Morgunblaðið - 14.09.2003, Blaðsíða 10
10 B SUNNUDAGUR 14. SEPTEMBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ
ferðalög
Þ
að er í sjálfu sér nóg að rölta
um götur Mílanó, horfa á
fjölbreytilegan arkitektúr
borgarinnar og stinga sér
annað slagið inn í port, verslanir eða
kaffihús til að kynnast ólíkri menn-
ingu og venjum.
Upptalning mín á gönguferðinni
um miðborgina einkennist af versl-
unum og veitingahúsum en það er
einfaldlega vegna þess að það er auð-
veldara í ókunnugri borg að finna
sjálfur söfn og frægar byggingar en
góð veitingahús og skemmtilegar
búðir. Centro storico er innsti kjarni
Mílanó ef svo má að orði komast og
elsta hverfi borgarinnar. Ef lagt er
af stað frá Duomo liggja þaðan
nokkrar göngugötur eins og og að-
alverslunargata Mílanó, corso Vitt-
orio Emanuele. Hér er krökkt af
búðum og kaffihúsum. Athugið fyrst
verðið áður en þið setjist niður því
þessi kaffihús eru oft mjög dýr og á
ítölskum kaffihúsum kostar oft
meira að drekka sitjandi en stand-
andi við barborðið. Það er alltaf mik-
ið líf í miðborginni og oft eru þar
götulistamenn, sölumenn og misgóð-
ir tónlistarmenn sem reyna eftir
fremsta megni að næla sér í smá pen-
ing. Flestar búðir í miðborginni eru
opnar alla daga vikunnar frá klukkan
10 til 19:30. Bílastæði eru dýr í mið-
borginni og vandfundin svo að það er
best að þvælast um með neðanjarð-
arlestinni eða bara ganga, því mið-
borgin er alls ekki svo stór.
3.400 styttur prýða dómkirkjuna
Dómkirkjan eða Duomo, er tákn
borgarinnar og ein stærsta trúarlega
bygging Evrópu. Bygging kirkjunn-
ar hófst 1386 og var henni ekki lokið
fyrr en 1966. Hún er mjög heillandi,
einföld að innan en stórkostleg að ut-
an og hvorki meira né minna en 3.400
styttur prýða hana. Það er mjög
gaman að fara uppá þak kirkjunnar
og virða fyrir sér útsýnið yfir Mílanó.
Það er stundum sagt að heill fót-
boltavöllur gæti komist fyrir á þaki
kirkjunnar.
Við hlið dómkirkjunnar er galleria
Passerella, sem er yfirbyggð göngu-
gata og þar er dýrt að fá sér kaffi-
bolla eða að borða. Þar er m.a. mynd
af nauti steypt í gangstéttina og ef
þið snúið ykkur heilan hring á tippi
nautsins mun ykkar bíða gæfa! Í
þessari göngugötu er m.a. Levi’s-
búðin, bókabúðir og fleira áhugavert.
Galleria Passerella liggur að
piazza della Scala eða hinu marg-
fræga óperuhúsi Scala. Óperuhúsið
lætur lítið yfir sér að utan en innan
dyra er það stórglæsilegt. Vinstra
megin við óperuna er safn óperunnar
fyrir þá sem hafa áhuga á slíku.
Við hliðina á Scala er kaffihús
tískuhönnuðarins Trussardi eða
Marino alla Scala sem aðallega er
stundað af fjármálasnillingum Míl-
anó enda er verðbréfahöllin hinum
megin við hornið. Klassískur staður
sem hentar bæði til morgunverðar,
hádegisverðar og til að fá sér lyst-
auka að kvöldi.
Stórskrítnir viðskiptavinir
En aftur að verslunargötum mið-
borgarinnar. Corso Vittorio Em-
anuele liggur að torginu san Babila
og corso Venezia og þar eru aðallega
verslanir með fínum merkjum en líka
með ódýrari búðum eins og Ben-
etton, Zara og Stefanel.
