Morgunblaðið - 10.09.2003, Page 6
FRÉTTIR
6 MIÐVIKUDAGUR 10. SEPTEMBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ
ÞAÐ er alltaf gott að komaheim,“ segir Flosi Arn-órsson, íslenski stýrimað-urinn sem setið hefur í
gæsluvarðhaldi og í fangelsi í
Sameinuðu arabísku furstadæm-
unum fyrir ólöglegan vopnaburð
frá 24. apríl sl. Flosa var sleppt úr
haldi í Abu Dhabi á sunnudag en
þaðan var hann fluttur í hand- og
fótjárnum út á alþjóðlega flugvöll-
inn í Dubai. Þar tók hann áætl-
unarflug til Istanbúl í Tyrklandi,
síðan áætlunarvél til Kaup-
mannahafnar og að lokum vél til
Íslands. Flosi hefur stundað sjó-
mennsku í 25 ár og „reynt ým-
islegt“ eins og hann orðar það en
bætir því við að fljótt á litið sé
reynslan í Sameinuðu arabísku
furstadæmunum þó „merkilegasta
lífsreynslan“.
Beint að
upplýsingaborðinu
Þegar Flosi og skipsfélagar
hans komu að landi í Sameinuðu
arabísku furstadæmunum í apríl
sl. höfðu þeir verið að ferja skip til
landsins. Þeir komu að landi í
hafnarbæ skammt frá Dubai, einni
stærstu borg furstadæmanna, en
þaðan ætluðu þeir að fara flugleið-
ina til Íslands. Flosi komst þó
aldrei lengra en á alþjóðflugvöllinn
í Dubai eins og kunnugt er, því
þar var hann handtekinn eftir að
hafa framvísað riffli sem hann
hafði í fórum sínum.
Flosi segir að riffilinn hafi hann
haft með sér í sjóferðinni og þegar
hann kom í land í furstadæmunum
hafi hann tekið riffilinn í sundur
og pakkað honum ofan í tösku.
Ætlunin var að taka riffilinn aftur
heim til Íslands. „Ég hef nú ein-
hvern tíma sagt það áður að eftir
mánaðarlanga siglingu starfar
heilinn ekki eðlilega,“ útskýrir
hann og heldur áfram: „Ég gekk
því beint að upplýsingaborði í
flugstöðinni og sagði að ég væri
með byssu í farangrinum og
spurði hvað ég ætti að gera við
hana.“ Flosi segir að starfsfólkið
við upplýsingaborðið hafi sagt að
„þetta væri ekkert vandamál“.
Honum hefði verið uppálagt að
setja byssuna aftur í töskuna og
fara með hana í gegnumlýsingu.
„Það gerði ég,“ sagði Flosi, „en
byssan sást náttúrulega í gegn-
umlýsingunni. Ég var beðinn að
opna töskuna og einn skipsfélaga
minna aðstoðaði mig við að skera
pakningarnar utan af byssunni.
Það tók um fimmtán mínútur.“
Upp úr pakningunum kom byssa
sem Flosi hafði ekkert leyfi fyrir
og enga skráningu fyrir í fursta-
dæmunum, en byssan var skráð á
Flosa á Íslandi.
Flosi segir að hann hafi strax
verið dreginn afsíðis og þar tóku
við um sex klukkustunda yfir-
heyrslur. „Þeir fundu einhverja
áfengislykt af mér við yfirheyrsl-
una og ætluðu að reyna að hanka
mig á því líka,“ segir hann, „en áð-
ur en við fórum í flugið fórum við
á barinn á hótelinu og fengum
okkur tvo bjóra.“ Hann segir að í
raun sé bannað að drekka áfengi í
furstadæmunum, þótt áfengi sé
selt öllum þeim sem vilja kaupa.
