Morgunblaðið - 09.09.2003, Blaðsíða 38
ÍÞRÓTTIR
38 ÞRIÐJUDAGUR 9. SEPTEMBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ
ÚRSLIT
KNATTSPYRNA
Frakkland – Ísland 2:0
Undankeppni EM kvenna, 3. riðill.
Mörk Frakklands: Mundered 51., Tonazzi
62.
Lið Íslands: Þóra B. Helgadóttir – Embla
Grétarsdóttir (Erna B. Sigurðardóttir 85.),
Íris Andrésdóttir, Erla Hendriksdóttir,
Málfríður Erna Sigurðardóttir – Laufey
Ólafsdóttir, Edda Garðarsdóttir, Hrefna
Jóhannesdóttir (Margrét Lára Viðarsdótt-
ir 78.), Ásthildur Helgadóttir, Hólmfríður
Magnúsdóttir – Olga Færseth.
Önnur úrslit:
Ungverjaland – Rússland.........................1:3
Staðan:
Rússland 3 2 1 0 10:1 7
Frakkland 2 2 0 0 6:0 6
Ísland 3 1 1 1 5:4 4
Ungverjaland 4 1 0 3 4:11 3
Pólland 2 0 0 2 0:8 0
1. deild karla
Víkingur – Breiðablik..............................3:2
Daníel Hjaltason 2 (6., 89.), Stefán Örn
Arnarsson (12.) – Sævar Pétursson (21.),
Ívar Sigurjónsson (85.).
Staðan:
Keflavík 17 13 3 1 51:15 42
Víkingur R. 17 9 7 1 28:15 34
Þór 17 9 4 4 41:31 31
Stjarnan 17 6 8 3 30:23 26
HK 17 6 3 8 27:33 21
Haukar 17 5 4 8 22:32 19
Njarðvík 17 4 6 7 31:35 18
Breiðablik 17 5 3 9 21:27 18
Afturelding 17 4 2 11 17:37 14
Leiftur/Dalvík 17 3 2 12 21:41 11
Markahæstir:
Jóhann Þórhallsson, Þór........................... 15
Þórarinn Kristjánsson, Keflavík.............. 14
Magnús Þorsteinsson, Keflavík ............... 12
Stefán Örn Arnarson, Víkingi .................. 10
Eyþór Guðnason, Njarðvík ........................ 9
Daníel Hjaltason, Víkingi ........................... 8
Zeid Yasin, Leiftri/Dalvík........................... 8
Óskar Örn Hauksson, Njarðvík ................. 7
Zoran Panic, HK ......................................... 7
Brynjar Sverrisson, Stjörnunni................. 7
Hörður Már Magnússon, HK..................... 6
Vilhjálmur R. Vilhjálmss., Stjörnunni....... 6
Valdimar Kristófersson, Stjörnunni.......... 6
Alexandre Santos, Þór ................................ 6
Hólmar Örn Rúnarsson, Keflavík.............. 6
Það var Albert Arason sem skoraði mark
Aftureldingar gegn HK á sunnudaginn,
ekki nafni hans Ásvaldsson eins og sagt var
í blaðinu í gær. Beðist er velvirðingar á
mistökunum.
Undankeppni HM 2006
Kólumbía – Brasilía..................................1:2
Juan Pablo Angel 39. – Ronaldo 23., Kaka
61.
KÖRFUKNATTLEIKUR
Reykjavíkurmót karla
Fjölnir – Ármann/Þróttur ....................85:78
EM karlalandsliða
Úrslitaleikir um sæti í 8 liða úrslitum:
Slóvenía – Ísrael ...................................76:78
Stigahæstir: Goranec 21, Nachbar 14 - Y
Green 14, T Burstein 13.
Þýskaland – Ítalía ................................84:86
Stigahæstir: Demirel 23, Nowitzki 22,
Okulaja 13, Pesic 10, Femerling 10 - Bulleri
17, Galanda 16, Radulovic 14, Marconato
11, Righetti 11.
Rússland – Krótatía .............................81:77
Stigahæstir: Kirilenko 29, Karassev 13,
Khriapa 12 - Mulaomerovic 26, Bagaric 13,
Mamic 11.
Tyrkland – Serbía/Svartfj.land .........76:80
Stigahæstir: Okur 20, Kutluay 15, Türk-
oglu 11 - Jaric 18, Gurovic 16, Drobnjak 12.