Við göturnar via della Spiga, via
del Gesú, via Borgospesso, via Santo
Spirito og via Montenapoleone finnið
þið hins vegar frægustu og dýrustu
merki Ítala eins og Dolce & Gabb-
ana, Miu Miu, Prada og svo fram-
vegis. Það er þess virði að ganga
þessar götur þó að buddan sé tóm, til
að láta sig dreyma og virða fyrir sér
margbreytilega og stórskrítna við-
skiptavini þessa hverfis.
Via Manzoni er síðan önnur versl-
unargata á sama svæði en í dýrari
kantinum, þar er m.a. verslun Paul
Smith og verslunarmiðstöð Armani
sem er þess virði að heimsækja.
Verslunarmiðstöð Armani leynir á
ýmsu; bókaverslun, blómaverslun,
fötum og húsgögnum. Eftir heim-
sóknina til Armani er tilvalið að fá
sér snarl eða kaffi og með því á Arm-
ani café. Ef ætlunin er að fá sér
kvöldmat á veitingastaðurinn Nobu
betur við. Eldhúsinu á Nobu er
stjórnað af einum af besta kokki
heims, Nobuyuki Matsuhisa. Þessi
japanski veitingastaður, sem er einn
af þeim vinsælustu í borginni, er í
dýrari kantinum en þess virði.
Ef hungrið steðjar að meðan
gengið er um fínni verslunargötur
Mílanó er ekki annað hægt en að
kíkja við hjá Luini sem er einn fræg-
asti „panzerotti“ staður Mílanóbúa.
Panzerotti er steikt brauð með moz-
arellaosti og tómat inni í, gómsætt og
þess virði að prufa. Eini gallinn er að
það þarf að borða úti á götu. Rétt hjá
Luini er lítið torg með bekkjum þar
sem hægt er að borða í ró og næði.
Stjörnusafn í garðinum
Við corso Venezia er einn af görð-
um Mílanó, parco Venezia, þar er fínt
að ganga um til að losna augnablik
við umferðaröngþveitið eða bara til
að fá sól á kroppinn. Í garðinum er til
dæmis gamalt stjörnusafn il Planet-
ario Ulrico Hoepli. Það er alltaf mik-
ið af fólki í þessum garði og enginn
kippir sér upp við það ef fólk leggst í
sólbað.
Rétt hjá þessum garði er gamalt
og virt hótel, Hótel Diana. Það þarf
að ganga í gegnum móttökuna á Hót-
el Diana til að komast út í risastóran
og stórglæsilegan bakgarð þar sem
vinsælt er að fá sér lystauka eftir
langan vinnudag. Eins og gengur og
gerist með bari í Mílanó er boðið upp
á ókeypis snarl með, í þetta skiptið
framleitt af kokkum hótelsins og er
óþarfi að borða kvöldmat eftir við-
komu á Diana.
Við hliðina á garðinum er „Pac“,
sem er einn af viðurkenndustu sýn-
ingarsölum Mílanó. Þar eru oft
spennandi sýningar.
Gamalt listamannahverfi
Ef farið er nú til baka til Scala og
gengið niður götuna hægra megin
við Scala er komið í hverfi sem heitir
Brera, via Brera, via Fiori Chiari, via
Solferino. Brera er gamalt lista-
mannahverfi sem gaman er að skoða
og mæli ég sérstaklega með heim-
sókn að kvöldi til þegar líf færist í
hverfið og ólöglegir innflytjendur
sópast að til að selja ólöglegan varn-
ing, svo sem merkjatöskur á niður-
settu verði. Þarna eru líka mörg
kaffihús þar sem hægt er að sitja úti.
Meðal þeirra er frægt kaffihús, Jam-
aica, þar sem sami andinn ríkir og
1921 þegar kaffihúsið var opnað.
Margir frægir listamenn Ítala hafa
vanið komur sínar í hverfið um árin
enda er listaakademían í 100 metra
fjarlægð. Í Brera eru einnig margar
skemmtilegar verslanir og margar
antíkbúðir.
