Morgunblaðið - 14.09.2003, Blaðsíða 1
STOFNAÐ 1913 248. TBL. 91. ÁRG. SUNNUDAGUR 14. SEPTEMBER 2003 PRENTSMIÐJA ÁRVAKURS HF. mbl.is
Týnda
dóttirin
Sandra Gregory segir sögu sína
öðrum til viðvörunar 18
Stormur
Sólveigar
Vestmannaeyingur fremur en Íslend-
ingur eða Frakki Sunnudagur 1
Umdeildur
og ögrandi
Reynir að fá fólk til að hugsa og
spyrja sig spurninga Fólk 40
SAMGÖNGUNEFND Reykjavíkur ætlar
til Mið-Evrópu í október að kynna sér al-
menningssamgöngur á borgarsvæðum sem
eru sambærileg að stærð og höfuðborgar-
svæðið hér á landi.
„Þessar evrópsku borgir hafa margar
tekið í notkun svokallaðar léttlestir, light
rail, sem eru ofanjarðar og því miklu ódýr-
ari en neðanjarðarlestarkerfi sem borga sig
ekki nema í milljónaborgum. Við höfum
mikinn áhuga á að kynna okkur þessar al-
menningssamgöngur,“ segir Árni Þór Sig-
urðsson, formaður samgöngunefndar.
Árni Þór bendir á að land sé auðlind og
ekki skynsamlegt að nýta sífellt meira rými
undir umferðarmannvirki, hvort sem það
eru mislæg gatnamót eða bílastæðahús.
„Lestarkerfi er raunhæfur kostur og nán-
ast óhjákvæmilegur. Ef þessi kerfi, sem við
erum að fara að kynna okkur, teljast arð-
bær og skynsamleg fjárfesting þykir mér
einboðið að við könnum málið nánar og
tengjum það stefnumótunarvinnu í sam-
göngumálum.“
10–12 milljarðar í mislæg gatnamót
Árni Þór bendir á að áætlaður kostnaður
við mislæg gatnamót á mótum Kringlumýr-
arbrautar og Miklubrautar með öllum teng-
ingum nemi 10 til 12 milljörðum króna. Sú
framkvæmd kalli líklega síðar á frekari
framkvæmdir við nærliggjandi gatnamót.
„Þarna eru milljarðar á milljarða ofan.
Mér skilst hins vegar að hver kílómetri við
lagningu lestarspors ofanjarðar kosti um
milljarð. Fyrir öll þessi mislægu gatnamót
væri hægt að fjárfesta í nokkuð góðu lest-
arkerfi.“
Borgin
kynnir
sér létt-
lestarkerfi
Óheftur vöxtur/12
ÍSLENDINGAR
eru langmesta
bíóþjóð Evrópu
samkvæmt
nýrri skýrslu,
Cinemagoing
Europe, sem
fyrirtækið Dodona Research hefur sent
frá sér. Rannsóknin tekur til ársins 2002
og leiða niðurstöðurnar m.a. í ljós að Ís-
lendingar fóru 5,55 sinnum í bíó í fyrra
en Írar koma næstir með 4,42 heimsókn-
ir.
Íslendingar bera einnig höfuð og
herðar yfir aðrar Evrópuþjóðir þegar
kemur að neyslu popps og kóks og ann-
arra veitinga í kvikmyndahúsum. Að
meðaltali eyðir íslenskur bíógestur sem
nemur 3,01 evru eða um 270 krónum í
fasta og fljótandi fæðu við hverja heim-
sókn í kvikmyndahús, en Bretar, sem
koma næstir, eyða aðeins tæpum tveimur
evrum eða um 180 krónum.
Gráðugir
gestir kvik-
myndahúsa
Gaggalagó í bíó/B12
AÐ MINNSTA kosti fjörutíu og tveir biðu bana þeg-
ar öflugur fellibylur skall yfir Suður-Kóreu í fyrri-
nótt. Tuttugu og fjögurra er enn saknað. Suður-
hluti landsins varð verst úti í veðurofsanum en á
myndinni sést hvernig skip, sem nú er notað sem
hótel, hefur lagst á hliðina í óveðrinu í höfn borg-
arinnar Pusan. Fellibylurinn skall á suðurströnd
Suður-Kóreu skömmu fyrir dögun og olli bæði flóð-
um og aurskriðum. Lestir fuku af spori sínu og
nokkur skip gjöreyðilögðust. Rafmagn fór af þús-
undum heimila og margir þurftu raunar að flýja
heimili sín.
AP
42 dóu í óveðri í S-Kóreu
DREGIÐ hefur saman með fylkingunum fyrir
þjóðaratkvæðagreiðsluna í Svíþjóð í dag um
hvort Svíar eigi að gerast aðilar að myntbanda-
lagi Evrópusambandsríkjanna (EMU) og taka
upp hinn sameiginlega gjaldmiðil evruna. Þá hef-
ur óákveðnum kjósendum fjölgað verulega í kjöl-
far morðsins á Önnu Lindh utanríkisráðherra.
Samkvæmt skoðanakönnun Temo sem blaðið
Dagens Nyheter birti í gær sögðust 46% kjós-
enda ætla að greiða atkvæði gegn evrunni en 40%
voru hlynnt upptöku hennar. 14% kjósenda sögð-
ust hins vegar óákveðin. Í könnun sem Temo
gerði á þriðjudag og miðvikudag voru hlutföllin
48% á móti og 42% með en 10% voru óákveðin.
