Morgunblaðið - 10.09.2003, Síða 21
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 10. SEPTEMBER 2003 21
NÚTÍMADANSHÁTÍÐIN eða
Reykjavík dancefestival var haldin
hátíðleg í annað sinn laugardaginn
7. september. Hátíðinni, sem orðin
er árlegur viðburður, er ætlað að
vera kynningarvettvangur fyrir
sjálfstætt starfandi danshöfunda.
Að þessu sinni tróðu upp sex dans-
höfundar með jafnmörg sólóverk.
Allir hafa þeir stundað dansnám
um árabil og eru annaðhvort starf-
andi atvinnudansarar, danshöfund-
ar og/eða kennarar.
FOR I AM…
Danshöfundur og dansari: Sveinbjörg
Þórhallsdóttir. Tónlist: Rioji Ikeda. Bún-
ingar: Hildur Hafstein. Lýsing: Kári
Gíslason.
Sveinbjörg Þórhallsdóttir reið á
vaðið í sólóverki sínu For I am.
Klædd svörtum kjól dansaði hún
undir dramatísku selló- og fiðluspili
Rioji Ikeda. Í dansinum tjáir hún
togstreitu konu. Umfjöllunarefnið
er vandasamt og margbreytilegt
hlutverk kvenna. Hreyfingar
Sveinbjargar voru tregafullar og
andlitið lýsti af sársauka. Hún
hafði gott vald á hreyfingunum og
dansaði af öryggi. Það var stöðug
spenna í verkinu og hvergi slökun.
Meiri vídd í hreyfingum og breiðari
efnistök hefðu verið vel þegin.
Hvort tveggja var af skornum
skammti. Í minningunni er það
þjáningarfullt andlit dansarans og
þau skilaboð að það sé kvöl að vera
kona sem stendur eftir. Engu að
síður þá var verkið vel dansað og
ágætlega framsett.
TRANSITIONS
Danshöfundur og dansari: Nadia Ban-
ine. Tónlist: Terry Riley og Gavin
Bryars. Lýsing: Kári Gíslason.
Í verki Nadiu Banine lafir kaðall
niður úr loftinu. Í honum hangir
dansarinn á annarri hendinni.
Verkið fjallar um togstreitu, um að
vera kyrr eða fara. Undir drama-
tískri tónlist togast dansarinn á við
kaðalinn. Hann losnar frá en festir
sig aftur við hann. Hugmyndin er
falleg í einfaldleika sínum þótt
helst til of lítið eigi sér stað í fram-
vindunni. Tónlistin setur verkinu
jafnframt dramatískan ramma og
kallar á formfastar hreyfingar.
Hugmyndin að verkinu er einföld
og eflaust hægt að þróa hana
áfram.
SKISSA
Danshöfundur og dansari: Ástrós Gunn-
arsdóttir. Tónlist: Big toxic og mastr-
etta. Lýsing: Kári Gíslason.
Verk Ástrósar fjallar um konu
sem býr í vatni en finnur sig ekki í
heimi kvenna á landi. Verkið hefst
á síbyljandi teknó tónlist sem
minnti á neðansjávarhljóð. Dans-
arinn hreyfði sig liggjandi á gólfinu
í blárri, tærri lýsingu. Hreyfingar
hennar voru í líkingu við frumstætt
sjávardýr sem vex og rís brösug-
lega upp úr sjó. Verkið var brotið
upp með innkomu kvenna sem kon-
an eða vatnameyjan reynir að sam-
sama sig. Verkið innihélt frumleg-
ar, mjög vel útfærðar hreyfingar. Í
verkinu hefur höfundur slitið sig úr
viðjum jazzballettsins og sýnir á
sér nýja hlið sem dansari og höf-
undur. Verkið var vel unnið og
hefði getað staðið sem sólóverk án
kvennanna þriggja en sá þáttur var
kannski of ítarlegur.
Þetta var mjög vel dansað og at-
hyglisvert dansverk.
