri: 460 0600 • Selfossi: 482 1666
og hjá umbo›smönnum um land allt. www.urvalutsyn.is
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
U
RV
2
21
41
09
/2
00
3
Merry Ploughboys
Írsk kráarstemmning um helgina
Helgarfer›ir 2. okt. til 4. des.
Bókunarsta›a:
2. okt. 3 nætur Örfá sæti laus
9. okt. 3 nætur Uppselt
16. okt. 4 nætur Uppselt
Sértilbo›:
* Innif.: flug og gisting á Burlington hótelinu
í flrjár nætur og allir flugvallaskattar.
44.920 kr.*
Sta›greitt - 24. okt. í 3 nætur
fiessi fræga írska hljómsveit kemur flér
í rétta kráarstemmningu:
Á Ránni í Keflavík föstudagskv. kl. 22-24,
Fjörukránni laugardagskv. kl. 22-24,
Dubliners sunnudagskv. kl. 21.30-23.30.
Fyrstu brottfarirnar a› ver›a uppseldar.
Egida Kussía frá Konsó í Eþíópíu
talar á samkomu í félagsheimili
KFUM og K í Sunnuhlíð á Akureyri
á morgun, laugardaginn 6. sept-
ember, kl. 20.30.
Kussía hefur verið í heimsókn á Ís-
landi að undanförnu og tekið þátt í
afmælissamkomum Kristniboðs-
sambandsins, en um þessar mundir
eru 50 ár liðin síðan fyrstu kristni-
boðarnir, Kristín Guðleifsdóttir og
Felix Ólafsson, héldu til starfa í Eþí-
ópíu.
Í fylgd með Kussía annað kvöld
verður Leifur Sigurðsson, kristni-
boði sem starfað hefur í Kenýa und-
anfarin ár og túlkar hann mál Kussía
á íslensku og sýnir einnig myndir
þaðan sem íslensku kristniboðarnir
hafa starfað á liðnum árum.
Nú í haust eru liðin 10 ár frá stofn-
un kennaradeildar við Háskólann á
Akureyri, en hún tók til starfa
haustið 1993 er 75 nemendur innrit-
uðust í grunnskólakennaranám. Af
þessu tilefni verður boðið til hátíð-
ardagskrár í húsnæði deildarinnar á
Þingvallastræti 23 á morgun, laug-
ardag, undir yfirskriftinni Mennt er
máttur.
Kennaradeildin skiptist nú í þrjár
brautir, leikskólabraut, grunn-
skólabraut og framhaldsbraut, auk
þess sem við deildina er starfrækt
skólaþróunarsvið. Leikskólabraut
tók til starfa haustið 1996 en háskól-
inn var fyrstur skóla hér á landi til
að taka upp formlegt B.Ed. nám fyr-
ir leikskólakennara. Framhaldsdeild
er yngsta braut deildarinnar en hún
býður upp á 15–30 eininga nám í
uppeldis- og kennslufræði til
kennsluréttinda og nám til meist-
araprófs í menntunarfræðum. Þegar
hafa fjórir kandítatar brautskráðst
frá kennaradeild með meistarapróf.
Hlutverk skólaþróunarsviðs lýtur að
ráðgjöf við kennara og skólastjóra
leik- og grunnskóla við hvers konar
rannsóknar-, þróunar- og umbóta-
starf í skólum.
Hátíðardagskráin í tilefni afmæl-
isins hefst kl. 10 í fyrramálið með
ávarpi menntamálaráðherra, rekt-
ors Kennaraháskóla Íslands, forseta
félagsvísindadeildar Háskóla Ís-
lands, bæjarstjóra Akureyrar og
rektors Háskólans á Akureyri. Að
ávörpum loknum mun Anna Þóra
Baldursdóttir lektor og braut-
arstjóri framhaldsbrautar við kenn-
aradeild flytja erindið Framlag
kennaradeildar til fræða- og starfs-
umhverfis kennara.
Eftir hádegi, kl. 14, stendur kenn-
aradeild fyrir málstofu þar sem
fimm brautskráðir M.Ed. og B.Ed
nemar kynna lokaverkefni sín. Að
lokinni málstofu mun Ásta Magn-
úsdóttir, nemi á tónlistarsviði kenn-
aradeildar, syngja nokkur lög undir
stjórn Roberts Faulkner tónlistar-
kennara við kennaradeild.
Á MORGUN
Tónleikar verða í Akureyrarkirkju í
dag, föstudaginn 5. september kl. 17.
Kirkjukór Zions-kirkjunnar í Bethel
í Þýskalandi syngur undir stjórn Ro-
lands Muller. Með kórnum leikur
blásarakvartett. Allir velkomnir. Að-
gangur ókeypis.
Í DAG