„En ef fólk er tekið drukkið er
það í slæmum málum.“
Samkvæmt opinberum gögnum
var Flosa gefið tvennt að sök er
hann var handtekinn; annars veg-
ar að hafa neytt áfengis og hins
vegar að vera með vopn í tösku
sinni. Að sögn Flosa stóð til að
dæma hann fyrir brot á neyslu
áfengis í Dubai en brotið vegna
ólöglegs vopnaburðar átti að taka
fyrir í Abu Dhabi. Blóðprufa var
tekin af Flosa morguninn eftir að
yfirheyrslur yfir honum hófust og
kom í ljós að hann var með 0,0%
áfengismagn í blóðinu.
Gerðu ekki
neitt fyrir mig
Flosi segir aðspurður að yf-
irheyrslurnar á flugvellinum hafi
farið fram á ensku, en þeir sem
stýrðu yfirheyrslunni hafi verið
mjög lélegir í tungumálinu. Þegar
hann er spurður hvort honum hafi
ekki fundist yfirheyrslurnar lang-
ar – þær tóku jú sex tíma – svarar
hann: „Sex tíma yfirheyrsla! Það
er nú ekki neitt þegar litið er til
þess að þetta átti allt saman eftir
að taka fjóra til fimm mánuði áður
en yfir lauk.“
Eftir yfirheyrslurnar á flugvell-
inum var Flosi sendur í gæslu-
varðhald í fangelsi í Dubai. Þar
átti hann eftir að dúsa í um fjöru-
tíu daga. Hann segir að á leiðinni í
fangelsið hafi sér tekist að senda
skilaboð í gegnum farsíma til
vandamanna á Íslandi, en þegar í
fangelsið var komið var síminn og
annað lauslegt tekið af honum.
Flosi virðist hafa tekið fanga-
vistinni með æðruleysi, en hann
segir að óvissan hafi verið verst,
enda hafi hann lítið vitað þegar
hann var settur í gæsluvarðhald.
„Mér fannst slæmt að vita ekkert
um framhaldið. Ég ræddi við
marga fanga; einn var búinn að
vera þarna í hálfan mánuð fyrir að
hafa ekið yfir á rauðu ljósi og ann-
ar var búinn að vera í tvo eða þrjá
mánuði fyrir að hafa verið drukk-
inn úti á götu. Ég hugsaði með
mér: Og ég var tekinn með riffil á
alþjóðaflugvelli.“
Flosi segir að óvissan hafi því
nagað sig fyrst í stað. „En ég ró-
aðist þegar ég var búinn að tala
við lögfræðinga og þeir sögðu mér
að hámarksrefsing fyrir mitt brot
væri þrjú ár!“ Þótt þrjú ár séu
langur tími sagði Flosi að sér
hefði þó liðið betur að vita hvert
stefndi.
Flosi segist fljótlega hafa orðið
sér úti um tvo lögfræðinga í Sam-
einuðu arabísku furstadæmunum,
en hann ber þeim þó ekki vel sög-
una. „Ég borgaði þeim eina og
hálfa milljón og þeir gerðu ekki
neitt fyrir mig,“ segir hann og
tekur eitt dæmi: „Síðustu daga
mína í fangelsinu í Abu Dhabi
[höfuðborg furstadæmanna] fékk
samfangi minn að hringja í lög-
fræðinginn minn til að forvitnast
um gang mála. Kom þá í ljós að
lögfræðingurinn vissi ekki einu
sinni hvaða dóm ég hafði fengið.“
Inntur eftir því hvernig fang-
elsið hefði verið í Dubai segir
Flosi að það fangelsi sé „besta
fangelsið í furstadæmunum“. Um
150 fangar voru að sögn Flosa
vistaðir þar. Hann segir að passað
hafi verið upp á hreinlætið og að
aðbúnaður hafi verið viðunandi.
Vistin hafi því ekki verið slæm í
sjálfu sér. Hann segist hafa mátt
hringja einu sinni í viku til útlanda
og eins oft og hann vildi innan
furstadæmisins. „Ég var nátt-
úrulega svolítið sérstakur fangi,
þar sem ég var eini Evrópubúinn,
fangavörðunum líkaði ágætlega við
mig og litu oft undan er ég var að
hringja heim á öðrum dögum en
leyfilegt var.“ Flosi segir að þeir
hafi ekki þurft að vinna neitt í
fangelsinu, „því var bara legið í
leti“, segir hann.
