Morgunblaðið - 21.09.2003, Qupperneq 10
10 B SUNNUDAGUR 21. SEPTEMBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ
ferðalög
„SAUMAKLÚBBURINN
var búinn að safna lengi og
átti þrjátíu ára afmæli svo
við ákváðum að gera eitt-
hvað skemmtilegt,“ segir
Ásta Sæmundsdóttir sem fór
ásamt saumaklúbbnum sín-
um í gönguferð um tvo þjóð-
garða í Pýreneafjöllunum í
júní síðastliðnum.
„Ferðin var alveg stór-
kostleg og ekki síst vegna
þess að í hópnum okkar var
svo skemmtilegt fólk, já-
kvætt og á líkum aldri. Hópurinn
náði einstaklega vel saman og það
var mikið hlegið, sagðir brandarar
og ort ljóð. Við vorum fimm
saumaklúbbskonurnar en í allt vor-
um við á þriðja tug Íslendinga í
þessari ferð sem var skipulögð af
Úrvali-Útsýn. Steinunn Harðar-
dóttir var fararstjórinn okkar.
Gengið var um tvo þjóðgarða á
Spáni, Aigüestores y Sant Maurici
í Katalóníu og Ordesa y Monte
Perdído í Aragóníu.“
Sum þorpin í eyði
„Við flugum til Barcelona og vor-
um komin á hótel uppi í fjöllum um
miðja nótt. Það var í raun erfiðasti
hluti ferðarinnar að vera um miðja
nótt farþegi í rútu, hálfbílveikur,
að keyra upp þrönga fjallvegi.
Strax morguninn eftir vorum við
sótt og ekið með okkur í jeppum í
þjóðgarðinn Aigüestores y Sant
Maurici í Katalóníu. Við gengum í
nokkra daga eftir gömlum þjóð-
leiðum á milli lítilla þorpa í fjalls-
hlíðunum sem sum hver voru í
byggð en önnur í eyði. Yfirleitt var
gengið 10–16 kílómetra á dag eftir
þessum grýttu stígum. Síðasta
daginn gengum við svo inn Ordesa-
dalinn og til baka eftir einstigi á
stöllum hátt yfir dalnum og síðan
niður krákustíga í snarbrattri
fjallshlíðinni. “
Þegar Ásta er spurð hvort það
að ganga með þessum hætti uppi í
fjöllum sé eingöngu á færi göngu-
garpa segir hún að flestir sem eitt-
hvað hafi hreyft sig geti tekið þátt
í svona göngu. „Það má segja að
erfiðleikastuðullinn í þessari ferð
sé svipaður og við að ganga Lauga-
veginn.“
Innt eftir landslaginu segir hún
að þó að þjóðgarðarnir hafi verið
ólíkir þá sé landslagið fallegt og
hrikalegt í senn í þeim báðum og
allt skógi vaxið.
Eiginmönnum boðið með næst
Í ferðinni var gist á hótelum,
misgóðum þó, segir Ásta, og þar
var borðaður morgunverður og
kvöldverður.
„Steinunn, fararstjórinn okkar,
fór hins vegar á markað á morgn-
ana og keypti inn brauð, álegg,
ávexti og grænmeti og þessu skipt-
um við niður í bakpokana okkar til
að borða svo í hádeginu. Einn úr
hópnum tók að sér að vera dúka-
meistari. Sá hinn sami bar vaxdúk-
inn í sínum poka og valdi áning-
arstaðinn í hádeginu. Hann breiddi
út dúkinn og við borðuðum saman.
Þetta voru dýrindis kræsingar og
oft góð stemning sem skapaðist í
kringum þær.“
Þegar forvitnast er um hvort
endurtaka eigi gönguferð til út-
landa segir hún að þær vinkonur í
saumaklúbbnum séu ákveðnar að
fara aftur og þá verður eiginmönn-
unum líklega boðið með.
Gönguferðin í Fjörður eftirminnileg
En Ásta er einnig í gönguhópi og
hefur töluvert gert af því að fara í
nokkurra daga ferðir hér innan-
lands eins og Laugaveg, á Víkna-
slóðir, Öskjuveg og í sumar gekk
hún um Héðinsfjörð og í Hvanndal.
Þegar hún er spurð hvort einhver
gönguferð standi upp úr segir hún
að líklega sé gangan í Fjörður fyrir
norðan sú sem sér sé efst í huga.
„Þá ferð fór ég í fyrir nokkrum
árum en eins og í gönguferðinni á
Spáni þá skapaðist skemmtileg
stemning í gönguferðinni í Fjörður.
