Morgunblaðið - 10.09.2003, Blaðsíða 41
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 10. SEPTEMBER 2003 41
DAGBÓK
STJÖRNUSPÁ
Frances Drake
MEYJA
Afmælisbörn dagsins:
Þú ert hæf/ur og áreiðan-
leg/ur. Hefðir skipta þig máli
og þú sækist eftir festu í lífinu
þótt þú sért líkleg/ur til að
velja þér óvenjulegan maka.
Vinátta og félagslíf munu
setja svip sinn á komandi ár.
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Farðu varlega í að gera um-
bætur í vinnunni í dag. Mundu
að það eru tvær hliðar á hverju
máli. Það er hætt við að þú sjá-
ir ekki nema aðra þeirra.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Þú átt erfitt með að gera það
upp við þig hvort þú eigir að
láta hagsmuni heildarinnar eða
þínar eigin langanir ganga fyr-
ir í dag. Þetta er alltaf erfið
spurning.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Þú þarft að gera það upp við
þig hvort þú viljir sinna þörfum
þínum og fjölskyldu þinnar í
dag eða kröfum yfirboðara
þinna. Þetta er vandi sem
endurspeglar togstreituna á
milli heimilisins og vinnunnar.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Farðu sérlega varlega í um-
ferðinni í dag og á morgun og
hugsaðu þig tvisvar um áður en
þú talar. Það er fullt tungl og
það getur valdið misskilningi
og truflunum á samgöngum.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Gættu þess að eyða ekki um
efni fram í dag. Það er fullt
tungl og það er hætt við að það
geri þig skeytingarlausa/n um
fjárhagslegar skuldbindingar
þínar.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Það er hætt við spennu í sam-
skiptum þínum við maka þinn
og nána vini í dag. Reyndu að
sýna þínar bestu hliðar í erf-
iðum aðstæðum.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Þú þarft ekki að gera allt sem
ætlast er til af þér. Bíddu fram
í vikuna og íhugaðu möguleika
þína á árangri.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Forðastu deilur við vini þína í
dag. Vinátta ykkar skiptir
meira máli en hugsanlegt
deiluefni. Það er mikilvægt að
halda í gamla vini því þeir eru
hluti af reynsluheimi okkar.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Settu þig ekki upp á móti yfir-
manni þínum í dag. Reyndu að
halda ró þinni. Hlutirnir munu
líta betur út í lok vikunnar.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Þú þarft virkilega á því að
halda að taka þér stutt frí. Þú
þarft að breyta um umhverfi
auk þess sem þig langar til að
upplifa eitthvað nýtt.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Farðu varlega í viðræðum um
sameiginlegar skyldur og
verkaskiptingu. Taktu ekki á
þig meiri ábyrgð en þú getur
staðið undir.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Leggðu þig sérstaklega fram
um að vera liðleg/ur í sam-
skiptum. Mars er í merkinu
þínu og verður það enn um sinn
og það gerir þig erfiða/n í um-
gengni.
Stjörnuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
STAKA
Láttu smátt, en hyggðu hátt.
Heilsa kátt, ef áttu bágt.
Leik ei grátt við minni mátt.
Mæltu fátt og hlæðu lágt.
Einar Benediktsson
LJÓÐABROT
ÁRNAÐ HEILLA
TÍGULSJÖAN hefur sér-
staka þýðingu í breskum
spilaklúbbum, sem tengist
kráarsiðum Breta: Takist
sagnhafa að fá síðasta slag-
inn á tígulsjöuna hefur hann
þar með unnið sér inn bjór-
glas frá hverjum hinna spil-
aranna við borðið, báðum
mótherjum og makker. Eins
og gefur að skilja, getur
„bjórspilið“ haft mótandi
áhrif á spilamennskuna:
Norður
♠ G54
♥ D
♦ ÁG1097
♣G962
Vestur Austur
♠ 2 ♠ D98763
♥ 108653 ♥ Á72
♦ KD82 ♦ 3
♣D43 ♣K108
Suður
♠ ÁK10
♥ KG94
♦ 654
♣Á75
Hér er dæmi úr tvímenn-
ingskeppni í London. Suður
spilar þrjú grönd eftir opn-
un austurs á tveimur veik-
um spöðum og útspilið er
spaði. Sagnhafi tekur
drottningu austurs með ás,
spilar strax tígli að blindum
og fær slaginn á gosann.
Hann spilar næst tígultíu,
sem vestur tekur og skiptir
yfir í hjarta. Austur drepur
með ás og spilar aftur
hjarta.