Kom alveg af fjöllum
Eftir u.þ.b. fjörutíu daga í
gæsluvarðhaldi í Dubai, eða hinn
1. júní sl., var Flosa sleppt úr
haldi eins og áður sagði, en hann
mátti þó ekki yfirgefa landið þar
sem máli hans var ekki lokið. Flosi
telur það íslenskum stjórnvöldum
að þakka að honum var sleppt úr
haldi, en um mánaðamótin júní/júlí
var bréfi frá Halldóri Ásgrímssyni
utanríkisráðherra komið til utan-
ríkisráðherra furstadæmanna. Í
bréfinu var farið fram á að rétt-
arhaldi yfir Flosa yrði hraðað og
hann yrði jafnframt látinn laus
gegn tryggingu.
„Ég kom alveg af fjöllum þegar
mér var sleppt úr haldi,“ segir
Flosi, „en mér var áreiðanlega
sleppt út af bréfinu sem ráðherra
sendi,“ bætir hann við. Hann tek-
ur þó einnig fram að starfsmenn
norska sendiráðsins í Sameinuðu
arabísku furstadæmunum hafi að-
stoðað íslensku utanríkisþjón-
ustuna vegna þessa máls.
Málinu var þó ekki lokið, þótt
Flosa hefði verið sleppt úr gæslu-
varðhaldi, því enn átti eftir að
koma í ljós hvort höfðað yrði op-
inbert mál á hendur honum. Flosi
var í farbanni eins og áður sagði
og kom hann sér því fyrir á hóteli
í Dubai, þar sem hann gisti næstu
þrjár vikurnar, en eftir það fékk
hann inni á norsku sjómannaheim-
ili, þar sem hann fékk að búa
ókeypis. Í byrjun ágúst var síðan
tekin ákvörðun um að höfða mál á
hendur honum; kom hann af þeim
sökum fyrir rétt í Abu Dhabi, þar
sem dómari dæmdi hann í fjög-
urra mánaða fangelsi.
Flosi lýsir réttarhöldunum á eft-
irfarandi hátt: „Ég fór fyrir rétt-
inn með öðrum lögfræðingi mín-
um. Hann var mjög kokhraustur,
grobbinn og leiðinlegur og sagði í
öðru hverju orði að ég ætti ekki að
hafa áhyggjur; hann myndi redda
þessu. Ég var hins vegar löngu
hættur að hlusta á hann. Hann var
svo leiðinlegur. Svo stóðum við
þarna fyrir framan dómarann, sem
hafði fengið málið í hendur tveim-
ur eða þremur vikum fyrr. Hann
blaðaði eitthvað í skjölunum mín-
um og mér fannst greinilegt að
hann var að sjá þau í fyrsta sinn.
Hann leit á skjölin í tvær til þrjár
mínútur; las yfir eitt eða tvö blöð
og gerði síðan hring um tvær eða
þrjár athugasemdir í skýrslunni
með penna sem hann hélt á. Síðan
kallaði hann á lögregluna; lét setja
mig í handjárn og stakk mér í
steininn. Ég fékk fjögurra mánaða
dóm.“
Flosi tekur þó fram að hann
hafi verið heppinn „að fá bara
fjögurra mánaða dóm“, eins og
hann orðar það, því í áfrýj-
unarréttinum í Abu Dhabi, sem
síðar átti eftir að fara yfir málið,
kom í ljós að í skýrslu lögregl-
unnar frá Dubai hefði verið talað
um vélbyssu en ekki riffil. „Lög-
fræðingar mínar höfðu greinilega
ekki rænu á því að gera at-
hugasemdir við þetta strax.“
Sáttur við stimpilinn
Fjögurra mánaða fangelsisdómi
yfir Flosa var áfrýjað til áfrýj-
unardómstóls í Abu Dhabi og í
ágúst ákvað sá dómstóll að stytta
dóminn um tvo mánuði. Þar með
var Flosi búinn að taka út sína
refsingu og vel það. „Ég var búinn
að sitja inni í næstum þrjá mánuði
þegar þessi dómur kemur,“ segir
hann, „þar með lenda þeir í svo-
litlum vandræðum, því þeir eru
búnir að halda mér inni lengur en
dómurinn kvað á um.“ Flosi segir
að af þeim sökum hafi það dregist
að sleppa honum strax úr haldi í
Abu Dhabi.
