Morgunblaðið - 21.09.2003, Qupperneq 9
Ódýrari bílaleigubílar
fyrir Íslendinga.
Bílar frá dkr. 1.975,- pr. viku.
Innifalið í verði; ótakmarkaður akstur,
allar tryggingar.
(Afgr. gjöld á flugvöllum).
Aðrir litlir og stórir bílar 6-7 manna,
minibus og rútur.
Sumarhús og íbúðir.
Norðurlönd og Mið - Evrópa.
Hótel. Heimagisting. Bændagisting.
www.fylkir.is sími 456-3745
Bílaleigubílar
Sumarhús
DANMÖRKU
Allar nauðsynlegar upplýsingar fyrir
þá sem eru á leið til Færeyja eru á
slóðinni www.visittorshavn.fo
Nýtt lággjaldaflugfélag, Nordic Airlink,
ætlar sér stóra hlutdeild í farþegaflutn-
ingum á milli Osló og Stokkhólms. Tals-
menn félagsins, sem er í eigu Finnair,
segjast ætla að bjóða þriðjungi lægri far-
gjöld en SAS en árlega ferðast um 800 þús-
und farþegar milli höfuðborga Noregs og
Svíþjóðar.
Lægsta SAS-fargjald fyrir dagsmiða
fram og til baka er núna 42 þúsund krónur
en Nordic Airlink mun bjóða miðann á 29
þúsund krónur. Annað lággjaldafélag,
Norwegian, boðar komu sína á sama mark-
að og selur miðann á sex þúsund krónur.
Þegar flugáætlanir þessara félaga verða
komnar til framkvæmda í október verður
hægt að velja um 46 ferðir á milli Osló og
Stokkhólms á hverjum degi.
Flogið 46
sinnum á dag
frá Osló til
Stokkhólms
Ferð til Nýfundnalands
Dagana 20.–23. nóvember verður Vestfjarðaleið
með ferð til St. John’s á Nýfundnalandi. Um er að
ræða skemmti- og verslunarferð sem farin er nú
sjötta árið í röð. St. John’s er höfuðstaður Ný-
fundnalands og á að baki litríkari sögu en aðrar
borgir Kanada. Hún hefur verið viðkomustaður og
mikilvæg höfn í 500 ár, en borgin er elsta og aust-
asta hafnarborg Norður-Ameríku.
Flogið er í beinu leiguflugi Atlanta að fimmtudags-
morgni og lent 09.30 að staðartíma. Brottför heim
er um kvöldmatarleyti á sunnudagskvöldinu. Flug-
tími er 3–3,5 klst. Gist er á hótel Newfoundland og
á hótel Holiday Inn. Fararstjórar Vestfjarðaleiðar
verða farþegum til aðstoðar og leiðsagnar í ferð-
inni og fyrirfram er hægt að fá upplýsingar um
menningarviðburði og annað sem kann að vekja
áhuga. Ferðin kostar frá 46.900 krónum á mann.
Innifalið er flug, gisting, rúta frá flugvelli að hóteli
(ekki til baka), flugvallaskattar og fararstjórn, en
morgunverður er ekki innifalinn.
VR-ávísun gildir sem 5.000 kr greiðsla inn á ferð-
ina.
Bókanir og allar nánari upplýsingar eru
veittar á ferðaskrifstofu Vestfjarðaleiðar,
Hesthálsi 10,
110 Reykjavík.
Sími:. 5629950/5876000
Fax. 567 49 69, Tölvupóstfang: info-
@vesttravel.is Vefslóð: www.vesttravel.is
VIÐ finnum að fólk er í auknum
mæli til í að skella sér í stuttar
ferðir til útlanda og með skömm-
um fyrirvara,“ segir Birna Guð-
mundsdóttir, verkefnisstjóri hjá
Flugleiðum. Fyrstu 6 mánuði árs-
ins hefur sala um vef Flugleiða
nær fjórfaldast frá fyrra ári og síð-
ustu mánuði hefur annar hver far-
þegi bókað farmiðann á vefnum.
Birna segir Netsmelli Flugleiða
vinsæla en þá er flugfarið keypt á
Netinu á lægra verði en ella. Auk
þess segir hún að í netklúbbi Flug-
leiða sé þriðji hver Íslendingur en
meðlimir fá reglulega send tilboð
um ferðir út í heim ásamt ýmsum
sérferðum. „Oft bjóðum við þar
nokkurra daga ferðir en áfanga-
staðirnir eru allir álíka vinsælir.
Sérferðirnar eru allt frá stuttum
tónleika- eða fótboltaferðum upp í
lengri ferðir til Costa Rica eða
jafnvel Afríku.“
20.000 manns séu í tilboðsklúbbi
ferðaskrifstofunnar. Hann segir
að sumum henti sá möguleiki að
grípa ferðatilboð á lækkuðu verði
með skömmum fyrirvara á meðan
aðrir vilji hafa vaðið fyrir neðan sig
og panta með góðum fyrirvara og
ákveða þar með áfangastaðinn og
gististaðinn í tíma.
