Morgunblaðið - 14.09.2003, Blaðsíða 8
FRÉTTIR
8 SUNNUDAGUR 14. SEPTEMBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ
Það er ekki hægt að „delete“ þessu, við erum búin að fá offramleiðsluvírusinn í
græjurnar, Emma mín.
Þróunarlönd og þróunaraðstoð
Hlutur Íslands
í brennidepli
RÁÐSTEFNA ummálefni þróunar-landa og þróunar-
aðstoð Íslands verður hald-
in á morgun, mánudaginn
15. september, kl. 13 til 17 í
Hátíðarsal Háskóla Ís-
lands. Það eru Þróunar-
samvinnustofnun Íslands,
utanríkisráðuneytið og Há-
skóli Íslands sem boða til
ráðstefnunnar. Morgun-
blaðið ræddi af þessu tilefni
við Sighvat Björgvinsson,
forstöðumann Þróunar-
samvinnustofnunar Ís-
lands.
Hvert er tilefni þessarar
ráðstefnu?
„Tilefnið er tvíþætt. Í
fyrsta lagi eru nú liðin tutt-
ugu og tvö ár síðan að lög
um þróunaraðstoð Íslands
voru sett. Barnsskónum
hefur því verið slitið og vel
það og því tímabært að efna til ráð-
stefnu af þessu tagi þar sem þró-
unarmálin og þróunaraðstoðin eru
reifuð bæði frá íslenskum og al-
þjóðlegum sjónarhólum. Seinna
tilefnið er, að á ráðstefnunni verð-
ur lögð fram alhliða úttekt sem
unnin hefur verið um stöðu Íslands
í þessum málaflokki fyrir tilstuðl-
an Halldórs Ásgrímssonar utan-
ríkisráðherra. Jónas Haralz, fyrr-
verandi bankastjóri, einn þeirra
sem hafa unnið þessa úttekt kynn-
ir hana. Það er því ýmislegt á bak
við þessa ráðstefnu og í fyrsta
skipti að ég hygg að svo umfangs-
mikil ráðstefna sé haldin hér á
landi um umræddan málaflokk.“
Hvert er svo markmið ráðstefn-
unnar?
„Markmið ráðstefnunnar er að
vekja athygli á þróunarsamvinnu
Íslendinga og málefnum þróunar-
landa. Miklar breytingar hafa orð-
ið á samvinnu hinna svokölluðu
þróunarlanda og þróaðra ríkja á
síðastliðnum árum, bæði hvað
varðar stefnu og aðferðir. Á ráð-
stefnunni verður fjallað um þróun-
armál frá alþjóðlegu sjónarhorni,
um þróunaraðstoð Íslendinga, tví-
hliða aðstoð og marghliða, auk
þess sem fulltrúar frjálsra félaga-
samtaka gera grein fyrir hlutverki
sínu í þróunarsamvinnu.“
Hvað geturðu sagt okkur um
dagskrána og fyrirlesara?
„Við erum með sérstakan gesta-
fyrirlesara sem hingað er kominn
fyrir tilstilli forseta Íslands, Ólafs
Ragnars Grímssonar. Hann varð
við beiðni okkar og hafði milli-
göngu um að fá hingað dr. Jeffrey
D. Sachs sem er forstjóri Jarðar-
stofnunarinnar, The Earth Instit-
ute, við Columbiaháskóla í New
York og prófessor í þróunarhag-
fræði og heilbrigðisfræðum við
sama skóla. Hann gegnir einnig
starfi sem sérlegur ráðgjafi fram-
kvæmdastjóra Sameinuðu þjóð-
anna, Kofi Annan, auk þess að hafa
verið ráðgjafi Alþjóðagjaldeyris-
sjóðsins, Alþjóðabankans og Þró-
unarstofnunar Sameinuðu þjóð-
anna, meðal annarra mikilvægra
starfa.“
Um hvað mun hann
tala?
„Dr. Sachs mun fjalla
um þróunaraðstoð og
hlutskipti þróunar-
landa með sérstöku til-
liti til þúsaldarmarkmiða Samein-
uðu þjóðanna sem samþykkt voru
á leiðtogafundi samtakanna haust-
ið 2000.“
Hvað verður fleira?
„Jónas Haralz, fyrrverandi
bankastjóri, mun fjalla um ís-
lenska þróunaraðstoð og nefnist
erindi hans: Milli bjargálna og
þroska. Þrovaldur Gylfason pró-
fessor mun halda erindi um auð-
lindir, lýðræði og hagþróun og
Gísli Pálsson, umdæmisstjóri
ÞSSÍ í Namibíu, flytur erindi um
tvíhliða þróunaraðstoð og aðferðir
sem henta smáríki eins og Íslandi.
Hermann Ingólfsson, aðstoðar-
maður aðalfulltrúa Norður-
landanna og Eystrasaltsríkjanna í
stjórn Alþjóðabankans, mun fjalla
um þróunaraðstoð alþjóðastofnana
og nýjar áherslur í samstarfi
þeirra við þróunarlönd og loks
stígur á stokk Nína Helgadóttir,
fulltrúi Rauða krossins og Hjálp-
arstofnunar kirkjunnar, með fyr-
irlestur um hlutverk frjálsra fé-
lagasamtaka í þróunarsamvinnu.
Þar verður m.a. tekinn fyrir hinn
stóri munur á neyðarhjálp annars
vegar sem snýst í aðalatriðum um
að gefa svöngum manni að borða
og hins vegar þróunarhjálp sem
snýst í aðalatriðum um að hjálpa
svanga manninum að afla sér sjálf-
ur matar.“
Er ráðstefnan öllum opin?
