Morgunblaðið - 10.09.2003, Síða 1
STOFNAÐ 1913 244. TBL. 91. ÁRG. MIÐVIKUDAGUR 10. SEPTEMBER 2003 PRENTSMIÐJA ÁRVAKURS HF. mbl.is
Elsta bók-
menntahefðin
Glæpasöguhöfundurinn Henning
Mankell tekinn tali | Listir 23
Nýir bílar á alþjóðlegu bílasýning-
unni í Frankfurt | Bílar 4
Samsláttur
kynslóða
Björn Thoroddsen og Jørgen
Svare gefa út hljómdisk | Fólk 47
Ofursport-
bíll kynntur
BANDARÍSKUR dómari úrskurðaði í gær að
hryðjuverkin í New York og Washington 11.
september 2001 hefðu verið „fyrirsjáanleg
ógn“ og heimilaði
því málshöfðun á
hendur flugfélög-
um, flugvélafram-
leiðendum, emb-
ættismönnum sem
bera ábyrgð á ör-
yggi flugvalla og
eigendum World
Trade Center í
tengslum við árás-
ina. Dómarinn, Alv-
in Hellerstein,
sagði að vanræksla
við öryggiseftirlit
gæti hafa stuðlað að dauða 3.000 manna.
Flugfélögin American Airlines og United
Airlines, sem og Boeing-fyrirtækið og hafn-
aryfirvöld New York og New Jersey, sem báru
ábyrgð á Tvíburaturnunum, höfðu óskað eftir
því að málinu yrði vísað frá og sagt að það
hefði ekki verið í þeirra verkahring að sjá slík-
ar árásir fyrir og koma í veg fyrir þær. Þá
segja sakborningar að meint vanræksla þeirra
sé ekki ástæða þess að fólkið lét lífið.
Hellerstein sagði að þó svo það hefði ekki
gerst áður að hryðjuverkamenn rændu flug-
vélum og flygju þeim af ásettu ráði á bygg-
ingar þá hefðu flugfélög átt að geta séð það
fyrir að flugvélaræningjar kynnu að valda
miklu mann- og eignatjóni á jörðu niðri.
Málið er höfðað fyrir hönd 70 fórnarlamba
árásanna sem eru ýmist lífs eða liðin. Hugs-
anlegt er að málaferlin hefjist í vikunni. Mörg
fórnarlömb eða aðstandendur hafa fremur
kosið að leita réttar síns en að þiggja bætur úr
opinberum sjóðum. Séu bætur þegnar verður
fólk að lýsa því yfir að það muni ekki fara í mál.
Hryðjuverkin 11. september
Málsókn gegn
flugfélögum
heimiluð
New York. AP.
TILRAUNIR sem breskt fyrirtæki, Xenova,
hefur undanfarin tvö ár gert með bóluefni til
að auðvelda fólki að hætta að reykja þykja
lofa góðu, að sögn frétta-
vefjar breska ríkisútvarps-
ins, BBC, í gær. Talið er að
efnið geti einnig komið
kókaínfíklum að gagni og
hefjast brátt tilraunir til að
ganga úr skugga um það.
Dr. Campbell Bunce, vís-
indamaður hjá fyrirtækinu, segir að bóluefn-
ið hafi reynst skaðlaust fólki. Efnið fær
ónæmiskerfi líkamans til að framleiða mót-
efni sem binda nikótínið eða kókaínið í blóð-
inu og komast fíkniefnin þannig ekki upp í
heilann. Þau ná því ekki að örva heilastöðvar
sem valda vellíðan og síðar vanabindingu.
Vonast er til að með bóluefninu megi
hjálpa fólki sem vill hætta að nota þessi fíkni-
efni. Bunce sagði bóluefnið ekki geta þurrk-
að strax út fíkn í sígarettur en á hinn bóginn
gæti það hjálpað fólki til að byrja ekki aftur
þótt það félli aftur, t.d. í gleðskap.
„Vonandi munu mótefnin draga úr áhrif-
um sígarettunnar þannig að löngunin í aðra
verði mun minni,“ sagði Bunce. Hann sagði
þó að einhverjir gætu brugðist við bóluefn-
inu með því að reykja einfaldlega meira til að
fá jafnmikil áhrif og þeir voru vanir að fá.
Reykfíklar
bólusettir?
EVRÓPUDÓMSTÓLLINN, æðsti dómstóll
Evrópusambandsins (ESB), úrskurðaði í gær
þýzka löggjöf, sem skilgreinir bakvaktir lækna
á sjúkrahúsum ekki sem fullan vinnutíma,
ólögmæta þar sem hún bryti í bága við vinnu-
tímatilskipun sambandsins. Reglur þessarar
tilskipunar voru innleiddar í íslenzka löggjöf í
vor, en þær hafa áður orðið tilefni deilna um
vinnutíma íslenzkra lækna. Sigurbjörn Sveins-
son, formaður Læknafélagsins, segir vinnu-
veitendur lækna hafa fram að þessu dauf-
heyrzt við því að laga vinnutíma lækna að
þessum Evrópureglum. Þess vegna kunni að
enda með því að á það verði látið reyna fyrir
dómstólum „hvað séu í raun gildandi lög í land-
inu, og Læknafélagið er fullbúið að sækja
það“.
Hér er um að ræða tilskipun um vinnutíma
sem Evrópusambandið gaf út 1993, en efni
hennar var í vor innleitt í íslenzka löggjöf um
aðbúnað, hollustuhætti og öryggi á vinnustöð-
um. Áður hafði efni tilskipunarinnar verið inn-
leitt með þremur kjarasamningum 1997.
