Morgunblaðið - 09.09.2003, Side 1

Morgunblaðið - 09.09.2003, Side 1
Eins og í tölvuleik Sögur Haruki Murakami koma hon- um sjálfum á óvart Listir 22 STOFNAÐ 1913 243 . TBL. 91. ÁRG. ÞRIÐJUDAGUR 9. SEPTEMBER 2003 PRENTSMIÐJA ÁRVAKURS HF. mbl.is Lagt upp úr kurteisi Halldór Ómar í Regnboganum fimmtugur Fólk 43 Eini áhuga- maðurinn Ólafur Örn Bjarnason les sálfræði milli landsleikja Suðurnes 17 YASSER Arafat, leiðtogi Palestínu- manna, tilkynnti framkvæmdastjórn Frelsissamtaka Palestínumanna (PLO) í gær að Ahmed Qurei, forseti palestínska þingsins, hefði fallist á að verða næsti forsætisráðherra pal- estínsku heimastjórnarinnar. Ísr- aelska ríkissjónvarpið sagði í gær- kvöldi að Qurei hefði lagt til að Palestínumenn gerðu vopnahlés- samning við Ísraela í stað þess að herskáar hreyf- ingar Palestínu- manna lýstu ein- hliða yfir vopnahléi eins og í júní. Ísra- elsstjórn hefur hingað til hafnað hvers konar vopnahléssamningum við Palestínu- menn og sagt að fyrst verði palest- ínska heimastjórnin að skera upp herör gegn herskáu hreyfingunum. Áður hafði Qurei sagt að það þjón- aði engum tilgangi að skipa nýjan forsætisráðherra ef Ísraelsstjórn breytti ekki afstöðu sinni til Arafats og palestínsku þjóðarinnar. Hátt- settur ísraelskur embættismaður sagði að Ísraelar myndu hvorki styðja Qurei né hætta árásum á liðs- menn herskárra hreyfinga Palest- ínumanna ef heimastjórnin skæri ekki upp herör gegn hreyfingunum. „Mikilvægast er að vita hvort Ísraelar vilja breyta fjandsamlegri afstöðu sinni, hvort þeir vilja viður- kenna Yasser Arafat sem lögmætan leiðtoga palestínsku þjóðarinnar,“ sagði Qurei eftir fund með Arafat í gær. Qurei sagður fallast á að verða forsætisráðherra Palestínumanna Leggur til að samið verði um vopnahlé við Ísraela Ramallah, Jerúsalem. AFP.  Tengja árangur/14 Ahmed Qurei ORKUVEITA Reykjavíkur hefur frá því í vor neitað að greiða Grímsnes- og Grafningshreppi fasteignagjöld vegna eigna í sveitarfélaginu. For- svarsmenn hreppsins segja að verði fyrirtækið ekki við greiðsluáskorun sé uppboð á eignum orkuveitunnar á Nesjavöllum þrautalending. Um er að ræða skuld upp á átta til níu milljónir króna. Margrét Sigurðardóttir, sveitarstjóri í Gríms- nes- og Grafningshreppi, segir að bréf hafi borist frá fjármálastjóra Orkuveitunnar þar sem fram hafi komið að samkvæmt mati borgarlögmanns beri Orkuveitunni ekki skylda til að greiða fast- eignagjöld af eignum sínum í hreppnum. Sveit- arstjórn hafi ekki þótt eðlilegt að OR gæti tekið orku úr sveitarfélaginu og selt hana í Reykjavík án þess að skilja nokkuð eftir og lögmaður sveit- arstjórnarinnar hafi verið á sama máli. Í kjölfarið hafi Orkuveitunni verið sent bréf með ósk um að greiða reikninginn og þegar það hafi ekki verið gert um nýliðin mánaðamót hafi fyrirtækinu ver- ið send greiðsluáskorun. Verði reikningurinn ekki greiddur heldur málið áfram „og endar jafn- laginu, þannig að ég held að þetta hljóti að vera einhver misskilningur, sem verði lagfærður.“ Mismunandi túlkun á orkulögum Guðmundur Þóroddsson, forstjóri Orkuveitu Reykjavíkur, segir að Orkuveitan hafi greitt um- rædd gjöld þar til á liðnu vori. Málið snúist um túlkun á orkulögunum, en ekki sé um stórmál að ræða og það verði leyst hjá úrskurðarnefnd. „Það sem er óvanalegt í þessu er að Raf- magnsveitur ríkisins hafa haft þetta ákvæði í lögum [að vera undanþegin tekjuskatti, útsvari, aðstöðugjaldi, stimpilgjaldi og öðrum sköttum til ríkis, sveitar- og bæjarfélaga, sbr. 80. grein orkulaga] mjög lengi og til eru nokkur dómsmál þar sem reynt hefur á þetta fyrir þær. Hins veg- ar gilti þetta ekki fyrir okkur fyrr en fyrir einu og hálfu ári en þá var ákveðið að láta jafnt yfir alla ganga,“ segir Guðmundur. Hann vísar til breytinga á orkulögum 2001, en þá var hitaveit- um og/eða rafveitum, sem hafa einkaleyfi á orku- sölu á tilteknum svæðum, bætt inn í 80. greinina. vel í uppboði en ég held að þeir hljóti að greiða þetta,“ segir Margrét. „Þetta hlýtur að verða tekið til endurskoðunar og lagfært.