Morgunblaðið - 09.09.2003, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 9. SEPTEMBER 2003 25
“ segir
t þó. „Við
okkur
úin að ná
ærilegum
ri og allt
þar ofan
ús.“
ert, sem
í stjórn
ska
pyrnu-
m sam-
í Evr-
gurs-
endingar
á annað
við þátt-
ga frá
greiðslur til keppnisþjóða verða.
Spurður hvernig leyst verði úr
málum leikmanna sem keppa í
úrvalsdeildinni hér heima næsta
sumar ef Íslendingar myndu
komast í þá stöðu að leika í Evr-
ópukeppni landsliða í Portúgal á
næsta ári, en keppninni lýkur
ekki fyrr en í byrjun júlí, segir
Eggert: „Það er verkefni sem öll
íslensk knattspyrnuhreyfing
hefði mjög gaman af að takast á
við og myndi leysa með miklum
glæsibrag ef það ævinstýri
myndi gerast að liðið kæmist til
Portúgals. Ég er ekki í vafa um
það að allir myndu leggjast á eitt
til að finna lausn á því.“ Eggert
bendir þó á að mestar líkur séu á
því að flestir leikmanna íslenska
landsliðsins spili í liðum erlendis.
hagslega“
Þá hefur
sér 40
skiptavini
uppseldir
Boðið var
Stansted-
en þaðan
til Ham-
á flug og
úsund kr.
öllinn og
b. 40 þús-
andi
að“
m leikur-
0 þúsund
áhorfendur. „Við erum búin að
tryggja okkur eitthvað um 1.800
miða, sem eru pantarnir sem bor-
ist hafa sambandinu,“ segir Geir
Þorsteinsson, framkvæmdastjóri
KSÍ. Geir segir unnið að því að út-
vega fleiri miða í gegnum þýska
knattspyrnusambandið og að Ís-
lendingar eigi rétt á að fá allt að
10% af miðunum í sinn hlut.
Hann segir að ferðaskrifstofuað-
ilar hafi verið seinir í gang við að
skipuleggja ferðir á leikinn og
bjóði upp á brotabrot af miðunum.
Frábær frammistaða íslenska
landsliðsins í leiknum á laugardag
hafi svo enn aukið á áhugann.
„Þetta er það sem við höfum mátt
búa við svo oft með landsliðið að
það hefur ekkert verið auðvelt að
fá flug, skipulegt leiguflug frá Ís-
landi er mjög takmarkað,“ segir
Geir.
Mikið af pöntunum sem borist
hafa KSÍ hafa komið frá Íslend-
ingum sem búsettir eru í Evrópu
og Íslendingahópum á Norður-
löndunum, einkum Danmörku, en
einnig frá Þýskalandi.
Morgunblaðið/Árni Torfason
r á leik
kalands
tar þess að útvega fleiri
nds
fur-
að
m
i.
E
NN á ný hefur verið
horfið frá samein-
ingu SH og SÍF og
nú með afgerandi
hætti. Eftir að
S-hópurinn svokallaði hefur náð
miklum meirihluta í SÍF, nærri
80%, og Burðarás, Íslandsbanki,
Sjóvá-Almennar og Skeljungur
hafa selt allt hlutafé sitt, verður
ekki af sameiningu félaganna í
fyrirsjáanlegri framtíð.
Bankarnir meta félögin
Sagan er löng en mestur gang-
ur hefur verið í umræðunum um
hugsanlega sameiningu frá því í
lok síðasta árs. Í fyrra óskuðu
Burðarás, Íslandsbanki og
Straumur sem stórir hluthafar í
félögunum eftir því að samruni
yrði kannaður. Í desember var
ákveðið að hefja formlegar við-
ræður um samruna og í kjölfarið
var samið við Landsbankann um
að meta félögin en Íslandsbanki
mun hafa óskað eftir að taka
einnig þátt í matinu. Eftir því
sem næst verður komist var það
talið „sanngjarnt“ að bankarnir
störfuðu hlið við hlið að þessu
verkefni.