Þróunin hefur verið sagn-
hafa afar hagstæð. Hann á
trygga tíu slagi og mögu-
leika á þeim ellefta ef hjar-
tatían fellur. Það er á þess-
um tímapunkti sem
tígulsjöan kemur inn í
myndina. Falli hjartatían
ekki fær vörnin síðasta slag-
inn og suður neyðist til að
borga bjórinn sinn sjálfur.
Með tilliti til þess kemur vel
til greina að dúkka lauf. Síð-
an má hirða toppslagina og
enda á tíglinum og taka síð-
asta slaginn á tígulsjöu.
Hvað gerði suður? Það
fylgdi ekki sögunni (sem er
úr bresku blaði), en aug-
ljóslega veltur slík ákvörðun
á því hvort sagnhafa þyrstir
meira í bjór en toppa.
BRIDS
Guðmundur Páll Arnarson
1. c4 e5 2. g3 g6 3. Bg2 Bg7
4. Rc3 Rc6 5. e4 d6 6. Rge2
Be6 7. d3 Rge7 8. Rd5 0–0 9.
Bg5 f6 10. Be3 Dd7 11. Dd2
Hab8 12. 0–0 f5 13. f3 b5 14.
Rec3 a6 15. Hae1 Rd4 16.
Rxe7+ Dxe7 17. Rd5 Dd7
18. Bxd4 exd4 19. exf5 Bxd5
20. cxd5 Dxf5 21. f4 Hfe8 22.
Be4 Dd7 23. f5 gxf5 24. Bxf5
Dd8 25. Be6+ Kh8 26. Hf7
Hf8 27. Hef1 Hxf7 28. Hxf7
De8 29. Dg5 Be5??
Staðan kom upp á Skák-
þingi Íslands, kvennaflokki,
sem lauk fyrir skömmu í
Hafnarborg í Hafnarfirði.
Sigurvegari mótsins, Lenka
Ptácníková (2.215), hafði
hvítt gegn Önnu Björgu
Þorgrímsdóttur (1.695). 30.
Hxh7+! Kxh7 31. Bf5+ Kh8
32. Dh6+ Kg8 33. Be6+ Df7
34. Dg6+ Bg7 og svartur
gafst upp um leið. Loka-
staða mótsins varð þessi: 1.
Lenka Ptácníkova 8½ vinn-
ing af 10 mögulegum. 2.
Guðfríður Lilja Grét-
arsdóttir 7½ v. 3. Harpa
Ingólfsdóttir 6½ v. 4.–5.
Anna Björg Þorgrímsdóttir
og Hallgerður Þorsteins-
dóttir 3½ v. 6. Elsa María
Þorfinnsdóttir ½ v. Þar sem
Lenka er tékkneskur rík-
isborgari varð Guðfríður
Lilja Íslandsmeistari í ell-
efta skipti.
SKÁK
Helgi Áss
Grétarsson
Hvítur á leik.
80 ÁRA afmæli. Í dag,miðvikudaginn 10.
september, er áttræður
Gunnar Guðmundsson,
fyrrverandi rafverktaki og
kaupmaður, Mosarima 23,
Reykjavík. Eiginkona hans
er Hallfríður Guðmunds-
dóttir. Þau eru að heiman í
dag.
50 ÁRA afmæli. Í dag,miðvikudaginn 10.
september, er fimmtugur
Jónas Bjarnason, for-
stöðumaður Hagþjónustu
landbúnaðarins á Hvann-
eyri. Unnusta hans er Anna
Karlsdóttir. Þau eru að
heiman á afmælisdaginn.
50ÁRA afmæli. Í dag,10. september, er
fimmtug Arna H. Jónsdóttir,
lektor og forstöðum. leik-
skólabrautar KHÍ, til heim-
ilis á Laugateigi 3 Reykja-
vík. Eiginmaður hennar er
Guðmundur Vignir Ósk-
arsson, framkvstj. Knatt-
spyrnufélagsins Þróttar.
Arna mun verja deginum
með fjölskyldu sinni.
60 ÁRA afmæli. Í dag,miðvikudaginn 10.
september, er sextugur
Kristján Guðmundsson,
framkvæmdastjóri og
fyrrv. bæjarstjóri, Hraun-
tungu 50, Kópavogi. Eig-
inkona hans er Margrét
Hjaltadóttir kennari. Þau
dvelja um þessar mundir
með fjölskyldu sinni austur í
Hreppum.
50 ÁRA afmæli. Í dag,10. september, er
fimmtugur Sigurgeir Að-
algeirsson, framkvstjóri,
Heiðargerði 13, Húsavík.
Eiginkona hans er Erla Kr.
Bjarnadóttir.