Könnun sem gerð var á vegum Gallup fyrir
Expressen benti aftur á móti til að fylkingarnar
væru jafnar og að stuðningsmenn evrunnar væru
komnir í meirihluta. 43% sögðust hlynnt evrunni
en 42% andvíg. Munurinn er ekki marktækur.
15% sögðust vera óákveðin í könnun Gallup.
Alls hafa fjórar skoðanakannanir verið gerðar
eftir morðið á Lindh. Samkvæmt tveimur þeirra
eru andstæðingar enn í miklum meirihluta, fylk-
ingarnar eru hnífjafnar í einni og loks eru stuðn-
ingsmenn evrunnar með forystu í þeirri fjórðu.
Óvissan er því mikil fyrir kosningar og sænskir
stjórnmálaskýrendur treysta sér ekki til að spá
fyrir um úrslitin. Bent er á að mikil hreyfing hafi
verið á kjósendum fyrir morðið á Lindh og jafn-
framt sé ljóst að margir kjósendur muni láta til-
finningar ráða atkvæði sínu. Það gæti aukið
stuðning við evruna eftir morðið. „Það er vel
hugsanlegt að fólki þyki óþægilegt að greiða at-
kvæði gegn því er Anna Lindh barðist fyrir,“
sagði einn sérfræðingur við fréttastofuna Direkt.
Fjöldi óákveðinna kjósenda gerir jafnframt erf-
iðara að spá fyrir um úrslitin og því hefur verið
spáð að margir muni skila auðu. Kannanir bendi
til að margir kjósendur hafi ekki mikla sannfær-
ingu með eða á móti evrunni.
Bosse Ringholm, fjármálaráðherra Svíþjóðar,
sagði við fréttamenn eftir fund evrópskra fjár-
málaráðherra á föstudag að ef evran yrði felld
ættu Frakkar að hluta til sök á því. Vísaði hann til
þess að franska stjórnin virðist ætla að sniðganga
skilmála stöðugleikasáttmálans með aðgerðum
sínum í ríkisfjármálum. „Fólk spyr sig hvers
vegna við eigum að eiga samstarf við ríki er fara
ekki eftir reglunum,“ sagði Ringholm.
Tvö dagblöð birtu myndina
Tvö sænsk dagblöð, Aftonbladet og Express-
en, birtu í gær mynd úr eftirlitsmyndavél versl-
unarmiðstöðvarinnar NK í Stokkhólmi, en talið
er að myndin sé af manninum sem myrti Lindh.
Myndin er tekin á þriðju hæð verslunarmiðstöðv-
arinnar, þremur mínútum áður en maðurinn
réðst á Lindh á 2. hæð hússins. Andlit mannsins
var máð út á myndunum sem blöðin birtu, en
hann er íklæddur ljósgrárri hettupeysu og með
bláleita derhúfu á höfði. Þannig lýstu vitni klæðn-
aði árásarmannsins og lögregla fann svipaðan
fatnað utan við verslunarmiðstöðina eftir árásina.
Aukin óvissa og minni
munur milli fylkinga
Reuters
Morðið á Önnu Lindh, utanríkisráðherra
Svíþjóðar, hefur vakið sterk viðbrögð.
Stokkhólmi. Morgunblaðið, AFP.
FULLTRÚAR ríkjanna fimm, sem
hafa neitunarvald í öryggisráði Sam-
einuðu þjóðanna, reyndu í gær að ná
sáttum um ályktun varðandi Íraks-
málin á fundi sem fram fór í Genf í
Sviss. Fyrr um daginn hafði Banda-
ríkjaher viðurkennt að fyrir mistök
hefðu „vinveittir“ Írakar verið felldir
aðfaranótt föstudags í bænum Fall-
ujah. Átta liðsmenn írösku lögregl-
unnar biðu bana þegar bandarískir
hermenn skutu á þá, auk eins jórd-
ansk öryggisvarðar.
Fyrir fundinn í Genf hafði Colin
Powell, utanríkisráðherra Banda-
ríkjanna, kallað nýjustu hugmyndir
Frakka, sem gera ráð fyrir því að
írösk bráðabirgðastjórn yrði tekin
við stjórnartaumunum innan mánað-
ar og að kosningar verði haldnar
næsta vor, „algerlega óraunhæfar“.
„Það væri frábært ef þetta væri
hægt en svo er ekki,“ sagði Colin
Powell á fundi með fréttamönnum
sem fylgdu honum til Genf um hug-
myndir Dominiques de Villepins, ut-
anríkisráðherra Frakklands, en þær
kynnti de Villepin í grein í blaðinu
Le Monde á föstudag. „Það er auð-
velt að kasta fram góðum kenning-
um um fullveldi og hernám, lausn úr
ánauð og svo framvegis, en hvað
varðar raunhæf markmið þá getur
þetta ekki gerst á svona skömmum
tíma,“ sagði Powell einnig.
Fundað um Íraks-
málin í Genf í Sviss
Harma
atburð í
Fallujah
Genf. AFP, AP.
♦ ♦ ♦