Morgunblaðið - 05.09.2003, Síða 1
S
Ú var tíðin að engin kona sem taldist
alvörudama lét sjá sig hanskalausa á
götum úti, jafnt í sívaxandi þéttbýli
Reykjavíkur sem og stórborgum er-
lendis. Í Bandaríkjunum var þetta
viðhorf við lýði allt fram á sjöunda áratuginn og
þar tók heldri kona ævinlega með sér hanska er
hún yfirgaf heimilið, ef svo kynni að fara að hún
þyrfti að hafa samskipti við ókunnugt fólk.
Hanskinn gegndi í raun svipuðu hlutverki og
blæjan gerir í mörgum menningarheimum músl-
íma. Hann veitti henni vernd gegn óvelkominni
snertingu og hinu óþekkta. Hanskinn veitti þó
ekki eingöngu vernd heldur gat hann einnig ver-
ið hin fullkomna táknmynd tælingar; í réttum fé-
lagsskap, með ískaldan martíni við hönd, var
hanskinn dreginn af ofurhægt og tælandi, fingur
fyrir fingur.
Með hippatímanum, frjálsum ástum og hisp-
urslausari samskiptum manna á meðal tapaði
hanskinn hins vegar hlutverki sínu og hvarf ofan
í skúffu. Svo virðist þó sem að hanskinn
hafi loks fengið uppreisn æru á ný og
eru tískutímarit austan hafs sem
vestan sammála um að hanskar
séu einn aðalfylgihlutur vetrar-
tískunnar. Hanskana mátti enda
sjá á sýningarpöllum tískuhúsa á
borð við Miu Miu, Prada, Louis
Vuitton og Gucci svo nokkur
dæmi séu tekin.
Fjölbreytnin í hanskaúrvali
verður líka mikil þetta árið
og má jafnt finna háa
hanska sem lága, leður-
hanska sem hanska úr ull-
ar- og satínefnum, einlita
sem munstraða, skærlita
sem hefðbundna svarta, og
sparihanska sem hversdags-
lega. Það er því nokkuð víst að
sama hvort íslenskar tískudrósir
Dama upp á
Glansandi svartir samkvæmishanskar frá Debenhams fyrir
árshátíðina. Kjóllinn er frá GK.
Blómlegir hanskar
frá Benetton, háir
prjónahanskar frá
GK og litríkir leður-
hanskar f́ra Centr-
um.
Morgunblaðið/Ásdís
eiga eftir að elta anda sjöunda áratug-
arins eða þess níunda, ensku sveitatísk-
una eða drauminn um hið ofurkvenlega,
að þá eiga þær nokkuð örugglega að
geta fundið hanska í stíl.
En hvort sem fyrirmyndin er tekin úr
gömlum Madonnu-myndböndum eða frá
leikkonunni klassísku Katharine Hep-
burn, gefa hanskar konu alltaf fágaðra
yfirbragð. Og í vetur er því tilvalið að
setja sig í dömulegar stellingar, horfa til
fortíðar og draga hanskana ofurhægt á
fingur sér.
Haust- og
vetrartískan
2003/2004
4
tíu fingur
F Ö S T U D A G U R 5 . S E P T E M B E R 2 0 0 3 B L A Ð B
EINELTI Á VINNUSTÖÐUM – TILRÆÐI VIÐ SJÁLFSTRAUSTIÐ/2
PLÁSTUR Á BÁGTIÐ/3 FÓLK ER TRÉ OG FÁIR SKILJA EIST-
LENDINGA/6 BLAUTGEÐJA LUND/7 AUÐLESIÐ EFNI/8