Morgunblaðið - 10.09.2003, Blaðsíða 48
48 MIÐVIKUDAGUR 10. SEPTEMBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ
KEFLAVÍK
Sýnd kl. 8 og 10. B.i. 12.
AKUREYRI
Sýnd kl. 6, 8 og 10. B.i. 12.
KRINGLAN
Sýnd kl. 6, 7, 8, 9 og 10. B.i. 12.
98% aðspurðra í USA sem höfðu séð myndina
sögðu “góð” eða“stórkostleg”!
98% aðspurðra í USA sem höfðu séð myndina
sögðu “góð” eða“stórkostleg”!
Frábær tónlist,
m.a. lagið Times
like these með
Foo Fighters
Sýnd á klukkutíma fresti
KVIKMYNDIR.IS
NÓI ALBINÓI
Sýnd kl. 5.30 og 10.30. B.i. 10 ára.
Sýnd. kl. 6. Enskur texti - With english subtitles
Sýnd kl. 10. B.i. 12 ára.
Sjáið allt um breska bíódaga
á www.haskolabio.is
Sýnd kl. 5.45, 8 og 10.15. B.i. 10 ára.
Fullkomið rán.
Svik. Uppgjör.
Skemmtilegasta spennumynd
ársins er komin..
Ofurskutlan Angelina
Jolie er mætt aftur öflugri
en nokkru
sinni fyrr í svakalegustu
hasarmynd sumarsins!
KVIKMYNDIR.IS
ÓHT RÁS 2
SG DV
MBL
KVIKMYNDIR.COM
Skonrokk FM 90.9
YFIR
40.00
0
GEST
IR!
kl. 8.kl. 8.kl. 5.50 og 10. kl. 8.
Plots
With a View
SV. MBL
SG DV
R. Ebert
H.K. DV
„Áhrifarík og lofsamleg.“
HJ. MBL
H.K. DV H.J. MBL S.G. DV
THE
MAGDALENE
SISTERS
kl. 8.
KVIKMYNDIR.IS
ROGER ROBERT
L.A. TIMES
BBCI
kl. 5.45 og 10.05.
NEI, Iron Maiden dansarekki við dauðann nemakannski í skáldatali tit-
illags plötunnar. Og klukkuna vant-
ar ekki heldur tvær mínútur í mið-
nætti! Sveitin, sem var stofnuð árið
1976 heldur ótrauð áfram og lék
t.d. fyrir sinn stærsta áhorf-
endahóp frá upphafi í hittiðfyrra, á
Rokk í Ríó hátíðinni (250.000
manns!)
Hér á eftir fara nokkrar at-
hugasemdir meðlima sjálfra um
löndunina og vinnsluna á Dauða-
dansinum.
Bruce, Steve og Adrian
Bruce Dickinson (söngur):
„Dance of Death er á margan
hátt ævintýralegri plata en Brave
New World. Að mínu mati var síð-
asta plata pottþétt, næsta „venju-
leg“ Iron Maiden plata. Þessi er um
margt persónulegri og hér eru
skrítnari lög inni á milli.“
[…]
„Mörg laganna hér eru nokkuð
dulræn. Oft finnst mér gaman
þegar hlutirnir eru ekki alveg
augljósir. Endingartíminn er
lengri ef hlutirnir eru sveipaðir
dulúð.“
[…]
„Iron Maiden hefur alltaf ver-
ið dálítið upptekin af sögulegum
viðburðum og lög eins og
„Montsegur“ og „Paschendale“
lúta þeim lögmálum. Það er bara
svo mikið af frábærum sögum
sem er gaman að segja. Mér
finnst skemmtilegra að greina
frá einhverju sem hefur átt sér
stað í alvörunni heldur en að
vera spinna upp einhvern ópus.“
[…]
„Ég hlakka mikið til að fara að
túra. Þetta verður bara betra og
betra. Lagalistinn er orðinn að
hálfgerðri fjársjóðskistu. Á nýja
túrnum munum við líka spila á
minni stöðum og þannig þurfum við
að vera í meiri nálægð við áhorf-
endur en við höfum verið á þessum
hátíðum.“
Steve Harris (bassi):
„Þegar við tókum upp Brave
New World voru þrír gítarar teknir
upp í einu. Það höfðum við aldrei
prófað áður og það virkaði vel.