Rétt eftir áramót kaupir
Landsbankinn svo fjórðungs
eignarhlut í SH af Þormóði
ramma. Var þar um að ræða 366
milljónir króna að nafnverði á
genginu 5,20 og hefur kaupverð
hlutarins því verið 1,9 milljarðar
króna. Í tilkynningu Landsbank-
ans til Kauphallar Íslands segir:
„Tilgangur kaupanna er um-
breytingarfjárfesting en bankinn
telur að verð hlutabréfa Sölumið-
stöðvarinnar sé hagstætt um
þessar mundir sérstaklega í ljósi
þeirra miklu tækifæra sem felast
í fyrirtækinu og framtíðarmögu-
leikum þess með samruna eða
samstarfi við önnur fyrirtæki í
sömu grein. Kaupin eru í sam-
ræmi við þá stefnu bankans að
auka umsvif sín í starfsemi á
sviði fjárfestingarbankastarfsemi.
Hvatinn að kaupum bankans
nú er þeir miklu möguleikar sem
taldir eru liggja í mögulegum
samruna við SÍF og uppbygging
alþjóðlegs sameinaðs fyrirtækis í
matvælaiðnaði með sérhæfingu í
sjávarútvegi.“
Samkvæmt samningi við Þor-
móð ramma á Landsbankinn rétt
á að selja Þormóði ramma 8%
hlutafjár í SH eða 120 milljónir
að nafnverði hinn 30. september
nk. og Þormóður rammi hefur
rétt til að kaupa af Landsbank-
anum 5% hlutafjár í SH eða 75
milljónir að nafnverði hinn 1.
október nk.
Formlegar viðræður
Daginn eftir kaup Landsbank-
ans í SH er, samkvæmt tilkynn-
ingu, „sett af stað vinna við fram-
kvæmd á mati á rekstrar- og
eignarvirði félag-
anna vegna undir-
búnings að form-
legum viðræðum
um mögulegan
samruna þeirra.“
Tekið er fram í til-
kynningunni að
formlegar viðræður
hefjist þegar verðmat liggur fyr-
ir.
Einhverjir innan félaganna
töldu á þessum tíma að Lands-
bankinn gæti vart gætt hlutleysis
við verðmat félaganna þar sem
hann væri stærsti hluthafinn í
SH. Hins vegar var ákveðið að
hann lyki verkinu enda ættu lög-
bundnir deildamúrar, svokallaðir
kínamúrar, að koma í veg fyrir að
matsaðilar á vegum bankans
þjónuðu hagsmunum fjárfestinga-
hluta bankans.
Um miðjan febrúar var svo til-
kynnt um að formlega viðræður
væru hafnar og stjórnum SH og
SÍF hafi verið afhent gögn frá
Landsbankanum og Íslandsbanka
um rekstrar- og eignarvirði SH og
SÍF ásamt tillögum um skipta-
hlutföll. „Á fundum stjórnanna
var rætt um málið og ákveðið að
fara fram á viðbótarupplýsingar
um rekstur og efnahag hvors fé-
lags fyrir sig,“ segir í tilkynningu.
Ágreiningur um
skiptahlutföll
Samkvæmt heimildum var tals-
verður ágreiningur um skiptahlut-
föllin og töldu bæði félögin á sig
hallað og fyrst og fremst vegna
þess að ekki hefði verið tekið
nægt tillit til einna og annarra
neikvæðra þátta í bókum hins fé-
lagsins. Félögin voru bæði ósátt
við verðmat bankanna og gerðu
sínar athugasemdir við það og
þykir sumum að hlutleysi bank-
anna við verðmatið megi merkja
af því.
Og þegar samrunaviðræður
höfðu staðið í rúmar tvær vikur
var tilkynnt um að þeim hafi verið
slitið enda hafi þær „leitt í ljós að
of mikið ber á milli hvað varðar
mat á virði þeirra til að sam-
komulag náist“, eins og sagði í til-
kynningu.
Mikil viðskipti
Rúmum hálfum mánuði síðar,
seinnihluta marz, selur Fjárfest-
ingarfélagið
Straumur 14% hlut
sinn í SÍF eða 210
milljónir hluta.
Samdægurs eignað-
ist Skeljungur 95
milljónir hluta eða
6%, Sjóvá-Almenn-
ar rúm 5% eða 77
milljónir hluta (átti þá alls 13%)
og Íslandsbanki eignaðist u.þ.b.
