Morgunblaðið - 10.09.2003, Page 45
ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 10. SEPTEMBER 2003 45
LÆKNAR NBA-liðsins Orlando
Magic hafa ráðlagt forráðamönn-
um liðsins að hvíla eina af að-
alstjörnum félagsins, Grant Hill, á
næstu leiktíð. Hill hefur farið í
fjórar flóknar aðgerðir á ökkla
undanfarin þrjú ár og hefur hann
aðeins leikið 47 leiki af alls 246 á
þessum tíma. Hill er þrítugur að
aldri og lék með Detroit Pistons
áður en hann gerði „risasamning“
við Orlando í ágúst árið 2000 til
sjö ára og var samningurinn að
andvirði um 7,6 milljarða ísl. kr.
Fram til dagsins í dag hefur
Hill fengið 2,6 milljarða í laun
frá félaginu og frá tryggingafyr-
irtækjum eða um 55,3 milljónir
kr. fyrir hvern leik sem hann
hefur leikið með liðinu.
Hill segir sjálfur að hann von-
ist til þess að geta leikið með Or-
lando í febrúar á næsta ári og
hann telur að læknar liðsins hafi
rangt fyrir sér hvað varði tíma-
setningar á endurkomu hans.
Hill hefur fengið
um 55 milljónir
fyrir hvern leik
ÁTTA leikmenn þýska landsliðsins í
knattspyrnu eiga á hættu að verða í
leikbanni þegar það tekur á móti Ís-
lendingum í Hamborg í síðustu um-
ferð undankeppni HM í knattspyrnu
hinn 11. október. Þessir átta hafa
allir fengið eitt gult spjald í keppn-
inni og fara í bann ef þeir fá annað í
leiknum við Skota í Dortmund í
kvöld.
Áttmenningarnir eru Michael
Ballack, Christian Wörns, Carsten
Ramelow, Oliver Neuville, Christian
Rahn, Sebastian Kehl, Miroslav
Klose og Michael Hartmann. Þar af
fengu þeir Rahn, Kehl, Klose og
Hartmann allir að líta gula spjaldið
á Laugardalsvellinum á laugardag-
inn.
Tobias Rau afplánaði bann í leikn-
um gegn Íslandi og er í þýska hópn-
um á ný fyrir leikinn annað kvöld.
Þýsku leikmennirnir hafa samtals
fengið 16 gul spjöld í sex leikjum í
keppninni og tveir þeirra hafa þeg-
ar tekið út bann, þeir Rau og Tor-
sten Frings.
Til samanburðar hafa Íslendingar
aðeins fengið átta gul spjöld í 7 leikj-
um í keppninni. Jóhannes Karl Guð-
jónsson verður í banni í Hamborg
vegna tveggja gulra spjalda, og er
hann sá eini sem hefur farið í bann.
Átta Þjóðverjar á hættusvæði
FRIÐARSAMNINGAR hafa tek-
ist á milli Rudi Völlers, landsliðs-
þjálfara Þýskalands í knattspyrnu,
og sjónvarpsstöðvarinnar ARD,
sem sér um útsendingar frá lands-
leikjum Þjóðverja. Völler hellti sér
sem kunnugt er yfir fréttamann og
sérfræðing stöðvarinnar, Walde-
mar Hartmann og Günter Netzer,
í beinni útsendingu eftir leikinn
gegn Íslendingum á laugardags-
kvöldið. Þá sakaði hann m.a. Hart-
mann um að þamba bjór í vinnunni
og Netzer um að draga landsliðið
niður í skítinn og gera lítið úr mót-
herjum þess. Hann baðst síðan af-
sökunar á ummælum sínum um
Hartmann en ekki á öðru.
Nú hefur Völler fengið formlega
afsökunarbeiðni frá ARD og borin
hafa verið klæði á vopnin. „Völler
einlék út í horn en var fljótur að
koma sér aftur þaðan,“ sagði Heri-
bert Fassbender, íþróttafrétta-
stjóri stöðvarinnar. Völler mun
eins og áður mæta í beina útsend-
ingu stöðvarinnar eftir leikinn
gegn Skotum í kvöld og fara yfir
hann með Waldemar Hartmann.
„Það er erfitt að loka á það sem
á undan er gengið en nú verðum
við að setja punkt og einbeita okk-
ur að knattspyrnunni sjálfri. Ein-
beiting að leiknum sjálfum er það
sem skiptir öllu máli,“ sagði Völler
í gær.
Hann krafðist þess ennfremur
að leikmenn sínir gæfu allt sem
þeir ættu í leikinn gegn Skotum í
kvöld. „Það verða menn að gera
þegar þeir stíga fram á heims-
sviðið í fótboltanum. Í svona leik,
frammi fyrir svona áhorfendum, á
svona velli, verða menn að vera til-
búnir. Þið mynduð ekki trúa því
hverju ég myndi fórna fyrir að
geta sjálfur hlaupið um völlinn á
miðvikudagskvöld, bara ef ég væri
nokkrum kílóum léttari,“ sagði
Rudi Völler.