STÓRMEISTARINN Helgi Ólafs-
son (2.498) hóf Norðurlandamótið í
skák með glæsibrag og
sigraði stigahæsta kepp-
andann á mótinu,
danska stórmeistarann
Curt Hansen (2.618).
Helgi hafði hvítt í skák-
inni og upp kom kóngs-
indversk vörn. Á tímabili
virtist Daninn vera að ná
ágætum tökum á stöð-
unni, en þegar fór að
saxast á tímann hjá hon-
um náði Helgi að snúa
taflinu sér í vil og sigraði
í 62 leikjum.
Hannes Hlífar Stef-
ánsson (2.560) teflir
einnig á mótinu og hann
sigraði eina færeyska
þátttakandann, Flovin Tór Næs
(2.330), auðveldlega í fyrstu umferð. Í
annarri umferð mættust þeir Hannes
og Helgi síðan. Þeir sömdu um jafn-
tefli eftir stutta taflmennsku.
Í þriðju umferð bætti Helgi öðrum
sigri sínum við, en það var gegn
Flovin Tór Næs. Hannes hafði svart í
þriðju umferð gegn danska stórmeist-
aranum Lars Schandorff (2.525).
Hannes beitti slavneskri vörn og jafn-
aði taflið vandræðalaust. Hann hafn-
aði jafnteflisboði frá Schandorff og
tókst að ná betri stöðu. Skákinni lauk
síðan með mikilli tímaþröng Danans
sem þó náði að halda jafntefli í skák-
inni.
Eftir þrjár umferðir er Helgi Ólafs-
son í öðru sæti á mótinu með 2½ vinn-
ing, en sænski stórmeistarinn Jonny
Hector (2.538) er efstur:
1. Jonny Hector 3 v.
2. Helgi Ólafsson 2½
3.–5. Hannes Hlífar Stefánsson, Evgenij
Agrest og Curt Hansen 2 v.
6.–7. Heikki Kallio, Davor Palo 1½ v.
8.–10. Heikki Lehtinen, Einar Gausel og Lars
Schandorff 1 v.
11. Kjetil A. Lie ½ v.
12. Flóvin Þór Næs 0 v.
Hannes Hlífar Stefánsson er þriðji
stigahæsti keppandinn á mótinu, en
Helgi Ólafsson er í áttunda sæti. Átta
stórmeistarar og tveir alþjóðlegir
keppendur eru meðal þátttakenda:
SM Curt Hansen, Danmörku, 2.618
SM Evgenij Agrest, Svíþjóð, 2.605
SM Hannes Hlífar Stefánsson 2.560
SM Jonny Hector, Svíþjóð, 2.538
SM Einar Gausel, Noregi, 2.533
SM Lars Schandorff, Danmörku, 2.525
AM Davor Palo, Danmörku, 2.518
SM Helgi Ólafsson 2.498
SM Heikki Kallio, Finnlandi, 2.471
AM Kjetil A. Lie, Noregi, 2.440
FM Heikki Lehtinen, Finnlandi, 2.362
FM Flóvin Þór Næs, Færeyjum, 2.330
Teflt er daglega á mótinu, en
fimmtudagurinn 11. september er frí-
dagur. Umhugsunartíminn er 2 klst.
fyrir 40 leiki og síðan 1 klst. til að
ljúka skákinni.
Sigurður E. Kristjánsson
Íslandsmeistari öldunga
Sigurður E. Kristjánsson (1.930)
varð Íslandsmeistari öldunga eftir
harða keppni við meistara síðasta árs
Björn Þorsteinsson (2.242) sem varð
annar. Þriðji varð Halldór Garðars-
son (1.850). Það var Taflfélag Garða-
bæjar sem stóð fyrir mótshaldinu eins
og undanfarin ár, en það var opið öll-
um 60 ára og eldri. Sig-
urði býðst að vera
fulltrúi Íslands á Norð-
urlandamóti öldunga
sem fram í Sonderborg
í Danmörku dagana
11.–19. október.
Aukakeppni Skák-
þings Reykjavíkur
Aukakeppni um titil-
inn Skákmeistari
Reykjavíkur hefst
fimmtudaginn 11. sept-
ember. Þá eigast við
Jón Viktor Gunnars-
son, Stefán Kristjáns-
son, Bragi Þorfinnsson,
Björn Þorfinnsson,
Sigurbjörn Björnsson og Bergsteinn
Einarsson í keppni um titilinn Skák-
meistari Reykjavíkur 2003. Tefld
verður einföld umferð, allir við alla, og
lýkur keppninni sunnudaginn 14.
september.
Fyrsta laugardags-
æfingin hjá TR
Laugardaginn 13. september kl. 14
fer fram fyrsta skákæfing barna og
unglinga hjá Taflfélagi Reykjavíkur.