„En loksins, um viku eftir dóm
áfrýjunardómstólsins, var ég sótt-
ur og mér skutlað í hand- og fót-
járnum út á flugvöll. Þaðan fór ég
heim í gegnum Istanbúl og Kaup-
mannahöfn. Ferðin gekk vel; eng-
in bið á flugvöllunum.“
Flosi segir að áður en hann fór
frá Sameinuðu arabísku fursta-
dæmunum hafi hann fengið stimpil
í vegabréfið sitt, sem bannaði hon-
um að koma aftur til landsins. „Og
ég er fullkomlega sáttur við það.“
Hann segir að síðustu að Samein-
uðu arabísku furstadæmin séu
„rosalega flott“ á yfirborðinu, en
það sem sé undir yfirborðinu sé í
líkingu við það sem gerðist á mið-
öldum. Spurður að því hvað allt
þetta mál hafi kostað hann fjár-
hagslega segist hann ekki enn
„hafa þorað að taka það saman“.
Flosi Arnórsson stýrimaður losnaði úr haldi um helgina
Fangelsið í Abu Dhabi í
einu orði sagt hræðilegt
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Flosi Arnórsson ásamt syni sínum Guðjóni Alex, þriggja ára.
Flosi Arnórsson sjómaður er loksins
kominn heim eftir rúmlega fjögurra
mánaða dvöl í Sameinuðu arabísku
furstadæmunum, þar sem hann sat í
fangelsi fyrir ólöglegan vopnaburð.
Hann segir Örnu Schram sögu sína.
arna@mbl.is
ÞEGAR Flosi er beðinn um að
lýsa fangavistinni í Abu Dhabi
segir hann að hún hafi í einu
orði sagt verið hræðileg.
„Þetta er ógeðslegt fangelsi,“
segir hann. „Við vorum sjö
saman í einum klefa og sváf-
um allir á steypugólfi. Þegar
við komum inn fengum við
þrjú teppi; eitt til að hafa und-
ir okkur, annað til að hafa yfir
okkur og þriðja til að hafa sem
kodda. Þarna var allt vaðandi
í skorkvikindum, maurum og
kakkalökkum. Þetta var við-
bjóður.“
Hann segir að þeir hafi
fengið tvær máltíðir á dag,
sem hafi verið naumt skammt-
aðar, auk morgunmatar. „Ég
mætti aldrei í morgunmatinn;
hann var svo ógeðslegur. Það
var ekki þess virði að vakna til
að fara í hann.“ Hann segist þó
hafa borðað hinar máltíð-
arnar: „Maður borðaði til að
halda lífi.“ Spurður hvort
hann hafi ekki lagt af í fang-
elsinu segir hann: „Jú, en ég
mátti nú við því.“
Flosi segir aðspurður að
hann hafi ekki heldur verið
látinn vinna neitt í fangelsinu í
Abu Dhabi, en segir að hann
hafi haldið dagbók, bæði í því
fangelsi og í fangelsinu í
Dubai, til að láta tímann líða.
Hann segir ennfremur að-
spurður að honum hafi samið
vel við hina fangana. „Eina al-
mennilega fólkið sem ég hitti
þarna var fólkið í fangelsinu.“
Hann segir að fangarnir hafi
verið inni fyrir margvísleg
brot; t.d. morð og ávísanafals.
„Þarna var öll flóran.“
Ógeðslegt
fangelsi