Morgunblaðið - 10.09.2003, Síða 20
LANDIÐ
20 MIÐVIKUDAGUR 10. SEPTEMBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ
ÞEIR Geirmundur Vilhjálmsson og
sonur hans Heiðar eiga eitt sameig-
inlegt áhugamál en það eru kast-
íþróttir. Geirmundur er kominn hátt
á fertugsaldurinn og Heiðar er
helmingi yngri. Uppáhaldgreinar
þeirra beggja eru kúla, kringla og
sleggja. Þeir öttu kappi í þessum
greinum og fleirum á Steinþórsmóti
fyrir skömmu. Steinþórsmótið, sem
er stigamót, var í fyrsta sinn haldið
árið 1943 og árlega síðan. Á þessu
móti er keppt um silfurskjöld nokk-
urn sem gefinn var af brottfluttum
Eyrsveitungum til minningar um
Steinþór Þorláksson á Eyri afkom-
anda Vestarrs landnámsmanns í
Eyrarsveit en Steinþór þótti afburða
góður íþróttamaður á sinni tíð.
Steinþórsskjöldinn hlýtur sá er flest
stig hlýtur samanlagt. Geirmundur
hafði betur í þetta sinn og vann
skjöldinn eins og svo oft áður.
„Þetta er í síðasta sinn sem karlinn
fær skjöldinn,“ sagði Heiðar á sinn
rólega hátt þegar fréttaritari hitti
þá feðga fyrir skömmu. Þá var Heið-
ar nýkominn heim af Norð-
urlandamóti unglinga sem haldið
var í Óðinsvéum. Þar keppti hann í
kúlu og lenti í 5 sæti, kastaði 15,50
m. (6 kg. kúla) Geirmundur var einn-
ig nýkominn heim af Íslandsmeist-
aramóti öldunga í aldursflokknum
30–39 ára. Þar reyndist hann sig-
ursæll hlaut 6 gullverðlaun og ein
silfur. Geirmundur setti héraðsmet
(HSH) í sleggjukasti á Steinþórs-
mótinu á dögunum, kastaði 45,95 en
gamla metið átti frændi hans Jón
Pétursson. „Við höfum aðeins verið
að laga stílinn hjá Heisa í sleggjunni
að undanförnu,“ sagði Geiri, „og það
er stutt í að hann bæti metið mitt.“
Morgunblaðið/Gunnar Kristjánsson
Feðgarnir Heiðar Geirmundsson og Geirmundur Vilhjálmsson.
Feðgar í baráttu
Grundarfjörður
SVEINSTINDUR stendur
við suðurenda Langasjávar
á Skaftártunguafrétti. Þeg-
ar gengið er upp á tindinn
sést ægifagurt útsýni yfir
hálendið í allar áttir, t.d.
fjóra stærstu jökla lands-
ins, fyrir norðan fjallið er
Langisjór sem er stórt
stöðuvatn, nokkrir tugir
kílómetra á lengd. Þar úti á
vatninu var einn bátur á
ferð á dögunum og í þeirri
einstöku kyrrð sem mynd-
ast á fjöllunum voru hljóðin
í honum greinileg alla leið
upp á tindinn sem er 1.090
metra hár. Morgunblaðið/Jónas Erlendsson
Á báti á
Langasjó
Fagridalur
Á DÖGUNUM voru veittar viður-
kenningar fyrir snyrtilega um-
gengni og umhverfi í Rangárþingi
ytra. Umhverfisnefndin undir for-
ystu Jóns Þórðarsonar hélt kaffi-
samsæti fyrir verðlaunahafa og
aðra gesti í Árhúsum á Hellu þar
sem viðurkenningarnar voru opin-
beraðar. Fram kom í máli Jóns að
þessar viðurkenningar væru frekar
seint á ferðinni vegna anna nefnd-
arinnar við önnur verkefni og fór
hann fram á það við verðlaunahafa
að mega auglýsa staðina sem fengu
viðurkenningar núna til sýnis á
næsta ári. Þá ætlar nefndin sér að
vera mun fyrr á ferðinni með við-
urkenningar fyrir 2004. Veitt voru
fern verðlaun að þessu sinni og birt-
ar meðfylgjandi umsagnir með
þeim:
Viðurkenning fyrir lóð: Gerður
Jónasdóttir fyrir Auðkúlu. Gerður
hefur með elju og dugnaði ræktað
lóð sína að Auðkúlu. Lóðin er vel
hirt, snyrtileg og vel frá gengin og
skartar mörgum tegundum jurta.
Þar er hið fræga kúluhús á árbakk-
anum gegnt Hellu, sem margir hafa
séð og þekkja.
Viðurkenning fyrir býli: Svan-
borg Jónsdóttir og Sæmundur B.
Ágústsson fyrir Bjólu. Að Bjólu er
umsvifamikill búrekstur. Á Bjólu er
umgengni eins og hún best gerist.
Íbúðarhús og lóð vel um gengin og
umgengni um útihús eins og best
gerist. Býli til mikillar fyrirmyndar.