Sátt milli Völlers
og sjónvarpsins
Þjóðverjar töldu að eftir að þeirkomust í úrslitaleik heims-
meistarakeppninnar 2002 myndu
þeir verða Evrópumeistarar án
nokkurrar fyrirhafnar. En Skot-
land lék góða knattspyrnu gegn
þeim og það gerði Ísland líka. Al-
þjóðleg knattspyrna er að breytast
en vandamál Þjóðverja er að þeir
átta sig ekki á því,“ sagði Vogts á
blaðamannafundi í Dortmund í
gær.
Vogts sagði ennfremur að
skoska liðið gæti unnið alla, hvar
sem væri og hvenær sem væri.
„Við erum nógu sterkir til þess og
getum einbeitt okkur að því að
spila okkar leik en þurfum ekki að
hafa áhyggjur af Þjóðverjum.
Þetta er rétti tíminn fyrir okkur.
Liðið hefur mikið sjálfstraust, leik-
mennirnir trúa því sjálfir að þeir
geti sigrað og það er mjög já-
kvætt,“ sagði þessi fyrrum bak-
vörður vestur-þýska landsliðsins.
Hann taldi ennfremur að Rudi
Völler, þjálfari Þjóðverja, hefði
verið klókur þegar hann sendi
fréttamönnum og sérfræðingum
fjölmiðla tóninn eftir leikinn á
Laugardalsvellinum á laugardag-
inn var. „Það er mikil pressa á
þýsku leikmönnunum en með þess-
ari árás á fréttamennina létti hann
pressunni af þeim og tók hana á
sig sjálfur. Ég skil hans stöðu
mjög vel, þetta var vel tímasett
hjá honum,“ sagði Berti Vogts.
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Berti Vogts, þjálfari Skota, hafði ástæðu til að gleðjast með sínum mönnum á Laugardalsvelli fyrir
ári síðan. Nú sækir hann landa sína heim í Dortmund í kvöld.
Vogts seg-
ir Þjóð-
verja lifa í
fortíðinni
BERTI Vogts, landsliðsþjálfari Skota í knattspyrnu, sem á sínum
tíma gegndi sömu stöðu í heimalandi sínu, Þýskalandi, segir að
landar sínir lifi í fortíðinni og átti sig ekki á því að alþjóðleg knatt-
spyrna taki stöðugum breytingum. Vogts mætir með hina skosku
lærisveina sína til leiks í Dortmund í kvöld þar sem þjóðirnar mæt-
ast í lykilleik í 5. riðli undankeppni EM, leik sem skiptir jafnframt Ís-
lendinga geysilega miklu máli.
HEIÐAR Helguson, landsliðsmaður í
knattspyrnu, slasaðist á hné á æfingu
með liði sínu í Englandi, Watford, í gær,
og ljóst er að hann verður ekki með ís-
lenska landsliðinu í leiknum mikilvæga
gegn Þjóðverjum í Hamborg hinn 11.
október. Krossband tognaði og útlit er
fyrir að Heiðar verði frá æfingum og
keppni næstu 2–3 mánuðina.
„Þetta gerðist á æfingu hjá liðinu í
morgun, þar sem við spiluðum ellefu
gegn ellefu. Ég fékk sendingu innfyrir
vörnina en markmaðurinn kom á móti
mér og keyrði mig niður. Hann hitti
beint á hnéð á mér, en sem betur fór
slitnaði krossbandið ekki. Sjúkraþjálf-
arinn sagði mér þó að reikna með ein-
hverjum mánuðum frekar en vikum, en
þetta verður engin hálfs árs fjarvera.
Annars skýrist þetta betur þegar ég fer
í nánari skoðun og þá kemur í ljós hvort
ég þarf að fara í aðgerð á hnénu eða
ekki,“ sagði Heiðar við Morgunblaðið í
gær.
Heiðar sagði að það væri að sjálf-
sögðu leiðinlegt að missa af leiknum í
Hamborg en við því væri ekkert að gera.
„Þetta er það sem alltaf má búast við í
knattspyrnunni,“ sagði sóknarmaðurinn
kröftugi. Fjarvera hans er mikið áfall
fyrir landsliðið en Heiðar lék mjög vel
gegn Þjóðverjum síðasta laugardag og
baráttugleði hans átti drjúgan þátt í að
koma þýsku leikmönnunum úr jafnvægi.
Heiðar verður ekki
með í Hamborg
Morgunblaðið/Kristinn
Heiðar Helguson og
Oliver Kahn í orðaskaki
í leiknum á laugardag.