Ókeypis pizzur og gos fyrir alla. Öll-
um börnum og unglingum 15 ára og
yngri er heimilt að vera með, en þátt-
taka er ókeypis.
TR – Hrókurinn
Taflfélag Reykjavíkur og Skák-
félagið Hrókurinn mætast í undanúr-
slitum hraðskákkeppni taflfélaga
miðvikudaginn 10. september kl. 20.
Teflt verður í félagsheimili TR í Faxa-
feni 12.
Búast má við a.m.k. einum stór-
meistara í hvoru liði og svo er aldrei
að vita nema Hróksmenn styrki lið
sitt með erlendum skákmeisturum.
Áhorfendur eru velkomnir.
Skákdeild Hauka og Taflfélag
Vestmannaeyja mætast sama dag.
Viðureignin hefst kl. 20 og fer fram á
Ásvöllum í Hafnarfirði.
Atskákmót Reykjavíkur
Atskákmót Reykjavíkur fer fram
dagana 17. og 18. september og hefst
kl. 19 báða dagana. Á þessu skemmti-
lega móti eru tefldar sjö umferðir eft-
ir Monrad-kerfi með umhugsunar-
tímanum 25 mínútur á skák. Verðlaun
verða:
1. 12.000 kr.
2. 8.000 kr.
3. 5.000 kr.
4. Ókeypis í MP-mótið
5. Ókeypis í MP-mótið
Ef þátttaka fer yfir 35 hækka efstu
verðlaun í 20.000, 12.000 og 8.000.
Þátttökugjöld eru: 1.000 kr. fyrir
félagsmenn í taflfélögunum í Reykja-
vík 16 ára og eldri (kr. 1.500 fyrir
aðra) og 600 kr. fyrir félagsmenn í
taflfélögunum í Reykjavík 15 ára og
yngri (kr. 1.000 fyrir aðra).
Góð byrjun Helga
Ólafssonar á NM í skák
Helgi Ólafsson
Daði Örn Jónsson
SKÁK
Árósar, Danmörk
SKÁKÞING NORÐURLANDA 2003
6.–17.9. 2003
Félag eldri borgara í Kópavogi
Spilamennska er hafin á ný á
þriðjudögum og er því spilað tvisvar
í viku í Gjábakkanum, þ.e. á þriðju-
dögum og föstudögum.
Þriðjudaginn 2. sept mættu 18 pör
og þá urðu úrslitin þessi í N/S:
Jón Stefánsson – Þorsteinn Laufdal 273
Oddur Jónsson – Katarínus Jónsson 263
Albert Þorsteinss. – Sæmundur Björnss. 249
Og hæsta skorin í A/V:
Anna Lúðvíksd. – Kolbrún Ólafsd. 256
Eysteinn Einarss. – Magnús Halldórss. 243
Bent Jónsson – Garðar Sigurðsson 233
Föstudaginn 5. september mættu
20 pör og þá urðu úrslitin þessi í N/S:
Rafn Kristjánss. – Oliver Kristófss. 246
Lárus Hermannss. – Sigurður Karlss. 234
Vilhjálmur Sigurðss. – Þórður Jörundss. 233
A/V:
Eysteinn Einarss. – Magnús Halldórss. 265
Albert Þorsteinss. – Sæmundur Björnss. 247
Helga Helgad. – Sigrún Pálsd. 238
Meðalskor báða dagana var 216.
Bridsfélag Hafnarfjarðar
Vetrarstarf félagsins hefst mánu-
daginn 15. september og verður spil-
að í salnum í Flatahrauni 3.
Dagskráin fyrstu kvöldin verður
þannig:
15. sept.: eins kvölds tvímenningur
(mitchell)
22. sept.: eins kvölds tvímenningur
(mitchell)
29. sept.: hausttvímenningur (barometer)
6. okt.: hausttvímenningur (barometer)
13. okt.: hausttvímenningur (barometer)
Nánari upplýsingar um starfsem-
ina fram til áramóta verða gefnar
fljótlega.
Forgefin spil verða í öllum keppn-
um í vetur.
Spilamennska hefst kl. 19.30.
BRIDS
Umsjón Arnór G.
Ragnarsson
80 ÁRA afmæli. Í dag,10. september, er
áttræð Sólveig Gunn-
arsdóttir, Safamýri 56,
Reykjavík. Hún tekur á
móti ættingjum og vinum í
kvöld frá kl. 20 í veislusaln-
um í Hæðargarði 31.
Af hverju ætti ég að
tryggja bílinn minn fyrir
eldsvoða og þjófnaði? Hver
myndi svo sem stela út-
brunnum bíl?!