Heimatilbúinn matur
Það er kominn tími til að benda á
ekta ítalskt veitingahús. Í hjarta
borgarinnar er veitingastaðurinn
trattoria Bagutta sem er nærri sjötíu
ára gamall staður og hluti af kúltúr
borgarinnar. Það er nauðsynlegt að
fara þangað til að smakka heima-
tilbúinn mat og til að virða fyrir sér
óborganlegt umhverfi sem einkenn-
ist m.a. af einstökum römmum á
veggjunum með gömlum matseðlum
og gömlum myndum.
Sissi er ítölsk kona gift Afríku-
manni og eigandi einnar þekktustu
kökubúðar Mílanó, Pasticceria Sissi.
Þjónarnir, sem eru Afríkumenn, ein-
kenna þennan litla bleika sælkera-
stað. Fín kökubúð og um leið kaffi-
hús og tilvalið til að fá sér
morgunmat, enda eru hér bæjarins
bestu morgunbrauð Ítala sem kallast
brioche og ekki er verra að lítill bak-
garður gerir allt ennþá notanlegra.
Það er gaman að heimsækja Cast-
ello Sforzesco sem er kastali frá því
um 1400, við enda via Dante. Innan
veggja hans er m.a. að finna forn-
minjasafn, hljóðfærasafn,vopnasafn
og bókabúð. Auk þess er hægt að
skoða kastalann sjálfan sem er sá
eini sinnar tegundar í borginni.
Góð veitingahús og
skemmtilegar búðir
Nýstárlegur bókamarkaður í Brera-hverfinu.Ávaxtasali í Naviglio-hverfinu býður viðskiptavinum sínum glæný ber og ávexti.
Mílanó á Ítalíu hefur upp á margt að bjóða. Systa
Björnsdóttir hefur verið búsett í borginni í ellefu ár.
Hún röltir hér um miðborgina og bendir á staði sem
hún heldur að Íslendingar geti haft gaman af að skoða.
Kaffihúsið Marino alla Scala
Café
piazza Paolo Ferrari
Sími: 02/80688295
www.marinoallascala.com
Museo Teatro alla Scala
piazza della Scala
Sími: 02/8879473
www.teatroallascala.org
Dómkirkjan
Duomo
piazza del Duomo http://
web.kyoto-inet.or.jp/org/orion/
eng/hst/gothic/milanoc.html
Verslunin Fiorucci Galleria
Passarella 2
Sími: 02/76022452
www.Fiorucci.it
Verslanamiðstöðin Armani
via Manzoni 31 (aðalinngangur)
Veitingastaðurinn Nobu via
Pisoni 1
Sími: 02/62312645
Kaffihúsið Armani café
via Crocerossa 1 angolo via dei
Giardini
Sími: 02/62312680
www.giorgioarmani.com
Luini via S.Radegonda 16
Sími: 02/86461917
www.luini.it
Skemmtigarðurinn Parco
Venezia og il Planetario Ulrico
Hoepli corso Venezia 57
Sími: 02/2895785
www.milanoin.it/parchi_giard-
ini/giardini_pubblici.htm
www.brera.mi.astro.it/~planet
Skemmtilegt hótel að heim-
sækja Diana garden (Hotel
Diana) viale Piave 42
Sími: 02/20522081
www.venere.it/it/milano/
sheratondianamajestic/
Sýningarsalurinn PAC via
Palestro 14
Sími: 02/76009085 www.pac-
milano.org
Kaffihúsið Bar Jamaica via
Brera 32 02/876723 www.-
giamaicabar.it
Ítalska veitingahúsið Bag-
utta via Bagutta 14
Sími: 02/76000902
www.bagutta.it Kökubúðin
Pasticceria Sissi p.zza Ris-
orgimento 6
Sími: 02/76014664
Kastalinn Castello Sforzesco
piazza Cairoli
www.milanocastello.it
Rölt um fjölbreytileg hverfi miðborgar Mílanó á Ítalíu
Höfundur er búsettur í Mílanó.
Apartment Hotel
VALBERG
Nýuppgerðar ferðamannaíbúðir í klassísku húsi frá 1903.
Ertu á leiðinni til Köben?
Athugaðu íbúðahótelið í
miðbæ Kaupmannahafnar.
Frábær nettilboð í september.
Sendu inn fyrirspurn á íslensku.
www.valberg.dk