“ Að sögn Margrétar hafnar OR kröfunni á grundvelli greinar um einkaleyfi í orkulögum. Þar segi m.a. að þau orkufyrirtæki sem hafi ein- okun á orkusölu, þ.e. rafmagni og hita, geti verið undanþegin skatti, „en Orkuveitan hefur nátt- úrlega ekki einkaleyfi á orkusölu í sveitarfé- Grímsnes- og Grafningshreppur krefur OR um ógreidd fasteignagjöld Hóta uppboði á Nesjavöllum Morgunblaðið/Sverrir Orkuveita Reykjavíkur rekur Nesjavalla- virkjun í Grímsnes- og Grafningshreppi. YFIRVÖLD í Japan hvöttu í gær yfir 5.000 íbúa borgarinnar Kuro- iso í norðaustanverðu landinu til að forða sér frá heimilum sínum eftir að mikill eldur kviknaði í hjólbarðaverksmiðju Bridgestone, stærsta hjólbarðafyrirtækis landsins, nálægt einu íbúðar- hverfa borgarinnar. Slökkviliðs- menn reyna hér að slökkva eld- inn en það hafði ekki enn tekist í gærkvöldi. Ekki var vitað til þess að manntjón hefði orðið í eldsvoð- anum. Þykkan reykjarmökk lagði yfir Kuoiso-borg og fólk kvartaði yfir ertingu í hálsi og augum en enginn var þó fluttur á sjúkra- hús. Eldsupptök voru enn ókunn í gærkvöldi. Mestur hluti verk- smiðjunnar eyðilagðist.Reuters Bruni í hjólbarða- verksmiðju JAVIER Solana, æðsti embætt- ismaður Evrópusambandsins í utan- ríkismálum, sagði í gær að sam- bandið myndi styðja Ahmed Qurei tæki hann við embætti forsætisráð- herra palestínsku heimastjórn- arinnar. Solana lýsti Qurei sem „manni friðarins“. Viðbrögð Bandaríkjastjórnar við tilnefningu Qureis í embættið voru varfærnislegri. Þegar talsmaður Bandaríkjaforseta var spurður hvort stjórnin styddi Qurei svaraði hann að valið á næsta forsætisráð- herra heimastjórnarinnar væri mál Palestínumanna sjálfra. Áður hafði Qurei sagt að hann hygðist ekki taka við embættinu nema hann fengi stuðning Bandaríkjastjórnar og Evrópusambandsins. ESB styður Ahmed Qurei ÓTTAST var í gær að lungnabólgufarald- urinn HABL, heilkenni alvarlegrar og bráðrar lungnabólgu, kynni að koma upp aftur í Asíu eftir að heilbrigðisráðuneyti Singapúr skýrði frá því að grunur léki á því að karlmaður hefði fengið sjúkdóminn. Talsmaður ráðuneytisins sagði að fyrsta rannsókn benti til þess að maðurinn hefði fengið sjúkdóminn en frekari rannsóknir væru nauðsynlegar til að staðfesta það. „Hann er nú þegar í sóttkví og varúðarráð- stafanir hafa verið gerðar á sjúkrahúsi hans.“ Alls smituðust yfir 8.000 manns af sjúk- dómnum í heiminum og yfir 900 dóu, þar af 33 í Singapúr. Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin (WHO) lýsti því yfir 5. júlí að bráðalungnabólgan væri hætt að breiðast út en framkvæmda- stjóri stofnunarinnar varaði þó við því í gær að hætta væri á því að sjúkdómurinn bloss- aði upp á ný og hvatti heilbrigðisyfirvöld til að vera á varðbergi. Grunur um HABL-tilfelli í Singapúr Singapúr. AFP. ♦ ♦ ♦ Í MOSAVÖXNU Ásahrauni skammt frá bænum Ytri-Ásum í Skaftártungu er mikið af krækiberjum. Á einum stað er lítil þúfa þakin hvítum krækiberjum umkringd svört- um krækiberjum. „Ég fann þessa þúfu fyrir mörgum árum og hef síðan vitjað um hvítu krækiberin á hverju ári, en ég hef ekki séð þau annars staðar,“ segir Ásta Sverr- isdóttir, bóndi á Ytri-Ásum. „Þetta er eins og með hvítu hrafnana, sjaldgæf sjón, en berin eru annars eins á bragðið og þau svörtu, þó að þau séu frekar litlaus.“ Hvít krækiber í Ásahrauni Morgunblaðið/Jónas Erlendsson

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.