Í 8 liða úrslitum eigast við:
Frakkland – Rússland.
Litháen – Serbía/Svartfj.land
Spánn – Ísrael
Grikkland – Ítalía
KAJAKRÓÐUR
Fimmta Hvammsvíkurmaraþon fór fram
sl. laugardag og var róin vegalengd jafn-
löng maraþonhlaupi eða rétt rúmir 42 km.
Á leiðinni fengu menn að rétta úr sér tví-
vegis í fimm mínútur. Mótið gekk vel að-
stæður þokkalegar, enda var brautarmet
frá árinu 2000 slegið og bætt um 15 mín.
Úrslit voru sem hér segir.
A-flokkur karla:
Sveinbjörn Kristjánsson....................4:17.30
Guðmundur Breiðdal .........................5:07.48
B-flokkur karla:
Halldór Sveinbjörnsson.....................4:48.09
Örn Torfason ......................................5:03.00
Eggert Jónsson ..................................5:10.55
Kvennaflokkur:
Fanney Pálsdóttir ..............................5:53.03
Elín Marta Eiríksdóttir, tími ekki gefinn
upp.
BRESKIR fjölmiðlar greindu frá því í
gær að Peter Kenyon, forstjóri Man-
chester United, væri á förum frá félag-
inu og mundi hefja störf hjá enska úr-
valsdeildarliðinu Chelsea á næstu
dögum.
Simon Greenberg aðstoðarritstjóri
Evening Standard segir að blaðið hafi
öruggar heimildir fyrir því að Kenyon
muni segja upp starfi sínu hjá United.
Kenyon hefur starfað hjá United und-
anfarin þrjú ár og hefur átt stóran þátt í
því að félagið hefur eflst fjárhagslega á
undanförnum misserum.
Það er því ljóst að Roman Abramovich,
eigandi Chelsea, ætlar liðinu greinilega
stóra hluti og er ráðning Kenyons einn þáttur í því ferli en Chelsea
hefur keypt leikmenn fyrir 14,4 milljarða ísl. kr. í sumar og haust.
Kenyon frá Man.
Utd til Chelsea
Peter Kenyon
Jóhann G. Kristinsson, vallar-stjóri Laugardalsvallar, sagði
við Morgunblaðið í gær að hann
treysti sér til að vera með völlinn í
ágætu ásigkomulagi fyrir einn leik í
nóvember. „Þetta fer að sjálfsögðu
eftir tíðarfari en við getum sett yf-
irbreiðslu yfir völlinn og þá gerir
hitastigið endanlega útslagið um
hvernig hann verður þegar hún er
tekin af. En þetta á ekki að vera
mikið vandamál ef skilyrðin eru
eðlileg.“ Jóhann sagði að aftur á
móti væri ástandið á vellinum mjög
tæpt þessa dagana og talsverð
hætta á að hann yrði illa útleikinn
þegar kemur að úrslitaleik bikar-
keppninnar hinn 27. september.
„Ég þakka mínum sæla fyrir að
Julian Johnsson skyldi vera að spila
með færeyska landsliðinu í vikunni
því það þýddi að bikarleik ÍA og
KA, sem fram átti að fara annað
kvöld [í kvöld], var frestað um viku.
Þar með fær völlurinn einn dag til
viðbótar til að jafna sig eftir lands-
leikinn á laugardaginn. En ég er
mjög smeykur við bikarleik FH og
KR á miðvikudag, ef hann verður
spilaður í rigningu gæti völlurinn
farið mjög illa. Það verður mikið
álag á honum næstu daga, því á
fimmtudag og föstudag verða lands-
liðsæfingar kvenna á honum, fyrir
leik Íslands og Póllands sem er leik-
inn á laugardag, og síðan spila
Þróttur og FH á honum á sunnu-
daginn. Eftir þessa törn gæti völl-
urinn hæglega verið orðinn að
drullusvaði. Þá eigum við eftir bik-
arleik ÍA og KA 17. september og
deildaleik Fram og Þróttar 20. sept-
ember áður en að bikarúrslitunum
kemur.
Álagið á vellinum er mjög mikið,
á honum hafa farið fram allir heima-
leikir Fram og Þróttar í deild og
bikar, ásamt landsleikjum karla og
kvenna. Samtals eru komnir 27 leik-
ir í sumar, auk átta æfinga fyrir
landsleiki og Evrópuleiki. Það var
ekki heppilegt að fá á hann tvo und-
anúrslitaleiki í bikarkeppninni í
september, ekki síst þegar þeir voru
upphaflega settir á tvo daga í röð.