„Já, hún er það og ég á von á
góðri þátttöku.“
Hvað viltu sjá í kjölfarinu?
„Í úttekt þeirra Jónasar og Her-
manns sem ég gat um áðan eru
meðal annars lagðar fram tillögur
að stefnumörkun til næstu ára. Ís-
lendingar eru mikill eftirbátur
flestra annarra ríkja í aðstoð við
þróunarríki. Við erum ein af fimm
ríkustu þjóðum heims en leggjum
eigi að síður miklu minna af mörk-
unum til þróunarmála en t.d. hin
Norðurlöndin og helmingi minna
heldur en Evrópusam-
bandið miðað við verga
þjóðarframleiðslu.
Þetta er ekki gott og við
erum gjarnan spurð
hvernig á þessu standi.
Þó verður að segjast
eins og er, að árið 1997 voru sam-
þykkt lög, fimm ára áætlun þar
sem framlag Íslands var aukið
verulega. Í kjölfarið á ráðstefnunni
vænti ég þess að ný og að minnsta
kosti sambærileg stefnumótun til
næstu fimm ára verði lögð fram af
stjórnvöldum og gangi það eftir
förum við loks að nálgast Evrópu-
meðaltalið.“
Sighvatur Björgvinsson
Sighvatur Björgvinsson er
fæddur 23. janúar 1942. Stúdent
frá MA 1961 og stundaði nám í
viðskiptafræði við HÍ áður en
hann ritstýrði Alþýðublaðinu
1968–75. Sat á Alþingi 1974 til
2001 og gegndi m.a. stöðu fjár-
málaráðherra, heilbrigðis- og
tryggingaráðherra og þing-
flokksformennsku fyrir Alþýðu-
flokkinn. Hætti í stjórnmálum og
tók að sér forstöðu Þróunarsam-
vinnustofnunar Íslands.
Íslendingar
eru mikill eft-
irbátur flestra
annarra ríkja
Hómópatanám
Um er að ræða 4ra ára nám sem byrjar
4. og 5. okt. á vegum College of
Practical Homoeopathy í Bretlandi.
Mæting 10 helgar á ári í Reykjavík.
Kennarar með mikla reynslu
Upplýsingar gefur Martin í símum
5674991 og gsm 897 8190.
Hómópataskólinn CPH stofnuð 1993
www.homoeopathytraining.co.uk
Langar þig...
að fræðast um allt sem vitað er um
líf eftir dauðann og um dulræn
mál í skemmtilegum og ódýrum skóla
eitt kvöld í viku?
• Langar þig að vita hvað eru afturgöngur,
líkamningar, álfar, huldufólk, fjarskynjun,
fyrirboðar, berdreymi, svifjógar, ærsladraugar,
eða bara hvers vegna skilaboð koma að handan?
• Langar þig að vita hvar látnir vinir þínir
og vandamenn hugsanlega og líklegast eru í dag?
Í örugglega skemmtilegasta skólanum í bænum,
í glaðværum og jákvæðum hópi nemenda
eitt kvöld í viku fyrir hófleg skólagjöld?
Hringdu og fáðu allar upplýsingar um
langskemmtilegasta skólann í bænum í dag.
Við svörum í símann alla daga vikunnar kl. 13-19
Ef svo er þá átt þú kannski samleið með okkur
og yfir 1.100 ánægðum nemendum
Sálarrannsóknarskólans síðastliðinn áratug.
Sálarrannsóknarskólinn
- langskemmtilegasti skólinn í bænum
Síðumúla 31 • s. 588 6060
FIMMTA heimsráðstefna þjóðgarða
og friðlýstra svæða var sett í upphafi
vikunnar í Durban í Suður-Afríku en
að sögn Árna
Bragasonar, for-
stöðumanns Um-
hverfisstofnunar,
sem situr ráð-
stefnuna, er hún
haldin á tíu ára
fresti. Markmið
ráðstefnunnar er
að fara yfir stöðu
náttúruverndar-
mála í heiminum
og leggja línurnar
í þessum málaflokki fyrir næsta ára-
tuginn.
„Á fundinum í Durban eru 2.500
manns, sérfræðingar í málefnum
þjóðgarða og friðaðra svæða frá
flestum löndum heims. Yfirskrift
fundarins nú er „Benefit beyond
Boundaries“ og þar er lögð áhersla á
að ræða þátt friðaðra svæða í varð-
veislu lífsbreytileika, hlutverk svæð-
anna í sjálfbærri framtíð heimsins,
hvert hlutverk friðaðra svæða verð-
ur til að tryggja fæðu og erfðaefni til
framtíðar.“
Nýting skipulögð svo að
hún verði sjálfbær
Árni segir að á fundinum hafi
einnig verið undirstrikuð sú stefnu-
mörkun sem sett hafi verið fyrir tíu
árum að nýtingu lands þurfi að
skipuleggja þannig að hún sé sjálf-
bær og skerði ekki gæði lands og
möguleika afkomenda.
„Um 150 fundir eru haldnir í allt
þessa tíu daga í Durban og á þeim er
þekkingu þátttakenda safnað saman
og henni komið á framfæri við rík-
isstjórnir og fundi þar sem bindandi
ákvarðanir eru teknar.“
Nelson Mandela, fyrrverandi for-
seti S-Afríku, er verndari ráðstefn-
unnar.
2.500
manns á
heimsráð-
stefnu
þjóðgarða
Árni Bragason