Eftir því sem Morgunblaðið fékk uppgefið
hjá félagsmálaráðuneytinu féllu læknar í
starfsnámi ekki undir umrædda tilskipun en
voru felldir undir gildissvið hennar með ann-
arri tilskipun á árinu 2000. Hún tók gildi um
alla þá hópa sem hún tilgreinir 1. ágúst sl., að
læknum í starfsnámi undanskildum, en hún
mun taka gildi varðandi þá 1. ágúst 2004.
Sigurbjörn Sveinsson segir að það hafi áður
fallið svipaðir dómar og Evrópudómstóllinn
kvað upp í gær, sem hnekkt hafi lögum um
vinnutíma lækna í nokkrum Evrópulöndum og
knúið fram breytingar. „Það hefur verið
ágreiningur milli sjúkrahússyfirvalda og
ungra lækna hér, vegna þess að Læknafélagið
samdi þannig að þeir höfðu ekki sama frítöku-
rétt og eldri og reyndari læknar. En eftir laga-
setninguna í vor er spurning hvort þurfi ekki
að skoða þessi mál öll upp á nýtt, og eins og
þau standa núna er það alveg inni í myndinni
að við þurfum að sækja rétt lækna fyrir dóm-
stólum. Við munum fylgja þessu eftir hérna, að
þessum tilskipunum verði fylgt í hvívetna.“
Að sögn Sigurbjörns eru álitamál bæði varð-
andi hlutskipti unglækna fyrir lagasetninguna
og hlut lækna almennt eftir að hún tók gildi.
Magnús Pétursson, forstjóri Landspítala –
háskólasjúkrahúss, segir að kannað verði
hvaða áhrif dómurinn kunni að hafa á starf-
semi spítalans, en við fyrstu sýn virðist hann
fyrst og fremst taka til unglækna.
Evrópudómstóllinn úrskurðar þýzk lög um vinnutíma lækna ólögmæt
Íslenzkir læknar tilbún-
ir að sækja rétt sinn
SJÁLFSMORÐSÁRÁS við kaffi-
hús í Jerúsalem varð a.m.k. sjö að
bana í Ísrael í gærkvöldi og um
fjörutíu manns að auki slösuðust.
Árásarmaðurinn lét til skarar
skríða við Hillel-kaffihúsið. Örygg-
isvörður aftraði sprengjumannin-
um inngöngu inn í kaffihúsið og
sprengdi hann sig þá fyrir utan.
Sprengjan var svo öflug að fram-
hlið hússins hrundi. Nokkrum
stundum fyrr var gerð sjálfsmorðs-
árás í grennd við herstöð í úthverfi
Tel Aviv og varð hún minnst átta
manns að bana, að morðingjanum
meðtöldum.
Leiðtogar Palestínumanna for-
dæmdu þegar ofbeldið. „Forysta
Palestínumanna fordæmir þessa
árás [í Tel Aviv] og minnir á að þrír
Palestínumenn voru einnig drepnir
sama dag, þ.á m. barn,“ sagði í yfir-
lýsingu frá Palestínustjórn.
Sprengjumaðurinn í Tel Aviv er
sagður hafa komist með tösku inn í
biðskýli en þar beið fjöldi her-
manna eftir fari. Tugir manna
særðust í tilræðinu, sumir alvar-
lega. Engin samtök höfðu seint í
gærkvöldi enn lýst ábyrgð á árás-
unum á hendur sér en félagar í
Hamas-hryðjuverkasamtökunum
lýstu hins vegar fögnuði sínum.
Talsmaður Ariels Sharons, for-
sætisráðherra Ísraels, Avi Pazner,
sagði að Ísraelar myndu halda bar-
áttunni gegn Hamas og leiðtogum
samtakanna áfram þar sem þeir
hefðu borið ábyrgð á blóðbaðinu.
Hins vegar deildi Yasser Arafat
Palestínuleiðtogi ábyrgðinni með
Hamas vegna þess að hann hefði
ekkert gert til að hindra tilræði og
„Ísraelar munu bregðast við í sam-
ræmi við það“. Sharon var staddur
í Indlandi í opinberri heimsókn.
Háttsettir, ísraelskir embættis-
menn hafa að undanförnu hvatt til
þess að Arafat yrði vísað úr landi
en hann er í eins konar stofufang-
elsi í Ramallah á Vesturbakkanum.
Forsætisráðherra stjórnar hans,
Mahmud Abbas, sagði af sér á
laugardag vegna harðra deilna við
Arafat. Bæði Ísraelar og Banda-
ríkjamenn telja að Arafat hafi graf-
ið undan Abbas með því að neita að
láta hann taka við yfirstjórn allra
öryggissveita Palestínumanna.
Ísraelskar hersveitir felldu fyrr í
gær þrjá menn, þ.á m. 12 ára
dreng, í aðgerð gegn Hamas-
mönnum í Hebron á Vesturbakk-
anum. Umkringdu sveitirnar sjö
hæða byggingu í leit að tveimur eft-
irlýstum mönnum. Bardagi hófst,
Ísraelar beittu skriðdrekum og
hæfði sprengjubrot 12 ára dreng,
Thaher Siyouri, sem fylgdist með
átökunum ásamt fjölskyldu sinni af
svölum í nágrenninu, með þeim af-
leiðingum að hann dó.
Tvö mannskæð sjálfs-
morðstilræði í Ísrael
AP
Hamas kennt um
árásirnar og
Ísraelar segja
Arafat bera
ábyrgð að hluta
Björgunarmenn í Tel Aviv leita að líkamsleifum fórnarlamba sprengjuárásarinnar í Tel Aviv í gær.
Jerúsalem, Tsrifin-herstöðinni við Tel
Aviv. AFP, AP.
Qurei/14
♦ ♦ ♦