En þótt völlurinn fari illa í þessari
törn sem framundan er ættum við
alltaf að geta komið honum í ágætt
horf fyrir leik í nóvember ef svo fer
að Ísland komist í aukakeppnina um
sæti á EM. Það verður algjör hvíld
á honum eftir bikarúrslitaleikinn og
sá tími á að duga okkur,“ sagði Jó-
hann G. Kristinsson.
Laugardalsvöllurinn gæti farið illa á næstu dögum vegna álags
Yrði samt í góðu
ástandi í nóvember
TAKIST íslenska karlalandsliðinu að ná öðru sætinu í 5. riðli und-
ankeppni Evrópumóts í knattspyrnu spilar það úrslitaleiki, heima
og heiman, í nóvember um sæti í lokakeppninni í Portúgal. Heima-
leikurinn færi að sjálfsögðu fram á Laugardalsvellinum, sem hefur
aðeins einu sinni verið notaður í nóvembermánuði. Það var árið
1985 þegar Fram sigraði þar Rapid Vín á snævi þöktum vellinum,
2:1, í Evrópukeppni bikarhafa.
Víkingar hófu fljótlega að sækjastíft að marki gestanna og upp-
skáru mark á 6. mínútu þegar Daníel
skallaði inn sendingu
Stefáns Arnar Arn-
arssonar. Aðeins sex
mínútum síðar sner-
ust hlutverkin við og
nú skoraði Stefán Örn eftir sendingu
Daníels. Með tveggja marka forskot
slógu Víkingar of mikið af og var refs-
að fyrir það á 21. mínútu þegar Sæv-
ar Pétursson minnkaði muninn eftir
langa og stranga sókn Blika, sem þá
voru komnir inn í leikinn. Reyndar
átti Daníel skalla í slá eftir góða sókn
á 33. mínútu en Blikar áttu líka færi,
á 44. mínútu mátti Ögmundur Rún-
arsson í marki Víkinga hafa sig allan
við til að verja gott skot Sævars.
Strax eftir hlé reyndu Víkingar að
ná aftur undirtökunum og tókst það
til að byrja með en ekki að halda
þeim. Fyrstu tvö færin voru þó Vík-
inga, á 58. mínútu átti Jón B. Her-
mannsson góðan skalla að marki
Blika en Sigmar Ingi Sigurðarson
varði vel og aftur tíu mínútum síðar
eftir stórsókn Víkinga. Um miðjan
síðari hálfleik var Ívari Jónssyni
skipt inn á og hann skerpti á baráttu-
andanum hjá félögum sínum á meðan
Víkingar gáfu sífellt meira eftir. Á 75.
mínútu fengu Blikar tvö tækifæri í
mikilli sókn og tæpum tíu mínútum
fyrir leikslok jafnaði Ívar Sigurjóns-
son, var kominn upp að endalínu en
skaut boltanum yfir Ögmund í mark-
inu. Jöfnunarmarkið var eins og blaut
tuska í andlit Víkinga en þeir tóku á
sig rögg, hófu að sækja hratt og mikið
fjör færðist í leikinn. Sigmar Ingi í
marki Breiðabliks bjargaði tvisvar
frá Stefáni Erni og Bjarni Hall náði
þremur skotum inni í markteig Blika
en tókst ekki að skora. En rúmri mín-
útu áður en dómarinn flautaði til
leiksloka sendi Steinþór Gíslason
glæsilega sendingu innfyrir vörn
Breiðabliks, Daníel tók á sprett og
skoraði.
Daníel hafði varla við að taka við
hamingjuóskum eftir leikinn og var
ánægður með lið sitt. „Við byrjum vel
en svo kom kæruleysi í leik okkar.
Við unnum okkur út úr því og höfum
sýnt karakter til að gera slíkt í sumar
og ekki annað að gera en gera út um
leikinn. Mér fannst spennustigið hjá
okkur fínt en við hleyptum samt inn í
leikinn,“ sagði Daníel og ætlar sér
sigur gegn Keflavík næsta laugar-
dag. „Við berjumst vel hver fyrir ann-
an, meira en ég hef séð nokkru liði í
sumar, alveg þangað til leikurinn er
búinn. Mér líst vel á leikinn við Kefla-
vík, þegar við spiluðum við þá hérna
vorum við mun betri og við tökum þá í
Keflavík.“ Hann og Stefán Örn áttu
góða spretti í leiknum en Jón Skafta-
son og Jón B. Hermannsson voru
einnig drjúgir ásamt Hauki Úlfars-
syni.