PORTRETT
Danshöfundur og dansari: Jóhann Freyr
Björgvinsson. Tónlist: Phill Niblock og
The Silver Mount Zion Memorial
Orchestra and Tra-la-la Band. Sviðs-
mynd og búningar: Jóhann Freyr Björg-
vinsson. Lýsing: Kári Gíslason.
Í Portretti Jóhanns Freys prýða
rammar sviðið. Jóhann dansar á
innhverfan máta og smjúga hreyf-
ingarnar út frá miðju líkamans.
Tónlistin er kaflaskipt fiðlu- og pí-
anótónlist. Dansarinn sem túlkar
hreyfingarnar með sjálfum sér rís
hnarreistur upp um miðbik verks-
ins og er hann þá klæddur jakka-
fötum. Verkið er vel dansað en rétt
eins og í fyrsta verki kvöldsins
saknaði undirrituð meiri breiddar í
efnistökum og hreyfingum. Verkið
hefur yfirbragð deyfðar þótt það sé
fallegt.
OUT OF BODY
Danshöfundur og dansari: Cameron
Corbett. Tónlist: The Silver Mount Zion
Memorial Orchestra and Tra-la-la Band.
Lýsing: Kári Gíslason.
Verkið hefst á að dansari rúllar
plasti utan af líkama sínu. Barna-
hjal sem búið er að klippa í takt
hljómar og dansarinn hreyfir sig á
heftan máta um sviðið en stendur
upp að lokum óstyrkum fótum.
Hugmyndin er ágæt og minnti
plastið á líknarbelg og fylgju og
hreyfingarnar á hreyfingar unga-
barns fram að 1. aldursári. Þetta
var stutt en hnitmiðað verk með
ágætlega útfærðum hreyfingum.
THE SECRET LIFE OF
A WALLFLOWER
Danshöfundur og dansari: Ólöf Ingólfs-
dóttir. Tónlist: Hallur Ingólfsson, Mich-
ael Nyman, Maslband, Shostakovitch,
Purcell, Balkantango, Bach, Rachman-
inov. Lýsing: Kári Gíslason. Búningaráð-
gjöf: Þórunn E. Sveinsdóttir. Sérstök
hjálparhella: Harpa Arnardóttir. Maður í
partíi: Felix Bergsson.
Síðasta verk kvöldsins fjallar um
konu sem lætur lítið á sér bera og
er afskipt innan um aðra en
blómstrar í einrúmi. Verkið á sér
stað í partýi. Innan um aðra er
konan nær ósýnileg en ein springur
hún bókstaflega út. Ólöf dansar
sjálf og túlkar kvenpersónuna sem
er mitt á milli þess að vera algert
viðrini og dálítið sérstök. Hún
byggir persónuna upp af öryggi og
kynnir hana með hreyfingum og
viðbrögðum við áreiti. Hún nær að
skapa sérlundaða, mjög sérstaka
konu sem vakti ómælda kátínu í
salnum. Þetta var vel uppbyggt
myndrænt dansverk, unnið af ör-
yggi og á frumlegan máta. Kær-
kominn endir á vel lukkuðu dans-
kvöldi.
Sólódansverk eru í eðli sínu
krefjandi. Dansverkin sex báru
höfundum sínum vitni um hugarró
og kjark. Ég tek ofan fyrir atvinnu-
dönsurum sem þróa eigin hreyf-
ingastíl eða skapa eftirminnilegar
persónur. Hafa kjark til að fikra
sig áfram og leita eftir nýjum hug-
myndum, innra með sér.
Síðustu sýningar eru 13.–14.
september.
Morgunblaðið/Kristinn
„Dansverkin sex báru höfundum sínum vitni um hugarró og kjark. Ég tek
ofan fyrir atvinnudönsurum sem þróa eigin hreyfingastíl eða skapa eftir-
minnilegar persónur.“ Sveinbjörg Þórhallsdóttir í verki sínu For I am…
LISTDANS
Borgarleikhúsið, Nýja sviðið
Sex verk: For I am, Skissa, Portrett,
Transitions, Out of Body, The Secret Life
of a Wallflower. Laugardagur 7. sept-
ember 2003.