Enda erum við þannig á tónleikum.
Og það er það sama með þessa nýju
plötu.“
[…]
„Dance of Death er að mörgu
leyti hrárri en Brave New World.
En það var ekkert sem við reynd-
um endilega að ná fram. Það bara
þróaðist þannig.“
[…]
„Nicko (McBrain, trymbill) er
með lag á plötunni, „New Front-
ier“. Við vorum auðvitað dálítið
hissa því að hann er búinn að vera
með okkur í tuttugu ár og þetta er
fyrsta lagið hans. Hann samdi lagið
á bassa. Fínt lag og grípandi.“
Adrian Smith (gítar):
„Fyrsta smáskífan er „Wildest
Dreams“, stuðlag mikið. Það gefur
auga leið að það er ekki mjög skyn-
samlegt að byrja á því að gefa út
níu mínútna epík! Þetta er lag sem
allir eru búnir að læra að syngja
eftir fyrstu hlustun. Það gefur auga
leið að það var sniðugt
að byrja á því að gefa
það út.“
[…]
„Eftir Ríó hlóðum við
rafhlöðurnar. Ég spilaði
varla neitt í ár, sem er
eiginlega ekki nógu gott
ef satt skal segja. Ég var
óþekkur! En svo fer
mann að kitla og við hóf-
um að semja síðastliðinn
vetur.“
[…]
„Það var gaman að
spila aftur á Donington.
Þá er maður í heima-
landinu og maður vill
vanda sig. Allir vinir manns eru
mættir og byrja að hringja í mann á
fullu og sníkja miða! En það var
frábært … meira að segja veðrið
var gott.“
Nicko, Dave og Janick
Nicko McBrain (trommur):
„Það var auðvelt að hljóðrita
plötuna en stundum eru sum lög-
in svolítið snúin. Það var eitthvað
skrýtið við þessa plötu … þetta
var eitthvað svo … rólegt.“
[…]
„Uppáhaldslagið mitt er auð-
vitað lagið mitt! Nei, ég segi
svona, ætli „Montsegur“ sé ekki
uppáhaldslagið mitt á plötunni
því að það er svo mikið „Maid-
en“-lag.“
[…]
„Það er gaman að skrifa inn á
heimasíðuna okkar (www.iron-
maiden.com). Einhverjum fannst
það voða sniðugt að ég myndi
skrifa einhvers konar dagbók
eins og er víst lenska í dag. Ég fór
að skrifa á fullu eftir að ég eign-
aðist forláta fartölvu og ég hef
mjög gaman af þessu“
Dave Murray (gítar):
„Að mínu mati er þessi plata til
muna framsæknari en síðasta
plata. Það eru fleiri nótur, meira af
strengjum og meiri ópusar. Við
svona reyndum meira á okkur í
þetta skipti.“
[…]
„Það gengur glettilega vel að
skipta sólóunum á milli okkar. Við
erum þrír núna og stundum er
pláss fyrir þrjú sóló í einu lagi.
Stundum er bara eitt sóló og þetta
er voðalega bróðurlegt allt saman.
Þetta er mikið til á þessa leið: „Vilt
þú taka það? Nei, ég er alveg til í að
taka það. Ertu viss um að þér sé
sama?“
[…]
„Platan er 68 mínútur að lengd
en samt er fullt af dóti sem var ekki
notað. Kemur sér vel næst!“
Janick Gers (gítar):
„Ég slæst aldrei við Eddie á svið-
inu að fyrra bragði. Alla vega er
það aldrei æft eða neitt svoleiðis.
Málið er bara það að ef hann slær
til mín þá slæ ég til baka! Eitt sinn
var hann svo stór að ég gat hlaupið
í gegnum klofið á honum og þá náði
hann mér ekki …“
[…]
„Það er best að vera uppi á sviði.