Um 15% viðskiptavina ferða-
skrifstofunnar hafa í sumar farið á
tilboði en dæmi um tilboð eru tveir
farseðlar á verði eins til Veróna á
Ítalíu og afsláttur af skipulögðum
ferðum til Spánar nú á haustdög-
um.
með tilboðsklúbb á Netinu sem
30.000 manns séu skráðir í. Þar fá
félagar tilboð um fargjöld á sér-
kjörum og einnig er þeim bent á
viðburði á áfangastöðum þeim sem
flogið er til. Viðbrögð við tilboðum
sem þar birtast segir Ólafur að séu
gríðarlega sterk og iðulega seljist
farseðlar á tilboðsverði upp á svip-
stundu.
Tveir fyrir einn
Heimsferðir eru iðulega með til-
boð á farseðlum og skipulögðum
ferðum og Andri Már Ingólfsson,
forstjóri Heimsferða, segir að um
Áttatíu prósent kaupa á Netinu
Hjá Iceland Express kaupa yfir
80% farþega miðana sína á Netinu.
Ólafur Hauksson, talsmaður Ice-
land Express, segir að það sem
ekki seljist á Netinu sé selt í gegn-
um síma eða á söluskrifstofu fé-
lagsins svo og hjá ferðaþjónustu-
aðilum bæði innlendum og
erlendum.
„Þetta er miklu hærra söluhlut-
fall en við áttum von á og fyrir
bragðið höfum við lagt mikla
áherslu á að flýta uppfærslu á bók-
unarkerfi félagsins á Netinu.
Þá erum við með vefsíðuna í
endurskoðun og stefnum að því að
auka upplýsingaflæðið til muna og
gera aðgang greiðari að gisti-
möguleikum og afþreyingu og
benda á möguleika á tengiflugi til
annarra áfangastaða.“ Ólafur seg-
ir að Iceland Express sé einnig
Farmiðasala á
Netinu slær
öll met
Morgunblaðið/Ásdís
Þriðji hver Íslendingur er nú meðlimur í netklúbbi Flugleiða.
Helmingur þeirra, sem kaupa flugfarseðla hjá Flugleiðum, kaupir þá nú á Netinu
og áttatíu prósent farþega hjá Iceland Express. Flestar ferðaskrifstofur eru komn-
ar með tilboðsklúbba á Netinu þar sem síðustu sæti eru boðin á lækkuðu verði.
ÁRLEGA leggja fjölmargir Ís-
lendingar leið sína til Portúgals
og flestir þá til syðsta hluta
landsins, héraðsins Algarve. Sól-
arlandafarar sem þangað koma
dvelja þá gjarnan í Albufeira,
sem er stærsti ferðamannabær-
inn í héraðinu.
Ekki alls fyrir löngu var opn-
aður veitingastaður í Albufeira
sem heitir O’Cacho, eða vín-
berjaklasi. Staðurinn er í eigu
hjónanna Fernöndu og Santosar
og yfirþjónn er Luis Garcia og
sér hann meðal annars um að
velja vín með matnum en veit-
ingastaðurinn skartar sérstök-
um vínkjallara þar sem veigarn-
ar eru geymdar við rétt hitastig.
Vindlar eru einnig geymdir við
rétt hita- og rakastig í þar til
gerðum kassa.
mat. Og það sem meira er, þjón-
ar sjá um að brytja matinn fyrir
krakkana þannig að foreldrarnir
geta notið veitinga í ró.
Matseðillinn er einfaldur en
lagt er upp úr því að hafa fiskinn
ferskan og eitt af því sem gerir
staðinn skemmtilegan er að
brauðið er heimabakað og for-
réttirnir búnir til á staðnum en
þá fær fólk þegar það sest til
borðs. Fernanda sér um að gera
eftirréttina.
Séu börn með í för sýna þjón-
arnir þeim virðingu og létta for-
eldrunum lífið með því að koma
með matinn til þeirra aðeins áð-
ur en fullorðna fólkið fær sinn
Morgunblaðið/Skúli
Yfirþjónninn Luis Garcia í vínkjallaranum.
Létta foreldrum lífið
á Vínberjaklasanum
Morgunblaðið/Skúli
Merki staðarins er meðal annars
bróderað í servietturog dúka.
O’Cacho,
Rua do Município,
Sími 00289-585-044.
Tölvupóstfang: cacho@on-
inet.pt
HINN 1. október verður farið að
bjóða upp á lúxusrútuferðir milli
New York og Boston.
Rútan ber nafnið LimoLiner og
fer alla virka daga milli borganna.
Rútan fer frá Hilton New York-hót-
elinu á Manhattan og síðan til baka
frá Hilton Boston Back Bay-hótelinu
í Boston.
Rútuferðin er hugsuð fyrir fólk í
viðskiptum en pláss er fyrir 28 far-
þega. Í rútunni er t.d. fundarborð,
eldhús og nokkur sjónvarpstæki .
Farið fram og til baka kostar 138
dollara eða um ellefu þúsund krónur.
Frá New York til
Boston í lúxusbíl
Nánari upplýsingar fást á slóð-
inni
www.limoliner.com.