Morgunblaðið - 21.09.2003, Blaðsíða 10
10 C SUNNUDAGUR 21. SEPTEMBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ
SALA Tilboð óskast í húseign
Vegagerðarinnar ásamt tilheyrandi
lóðarréttindum á Dufþaksbraut 10,
Hvolsvelli
Sala 13342 á húseign Vegagerðarinnar
ásamt tilheyrandi lóðarréttindum á
Dufþaksbraut 10, Hvolsvelli
Um er að ræða atvinnuhúsnæði að hluta til á
tveimur hæðum, 373,6 m² að stærð byggt árið
1974 úr timbri, brunabótamat kr. 28.839.000 og
fasteignamat kr. 10.967.000.
Lóðin er leigulóð ca 10.000.000 m² að stærð.
Áætlaður afhendingartími er 1. mars 2004.
Upplýsingar eru veittar hjá Ríkiskaupum sími
530 1412, þar sem tilboðseyðublöð liggja fram-
mi ásamt reglum um útfyllingu kauptilboðs-
eyðublaða.
Tilboð skulu berast Ríkiskaupum á þar til gerð-
um tilboðseyðublöðum fyrir kl. 11.00 þann
14. október 2003 þar sem þau verða opnuð í við-
urvist þeirra bjóðenda er þess óska.
SALA Tilboð óskast í húseignir
Vegagerðarinnar og lóð
(byggingarlóð) ca 6 ha að stærð
á Stórhöfða 34-40 í Reykjavík
Sala 13341 á húseignum Vegagerðarinnar
og lóð (byggingarlóð) 6 ha að stærð
á Stórhöfða 34-40 í Reykjavík
Um er að ræða skrifstofubyggingu 528 m² að
stærð, byggða árið 1979, steinsteypta á tveimur
hæðum, brunabótamat kr. 51.357.000 og fa-
steignamat kr. 40.537.000, sex stálgrindarhús
hvert að stærð 308 m², byggð árin 1962 og 1964,
brunabótamat hvers húss er kr. 17.196.000 og
fasteignamat er kr. 14.376.000 og vörugeymslu
að stærð 79,8 m², byggða úr timbri árið 1984,
brunabótamat kr. 4.239.000 og fasteignamat
kr. 3.155.000.
Lóðin, sem er eignarlóð, er ca 6,2 ha að stærð,
fyrirliggjandi er deiliskipulag af svæðinu unnið
af arkitektastofunni Arkís ehf.
Áætlaður afhendingartími er 1. júní 2004.
Upplýsingar eru veittar hjá Ríkiskaupum, sími
530 1412, þar sem tilboðseyðublöð liggja fram-
mi ásamt reglum um útfyllingu kauptilboðs-
eyðublaða og endurskoðuðu deiliskipulagi, skil-
málar, Ártúnshöfða-eystri, dags. í maí 2002.
Tilboð skulu berast Ríkiskaupum á þar til gerð-
um tilboðseyðublöðum fyrir kl. 11.00 þann
14. október 2003, þar sem þau verða opnuð í
viðurvist þeirra bjóðenda er þess óska.
TILBOÐ / ÚTBOÐ
SALA Tilboð óskast í jörðina
Straum, Skógarströnd, Dalabyggð,
Snæfellsnessýslu
Sala 13390 Straum, Skógarströnd, Dala-
byggð, Snæfellsnessýslu.
Um er að ræða jörðina Straum, Skógarströnd,
Dalabyggð, Snæfellsnessýslu (án greiðslu-
marks). Á jörðinni er bárujárnsklætt einbýlishús
byggt árið 1944 í mjög lélegu ástandi, önnur
hús á jörðinni eru talin ónýt.
Jörðin og húsakosturinn eru til sýnis í samráði
við Ríkiskaup, Borgartúni 7, 105 Reykjavík, í
síma 530 1412. Tilboðseyðublöð liggja frammi
á sama stað ásamt reglum um frágang og útfyll-
ingu á tilboðseyðublaði.
Tilboð skulu berast á þar til gerðum tilboðseyðu-
blöðum fyrir kl. 11.00 þann 7. október 2003 þar
sem þau verða opnuð í viðurvist þeirra bjóðenda
er þess óska.
Velferðarsjóður barna
Útboð
F.h. Velferðarsjóðs barna er óskað
eftir tilboðum í innréttingu deildar
fyrir langveik börn „Rjóður“ í hús-
næði LSH Kópavogi.