Þó að það sé allt í hassi þar gerir
maður alltaf sitt besta. Rokk og ról
gengur dálítið út á hið óvænta og
því er sviðið alveg málið. Hljóðverið
getur verið dálítið sterílt.“
Iron Maiden gefur út Dance of Death
Meðlimir Iron Maiden hafa alla tíð verið miklir grallarar inn við þungarokksbeinið.
Villtir draumar rætast
Hljóðversplötur Iron Maiden
– Iron Maiden (1980)
– Killers (1981)
– The Number of The Beast (1982)
– Piece of Mind (1983)
– Powerslave (1984)
– Somewhere in Time (1986)
– Seventh Son of a Seventh Son
(1988)
– No Prayer for The Dying (1990)
– Fear of The Dark (1992)
– The X Factor (1995)
– Virtual Eleven (1998)
– Brave New World (2000)
– Dance Of Death (2003)
Lukkudýrið Eddie er ekki langt undan þegar
kemur að listrænni hönnun nýju plötunnar.
Dance of Death er 13.
hljóðversplata Iron
Maiden. Og þrátt fyrir
myrkan titilinn virðist
þessa öldnu þunga-
rokkssveit seint ætla að
þrjóta örendi.
Arnar Eggert Thor-
oddsen talar
frá vígstöðvunum.
ALLT síðan John B braust fram á
sjónarsviðið snemma á árinu 1998
með sína fyrstu breiðskífu, Visions,
hefur hann verið talinn hæfileikarík-
asti trommu- og bassalistamaður
sinnar kynslóðar. Áður en Visions
kom út var hann eins og
lög gera ráð fyrir búinn
að gefa út slatta af tólf-
tommum og byggja
þannig upp orðsporið
en með Visions varð hann loks að
þekktri stærð í fræðunum.
John B er enn tiltölulega ungur að
árum, fæddur á því herrans ári 1977.
Þrátt fyrir það nýtur hann ómældrar
virðingar innan trommu- og bassa-
geirans. Ekki síst þykir fjölhæfni
hans mikil og bræðir hann djass,
fönk, raftónlist og tæknó saman við
sína útgáfu af trommu og bassa. B er
klassískt menntaður og sýndi
snemma fram á að hann myndi engan
veginn sníða dansbuxur sínar eftir
sama formi og aðrir dansboltar. Eitt
af fyrstu verkum hans var t.d. nýgilt
verk í anda Reich, samið fyrir tólf pí-
anó!
Það voru svo þeir félagar Fabio og
Grooverider sem komu B á trommu-
og bassalyktina á sínum tíma í gegn-
um Kiss-útvarpsstöðina í Lundúnum.
„Ef tromma og bassi væru ekki til
væri ég líklega að dufla við tæknó,“
er haft eftir B. „Eða þá að ég væri að
vinna á tilraunastofu.“
Ári eftir að Visions kom út gaf B út
plötuna Catalyst á eigin merki, Beta
Recordings. Í gegnum Beta-merkið
stýrir hann svo mikið til starfsemi
sinni, sem nær frá útgáfu og endur-
hljóðblöndunum til skipulagningar
plötusnúðakvölda, svo fátt eitt sé tal-
ið. B er óhemju afkastamikill á öllum
þessum sviðum en þess má til gam-
ans geta að hann kláraði próf í raun-
vísindum fyrir tveimur árum eða svo
og hafði stundað list sína í hjáverkum
fram að því. Hann var ekki viss um
hvað hann vildi gera í framhaldinu en
segist ánægður með það í dag að
hann skyldi velja tónlistina. Það er
breakbeat.is sem flytur John B inn til
landsins og verður hann að sjálf-
sögðu aðalnúmerið í uppákomu þeirri
sem breakbeat.is stendur fyrir á
Airwaves (sem fram fer 15.–19. októ-
ber).
John B á Airwaves
John B
Sá (B)esti?
www.icelandairwaves.com