REYKJAVÍK NÚTÍMADANSHÁTÍÐ 2003
Með
hjartað
að vopni
Lilja Ívarsdóttir
Landsbókasafn
Íslands – há-
skólabókasafn
gengst fyrir mál-
stofu í Þjóðarbók-
hlöðu kl. 16 á
morgun, fimmtu-
dag. Hún er í
tengslum við sýn-
ingu safnsins
Eins og í sögu –
samspil texta og myndskreytinga í
barnabókum 1910–2000.
Erindi flytja: Margrét Tryggva-
dóttir bók-
menntafræðing-
ur: Lestur upp á
líf eða dauða;
Þórarinn Eldjárn
rithöfundur, Sig-
rún Eldjárn
myndlistarmað-
ur: Málmynd og
myndmál og
Andri Snær
Magnason rithöfundur, Áslaug Jóns-
dóttir myndlistarmaður: Leiðin til
bláa hnattarins.
Málstofa í tengslum
við barnabækur
Þórarinn EldjárnÁslaug Jónsdóttir
FINNSKA listakonan Sari Maarit
Cedergren opnar sýningu á lág-
myndum úr steinsteypu og gifsi í
anddyri Norræna hússins kl. 17 í
dag, miðvikudag. Þar leikur hún
með samspil ljóss og skugga. Hug-
myndin er að endurspegla hið
hversdagslega veður sem við upp-
lifum daglega umhverfis okkur og
þann mikla fjölbreytileika og hreyf-
ingu sem býr í veðrabrigðunum, s.s.
rigningu, úða, þoku, dalalæðu,
mistri, snjó og skafrenningi. Sari
Maarit leitast við að setja þessi
óáþreifanlegu hugtök í áþreifan-
legan þvívíddarmassa. Verkin eru
öll unnin á þessu ári.
Hún er fædd 1965 í Grankulla í
Finnlandi en ólst upp í Stokkhólmi.
Hún hefur búið á Íslandi frá 1986.
Sari Maarit rekur galleríið Meistari
Jakob með fleirum.
Veðrabrigði í
þrívíddarmassa
Sari Maarit Cadergren að störfum.
Á KAFFI Mílanó í
Skeifunni stendur nú
yfir málverkasýning
Ingunnar Jensdóttur
og sýnir hún þar í
annað sinn.
Að þessu sinni
sýnir Ingunn silki-
og vatnslitamyndir.
Hún hefur margoft
sýnt myndir sínar í
Eden í Hveragerði
og víðar.
Ingunn á Kaffi Mílanó
Eitt verka Ingunnar á Kaffi Mílanó.
JÓN Helgason (1899–1986) verður
fyrsta skáld mánaðarins í bókasal
Þjóðmenningarhússins í vetur. Sýn-
ingin verður opnuð kl. 17 í dag, mið-
vikudag. Þar
verða til sýnis
nokkur verk með
ljóðum Jóns og
þýðingum, og sýn-
ishorn af störfum
hans sem fræði-
manns. Ljós-
myndir frá lífi
hans og starfi
prýða sýninguna.
Ögmundur
Helgason, forstöðumaður handrita-
deildar Landsbókasafns Íslands –
Háskólabókasafns, segir frá kynnum
sínum af Jóni Helgasyni. Fulltrúi
Skólavefjarins kynnir efni um og eftir
Jón á heimasíðunni skolavefurinn.is.
Skáld mánaðarins er samvinnu-
verkefni Þjóðmenningarhússins,
Landsbókasafns Íslands – Háskóla-
bókasafns og Skólavefjarins ehf. Þar
er birt umfjöllun um skáldin ásamt
völdum verkum eftir þau með orð-
skýringum, verkefnum, upplestri og
fleira. Vefslóðin er www.skolavefur-
inn.is/ljodskald/.
Sýningin stendur til 7. október.
Sýning í Þjóðmenningarhúsinu
Jón Helgason er
skáld mánaðarins
Jón Helgason,
skáld og prófessor.