3–4% hlutafjár í félaginu. Síðar
þennan sama dag og þessi við-
skipti fóru fram var aðalfundur
SÍF haldinn og Friðrik Jóhanns-
son, varamaður í bankaráði Ís-
landsbanka, var kjörinn í stjórn
SÍF.
Í byrjun maí kaupir Íslands-
banki svo eignarhluti Granda
(9,9%) og Hraðfrystihússins-
Gunnvarar (5%) í SH fyrir 1,2
milljarða króna. Alls var um að
ræða 225 milljónir hluta á genginu
5,35.
Eignarhlutur Íslandsbanka var
nú orðinn 15,5%. Nokkrum dögum
síðar jók Fjárfestingarfélagið
Straumur eignarhlut sinn í SH úr
3,5 í rúm 12% eða í 184 milljónir
nafnverðs. Stærstur hluti þeirra
bréfa var keyptur af Afli fjárfest-
ingarfélagi á genginu 5,35. Daginn
eftir að Straumur jók við sig sam-
þykkti stjórn SH viljayfirlýsingu
um kaup á bandaríska fyrirtækinu
Ocean to Ocean. Daginn þar á eft-
ir, 10. apríl, er framkvæmdastjóri
Straums Þórður Már Jóhannes-
son, kjörinn í stjórn SH.
Óvinveitt yfirtaka?
Síðustu vikur hófust umræður
um sameiningu á ný undir forystu
Íslandsbanka og Landsbankans,
en Burðarás var einnig hlynntur
sameiningu. Áform þeirra féllu í
grýttan jarðveg hjá S-hópnum,
sem taldi bæði að samlegðaráhrif-
in kynnu að vera minni en áætluð
hefðu verið í fyrri umræðum, en
óttust jafnframt hugmyndir um að
kanadísku fyrirtækin Clearwater
og Fishery Products International
og Sanford á Nýja Sjálandi kæmu
inn í hið sameiginlega félag, en
það væri andstætt hagsmunum ís-
lenzkra framleiðenda og hluthöf-
um SÍF. Var það óvissan um eign-
arhald í framtíðinni, sem var
S-hópnum þyrnir í auga.
S-hópurinn bauð bönkunum
hlut sinn í SÍF til sölu, en tilboð-
inu var hafnað. Stað-
an var því orðin
þannig að bankarnir
stefndu í það sem
kallast óvinveitt yf-
irtaka, en með því
taldi S-hópurinn
bankana fara út fyr-
ir eðlilegt starfssvið
sitt og hótaði þeim kæru til Fjár-
málaeftirlitsins.
Hvort sem það er skýringin á
því að bankarnir féllu frá áform-
um sínum skal ósagt látið, en
fleira kann að hafa komið til.
Skýrar línur
Burðarás, Íslandsbanki, Sjóvá
Almennar og Skeljungur hafa selt
allt sitt í SÍF, Sund hf., hafa
keypt 18,5%, Kaupþing Búnaðar-
banki 16,3% og VÍS og Ker hafa
aukið hluti sína. Á sama tíma hef-
ur Burðarás aukið hlut sinn í SH
verulega eða í 27% og Sjóvá-Al-
mennar hafa keypt 5%. Sigurður
Ágústsson í Stykkishólmi hefur
selt allt sitt og sömuleiðis Lífeyr-
issjóðir Bankastræti 7. Línurnar
eru því skýrar. S-hópurinn ræður
SÍF og bankarnir tveir og Burðar-
ás ásamt Fjárfestingarfélaginu
Straumi og Sjóvá eiga megnið í
SH.
Það er eðlilegt að bankarnir hafi
viljað sameina SH og SÍF, enda
yfirlýst stefna Landsbankans við
kaupin á fjórðungshlut í SH að
sameina félögin. Þeir hafa talið að
samlegðaráhrif slíks samruna
myndu bæta afkomu félaganna um
700–1.000 milljónir á ári og jafn-
framt að hlutur þeirra í sameinuðu
fyrirtæki yrði verðmætari en í
þeim aðskildum, þegar jákvæð
áhrif samlegðarinnar kæmu í ljós.