„Við vorum hræðilegir fyrstu tutt-
ugu mínúturnar og töpuðum leiknum
á því vegna þess að við vorum miklu
grimmari eftir það og sýndum styrk
okkar í síðari hálfleik,“ sagði Þor-
steinn Sveinsson, sem stóð sig með
prýði í vörn Breiðabliks ásamt Sæv-
ari. „Víkingarnir voru beittir, sér-
staklega sprengjurnar þeirra í fram-
línunni, þeir eru mjög fljótir og erfitt
að eiga við þá,“ bætti Þorsteinn við.
Kristófer Sigurgeirsson og Sigmar
Ingi í markinu voru einnig góðir.
Maður leiksins: Daníel Hjaltason,
Víkingi.
Morgunblaðið/Kristinn
Jón Björgvin Hermannsson úr Víking í baráttunni við Þorstein
Sveinsson, varnarmann Breiðabliks.
Dramatík hjá Daníel
„Ég get varla lýst því hvernig var að sjá boltann í netinu, tilfinningin
var svakaleg og það var ekki leiðinlegt að heyra stúkuna fagna,“
sagði Daníel Hjaltason, sem skoraði sigurmark Víkinga tæpri mín-
útu áður en flautað var til leiksloka í Víkinni í gærkvöldi og tryggði
félaginu sínu 3:2 sigur á Breiðabliki í fjörugum leik. Sigurinn kemur
Víkingum í ákjósanlega stöðu, til að tryggja sér sæti í efstu deild
næsta sumar þurfa þeir stig gegn Keflavík um næstu helgi en Þórs-
arar, sem berjast við Víkinga um laust sæti, verða að vinna Leiftur/
Dalvík og treysta á tap Víkinga gegn Keflavík.
Stefán
Stefánsson
skrifar
KÖRFUKNATTLEIKUR
Reykjavíkurmót karla:
DHL-höllin: KR – Valur .......................19.15
Í KVÖLD
REYNISMENN úr Sandgerði hafa
dregið lið sitt út úr 1. deildar keppni
karla í körfuknattleik á komandi leik-
tíð. Sandgerðingar voru í baráttu um
úrvalsdeildarsæti síðasta vetur, end-
uðu í þriðja sæti 1. deildar en biðu síð-
an lægri hlut fyrir Þór úr Þorlákshöfn
í úrslitaleikjum um að fara upp. Stjórn-
arkreppa og mannekla eru ástæðurnar
fyrir brotthvarfi Sandgerðinga, sem
þó munu væntanlega senda lið í riðla-
keppni 2. deildar í vetur.
KKÍ hefur boðið Selfyssingum að
taka sæti Reynis í 1. deild en þeir urðu
í níunda og neðsta sæti deildarinnar í
fyrra og hefðu átt að spila í 2. deild í
vetur. Deildin verður fullskipuð á kom-
andi tímabili, níu lið léku í henni í fyrra
en tíu í vetur. Upp úr 2. deild komu Þór
frá Akureyri og ÍG frá Grindavík.
Reynir ekki
með í 1. deild
PETER Ridsdale, hinn nýi eigandi
enska knattspyrnufélagsins Barns-
ley, sagði í dag að Guðjón Þórðarson
fengi peninga til að styrkja liðið,
sem er á toppi 2. deildarinnar en var
fjárvana og í gjörgæslu þar til Rids-
dale keypti það ásamt fleirum í síð-
ustu viku.
„Við erum í 2. deild og þurfum að
útvega fjármagn til að ná lengra.
Við ætlum okkur ekki bara að
þrauka, heldur byggja upp félag, og
Guðjón fær það sem hann þarf til að
vinna sína vinnu. Það þarf þó að
gæta þess að eyða ekki um efni
fram,“ sagði Ridsdale í samtali á
heimasíðu Barnsley. Liðið er ósigrað
eftir sex umferðir og er efst í deild-
inni með 14 stig, einu stigi meira en
Sheffield Wednesday og Port Vale.
Guðjón fær að
kaupa leikmenn