Lauslegt yfirlit um verkið:
Húsnæðið er alls um 450 m². Gera þarf
breytingar á húsnæðinu. Í dag er ekki
starfsemi í húsnæðinu og búið verður að
brjóta og fjarlægja létta veggi, fjarlægja
lausan búnað og tæki. Brjóta þarf og saga
steypta veggi. Endurnýja þarf allar hurðir,
hluta af gluggum og innveggjum. Leggja
þarf nýjar þrifa-, neysluvatns-, loftræsi-
og gaslagnir í stærstum hluta húsnæðis-
ins, svo og að leggja þar smáspennu- og
lágspennulagnir. Endurnýja skal allar inn-
réttingar, gólf- og loftaefni.
Verklok eru 10. febrúar 2004.
Útboðsgögn verða afhent hjá Verkfræði-
stofu Sigurðar Thoroddsen hf., Ármúla
4, 108 Reykjavík, s. 569 5000, frá og með
þriðjudeginum 23. september 2003.
Verð útboðsgagna er kr. 5.000.
Tilboð verða opnuð á sama stað þriðju-
daginn 14. október 2003 kl. 14:00.
Verðkönnun
Gasfélagið ehf. vill hér með kanna áhuga verk-
taka og afla upplýsinga um verð fyrir útkeyrslu
og vörudreifingu félagsins á höfuðborgar-
svæðinu og Suðurnesjum í 3 ár frá 1. desem-
ber 2003 til 30. nóvember 2006.
Gögn varðandi verðkönnun þessa verða afhent
hjá Ferli ehf., Mörkinni 1, 108 Reykjavík.
Upplýsingum skal skila til starfsstöðvar Gas-
félagsins í Straumsvík fyrir kl. 14:00 mánudag-
inn 6. október 2003.
ÚU T B O Ð
Þjóðminjasafn Íslands - Innréttingar
Forval nr. 13395
Framkvæmdasýsla ríkisins, f.h. byggingarnefndar
Þjóðminjasafns Íslands, óskar eftir aðilum til að
taka þátt í lokuðu útboði vegna smíði og uppsetn-
ingu innréttinga í Þjóðminjasafn Íslands við Suð-
urgötu.
Smíða á innréttingar fyrir grunnsýningu Þjóð-
minjasafnsins og setja upp á verkstað. Innrétt-
ingar eru smíðaðar úr spónlögðum við, gleri,
stáli og öðrum sértilgreindum efnum. Glerþráða-
lýsing er innfelld í innréttingar ásamt ljósgjöfum.
Innréttingar samanstanda af 80 stöðvum sem
eru sérgerðar til framsetningar á ólíkum sýning-
arþáttum. Forsmíða skal einingar fyrir hverja
stöð. Stöðvum skal skilað fullbúnum til innsetn-
ingar sýningarmuna.
Verkið skal lokið í febrúar 2004.
Forvalsgögn eru til sýnis og sölu á kr. 2.000 hjá
Ríkiskaupum, Borgartúni 7C, 105 Reykjavík. Skila
skal umbeðnum upplýsingum á sama stað eigi
síðar en 6. október 2003 fyrir kl. 11:00.
ÚU T B O Ð
Fjármálaráðuneytið Arnarhvoli
Endurinnrétting 2. hæðar
Útboð nr. 13400
Framkvæmdasýsla ríkisins, f.h. fjármálaráðu-
neytisins, óskar eftir tilboðum í endurinnréttingu
hluta 2. hæðar. Um er að ræða um 575 m² í Arn-
arhváli, Sölvhólsgötu 7, 101 Reykjavík. Rífa skal
veggi á nokkrum stöðum á hæðinni og fjarlægja
eða færa til innihurðir ásamt að loka nokkrum
núv. hurðagötum.
Fjarlægja skal núv. niðurtekna loftaklæðningu
ásamt öllum lömpum. Fjarlægja skal gólf-
efni (kork) að stórum hluta og setja upp nýtt
niðurtekið loft ásamt nýjum lömpum. Smíða
skal nýja létta innveggi, nýja afgreiðslu og inn-
réttingu í kaffikrók. Breyta skal raflögnum vegna
breytinga á veggjum, leggja skal nýtt gólfefni
ásamt málun húsnæðisins.
Helstu magntölur eru:
Rif veggja 122 m²
Rif hurða 10 stk.
Rif gólfefna 313 m²
Nýir léttir innveggir 113 m²
Niðurtekið loftakerfi 541 m²
Nýtt gólfefni 313 m²
Vettvangsskoðun verður haldin 30. september
kl. 14.00 að viðstöddum fulltrúa verkkaupa.
Verkinu skal vera að fullu lokið eigi síðar en
16. desember 2003.
Útboðsgögn verða til sýnis og sölu á
kr. 3.500 hjá Ríkiskaupum, Borgartúni 7C,
105 Reykjavík.
Tilboðin verða opnuð hjá Ríkiskaupum 9. októ-
ber 2003 kl. 14.00 að viðstöddum þeim bjóðend-
um, sem þess óska.