Kanadísku áhrifin
Það virðist einnig nokkuð ljóst
að mikil tengsl Íslandsbanda við
kanadísku fyrirtækin vegna mik-
illa lánveitinga til þeirra hafa haft
einhver áhrif á áhuga bankans til
sameiningar íslenzku fyrirtækj-
anna tveggja og síðar einhvers
konar tengingar við kanadísku fyr-
irtækin. Það hefur hins vegar allt-
af legið ljóst fyrir að ekki væri
hægt að sameina þau íslenzku fyr-
irtækjunum vegna lagalegra
hindrana hvað FPI varðar og eign-
arsamsetningar Clearwater hins
vegar. Ekki mun heldur hafa stað-
ið til að þessir aðilar eignuðust
meirihluta í hinu sameinaða félagi.
Í sömu sporum
Segja má að bæði félögin standi
nú í svipuðum sporum og áður en
þessar tilraunir til sameiningar
hófust. Þau hafa bæði verið að
auka umsvif sín á helztu mörk-
uðunum, einkum í nýjum afurðum
eða afurðaflokkum svo sem skel-
fiski og kældum afurðum. Ljóst er
að stefnt verður að frekari upp-
byggingu þeirra hvors fyrir sig og
samkeppnin milli þeirra heldur
áfram, með þeim kostum og göll-
um sem henni fylgja. Samkvæmt
heimildum Morgunblaðsins munu
ekki uppi nein áform um samein-
ingu við önnur fyrirtæki hjá hvor-
ugu félaginu en samvinna af ein-
hverju tagi alls ekki útilokuð.
Líklegast er að til einhverrar
samvinnu kæmi í Bandaríkjunum,
með hvaða hætti sem það yrði.
Coldwater rekur gamla, en góða
verksmiðju, SÍF nýja og afkasta-
mikla en ekki fullnýtta. Hvort fé-
lögin hefja einhverja samvinnu sín
á milli á þessum slóðum er alveg
óvíst, en þau geta einnig leitað
samvinnu við önnur fyrirtæki á
þessum slóðum.
Líklega ríkir meiri óvissa um
framvinduna hjá SH en SÍF. Það
er ekki á stefnuskrá Íslandsbanka
að eiga stóran hlut í SH til fram-
búðar og svipaða sögu er að segja
af Straumi og
Landsbankanum.
Hlutir þessara aðila
í SH eru því vænt-
anlega til sölu og
falir fyrir viðunandi
verð. Hvort til þess
kemur að kanadísku
fyrirtækin eða við-
skiptafélagi þeirra, sjávarútvegs-
fyrirtækið Sanford á Nýja Sjálandi
eignist hlut í SH eða ekki er alveg
óvíst. Hvort tveggja er talið mögu-
leiki. John Risley, forstjóri Clear-
water, lýsti því yfir í Morgun-
blaðinu fyrir nokkru að hann hefði
áhuga á að kaupa fjórðungshlut í
SH. Þá var um að ræða hlut Sig-
urðar Ágústssonar hf. og Íslands-
banka. Hvernig staðan er eftir
þessar sviptingar er enn ekki ljóst.
Engin sameining í fyr-
irsjáanlegri framtíð
S-hópurinn ræður SÍF og bankarnir og Burðarás eiga SH
Enn hefur verið horfið frá sameiningu SH
og SÍF. Þessi möguleiki hefur verið rædd-
ur með hléum í um það bil eitt ár og hafa
Íslandsbanki og Landsbankinn verið þar í
fararbroddi. Hjörtur Gíslason leitast við
að rekja söguna og meta niðurstöðuna, en
samkeppni SH og SÍF heldur áfram.
!" #!
$
# %& '($ !
$!
) * &
$
) * $ +
,, - %
.*///$ !0
!1 !
$!
#
2
34/'5
, !*///"/
2
$
6
6 !
) * % &
$
#$&
) *
78 # 99 :93
!1 !
$!
;3
! ! // *- 4 & ! & ! ! & 3! )
!
/
Ljóst er að stefnt
verður að uppbygg-
ingu SH og SÍF
hvors fyrir sig og
samkeppni þeirra
heldur áfram.
Staðan var því
orðin þannig
að bankarnir
stefndu í það sem
kallast óvinveitt
yfirtaka.
hjgi@mbl.is