Viðurkenning fyrir fyrirtæki: Ár-
mótabúið ehf. Mikil uppbygging á
stuttum tíma og vel frá öllu gengið.
Þarna er rekin ferðaþjónusta. Haf-
liði Halldórsson veitir viðurkenn-
ingunni viðtöku fyrir Ármótabúið
ehf.
Viðurkenning fyrir sumarhús:
Systkini og venslafólk fyrir sum-
arhús og lóð á „Tanganum“ í landi
Skarðs í Landsveit. Sannkallað æv-
intýraland. Lóðin er afar snyrtileg
og vel hirt. Sumarhúsin ætíð vel um
gengin og snyrtileg. (Hófst um
1958, systkinin eru börn Sigfúsar
Guðnasonar frá Skarði og Jónu
Jónsdóttur frá Kaldárholti í Holt-
um.)
Með viðurkenningunum fylgdi
stór útiblómapottur með trjáplönt-
unni Stjörnutopp ásamt áfestum
áletruðum skildi. Að auki fengu
verðlaunahafar viðurkenningarskjöl
og blómvendi.
Umhverfisviðurkenningar í Rangárþingi ytra
Auðkúla fékk viður-
kenningu fyrir lóðina
Morgunblaðið/Óli Már
Verðlaunahafarnir ásamt umhverfisnefndinni.
Hella
HAFFJARÐARÁ var lokað á
mánudag eftir frábært veiði-
sumar sem skilaði rúmlega 1.000
löxum. Að sögn Einars Sigfússon-
ar, annars af eigendum árinnar,
er þetta í annað sinn á rúmlega
tíu árum sem árin gefur af sér
meira en þúsund laxa og var
hann að vonum ánægður. Í gær-
morgun veiddist lúsugur lax í
Gretti, en sá veiðistaður er á
neðsta svæði árinnar, og í fyrra-
dag kom rúmlega sextán punda
hængur á land úr Nesodda, sem
er á efsta veiðisvæðinu.
Einar sagði að veiðin hefði ver-
ið jöfn í allt sumar þrátt fyrir lít-
ið vatn og veiðimenn hefðu í
gríni talað um að í ánni væri
fimmtíu prósent vatn og fimmtíu
prósent lax. Sú stefna hefði verið
í gangi í ánni að bjóða veiði-
mönnum upp á þann kost að
sleppa veiddum löxum og hefðu
margir valið að gera það. Margir
af þeim löxum sem sleppt hefur
verið eru sérstaklega merktir og
um tólf prósent af merktum löx-
um hafa endurveiðst í sumar. Ell-
efu punda hængur sem veiddist í
Gretti í fyrradag hafði til dæmis
verið veiddur áður af franskri frú
um miðjan júlí og vó þá rúmlega
fjórtán pund. Þótt ekki sé um
kerfisbundnar sleppingar að
ræða segir Einar boðið upp á
þennan kost með það í huga að
auka hlutfall stærri laxa í ánni,
þar sem það er talið auka hlutfall
stóra laxins í hrygningu.
Frábært veiðisumar í Haffjarðará
Lokað með rúm-
lega 1.000 laxa
Morgunblaðið/Guðrún G. Bergmann
Einar Sigfússon, annar eigandi
Haffjarðarár, og Guðlaugur Berg-
mann með ellefu punda lax sem sá
síðarnefndi veiddi í Gretti.
Hellnar
NOKKUR ár eru frá því að Mið-
firðingar byggðu nýja fjárrétt í
landi Brekkulækjar, eldri rétt var
í landi Litlu-Tungu sunnan Vest-
urár.
Gamli kaffiskúrinn þótti þá ekki
hæfur til flutnings og kaffiveiting-
ar við nýju réttina því framreiddar
við erfiðar aðstæður, m.a. í tjaldi.
Nýja húsið er járnklætt timb-
urhús, 60 fermetrar, með góðum
snyrtingum og eldunaraðstöðu.
Húnaþing vestra lagði eina milljón
króna til byggingarinnar, en að
öðru leyti var hún fjármögnuð af
Kvenfélaginu Iðju í Miðfirði með
eigin fé, sjálfboðavinnu og lántöku.
Heildarkostnaður er ekki undir 3,5
milljónum króna.
Fjöldi fólks kom í réttina í besta
veðri. Kvenfélagið framreiddi
kaffiveitingar að sínum hætti og
einnig var haldin tombóla. Gefið
var réttarhlé og settist fólkið niður
sunnan réttarinnar. Sr. Guðni Þór
Ólafsson og sr. Magnús Magnús-
son blessuðu húsið með þátttöku
gesta. Einnig minntist sr. Guðni
Þór ungs manns, Skúla Más Níels-
sonar á Fremri-Fitjum, en hann
lést af slysförum skammt norðan
við Arnarvatn á leið í göngurnar.
Nýtt kaffihús við
Miðfjarðarrétt
Morgunblaðið/Karl Á. Sigurgeirsson
Hvammstangi