Það var í rauninni ævintýraferð frá
upphafi til enda. Andrúmsloftið var
létt og skemmtilegt og svo var
náttúrufegurðin mikil. Þar voru
það Fjörðungar á Grenivík sem
skipulögðu og trússuðu fyrir okkur
á hestum. Þeir slógu upp grill-
veislu, sungu og skemmtu okkur á
einstakan hátt og það átti sinn þátt
í að gera ferðina eftirminnilega.“
Gekk í sumar um þjóðgarða á Spáni og Héðinsfjörð
Niður kráku-
stíga í snar-
brattri fjallshlíð
Þegar dúkameistarinn fann áningarstað og kræsingar
voru dregnar fram úr bakpokunum skapaðist oft góð
stemmning segir Ásta Sæmundsdóttir sem gekk í sum-
ar með saumaklúbbnum sínum um þjóðgarða í Pýren-
eafjallgarðinum.
Ljósmynd/ÁÁS
Á göngu í Ordesaþjóðgarðinum í Aragóníu.
Hér eru saumaklúbbssysturnar á göngu. Ásta Ásdís Sæmundsdóttir, Margrét
Matthíasdóttir, Ragna Þórhallsdóttir, Erla Guðjónsdóttir og Valgerður Björns-
dóttir. Þær keyptu sér alla sérstaka hatta merkta Morgunblaðinu og skrifuðu
nöfnin sín á þá.
Í hádeginu var breiddur út vaxdúkur og úr bak-
pokum dró fólk upp dýrindis kræsingar..
„Þegar ánægðir gestir kveðja þá fer
um mig notaleg tilfinning sem má
segja að sé í raun ástæðan fyrir því
að ég er í þessu starfi,“ segir Sigrún
Lára Hauksdóttir sem ásamt fjöl-
skyldu sinni rekur hótel Heklu á
Skeiðum sem áður hét Brjánsstaðir.
Það er auðséð að Sigrún er búin
að setja sinn svip á vistarverurnar.
Blóm eru komin á borð, litlir englar
gægjast fram af skápum og úr hill-
um og yfirbragðið er hlýlegt.
Hótelið getur tekið á móti 72
gestum og Sigrún segir að nú sé það
í stakk búið til að taka á móti hvers-
kyns ráðstefnum því búið er setja
upp öll nauðsynleg nútímatæki í
ráðstefnusalinn eins og stórt sýn-
ingartjald, skjávarpa og mynd-
bandstæki og búið að koma fyrir
þráðlausri nettengingu á allt hót-
elið.
Nýta það sem ferskast er
Á hótel Heklu verður lögð rækt
við matargerðina og Jóhannes Guð-
mundsson matreiðslumeistari hefur
gengið til liðs við fjölskylduna en
hann mun verða yfirmatreiðslu-
meistari hótelsins.
„Það verður mikil áhersla lögð á
góðan mat á hótel Heklu og byrjað á
morgunverðinum. Þar verðum við
yfirleitt með heimabakað brauð, úr-
val osta og álegg og leggjum okkur
fram um að bera matinn fram fal-
lega.
Á kvöldin verðum við með veit-
ingastaðinn opinn þannig að fólk
getur komið og fengið sér að borða
hjá okkur þó það gisti ekki.
Við nýtum það sem ferskast er á
hverjum árstíma og njótum til
dæmis góðs af því að vera með sjáv-
arþorp nærri og geta boðið ferskan
fisk og síðan er lambakjötið í uppá-
haldi.
Síðustu vikuna í október ætlar
síðan Guðmundur Björnsson læknir
að vera með námskeið hjá okkur og
fara í mataræði án kolvetna. Þá get-
ur fólk dvalið hjá okkur allt frá einni
nótt og upp í viku og hlustað á fyr-
irlestra og fengið mat að borða sem
passar og einnig lært að matbúa
fæðu þar sem kolvetni koma ekki
við sögu.“ Hún tekur þó fram að
meðfram kolvetnissnauðu fæði verði
venjulegur matseðill á boðstólum
svo slíkt fæði standi ekki eingöngu
til boða. Allar helgar í nóvember
verður síðan boðið upp á villibráð-
arhlaðborð og tvær helgar í desem-
ber verður hægt að koma á Hótel
Heklu í jólahlaðborð. Sigrún upp-
lýsir að í október ætli leikarar og
tónlistarfólk að koma og vera með
spuna fyrir gesti, glens og tónlist.
Þar sem hótel Hekla mun á virk-
Brjánsstaðir fyrrverandi heita nú Hótel Hekla
Villibráð, ráðstefnur og kyrrðardagar framundan
Það var glampandi sólskin þegar sr.
Axel Árnason sóknarprestur í Stóra-
núpsprestakalli framkvæmdi hús-
blessun á hótel Heklu um síðustu
helgi. Guðbjörg R. Guðmundsdóttir
hreifst af nútímalegri ráðstefnuað-
stöðu, villibráðarhlaðborði, hug-
myndaríkum hótelstjóra og ein-
stökum englum. Hótel Hekla mun á virkum dögum yfir vetrartímann leggja áherslu á að taka á móti ráðstefnu- og fundagestum.